Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 41

Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 41
Á HLÍÐARENDA Ívar Benediktsson iben@mbl.is Valsmenn eru komnir með bakið upp að veggnum fræga eftir annan eins marks ósigur fyrir Selfossi í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í Origo-höllinni í gærkvöldi, 32:31. Þriðja viðureign liðanna verður á Selfossi á mánu- dagskvöldið og tapi Valur henni einnig tryggir Selfoss sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins. Eins og á þriðjudagskvöldið buðu bæði liðin upp á mikla skemmtun í gærkvöldi. Fyrri hálf- leikur var stórskemmtilegur af hálfu beggja liða. Hraður og kraftmikill leikur, enda var skorað liðlega eitt mark á mínútu. Áhorf- endur, sem fjölmenntu í Origo- höllina, voru vel með á nótunum, svo ekki skemmdi stemningin fyr- ir fjörinu. Vart mátti á milli þeirra sjá en Selfoss-liðið var þó lengst af með eins marks forystu eftir að Val- urvar sterkari á fyrstu mínútum. Sóknarleikurinn var í aðal- hlutverki. Hraðaupphlaup voru mörg og gekk misjafnlega hjá lið- unum að nýta þau. Staðan var 16:15 fyrir Selfoss í hálfleik. Síðari hálfleikur var einnig hnífjafn og spennandi. Eftir það var jafnt á öllum tölum þar til tæpar tíu mín- útur voru til leiksloka. Þá komst Selfoss þremur mörkum yfir, 27:24. Aftur jöfnuðu Valsmenn en þeim tókst aldrei að komast yfir. Selfoss náði tveggja marka for- skoti, 30:28, tveimur mínútum fyr- ir leikslok. Þann mun náði Valur aldrei að jafna. Árni Steinn Steinþórsson fékk rauða spjaldið þegar sjö mínútur voru eftir og olnbogi hans slóst í kinnina á Alexander Erni Júl- íussyni, Valsmanni, þegar Árni Steinn sótti að marki Vals. Mikið blæddi úr Alexander. Ólíklegt var talið í gær að afleiðingar höggsins hefðu áhrif á þátttöku hans í leiknum á mánudaginn. Sölvi Ólafsson átti frábæran leik í marki Selfoss en nokkuð hefur vantað upp á að markvarsla Sel- foss-liðsins hafi verið viðunandi á keppnistímabilinu. Hann varði 18 skot. Annars lögðu allir leikmenn Selfoss eitthvað til málanna í leiknum sem var liðinu mikilvægt þótt það hafi innan sinna raða tvo magnaða handknattleiksmenn í þeim Elvari Erni Jónssyni og Hauki Þrastarsyni. Valsliðið tapaði nokkrum smáum atriðum sem reyndust dýr þegar upp var staðið. Liðið lék vel og þar voru fremstir Róbert Aron Hostert, Anton Rúnarsson og Vignir Stefánsson. Betri nýting á hröðum upphlaupum hefði senni- lega riðið baggamuninn fyrir Vals- menn. Smáatriðin féllu með Selfossi  Valsmenn verða að sækja sigur á erfiðan útivöll á mánudagskvöldið Morgunblaðið/Hari Erfiður Selfyssingurinn Haukur Þrastarson var Valsmönnum erfiður sem fyrr. Hér hefur hann snúið á Ými Örn Gíslason og Róbert Aron Hostert. Haukur skoraði sex mörk og lagði grunn að mörgum fyrir samherjana. ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 VERKFÆRADAGAR afsláttur á rafmagns- verkfærum 50% Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16  Alþjóðadómarinn Anton Gylfi Páls- son er á sjúkralistanum nú í miðri úr- slitakeppni karla á Íslandsmótinu í handknattleik. Anton meiddist á kálfa á dögunum og dæmir í það minnsta ekki á næstu dögum. Félagi hans Jón- as Elíasson mun þó væntanlega taka að sér einhver verkefni á meðan Anton er frá. Vonir standa til þess að Anton gæti mögulega beitt sér þegar líður á vikuna.  