Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 sp ör eh f. Sumar 20 Paradís Tatrafjallanna í Slóvakíu, Kraká í Póllandi og gullborgin Prag í Tékklandi eru meðal hápunkta þessarar glæsilegu ferðar. Menning, saga og náttúrufegurð fara hér saman og láta engan ósnortinn.Við heimsækjum m.a.Vínarborg, sögufræga landsvæðið Spiš, sem var mikilvægasta landnámssvæði Þjóðverja á 14. öld, og að sjálfsögðu Tatra svæðið sem er að mati margra með mikilfenglegustu svæðum Evrópu. 10. - 24. ágúst Fararstjóri: Pavel Manásek Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 338.600 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Tatrafjöllin, Kraká&Prag Stór hluti ákvæða þriðja orkupakkans, það er þau sem varða viðskipti og grunnvirki fyrir raforku yfir landamæri, hafa ekki gildi eða neina raunhæfa þýðingu fyrir Ís- land á meðan enginn raforkusæstrengur er til staðar. Þetta segir í yfirlýsingu Ís- lands, Noregs og Liechtenstein en í vikunni var lögð fram sameiginleg yfirlýsing landanna þar sem sér- staða Íslands á innri raforkumarkað ESB er áréttuð. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kynnti yfirlýsinguna í ríkisstjórn í gær. Undirstrikað er að ákvæði þriðja orkupakkans hafi engin áhrif á full yfirráð EFTA-ríkjanna í EES yfir orkuauðlindum sínum og ráðstöfun þeirra og hagnýtingu. Ákvarðanir um samtengingu raforkukerfa á milli þessara ríkja og orkukerfis innri markaðar ESB væru ávallt á forræði ríkjanna sjálfra. Þá er ítrekað í textanum að verði samtengingu raforkukerfanna kom- ið á í framtíðinni úrskurðaði Eftir- litsstofnun EFTA (ESA) um ágrein- ingsmál varðandi Ísland en ekki samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði (ACER). Það fyrir- komulag sé nú þegar til staðar í til- vikum Noregs og Liechtenstein enda í fyllsta samræmi við tveggja stoða kerfi EES-samningsins. Segja ákvæði orku- pakkans ekki eiga við á Íslandi Línur Orkan er um- deild auðlind. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Verkefnið gengur vel og undirbún- ingur er á fullu,“ segir Guðjón Arn- grímsson, einn forvarsmanna upp- byggingar nýs miðbæjar á Sel- fossi. Fyrsta skóflustungan að nýjum miðbæ var tekin í nóvember síðastliðnum eftir að bæjarráð Ár- borgar sam- þykkti fram- kvæmdaleyfi. Guðjón segir að síðasta hálfa ár hafi farið í undirbúning sem hafi tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. „Veturinn fór í jarð- vinnu og lagnafrágang og annan undirbúning fyrir uppsteypu og smíði húsanna, sem Jáverk annast og er að hefjast um þessar mundir,“ segir hann. Stefnt er að því að bygg- ingakranar verði komnir upp um miðja næstu viku. Tímanum vel varið „Þetta er um margt óvenjulegt verkefni hvað varðar hönnunar- og verkfræðiþáttinn og margir sem þurfa að koma að því ferli, bæði fag- fólk á okkar vegum og svo sérfræð- ingar og embættismenn til úrvinnslu og samþykktar af hálfu stofnana sveitarfélagsins. Við höfum líka bætt aðeins í, gert nokkrar breytingar á hönnun í vetur sem miða að því að styrkja miðbæ- inn og gera hann enn meira aðlað- andi. Meðal annars lækkað niður um eina hæð hluta aðaltorgsins til að skapa þar aukið skjól og aðgang að veitingastöðum, og fært til hús og skipt milli fyrri og seinni áfanga og fleira. Þessi undirbúningur hefur í heild tekið ívið lengri tíma en við ætluð- um, en þeim tíma var vel varið,“ seg- ir Guðjón Arngrímsson. 33 byggingar eiga að rísa Eins og fram hefur komið er stefnt að því að reisa 33 byggingar í nýja miðbænum. Þær verða í göml- um stíl og eiga þær þrettán fyrstu að vera tilbúnar vorið 2020. Tveggja hektara svæði í hjarta bæjarins hef- ur verið helgað þessum fram- kvæmdum og þar verða verslanir, veitingastaðir, íbúðir, hótel og fleira. Í haust var haldin íbúakosning með- al Árborgarbúa um áform Sigtúns þróunarfélags um miðbæ og voru hugmyndirnar samþykktar með um 60% atkvæða. Nýr miðbær Þessi tölvumynd sýnir hús Mjólkurbús Flómanna sem stóð á Selfossi og verður endurreist í nýja mið- bænum og torgið þar fyrir framan. