Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
NÁNAR Á U .IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tillögur eru gerðar um verulegar
breytingar á núgildandi greiðslu-
kerfi almannatrygginga og nýjar
tegundir greiðslna, í skýrslu sam-
ráðshóps um breytingar á fram-
færslukerfinu, en þær kynnti Ás-
mundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, á ríkisstjórn-
arfundi í gær. Hópurinn hafði það
hlutverk að móta framfærslukerfi
sem styður við það markmið starfs-
getumatsins að sem flestir geti ver-
ið virkir þátttakendur á vinnumark-
aði. Ráðherrann hefur, með
hliðsjón af framangreindum
skýrslum og fleiru, ákveðið að
leggja strax til nokkrar breytingar
á lögum um almannatryggingar og
lögum um félagslega aðstoð, sem
fyrsta skref í átt að nýju örorkulíf-
eyriskerfi í almannatryggingum.
Með þeim verði
dregið úr áhrif-
um annarra
tekna örorkulíf-
eyrisþega á sér-
staka uppbót
vegna fram-
færslu og svo-
kölluð ,,krónu á
móti krónu“
skerðing afnum-
in. Tillögur um
þessar breytingar verða væntan-
lega lagðar fyrir Alþingi næsta
haust, skv. upplýsingum frá Arnari
Þór Sævarssyni, aðstoðarmanni
ráðherrans.
Í tilkynningu frá félagsmálaráðu-
neytinu segir að nýgengi örorku
hér á landi hafi aukist jafnt og þétt í
öllum aldurshópum á síðustu árum
en á árinu 2016 var það í fyrsta sinn
meira en náttúrleg fjölgun starfs-
fólks á vinnumarkaði. Við því þurfi
að bregðast. „Það er mikill vilji inn-
an ríkisstjórnarinnar að efna til
samráðs við forsvarsmenn örorku-
lífeyrisþega um breytingar á bóta-
kerfinu með það að markmiði að
skapa sátt um að einfalda kerfið,
tryggja framfærslu örorkulífeyris-
þega og efla þá til samfélagsþátt-
töku,“ segir ráðherrann.
Samráðshópurinn leggur til að
greiðslur almannatrygginga skipt-
ist í sjúkra-, endurhæfingar- og
virknigreiðslur og örorkulífeyri. Þá
verði tekin upp sveigjanleg hluta-
störf fyrir fólk með skerta starfs-
getu. Skapa á aukna hvata til at-
vinnuþátttöku um leið og tryggð er
örugg framfærsla. sbs@mbl.is
Framfærslukerfi breytt
Áhersla á vinnu og virkni Krónu á móti krónu afnumin
Ásmundur Einar
Daðason
Verð á bensíni
hefur hækkað
nokkuð að und-
anförnu. Í gær-
kvöldi var al-
gengt verð á
lítranum hjá N1
241,60 krónur og
hjá Olís tíeyringi
lægra. Hjá sjálfs-
afgreiðslu-
stöðvum Atlants-
olíu var verð á lítranum að jafnaði
239,70 krónur en hjá Orkunni
239,60 kr. Ódýrastur var bensín-
lítrinn sem endrnær hjá Atlantsolíu
við Kaplakrika í Hafnarfirði;
209,40. Hjá Dælunni sem er með
fimm stöðvar á höfuðborgarsvæð-
inu kostaði lítrinn 231 kr .
sbs@mbl.is
Bensínverð komið
yfir 240 krónur
Bensín Dýr er
dropinn í dag.
Glatt var á hjalla í gær þegar fulltrúar Krakkahesta heimsóttu Leikskóla
Seltjarnarness og leyfðu börnunum að kynnast klárunum. Teymt var undir
öllum þeim krökkum sem fóru á bak hestunum – og svo fengu allir myndir
af sér úr hinum örstutta útreiðartúr. Er ekki að efa að þarna voru margir
efnilegir knapar framtíðarinnar, en hestamennskan er sport sem nýtur
mikilla og vaxandi vinsælda þjóðarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Krakkahestar komu í heimsókn á Seltjarnarnes
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kveðið er á um heimild til gjaldtöku
af nýtingu auðlinda í ábataskyni og
um rétt almennings til þátttöku í
undirbúningi ákvarðana sem áhrif
hafa á umhverfið í tveimur frum-
vörpum sem voru í gær birt í sam-
ráðsgátt stjórnvalda um breytingar
á stjórnarskránni. Annars vegar
með ákvæði um auðlindir í náttúru
Íslands og hins vegar ákvæði um
umhverfisvernd.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu segir að í gær hafi verið
ákveðið á fundi formanna stjórn-
málaflokkanna sem sæti eiga á Al-
þingi að afgreiða þessi tvö frumvörp
til samráðs við almenning og að fara
muni fram skoðana- og rökræðu-
kannanir meðal almennings síðar á
þessu ári.
