Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 44

Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Sigurrós Guðbjörg Björnsdóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir opna sýninguna Hnallþóran í galleríinu Midpunkt, Hamraborg 22 í Kópa- vogi, á morgun kl. 16. Boðið verður upp á kaffi, freyðivín og hnallþórur við opnunina. „Hin íslenska hnallþóra er fyrir- bæri sem kom fram á Íslandi á fyrri parti tuttugustu aldarinnar. Hún var handverk, listhlutur sem stóð á miðju veisluborði hverrar húsmóður, krúnudjásn, sjónræn þjóðargersemi. Að bera glæsileikann á borð, fyrir vini og vandamenn jafnt af gleði- og sorgartilefnum tengir fólk saman og sú athöfn að matreiða fyrir aðra og borða saman er skapandi ferli,“ seg- ir meðal annars um sýninguna í til- kynningu. Listakonurnar segjast með verk- efninu vilja minna á hnallþóruna, passa að hún gleymist ekki og rann- saka hverjir listamennirnir á bak við terturnar hefi verið og séu kannski enn. Hnallþóran er fyrsta kynning á rannsóknum þeirra og er verkefni í vinnslu, að því er fram kemur í til- kynningu frá Midpunkt. Hnallþóruopnun í Midpunkt Varðveisla Listakonurnar vilja vernda og varðveita hnallþóruna. Mikil aðsókn hef- ur verið meðal kvikmyndagerð- arfólks í að kom- ast með kvik- myndir sínar inn á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, og segir í tilkynningu að nú þegar hafi meðlimir dagskrárnefndarinnar fengið hátt í þúsund umsóknir frá kvikmyndagerðarfólki hvaðanæva úr heiminum. Opið er fyrir umsókn- ir til og með 7. júlí. Næsta hátíð verður sú sextánda í röðinni og mun hún standa yfir frá 26. september til 6. október. Dag- skrá hátíðarinnar verður kynnt í september. Stjórnandi hátíðarinnar er Hrönn Marinósdóttir. Hátt í þúsund um- sóknir hafa borist Hrönn Marinósdóttir Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Hólavallaskóli (1786–1804) – Reykjavík vakn- ar til lífsins, í fyr- irlestrasal á 2. hæð Þjóðar- bókhlöðunnar í dag kl. 13.30. Fundarstjóri verður Svavar Sigmundsson, prófessor emeritus við Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum, og flytja erindi þau Hrefna Róberts- dóttir þjóðskjalavörður, sagnfræð- ingarnir Guðlaugur Rúnar Guð- mundsson og Kristín Bragadóttir og Sveinn Einarsson leiklistarfræð- ingur. Hvert erindi verður um 20 mín. að lengd og tími gefinn til fyr- irspurna. Málþing um Hólavallaskóla Sveinn Einarsson O NÁNAR Á S A L U R I N N . I S DA CAPO GUNNAR GUÐBJÖRNSSONVIÐTALSTÓNLEIKAR 18.05.19 KL.14.00 ÞÓRA EINARSDÓTTIR PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Tónlistarævintýrið um Strákurinn og slikkeríið hefur átt sér býsna langan aðdraganda. Fyrir 10 árum rakst ég á skemmtilega bók í Bret- landi eftir Roald Dahl, The Giraffe and the Pelly and Me. Ég heillaðist af sögunni og ákvað að þýða hana. Fékk svo þá flugu í höfuðið að gera úr sögunni einhvers konar músík- stykki fyrir leiksvið eða tónleika- pall,“ segir Jóhann G. Jóhannsson, textahöfundur og tónskáld, sem dundaði sér við það nokkur ár að færa söguna yfir í bundið mál og hætti ekki fyrr en hann var kominn með hana í langan kvæðabálk. „Fyrirmyndina hafði ég raunar frá Dahl sjálfum því hann var mjög hagmæltur og gerði mikið af því að snúa gömlum ævintýrum upp í langa kvæðabálka,“ segir Jóhann og bætir við að það taki 45 mínútur að lesa kvæðabálkinn. Hann segist hafa séð að við ákveðna hluta af kvæðabálknum væri heppilegt að gera sönglög. Lögin hafi komið hvert af öðru og orðið 18 talsins. Jóhann kynnti verkið fyrir Sinfón- íuhljómsveit Íslands, sem leist ákaflega vel á það og ákveðið var að gera það að sinfónísku tónlistar- ævintýri með sögumönnum, söngv- urum og kór. „Textinn í verkinu er alfarið minn, ekki þýðing úr ensku, en ég styðst við söguþráðinn úr bók Dahls. Verkið fjallar um um lítinn strák sem eignast óvenjulega vini úr dýraríkinu; gíraffa, pelíkana og apa. Saman lenda þeir í skemmti- legum ævintýrum þar sem hæfi- leikar hvers og eins fá notið sín og úr verður samstarf sem engan hefði órað fyrir,“ segir Jóhann og bætir við að þegar