Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 40
Á HLÍÐARENDA Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Miklu er búist við af Valskonum á Ís- landsmótinu í knattspyrnu í sumar og þær stóðu heldur betur undir vænt- ingum í fyrsta leik. Þór/KA kom þá í heimsókn að Hlíðarenda þar sem úr varð markaveisla í 5:2-sigri Vals í skemmtilegum leik. Það var þó lítið í fyrri hálfleik sem benti til þess að um stórsigur Vals yrði að ræða. Valur byrjaði leikinn vissulega vel, en eftir tvö glæsimörk Þórs/KA utan teigs snerist allur byrinn í bak norð- ankvenna. Þær hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk en voru þó 2:1 yfir í hálfleik. Það var hins vegar ljóst strax frá upphafsflautinu eftir hlé að Valskonur ætluðu að svara fyrir sig og það skilaði sér í fjórum mörkum. Hlín Eiríksdóttir skoraði þrennu fyrir Val og orðaði það vel í viðtali við Morgunblaðið eftir leik þegar hún sagði að Valsliðið þyrfti að standa undir öllu talinu um gæðin sem eru sögð búa í liðinu. Það er líka ekki sagt út í loftið, en aðeins einn leikmaður í byrjunarliði Vals í gær átti ekki A- landsleik að baki. Í seinni hálfleik í gær sýndi liðið svo og sannaði hvað í því býr, sérstaklega fram á við, og ef það nær þessum takti í sumar er von á góðu á Hlíðarenda. Allur botn datt úr leik Þórs/KA eft- ir að Valur skoraði tvö mörk á fyrstu mínútum seinni hálfleiks. Það seinna klaufalegt sjálfsmark. Nýr hol- lenskur framherji, Iris Achterhof, var þá sett inn á til þess að fríska upp á sóknarleikinn en hefði alveg eins get- að setið áfram á bekknum. Það er þó jákvætt að sjá hvað Andrea Mist Pálsdóttir og Lára Kristín Pedersen náðu vel saman á miðjunni þrátt fyrir að hafa ekkert spilað saman í vetur. Þeirra samvinna mun skipta sköpum í sumar. Slógu tóninn fyrir sumarið á Hlíðarenda  Fimm mörk og þrenna í fyrsta leik Morgunblaðið/Hari Stórsigur Valskonur fagna einu af fimm mörkum sínum gegn Þór/KA í leiknum í gær. Hlín Eiríksdóttir, lengst til hægri, skoraði þrennu. 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND – ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR, NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR – Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir Bókanir: fundir@islandshotel.is Svíþjóð Fyrsti úrslitaleikur: Södertälje – Borås .............................. 92:81  Jakob Örn Sigurðarson tók 1 frákast fyr- ir Borås og lék í 21 mínútu.  Staðan er 1:0 fyrir Södertälje. Spánn B-deild karla: Barcelona B – Bilbao .......................... 76:84  Kári Jónsson lék ekki með Barcelona vegna meiðsla. Frakkland B-deild: Evreux – París ..................................... 90:70  Frank Aron Booker skoraði 11 stig fyrir Evreux, átti 5 stoðsendingar og tók 1 frá- kast á 26 mínútum. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Philadelphia – Toronto ...................... 116:95  Staðan er 2:1 fyrir Philadelphia. KÖRFUBOLTI Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari, á þriðja og síð- asta hringnum á Omega Dubai Mo- onlight Classic-mótinu á Evrópu- mótaröðinni í golfi í gær. Valdís hafnaði í 29. sæti mótsins á samanlagt þremur höggum yfir pari, eftir sveiflukennda þrjá hringi. Hún bætti það hins vegar upp með glæsilegum hring í gær og var á meðal bestu kylfinga á þriðja hring. Valdís fær um 2.500 evrur fyrir mótið, tæpar 340.000 krónur. johanningi@mbl.is Valdís lék vel á lokahringnum Ljósmynd/LET Öflug Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel á lokahringnum í Dubai í gær Suður-afríska hlaupakonan Caster Semenya kom fyrst í mark í 800 metra hlaupi á Demantamóti í frjáls- um íþróttum í Dóha. Semenya hafði mikla yfirburði og hljóp á 1:54,98 mínútu, sem er besti tími ársins. Hún var tæpum þremur sekúndum á und- an Francine Niyonsaba. Semenya var að hlaupa í síðasta skipti áður en hún þarf að taka lyf sem bælir niður te- stósterónmagnið í líkama hennar. Al- þjóða frjálsíþróttasambandið hefur innleitt nýjar reglur, þar sem konur með hátt testósterónmagn þurfa að taka lyf sem heldur því niðri. Semenya fyrst á besta tíma ársins AFP Langfyrst Caster Semeny vann með miklum yfirburðum í Dóha. 1:0 Hlín Eiríksdóttir 7. 1:1 Karen M. Sigurgeirsdóttir 27. 1:2 Andrea Mist Pálsdóttir 33. 2:2 Fanndís Friðriksdóttir 48. 3:2 Sjálfsmark 54. 