Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Uppbygging á Sjómannaskólareit Opinn kynningarfundur vegna uppbyggingar á Sjómannaskólareit og breytingar á aðalskipulagi. Fundurinn er haldinn þriðjudaginn 14. maí kl. 17.00 í Vindheimum á 7. hæð í Borgartúni 14, eystri inngangur. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar heldur opinn kynningarfund um drög að aðalskipulagi og deiliskipulagi fyrir Sjómannaskólareit. Einnig verða kynnt á fundinum drög að breytingu á aðalskipulagi vegna Veðurstofuhæðar. Á fundinum munu ráðgjafar og embættismenn gera grein fyrir fyrirliggjandi tillögum að uppbyggingu og helstu forsendum. Nánari upplýsingar á adalskipulag.is Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur nefnir í pistli sínum á mbl.is nokkur dæmi um það sem fram kom í máli Mervyns King í heimsókn hans til landsins. King hefði til dæmis gagnrýnt evrusvæðið harka- lega og nefnt að hann þekkti engin dæmi í sögunni um myntbandalag sem hefði lifað af án þess að hafa orðið að einu ríki. Ef ekki væri vilji til að taka það skref væri betur heima setið.    Þetta vita áhrifamenn í Evrópu-sambandinu og löndum þess en hafa ekki viljað segja það upphátt. Þeir stíga hins vegar öll þau skref í þessa átt sem þeir komast upp með og hefur sú tilhneiging valdið óánægju og ólgu innan sambands- ins.    Annað sem Sigurður Már vitnartil að King hafi sagt snýst um Brexit, sem hefði „til þessa fyrst og fremst skapað pólitíska krísu en ekki efnahagslega. Hann benti á að stjórnmálamenn hefðu lofað þjóð- aratkvæðagreiðslu um Brexit, hún hefði verið haldin en að lokum hefði stjórnmálastéttinni verið fyrir- munað að framfylgja niðurstöð- unni. Þar liggur vandinn að mati King. Hann virtist ekki hafa áhyggjur af áhrifum Brexit á við- skiptalífið breska. Þar væri til dæmis rangt að tala um krísu, eins og sannarlega mætti sjá í stjórn- málunum. Þvert á móti virtist hann telja tækifæri felast í Brexit fyrir breskt efnahagslíf, sem í sumum til- vikum yrði að aðlagast nýju um- hverfi og leita sér viðskipta á nýjum stöðum. Hann virtist ekki líta á það sem vandamál.“    Furðulegt er hve óttinn ræðurmiklu í umræðum um ESB og óskandi að fleiri tækju svipaða af- stöðu og King. Mervyn King Óttinn og ESB STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Velferðarsjóðurinn „Vinátta í verki“ er orðinn að veruleika í þeim tilgangi að styrkja verkefni í þágu barna og unglinga frá grænlensku þorpunum í Uummannaq-firði, sem hafa staðið yfirgefin eftir flóðbylgju á svæðinu 17. júní 2017. Skákfélagið Hrókurinn og Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, í samvinnu við Hjálparstarf kirkjunn- ar, hófu að frumkvæði Hrafns Jök- ulssonar söfnun hérlendis í kjölfar flóðbylgjunnar og söfnuðust 40 millj- ónir króna. Söfnunarféð er í umsjón velferðarsjóðsins og hefur nú verið auglýst eftir verkefnum með fjöl- skyldurnar á hamfarasvæðinu í huga, einkum ungmennin. Verkefnin „skulu vera tengd velferð barna frá hamfarasvæðinu og skulu öll miða að því að auka framtíðarmöguleika barnanna, menntun og/eða mögu- leika þeirra á bættum lífskjörum“, eins og fram kemur í frétt frá sjóðn- um. Frestur til að skila inn umsókn- um (vinattaiverki@gmail.com) er til 1. júní næstkomandi. Í stjórn sjóðsins eru fulltrúar Ís- lands og heimamanna í Uum- mannaq-firði. Eldur Ólafsson jarð- fræðingur og Margrét Jónasdóttir kvikmyndaframleiðandi eru fulltrú- ar Íslands og Helgi Jóhannsson lög- maður er varamaður. Söfnunarfé vel varið eftir hamfarir  Velferðarsjóðurinn Vinátta í verki til styrktar ungmennum á Grænlandi Uummaannaq Íbúarnir þurftu að yfirgefa heimili sín á Grænlandi. „Arður Landsvirkjunar verður til í virkjunum í náttúrunni úti á landi en ekki á Háaleitisbraut í Reykjavík. Mér finnst að hluti arðsins ætti að skila sér til baka,“ segir Helgi Kjart- ansson, oddviti Bláskógabyggðar. Vísar hann til þess að skrifstofur fyrirtækisins eru við þá götu. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti bókun þar sem því er beint til iðnaðarráðherra að raforku- verð í dreifbýli verði jafnað. Telur sveitarstjórn að nýta megi hluta af arði Landsvirkjunar sem framlag til niðurgreiðslu raforkuverðs. Auka þarf jöfnunarframlag Rakið er í bókuninni að frá því skipulagsbreytingar voru gerðar á raforkukerfinu á árinu 2005 hafi fyrirtæki sem annast raforkudreif- ingu haft tvær mismunandi gjald- skrár; aðra fyrir dreifingu raforku í þéttbýli og hina fyrir dreifbýli. Þrátt fyrir niðurgreiðslu frá ríkinu sé raf- orkuverð í dreifbýli enn hærra en í þéttbýli. Til að ná fullri jöfnun fyrir alla landsmenn þurfi að auka um 900 milljónir kr. jöfnunarframlag sem lagt er á almenna raforkunotkun. Bent er á að rætt hafi verið um það að þegar skuldir Landsvirkj- unar verði greiddar upp muni arður af henni nýtast í þágu landsmanna. „Það liggur beinast við að sá arður verði nýttur á sviði raforkumála og beinlínis í þágu landsbyggðarinnar, þar sem allar virkjanir Landsvirkj- unar standa. Tímabært er að íbúar hinna dreifðu byggða sitji við sama borð og íbúar í þéttbýli hvað varðar raforkuverð og í raun hálfhjákátlegt að þeir sem búa næst uppsprettu raforkunnar, nærri virkjunum eða undir raflínum sem flytja orkuna á suðvesturhornið, skuli greiða hærra verð fyrir orkuna en þeir sem fjær búa.“ helgi@mbl.is Arðurinn myndast ekki á Háaleitisbraut  Vilja nota arð Landsvirkjunar til jöfnunar orkuverðs Í forystu Helgi Kjartansson er oddviti sveitarstjórnar Bláskógabyggðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.