Tekið er fram í kynningu málanna
á samráðsgáttinni að birting í sam-
ráðsgátt á þessu stigi feli ekki í sér
skuldbindingu af hálfu formanna
flokkanna til að standa að framlagn-
ingu frumvarpanna í þessari mynd á
Alþingi.
Auðlindaákvæðið í frumvarps-
drögunum er svohljóðandi:
„Auðlindir náttúru Íslands til-
heyra íslensku þjóðinni. Nýting auð-
linda skal grundvallast á sjálfbærri
þróun.
Náttúruauðlindir og landsréttindi
sem ekki eru háð einkaeignarrétti
eru þjóðareign. Enginn getur fengið
þessi gæði eða réttindi tengd þeim til
eignar eða varanlegra afnota. Hand-
hafar löggjafarvalds og framkvæmd-
arvalds fara með forræði og ráðstöf-
unarrétt þeirra í umboði
þjóðarinnar.
Veiting heimilda til nýtingar á
náttúruauðlindum og landsréttind-
um sem eru í þjóðareign eða eigu ís-
lenska ríkisins skal grundvallast á
lögum og gæta skal jafnræðis og
gagnsæis. Með lögum skal kveða á
um gjaldtöku fyrir heimildir til nýt-
ingar í ábataskyni.“
Afrakstur af umræðum
Frumvarpið er afrakstur af um-
ræðum í hópi formanna flokkanna á
þingi og er í greinargerð sagt vera
byggt á frumvarpi sem stjórnar-
skrárnefnd skilaði forsætisráðherra
í júlí 2016. Fram kemur að orðalagi
hefur verið breytt um gjaldtöku
vegna nýtingarheimilda þannig að
gjaldtaka miðist fyrst og fremst við
nýtingu í ábataskyni. Í ítarlegri
greinargerð segir m.a. að auðlinda-
ákvæðið í heild geri ráð fyrir að auð-
lindir náttúru Íslands geti ýmist ver-
ið í eigu einkaaðila, ríkisins eða
sveitarfélaga eða verið þjóðareign.
Í ákvæðinu um umhverfisvernd
segir m.a. að ábyrgð á vernd náttúru
og umhverfis hvíli sameiginlega á
öllum og skal verndin grundvallast á
varúðar- og langtímasjónarmiðum
með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
„Stuðlað skal að því að fjölbreytni
náttúrunnar sé viðhaldið og vöxtur
lífríkis og viðgangur tryggður. Allir
skulu njóta heilnæms umhverfis. Al-
menningi er heimil för um landið og
dvöl þar í lögmætum tilgangi. Ganga
skal vel um náttúruna og virða hags-
muni landeigenda og annarra rétt-
hafa.“
Gjaldtaka af nýtingu í ábataskyni
Stjórnarskrárákvæði um auðlindir og umhverfisvernd birt í samráðsgátt stjórnvalda
Tekið er fram að birting á þessu stigi feli ekki í sér skuldbindingu af hálfu formanna flokkanna
Lagt er til að lyfjaauglýsingar
verði almennt heimilar með und-
antekningum í drögum að frum-
varpi heilbrigðisráðherra til nýrra
lyfjalaga, sem birt hefur verið í
samráðsgátt stjórnvalda. Fjöl-
margar breytingar í lyfjamálum
eru boðaðar í frumvarpinu en til-
lagan um auglýsingar lyfja fæli í
sér stefnubreytingu þar sem meg-
inregla lyfjalaga er sú í dag að all-
ar lyfjaauglýsingar eru bannaðar
nema í undantekningartilfellum.
Einnig er ákvæði sem lögfestir
notkun lyfja af mannúðarástæðum
og lagt er til að dýralæknar sæki
um sérstakt lyfsöluleyfi til að selja
lyf. omfr@mbl.is
Lyfjaauglýsingar
verði heimilaðar