Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er búið að vera dásamlegtað fylgjast með Kælunnimiklu og sigrum hennar, en
þær stöllur hafa haft mikið umleik-
is undanfarin misseri. Þær eru
meira að segja farnar að gægjast
aðeins upp úr moldinni, en síðasta
plata, Nótt eftir nótt, vakti
verðskuldaða athygli á
þeim. Þar taka þær sitt
gotaskotna popp upp á
næsta stig, lög og flutn-
ingur er allur straum-
línulagaðri án þess að ein-
hverju biti eða köntum sé
fórnað. Frábær hljómsveit og
spennandi að sjá hverju þær snara
upp næst.
Sólveig Matthildur, hljóm-
borðsleikari og bakraddasöngkona,
á greinilega erfitt með að vera
kyrr, því að hún keyrir sólóferil
samhliða. Fyrsta platan hennar
undir eigin nafni kom út í desember
2016 og ber hinn kynngimagnaða
Ástin spyr hvorki um stétt né stöðu
titil Unexplained Miseries & the Ac-
ceptance of Sorrow. Platan lúrði í
netheimum lengi vel, svo gott sem
óáreitt. Í ágúst 2017 kom platan
hins vegar út á efnislegu formi og í
framhaldinu fór Sólveig að spila
efni sitt á tónleikum, hérlendis og
víðs vegar um Evrópu líka (og hún
hefur og verið að spila í Ameríku).
Þessi fyrsta sólóplata Sólveigar
inniheldur lög bundin í „endurtekn-
ingarsamar, sveimbundnar stemm-
ur, líkt og um kvikmynda-
tónlist sé að ræða,“ eins og
ég sagði í skrifum á sínum
tíma um hana. „Söngrödd
Sólveigar tónar yfir,
stundum róleg og höfug,
stundum æst og knýjandi
... Tónlistin er lagbundin;
þykkar og djúpar hljómborðsnótur
tifa áfram ofan á draugalegum
hljóðmottum og tónlistin er seið-
andi, dregur mann inn.“
Nýja platan er hnitmiðaðri, og
á einhvern hátt má merkja sömu
þróun og hjá Kælunni miklu. Hlut-
irnir eru einfaldlega orðnir þéttari
og úthugsaðri, sem kemur eðlilega
með reynslu og atfylgi. Sólveig
vinnur ennþá með gotnesku fagur-
fræðina og skírskotanir í þá tónlist
og þann stíl eru sterkar. Sjá t.d.
umslagið, sem er frábært, og minn-
ir á plötur úr viðlíka geira sem
komu út um miðbik níunda áratug-
arins (undir merkjum Mute og 4AD
t.d.). Kinnat Sóley og Dean Kemball
vinna með Sólveigu að listrænu
hönnuninni. Sólveig vinnur mjög
þétt með hádramatísk, gotnesk
temu, en hún nær listavel að forðast
það að vera kjánaleg eða tilgerð-
arleg. Vegna þess að hún er heið-
arleg. Constantly in Love fjallar
enda um ofurviðkvæmni, eins og ég
les það, okkur sem erum óvenju-
næm fyrir umhverfinu, finnst allt
frábært og æðislegt en sögulega
séð er slíku fólki refsað af norm-
alíserandi samfélagsöflum. Maður á
að skína, frá fyrsta hanagali, en það
er ekki létt verk. „Titillagið fjallar
um að vera ástfangin, stöðugt, og
það leiðir til þess að hjarta þitt er
ávallt brotið“, lýsti Sólveig í samtali
við post-punk.com vefinn. „Þegar
þú ert hrædd við að vera særð er
best að brjóta allt niður í kringum
þig, áður en það brýtur þig. En
þetta snýst ekki endilega um að
vera ástfangin af öðru fólki.
Draumar hafa verið minn helsti
innblástur að undanförnu. Ég á
þessa ótrúlegu, súrrealísku drauma
og ég verð svo sorgmædd þegar ég
vakna og geri mér grein fyrir því
hversu heftandi raunveruleikinn
er. Það veldur hjartasári.“
Megi Sólveig starfa áfram
lengi enn, því að hún er með hæfi-
leikana og eljuna, ó já. Því að allt
tekur enda, einhvern tíma, eins og
við öll vitum.
» Sögulega séð erslíku fólki refsað
af normalíserandi
samfélagsöflum.
