Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 36
36 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 60 ára Guðbjörg er frá Selfossi en býr í Reykjavík. Hún vinnur hjá Skólamat. Maki: Sigurdór Már Stefánsson, f. 1959, húsvörður á Skúlagötu 20. Börn: Eggert Már Sigurdórsson, f. 1981, Agústa Arna Sigurdórsdóttir, f. 1986, og Brynjar Örn Sigurdórsson, f. 1989. Barnabörn: Sigurdór Helgi, Sigurður Trausti, Stefán Örn, Sóley Margrét og Gunnar Breki. Foreldrar: Guðmundur Lárus Jóhanns- son, f. 1931, d. 2015, mjólkurbílstjóri, og Arnbjörg Þórðardóttir, f. 1938, búsett á Selfossi. Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er margt skemmtilegt á dag- skránni hjá þér og þú átt það alveg skilið að gefa þér smátíma til þess að njóta her- legheitanna. 20. apríl - 20. maí  Naut Notaðu daginn í verslun. Efastu ekki um hæfileika þína. Gefðu þér tíma til þess að kynna þér mál og þá verður fram- kvæmdin árangursrík og örugg. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú mátt finna til svolítið meira sjálfstrausts því það skemmir fyrir þér hversu reikul/l og hikandi þú ert. Farðu út í náttúruna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gerðu meiri kröfur til annarra. Heimilisaðstæður þínar eru svo breyttar og krefjandi að aðrir verða að grípa inn í. Gamalt leyndarmál veldur þér áhyggjum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Að gefa endalaust hugmyndir þínar og tíma án þess að fá neitt í staðinn er ekki nógu gott. Einbeittu þér að því að gera það sem þú gerir best. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Atburðarás dagsins mun leiða þig á stað þar sem þú hefur aldrei komið áður. Sjálfsstjórn þín mun vekja virðingu ann- arra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu þér tíma fyrir sjálfa/n þig. Hug- arró er það sem þú þarfnast. Prófaðu að íhuga eða farðu í jóga og gáðu hvort það hjálpar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér finnst að þú verðir að finna upp á einhverju til að fá útrás fyrir sköpunargáfuna. Ástamálin eru í uppnámi þessar vikurnar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt erfitt með að sannfæra aðra um ágæti hugmyndar þinnar. Maki þinn styður þig hins vegar heilshugar. Reynið að finna út úr hlutunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ein frumleg hugmynd getur kollvarpað öllu, ekki síst peningamál- unum. Njóttu frelsisins sem þú býrð við. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Peningar renna milli fingranna á þér um þessar mundir vegna óvæntra útgjalda. Farðu að öllu með gát í akstri, göngu eða hjólreiðum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur verið erfitt að eiga við andstæðing sem er svo líkur manni að furðu sætir. Ekki hafa áhyggjur af ung- lingnum, hann spjarar sig sjálfur. Ó lafur Ólafsson fæddist 5. maí 1924 í Syðstu- Mörk undir Vestur- Eyjafjöllum. Hann ólst þar upp í foreldra- húsum við almenn sveitastörf þess tíma og fór snemma að vinna utan heimilisins. Ólafur stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni 1942-44 og við Samvinnuskólann í Reykjavík 1944-46. Ólafur hóf störf hjá Kaupfélagi Hallgeirseyjar á Hvolsvelli 1946 sem heitir Kaupfélag Rangæinga frá 1948 er það var sameinað Kaup- félagi Rangæinga á Rauðalæk. Þar var Ólafur afgreiðslumaður, síðan deildarstjóri, þá fulltrúi kaupfélags- stjóra