Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 20% afvöldumvörum gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook 30% afsláttur af völdum vörum í dag Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Afsláttar- vika 10-70% AFSLÁTTUR Lokakaffi Kvenfélagsins Heimaeyjar verður haldið í sal Akóges í Lágmúla 4, 3. hæð 108 Reykjavík 12. maí 2019 kl. 14 til 17. Allir velkomnir Stjórnin Til sölu skúlptúr eftir snillinginn Helga Gíslason Verkið er úr kopar og stendur á fallega ryðguðum járnfæti. Hæð koparverksins er 80 sm. Hæð fótar undir verki er 97 sm. Hæð alls 177 sm Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 833-6906 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að gefa Alliance þróunarfélagi frest til sept- ember n.k til þess að ganga frá leigusamningi við hótelrekstraraðila og fjármögnun verkefnis við Grandagarð 2, á Alliance-reitnum, og að gengið verði frá kaupsamn- ingi í þeim mánuði. Í október 2018 samþykkti borgar- ráð að heimila skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að ganga til við- ræðna við Alliance þróunarfélag um sölu á fasteigninni Grandagarði 2 og tengdum byggingarrétti á grundvelli innsendrar tillögu í sölu- samkeppni sem borgin hélst síðast- liðið sumar. Kaupverðið var 900 milljónir króna. Brynjólfur J. Baldursson, fyrir hönd Eldborg Capital, og Örn Kjartansson, fyrir hönd M3 Capital, sendu borginni minnisblað í byrjun apríl s.l. Samkvæmt því var gert ráð fyrir því að ljúka söluferlinu í apríl. „Í millitíðinni fór flugfélagið WOW air í gjaldþrot og hafa fjár- festingar til ferðaþjónustuverkefna dregist verulega saman vegna óvissu. Hæstbjóðendur í húseignina Grandagarður 2 hyggjast byggja þar upp hótel og hafði þetta því veruleg áhrif á ferlið. Alliance þró- unarfélag hefur lagt fram vilja- yfirlýsingu alþjóðlegrar hótelkeðju sem er ekki í dag með starfsemi á Íslandi sem er nú að skoða aðkomu sína að verkefninu sem eykur líkur á því að af verkefninu verði,“ segir í minnisblaðinu. Nafn hótelkeðjunnar er ekki nefnt í minnisblaðinu. Hins vegar kemur fram að um sé að ræða þýska hótelkeðju sem rekur 30 hót- el í 8 löndum. Keðjan hafi hug á því að gera langtímaleigusamning við Alliance þróunarfélag. Starfsmenn hennar hyggist eyða næstu 6 –8 vikum í nákvæma greiningu á rekstri hótels á reitnum. Verði nið- urstaðan jákvæð sé ætlunin að und- irrita leigusamning. „Eftir að við fáum staðfestingu leigusamnings verður síðan unnið með lánastofn- unum um heildarlánsfjármögnun á verkefnið,“ segir í minnisblaðinu. Í fyrrahaust var tilkynnt að vilja- yfirlýsing lægi fyrir við dönsku hót- elkeðjuna Guldsmeden um að reka hótel á reitnum. Á Alliance-reitnum er einnig gert ráð fyrir íbúðum, veitingastöðum og verslunum. Þýsk keðja vill reka hótel á Grandagarði  Borgin veitir kaupendum Alliance-reits frest til hausts Mynd/THG arkitektar og Argos arkitektar Grandatorg Hugmynd arkitekta að Alliance-húsinu og nýjum byggingum á reitnum. Þar verða íbúðir og þjónusta. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nauðsynlegt er að skapa hvata til fjölgunar nemendum í sjúkralið- anámi, meðal annars með vitundar- vakningu um mikilvægi starfa sem sjúkraliðar. Undirmönnun á vinnu- stöðum veldur álagi og þreytu sem leiðir af sér veikindi fólks til lengri tíma, en við því er brugðist með yf- irvinnu og aukavöktum sem þeir sem fyrir eru þurfa að sinna. Þetta segir í ályktun Sjúkraliðafélags Íslands sem hélt fulltrúaþing sitt í vikunni. Einn- ig eru ítrekaðar kröfur um styttingu vinnuvikunnar, sem sjúkraliðar vilja að verði í dagvinnu 35 klukkustundir á viku og 28 klukkustundir í vakta- vinnu. Allar tilraunir varðandi stytt- ingu vinnuvikunnar hafi virkað vel. Í ályktun sjúkraliða er vikið að því að fjölga eigi hjúkrunarrýmum um 790 hjúkrunarrýma til ársins 2023. Með því sé þó aðeins hálf sagan sögð, því ekki fáist fagmenntað starfsfólk til að sinna þjónustunni. Í áraraðir hafa hjúkrunarheimili verið undir- mönnuð af fagfólki og allt að 70 – 80% þeirra sem þar starfa eru ófag- lærðir. Íbúar eigi hins vegar rétt á faglegri hjúkrun og umönnun, og að njóta bestu mögulegrar heilbrigðis- þjónustu á hverjum tíma. Til að unnt sé að veita viðeigandi, faglega þjón- ustu á hjúkrunarheimilum þarf lög- gilt heilbrigðisstarfsfólk og að þar eins og í heimahjúkrun séu sjúkralið- ar í aðalhlutverki. Minnt er á að stefna stjórnvalda sé að fólk búi heima eins lengi og mögulegt er og njóti góðrar, þverfaglegrar heima- hjúkrunar. Þetta sé hagkvæm lausn sem geti frestað heimahjúkrun eða komið í veg fyrir að grípa þurfi til dýrra úrræða, eins og sjúkrahúsinn- lagna eða varanlegrar vistunar á stofnun. Vinnutími verði styttur  Heimahjúkrun sé efld  Sjúkraliðar eru í aðalhlutverki Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar þrjú mál þar sem um er að ræða tilraunir til smygls fíkni- efna til landsins. Í öllum tilvikum er um að ræða tilraunir til að smygla efnum innvortis. Í nýjasta málinu var um að ræða erlendan karlmann sem var að koma frá Hamborg 14. mars. Tollgæslan stöðvaði hann í Leifsstöð og lögregla handtók manninn. Var hann með 100 grömm af kókaíni innvortis. Þessi sami maður kom til lands- ins árið 2017 og var þá gripinn fyrir tilraun til fíkniefnasmygls og dæmdur í 8 mánaða fangelsi. Áður höfðu tvær erlendar konur í tveim- ur aðskildum málum verið stöðv- aðar í flugstöðinni. Önnur var að koma frá London og hin frá Bruss- el. Sú fyrrnefnda var með tæpt hálft kíló af kókaíni innvortis og hin með tæp 200 grömm innvortis. Þrjú handtekin með kókaín innvortis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.