Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 48
Í tilefni af 100 ára
afmæli Ljósmæðra-
félags Íslands verð-
ur opnuð sýning í
Þjóðarbókhlöðunni
á morgun, á degi
ljósmæðra, kl. 13. Að
sýningunni standa
Ljósmæðrafélagið, Kvennasögusafn
Íslands og Landsbókasafn Íslands –
Háskólabókasafn. Dagskrá við opn-
un sýningarinnar verður á þá leið að
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
landsbókavörður býður gesti vel-
komna og Jan Bakke, fyrsti ljósfaðir
Noregs, flytur ávarp. Áslaug
Valsdóttir, formaður Ljósmæðra-
félagsins, afhendir Kvennasögusafni
gögn frá félaginu og Ólöf Ásta Ólafs-
dóttir, prófessor í ljósmóðurfræði,
segir frá sýningunni.
Sýning tileinkuð
ljósmæðrafélagi
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Selfoss er einum sigri frá því að
komast í lokaúrslit Íslandsmóts
karla í handbolta eftir 32:31-
útisigur á Val í öðrum leik liðanna í
gærkvöldi. Selfoss er nú með 2:0-
forystu í einvíginu og nægir heima-
sigur á mánudagskvöldið til að
tryggja sig í úrslit, gegn annað
hvort Haukum eða ÍBV. »41
Selfoss í afar góðum
málum eftir útisigur
Hallveig og Hrönn í há-
deginu í Hannesarholti
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hallveig Rúnarsdóttir sópran og
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari
koma fram í hádegistónleikaröð
Hannesarholts á morgun kl. 12.15
og flytja lög eftir Jean Sibelius,
ljóðaflokkinn Haugtussa eftir Edv-
ard Grieg og fjögur lög úr Sjálf-
stæðu fólki eftir Atla Heimi Sveins-
son sem lést nýlega en tónleikarnir
eru tileinkaðir minningu hans. Yfir-
skrift tónleikanna er Norrænt vor.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samvinna hjónaleysanna Áka Ingv-
arssonar og Kristjönu Sölvadóttur
sem eru leigubílstjórar hjá Hreyfli er
alveg til fyrirmyndar. Það var 1994
sem Áki byrjaði í afleysingum í starfi
þar sem hann ætlaði að stoppa stutt.
Málin þróuðust þó á annan veg, því
um jól og áramót fékk Áki túra sem
gáfu vel og eftir nýár var hann beðinn
um að bæta janúarmánuði við. Þar
með var teningnum kastað og Áki
hefur verið í starfinu síðan.
Rugluðu saman reytum
Árið 2008 fékk Áki Kristjönu
Sölvadóttur sem aðstoðarmann sinn
á Benzinn í útgerð sinni – og ekki
löngu síðar rugluðu þau saman reyt-
um. Þau eru í dag hvort um sig með
stöðvarleyfi hjá Hreyfli; Áki er 25 af
stöðinni og Kristjana númer 119.
Bæði á Hyundai Santa Fe, en þar
varð Kristjana fyrri til og kom manni
sínu á bragðið.
„Að hjón eða sambýlisfólk séu bæði
í leiguakstri er ekkert einsdæmi og
sjálfum finnst mér þetta koma vel
út,“ segir Áki. „Starfið er fjöl-
skylduvænt, að því leyti að við getum
ráðið vinnutíma okkar sjálf og haft
hlutina eftir eigin höfði. Yfirleitt byrj-
um við vinnudaginn milli klukkan
átta og tíu á morgana. Erum stund-
um auðvitað hvort á sínum enda á
höfuðborgarsvæðinu en reynum samt
að haga málum svo að við getum hist í
hádeginu og hætt snemma kvölds.
Ökum aldrei á nóttinni; sá tími í starfi
er liðinn.“
Samskiptin eru kostur starfsins
Kristjana segist strax hafa fundið
sig í starfi leigubílstjóra. „Einn af
helstu kostunum í starfinu eru sam-
skiptin við fólkið; yfir daginn fær
maður allskonar farþega sem eru
þverskurður af samfélaginu. Við
suma á maður samskipti og tekur
spjallið, en aðra ekki rétt eins og
gengur. Við suma myndast tengsl
með tímanum sem þá jafnvel hringja
beint í mann þegar þá vantar bíl.
Verkefnin og ferðirnar eru líka af
ýmsum toga, stundum er maður að
aka fólki sem þarf að komast til eða
frá lækni, aðrir eru að reka erindi
vegna vinnu sinnar og svona gæti ég
haldið áfram endalaust.
Fljót á staðinn
Í kerfi Hreyfils er höfuðborg-
arsvæðinu skipt upp í reiti og er til-
tekinn fjöldi lausra bíla á hverju
þeirra í einu. „Við búum í Mosfellsbæ
og erum gjarnan hér í efri byggð-
unum. Með þessu fyrirkomulagi
bregst nánast aldrei að ef fólk hringir
eftir bíl er hann yfirleitt kominn eftir
tvær til fjórar mínútur,“ segir Áki
sem með Kristjönu fer bráðlega í það
sérverkefni í starfi sínu að aka eldri
borgurum frá og til heimilis síns í
dagþjónustu. „Mér finnst öll svona
þjónusta, eins og að keyra gamla
fólkið, vera mjög gefandi. Já, og svo
er gaman að aka um bæinn; fylgjast
með mannlífinu og umferðinni,“ segir
Kristjana og bætir við að fyrir leigu-
bílstjóra sé mikilvægt að hafa vinnu-
tímann afmarkaðan. Auðvelt sé og
freistandi að vera alltaf að þegar næg
verkefni sé að hafa. Nauðsyn sé hins
vegar að ætla sér af og ofgera sér
ekki í starfinu.
Morgunblaðið/RAX
Leigubílstjórar og mannvinir Áki er 25 af stöðinni og Kristjana númer 119. Bæði aka Hyundai Santa Fe.
Kynntust í keyrslunni
Hjónaleysin á leigubíl Vinnutími frjáls 25 af stöðinni