upp sé staðið hafi allar óskir þeirra, vonir og draumar ræst, þar á meðal draum- ur stráksins um að eignast sína eigin sælgætisbúð. Nota það sem okkur er gefið Jóhann segir Strákinn og slikk- eríið fyrst og fremst vera skemmti- lega sögu og ævintýri. Boðskapur- inn í verkinu sé sá að þegar við hjálpumst að og notum þá eigin- leika sem okkur séu gefnir sé von til þess að okkur farnist vel. Jóhann segir Dahl hafa lengi verið í uppáhaldi hjá sér og hann hafi haft gaman af bókum hans, bæði þeim sem eru fyrir börn og fyrir fullorðna, m.a. sögunni um Matt- hildi og Kalla og sælgætisgerðina. „Ég hef gert svolítið af því að semja og útsetja fyrir Sinfóníu- hljómsveitina og hef langa reynslu úr leikhúsum og alls kyns verk- efnum fyrir börn,“ segir Jóhann, sem telur ekkert öðruvísi að semja fyrir börn en fullorðna. Hann samdi m.a. tónlistina í Skilaboða- skjóðunni og færði lög Astrid Lind- gren í hljómsveitarbúning fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hluti af verkinu Strákurinn og slikkeríið var flutt á tvennum skólatónleikum á fimmtudag og föstudag. Tónlistarævintýrið Strákurinn og slikkeríið verður einungis flutt í eitt skipti í fullri lengd; í Eldborgarsal Hörpu í dag kl. 14. „Noam Aviel þreytir frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í Strákurinn og slikkeríið. Aviel er ungur hljómsveitarstjóri frá Texas. Hún er alveg frábær og afskaplega vandvirk. Hún hefur meira að segja lagt það á sig að setja sig inn í íslenska tungu og framburð til þess að geta fylgt verkinu almennilega úr hlaði,“ seg- ir Jóhann, sem bætir við að æfing- ar hafi gengið mjög vel og það hafi verið algjör unaður að verða vitni að því þegar Strákurinn og slikker- íið varð að veruleika í Eldborg. Jóhann segir Aviel hafa góða til- finningu fyrir tónlistinni í verkinu, sem sé skemmtileg blanda af léttri svolítið djassskotinni músík með alls konar stílbrögðum. „Við erum svo heppin að hafa Stúlknakór Reykjavíkur með okk- ur á tónleikunum. Kórinn, sem skipaður er um 40 stelpum frá fermingaraldri og fram yfir tvítugt, er alveg frábær,“ segir Jóhann. „Brynhildur Guðjónsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson fleyta sögunni áfram í tali og tón- um. Það hefur verið ákaflega gam- an að fá að vinna með þeim,“ segir Jóhann og bætir við að til að auka enn frekar á upplifunina verði stór- skemmtilegum myndum Quentins Blake varpað á stórt tjald fyrir of- an hljómsveitina. Þar muni strák- urinn, félagar hans gíraffinn, pelí- kaninn og apinn og ævintýri þeirra birtast áhorfendum ljóslifandi. Morgunblaðið/RAX Tónlistarævintýri Jóhann fylgist með æfingu á nýju verki sínu í Eldborg. Strákurinn og slikkeríið í Eldborg  Tónlistarævintýri Jóhanns G. Jó- hannssonar byggt á sögu Roald Dahl Í tilefni af stórafmælum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands (70 ára), Ís- lensku óperunnar (40 ára) og Listahátíðar í Reykjavík (50 ára) munu þær í sameiningu setja upp óperu Wagners; Die Walküre, vorið 2020. Óperan verður flutt 27. og 29. maí í Eldborg og mun Alexander Vedernikov stjórna hljómsveitinni en hann tók í fyrra við stöðu aðal- stjórnanda við Konunglegu dönsku óperuna í Kaupmannahöfn. Leik- stjóri verður Julia Burbach sem er fastráðin við Covent Garden- óperuna í Lundúnum og vídeó- listamaðurinn Tal Rosner, sem er BAFTA-verðlaunahafi, mun einnig koma að uppfærslunni. Í tilkynningu segir að nokkrir heimsþekktir söngvarar muni fara með stærstu hlutverkin og má af þeim nefna Christopher Ventris sem syngur Sigmunde og fer með hlutverkið í nýrri uppfærslu á Met- ropolitan í New York, Claire Rutter sem syngur Siglinde og Frode Ol- sen sem verður í hlutverki Hund- ing. Ólafur Kjartan Sigurðarson mun syngja hlutverk Wotan í fyrsta sinn í þessari sýningu, Jamie Bar- ton syngur hlutverk Fricku og Christine Goerke syngur Brunn- hilde. Aðrar valkyrjur verða túlk- aðar af íslenskum söngkonum, seg- ir í tilkynningunni. Wagner-veisla á af- mælisárinu 2020 Wotan Ólafur Kjartan Sigurðarson. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.