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri veitingahúsaflóru. Smíði húsanna hefst brátt. Breyttu hönnun nýs miðbæjar á Selfossi  Lækka hluta aðaltorgsins um eina hæð og færa til hús Guðjón Arngrímsson Alls er búið að landa 185 þúsund tonnum af kolmunna frá áramót- um, samkvæmt yfirliti á vef Fiski- stofu. Nóg hefur því verið að gera í fiskimjölsverksmiðjum fyrir aust- an og í Vestmannaeyjum að undan- förnu. Heimildir ársins eru alls um 267 þúsund tonn. Ingimundur Ingimundarson, út- gerðarstjóri uppsjávarskipa hjá HB Granda, sagði í gær að eftir góða hrotu í færeyskri lögsögu þegar skipin fylltu sig í fáum og tiltölulega stuttum holum hefði veiðin aðeins dottið niður í byrjun vikunnar. Skipin hefðu því fært sig af miðunum vestur af Færeyjum og suður fyrir eyjarnar á nýjan leik. Kolmunninn er nú í ætis- göngu norður á bóginn eftir hrygningu vestan og norðvestan Bretlandseyja. Víkingur AK 100 var í gær bú- inn að landa tæplega 18 þúsund tonnum frá áramótum, Aðalsteinn Jónsson SU 11 var kominn með tæplega 17 þúsund tonn og Beitir NK 123 með 16.600. aij@mbl.is Góður gangur í kolmunnavertíðinni Hjörtur J. Guðmundsson Sigurður Bogi Sævarsson „Mér þykir nú nokkuð sérstakt að á þessum tímapunkti skuli ríkis- stjórnin sjá ástæðu til þess að kaupa lögfræðiálit frá útlöndum,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Miðflokksins, í sam- tali við mbl.is um orkukupakkamál- ið. Umræður hafa skapast um það sjónarmið Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dóm- stólsins, sem segir í lögfræðiáliti fyrir utanríkisráðuneytið sem birt er á vef þess að til lengri tíma litið gæti höfnun Íslands á þriðja orku- pakkanum teflt í tvísýnu aðild landsins að EES-samningnum. Sýna hollustu í EES Baudenbacher segir þá skoðun uppi í Noregi að á EES-samninginn eigi að líta sem tvíhliða samning milli Norðmanna og Evrópusam- bandsins. Þar séu Íslendingar og Liechtensteinar í eins konar auka- hlutverki. Ekki sé hægt að útiloka að hafni Íslendingar þriðja orku- pakkanum geti Noregur samið tví- hliða við Evrópusambandið um orkumál. Þar með gæti aðild Ís- lands að EES-samningnum til lengri tíma verið í uppnámi. Íslandi beri því að sýna Noregi og Liech- tenstein hollustu í EES-samstarf- inu. Baudenbacher telur litlar líkur á að Ísland fái undanþágu frá þriðja orkupakkanum ef málið fari aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar komi til þess að Ísland hafni stjórn- skipunarlegum fyrirvörum sem um pakkann gilda. Samstillt átak Um álitsgerð Baudenbachers segist Sigmundur Davíð telja hana hafa verið hluta af samstilltu átaki í vikunni í þágu samþykktar þriðja orkupakkans. Að fara þá leið veki ýmsar spurningar. Til dæmis varð- andi meðferð á skattfé og að stjórn- völd noti slíkar aðferðir á þessu stigi málsins. Hvað stöðu þriðja orkupakkans varðar segir formaður Miðflokksins það nú vera óumdeilt að Ísland hafi þann rétt samkvæmt EES-samn- ingnum að neita að aflétta stjórn- skipunarlegum fyrirvara af löggjöf- inni. „Hins vegar er umræðan núna komin yfir í það að til þess að styggja ekki Norðmenn eða Evr- ópusambandið eða einhverja aðra þá eigum við að líta framhjá þess- um rétti okkar. Sem aftur sýnir, hafi einhverjir haft efasemdir, að þetta er í eðli sínu fullveldismál.“ Snýst um smáatriði Carl Baudenbacher sat fund ut- anríkismálanefndar Alþingis síðast- liðinn fimmtudag, en þar voru mið- flokksmenn ekki mættir. Vakti fjarvera þeirra athygli, en um málið segir Sigmundur Davíð á almenn- um nótum að hægt sé að skrifa fréttir daglega ef það teljist frétt ef fulltrúi hins eða þessa flokksins mæti ekki á fundi í nefndum. Sjálf- ur segist hann ekki hafa vitað af umræddum fundi í utanríkismála- nefnd – aðeins vitað að funda hefði átt í gær, föstudag. „Þannig að þau hafa greinilega viljað halda þessu útspili sínu leyndu. Þingflokkur Miðflokksins var allur í húsi á ýmsum fundum á þessum tíma og ef boð hefði komið í tæka tíð hefðum við örugglega vilj- að mæta þarna,“ segir Sigmundur Davíð sem telur það segja sitt um málstaðinn ef umræðan eigi að snú- ast um þetta smáatriði. Orkupakkinn er fullveldismál  Lögfræðiálit Baudenbachers sérstakt, segir Sigmundur Davíð  Ekki virðist mega styggja Norðmenn og ESB  Megum aflétta fyrirvörum um stjórnskipan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Búrfell Orkumálin eru umdeild og hvernig regluverk þeirra skuli vera. Carl Baudenbacher
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.