4:2 Hlín Eiríksdóttir 70. 5:2 Hlín Eiríksdóttir 85. I Gul spjöldHlín (Val), 68. (brot), Elín Metta (Val) 90. (brot). MM Hlín Eiríksdóttir (Val) M Ásgerður St. Baldursdóttir (Val) Elín Metta Jensen (Val) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Hallbera Guðný Gísladóttir (Val) Margrét Lára Viðarsdóttir (Val) Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) Lára Kristín Pedersen (Þór/KA) VALUR – ÞÓR/KA 5:2 Valur: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurð- ardóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Guðný Árnadóttir, Lillý Rut Hlyns- dóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja: Ásgerður S. Baldursdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir (Guðrún K. Sigurðardóttir 88), Dóra María Lárusdóttir (Mist Edvardsdóttir 83). Sókn: Hlín Eiríksdóttir, Elín Metta Jensen, Fanndís Friðriksdóttir (Berg- dís Fanney Einarsdóttir 88). Þór/KA: (4-3-3) Mark: Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir . Vörn: Hulda B. Hannesdóttir, Bianca Sierra, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Lára Einarsdóttir (Rut Matthíasdóttir 70). Miðja: Andrea M. Pálsdóttir, Lára K. Ped- ersen, Karen M. Sigurgeirsdóttir. Sókn: Hulda Ósk Jónsdóttir (María C. Ólafsdóttir Gros 74), Margrét Árnadóttir (Iris Achterhof 57), Stephany Mayor. Dómari: Gunnþór S. Jónsson, 8. Áhorfendur: Óuppgefið. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Kórinn: HK – Breiðablik........................ L16 Greifavöllur: KA – Valur ........................ S16 Meistaravellir: KR – ÍBV....................... S17 Grindavík: Grindavík – Stjarnan ...... S19.15 Würth-völlur: Fylkir – ÍA ................. S19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Leiknisvöllur: Leiknir R. – Magni ........ L16 Þórsvöllur: Þór – Afturelding................ L16 Nettóvöllur: Keflavík – Fram ................ S14 Extra-völlur: Fjölnir – Haukar ............. S14 Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Grótta ........ S14 Eimskipsv.: Þróttur R. – Njarðvík........ S14 2. deild karla: Hertz-völlur: ÍR – Leiknir F ............ L13.30 Jáverkvöllur: Selfoss – Vestri ............... L14 Nesfiskvöllur: Víðir – KFG.................... L14 Fjarðab.höll: Fjarðab. – Tindastóll ...... L16 Akraneshöll: Kári – Völsungur ............. L16 Vogar: Þróttur V. – Dalvík/Reynir........ S15 3. deild karla: Europcarvöllur: Reynir S. – Sindri....... L14 Valsvöllur: KH – Augnablik .................. L14 Borgarnes: Skallagrímur – Einherji .... L15 Bessastaðavöllur: Álftanes – KF .......... L16 Framv.: Kórdrengir – Höttur/Huginn.. S14 Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikar kvenna: Eimskipsv.: Þróttur R. – Fjölnir........... L14 Höfn: Sindri – Fjarð/Hött/Leikn........... S14 Vogar: Þróttur/Víðir – Haukar.............. S19 KÖRFUKNATTLEIKUR Oddaleikur um Íslandsmeistaratitil karla: DHL-höllin: KR – ÍR (2:2)..................... L20 HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, þriðji leikur: Schenker-höll: Haukar – ÍBV (1:1) ....... S16 Umspil karla, þriðji leikur: Víkin: Víkingur – HK (2:0) ..................... S18 UM HELGINA! Adam Haukur Baumruk úr Haukum og Róbert Sigurð- arson úr ÍBV verða báðir í leikbanni í þriðja leik félag- anna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik á morgun og tveir leikmenn til viðbótar gætu farið í bann. Fjögur rauð spjöld fóru á loft í öðrum leik liðanna í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld, þar sem ÍBV vann 32:30. Adam og Róbert voru reknir af velli, sem og þeir Darri Aronsson úr Haukum og Kári Kristján Kristjánsson úr ÍBV. Mál Adams og Róberts voru afgreidd á fundi aga- nefndar í gær. Ástæða þess að þeir fengu eins leiks bann er sú að þetta var í þriðja sinn á tímabilinu sem þeir fá rautt spjald í leik. Kemur þar til stighækkandi áhrifa vegna útilokunar. Mál Darra og Kára verða tekin fyrir að nýju á fundi aganefndar í dag. Báðir voru þeir úrskurðaðir í eins leiks bann en málinu frestað á meðan beðið er sjónarmiða og athugasemda viðkomandi félaga. Brot þeirra þóttu grófari og féllu undir reglu 8.6 en ekki 8.5, en verulegur munur er á eðli þessara brota. sport@mbl.is Allt að fjórir í banni á morgun Darri Aronsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.