Víkingar í Ólafsvík bættu dönskum framherja í hóp sinn í gær, fyrir keppn- ina í 1. deild karla í knattspyrnu, en þeir taka á móti Gróttu í fyrstu um- ferðinni á morgun. Hann heitir Jacob Andersen, 25 ára gamall, og lék síðast með Egersund í norsku C-deildinni.  Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís- landsmeistari í golfi, er í 47. sæti ásamt um 20 öðrum kylfingum eftir fyrsta hring á VP Bank Ladies Open- mótinu á LET-Acess-Evrópumótaröð- inni. Leikið er í Sviss. Guðrún lék á 74 höggum eða á tveim- ur höggum yfir pari. Guðrún fékk þrjá fugla, fimm skolla og ellefu pör á holunum 18. Berglind Björns- dóttir er einnig á meðal keppenda á mótinu en hún náði sér ekki á strik í dag og lék á 81 höggi, níu höggum yfir pari, og er á meðal neðstu kylfinga. Eitt ogannað Origo-höllin, undanúrslit karla, annar leikur, föstudag 3. maí 2019. Gangur leiksins: 3:3, 6:7, 7:8, 10:10, 13:14, 15:16, 15:18, 19:19, 22:21, 24:26, 27:27, 31:32. Mörk Vals: Anton Rúnarsson 9/2, Róbert Aron Hostert 7, Vignir Stef- ánsson 6, Sveinn Aron Sveinsson 5/1, Ásgeir Snær Vignisson 2, Ým- ir Örn Gíslason 1, Stiven Tobar Val- encia 1. Varin skot: Daníel Freyr Andr- ésson 9, Einar Baldvin Baldvinsson 7. Valur – Selfoss 31:32 Utan vallar: 14 mínútur. Mörk Selfoss: Elvar Örn Jóns- son 8/2, Haukur Þrastarson 6, Hergeir Grímsson 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Alexander Már Egan 4, Guðni Ingvarsson 2, Atli Ævar Ingólfsson 1. Varin skot: Sölvi Ólafsson 18/2. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson. Áhorfendur: 1.100.  Staðan er 2:0 fyrir Selfoss.. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Miðað við frammistöðu liðanna í fyrstu umferð Íslandsmóts karla í knattspyrnu er viðureign Fylkis og ÍA áhugaverðasti leikur helgar- innar í Pepsi Max-deildinni en liðin mætast í Árbænum annað kvöld. Fylkir og ÍA eru í tveimur efstu sætum stigatöflunnar eftir eina um- ferð, hversu mikið mark er takandi á því er annað mál, en bæði lið skor- uðu þrjú mörk á fyrsta leikdeginum og koma af miklum krafti inn í þetta Íslandsmót. Fylkir, með Sam Hewson í aðal- hlutverki, vann ÍBV 3:0 í Eyjum og nýliðar Skagamanna lögðu KA 3:1 á Akranesi þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö markanna. Fylkismenn eiga Geoffrey Castill- ion til góða frá fyrstu umferðinni en hann spilaði gegn Gróttu í bik- arnum í vikunni og fróðlegt verður að sjá til hans í appelsínugula bún- ingnum. Ef sigurvegari fæst úr þessum leik gæti hann trónað á toppnum eftir tvær umferðir.  HK og Breiðablik mætast í dag í fyrsta Kópavogsslag deildarinnar frá árinu 2008. Nú er HK á heima- velli í Kórnum en á árum áður var Kópavogsvöllur heimavöllur beggja liðanna. Blikar byrjuðu mót- ið á 2:0-sigri í Grindavík en HK á 2:0-tapi í Kaplakrika.  KA tekur á móti Íslandsmeist- urum Vals á morgun og aldrei hef- ur verið leikið jafn snemma á Ak- ureyrarvelli. Bæði lið hafa talsvert að sanna eftir fyrstu umferð, KA tapaði fyrir ÍA og Valur náði naum- lega 3:3-jafntefli gegn Víkingi.  KR, með Aron Bjarka Jós- epsson í banni eftir 1:1-jafnteflið gegn Stjörnunni, fær ÍBV í heim- sókn í Vesturbæinn á morgun.  Grindavík verður aftur á heimavelli og nú gegn Stjörnunni en bæði lið ollu nokkrum von- brigðum í fyrstu umferðinni. Leikur helgarinnar verður í Árbænum Morgunblaðið/Hari Nýliðar Skagamenn heimsækja Fylkismenn annað kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.