Maður á að skína, frá
fyrsta hanagali, en
það er ekki létt verk.
Önnur sólóplata Sólveigar Matthildar, sem er
m.a. meðlimur í Kælunni miklu, ber titilinn
Constantly in Love. Sorgin var í forgrunni
á síðustu plötu en nú er það ástin. Dramað
er hins vegar í botni, eins og alltaf.
Ástfangin Sólveig
Matthildur er föst í neti
ástar og drauma á nýju
sólóplötunni sinni.
Þrjár sýningar útskriftarnema við
Listaháskóla Íslands verða opn-
aðar í dag á þremur stöðum.
Útskriftarsýning BA-nema í
myndlist, hönnun og arkitektúr
verður opnuð í dag kl. 15 á Kjar-
valsstöðum og ber hún yfirskrift-
ina Þetta hefur aldrei sést áður.
Nemendur sýna lokaverk sín við
nám í myndlist, vöruhönnun, fata-
hönnun, grafískri hönnun og arki-
tektúr og er aðgangur að sýning-
unni ókeypis. Sýningarstjórar
hennar eru Birta Fróðadóttir og
Hildigunnur Birgisdóttir sem
segja í tilkynningu að viðfangsefni
útskriftarsýningarinnar í ár séu
gífurlega víðfeðm, m.a. hegðunar-
mynstur katta, Sigmundur Davíð í
paradís og súrnun sjávar.
Útskriftarsýning meistaranema
í myndlist við LHÍ verður opnuð í
Nýlistasafninu í Marshall-húsinu
kl. 17 og nefnist hún Mjúk lending.
Útskriftarsýningin markar upphaf
þriggja ára samstarfs Nýlista-
safnsins og Listaháskóla Íslands.
Þriðja sýningin sem opnuð verður
í dag er svo sýning útskriftarnema
í meistaranámi í hönnun. Hún
verður opnuð kl. 20 í Ásmund-
arsal, Freyjugötu 41, og nefnist
Omen.
Nemendur fagna námslokum
Þrjár útskrift-
arsýningar LHÍ
Ljósmynd/Leifur Wilberg
Speglun Útskriftarhópur meistaranema í hönnun við LHÍ.
Enski leikarinn
Peter Mayhew,
sem lék vákinn
Chewbacca í
Stjörnustríðs-
kvikmyndunum,
eða Loðin eins og
hann hét í ís-
lenskri þýðingu,
lést á þriðjudag-
inn, 74 ára að
aldri. Stjörnur Stjörnustríðs hafa
minnst hans með hlýhug, þeirra á
meðal Harrison Ford sem lék Han
Solo, besta vin Loðins. Mayhew lék
Loðin í þremur kvikmyndum, þeirri
fyrstu 1977 og síðustu árið 2015.
George Lucas leikstýrði fyrstu
Stjörnustríðsmyndinni og vildi fá
David Prowse í hlutverk Loðins en
Prowse vildi hins vegar leika Svart-
höfða. Þá leitaði hann til Mayhew,
einkum vegna þess hversu hávax-
inn hann var, 2,18 metrar.
Leikarinn Peter
Mayhew látinn
Peter Mayhew
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafninu á Akureyri í dag kl.
15, annars vegar nemendasýning
Myndlistaskólans á Akureyri, List-
fengi, hins vegar útskriftarsýning
nemenda listnáms- og hönnunar-
brautar VMA, 13+1. Níu nemendur
sýna verk sín á þeirri fyrrnefndu og
á þeirri síðarnefndu eru þeir 14.
Frekari upplýsingar um sýning-
arnar og nöfn sýnenda má finna á
vef Listasafnsins á Akureyri á slóð-
inni listak.is.
Tvær í Listasafn-
inu á Akureyri
Dulúðugt Hluti málverks eftir Söru Sif
Kristinsdóttur myndlistarmann.
Vortónleikar Kammerkórs Seltjarnarneskirkju
verða haldnir í kirkjunni í dag, 4. maí, kl. 17. Á efn-
isskránni verða meðal annars verk eftir William
Byrd, Henry Purcell, Ola Gjelo, og Felix Mendel-
sohn og munu kórfélagar einnig syngja einsöng.
Stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson en
hann er jafnframt organisti Seltjarnarneskirkju.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Kammerkór fagnar vori
Friðrik Vignir Stefánsson