og loks útibússtjóri á Rauða- læk. Ólafur flutti til Ólafsfjarðar 1959 þar sem hann var kaupfélagsstjóri til 1965. Þá flutti hann aftur á Hvolsvöll og var þar kaupfélags- stjóri Kaupfélags Rangæinga til 1989 er hann lét af störfum. Ásamt eiginkonu sinni, Rann- veigu Júlíönnu Baldvinsdóttur, byggði Ólafur og rak Hótel Hvols- völl á Hvolsvelli um árabil. Ólafur rak bókhaldsþjónustu á heimili sínu frá 1989-2018 þar sem hann sinnti aðallega framtals- og bókhaldsþjónustu fyrir bændur og smærri fyrirtæki. Ólafur sat í bæjarstjórn og bæj- arráði Ólafsfjarðar 1962-64, var lengi formaður Framsóknarfélags Rangæinga, átti sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins um árabil, sat í stjórn kjördæmissambands fram- sóknarmanna í Suðurlands- kjördæmi og var varaþingmaður eitt kjörtímabil. Hann sat í nokkur ár í stjórn Vinnumálasambands samvinnufélaganna og í stjórn Meitilsins hf. í Þorlákshöfn. Ólafur var með afskaplega græna fingur, alla tíð ræktaði hann alls kyns gróður og matjurtir. Garður þeirra hjóna Ólafs og Rannveigar við Öldugerði 18 bar þess greinileg merki, enda voru sumarblóm í miklu uppáhaldi hjá Ólafi, og rækt- aði hann blóm í garði sínum allt til ársins 2018. Rannveig lést árið 2009 en Ólafur bjó frá þeim tíma og þar til í október á síðasta ári einn á heimili sínu í Öldugerði þar til hann flutti á Dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli. Ólafur byggði ásamt fjölskyldu sinni upp sumarbústað á æskuslóðum sínum í Syðstu-Mörk þar sem núna er sælureitur stór- fjölskyldunnar og mikil skógrækt. Fjölskylda Ólafur kvæntist 29. október 1955 Rannveigu Júlíönnu Baldvins- dóttur, f. 22. ágúst 1933, d. 12. des- ember 2009, húsmóður. Hún var dóttir hjónanna Baldvins Guðna Jó- hannessonar, 29. október 1895, d. 10. desember 1971, sjómanns í Ólafsfirði, og Sigfríðar Björns- dóttur, f. 18. febrúar 1898, d. 3. október 1978, húsmóður og verka- konu í Ólafsfirði. Börn Ólafs og Rannveigar Júl- íönnu eru: 1) Ólafur, f. 14. febrúar 1955, tæknifræðingur í Reykjavík, kvæntur Jakobínu Vilhelmsdóttur sjúkraliða og eiga þau tvær dætur; 2) Baldvin Guðni, f. 11. maí 1956, búsettur í Taílandi, og á hann tvö börn; 3) Ásta Halla, f. 14. nóvember 1962, hársnyrtir á Hvolsvelli, gift Ólafur Ólafsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri – 95 ára Fjölskyldan Ólafur ásamt börnum og barnabörnum í jólaboði á heimili hans í Öldugerði árið 2013. Ræktaði garðinn sinn alla tíð Veiðimaðurinn Ólafur við veiðar í Eystri-Rangá árið 2015. 40 ára Egill er Hafn- firðingur en býr í Kópavogi. Hann er doktor í orkuauðlinda- verkfræði og er verk- efnastjóri hjá Lands- virkjun. Maki: Lára Kristín Kristinsdóttir, f. 1983, ráðgjafi fyrir Stekk fjárfestingarfélag. Börn: Patrekur, f. 2010, Aðalsteinn, f. 2015, og Júlíus, f. 2017. Foreldrar: Júlíus Birgir Kristinsson, f. 1952, fjármálastjóri hjá ORF líftækni, og Svanhvít Aðalsteinsdóttir, f. 1954, sér- fræðingur á laga- og stjórnsýslu- skrifstofu hjá utanríkisráðuneytinu. Þau er búsett í Reykjavík. Egill Júlíusson Til hamingju með daginn Rauðager ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Kæli- & frystiklefar og allt tilheyrandiHurðirHillur Strimlahurðir Kæli- & frysti- kerfi Blásarar & eimsvalar Læsingar, lamir, öryggiskerfi ofl. Áratuga reynsla og þekking Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.