Morgunblaðið - 11.05.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vandaðir þýskir
póstkassar, hengi-
lásar, hjólalásar
og lyklabox.
MIKIÐ ÚRVAL
Vefverslun brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16 Fagmennska í 100 ár
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Niðurstaða ársreiknings bæjarsjóðs
Reykjanesbæjar fyrir árið 2018 er sú
besta í 25 ár. Skuldaviðmið er komið
vel undir lögboðið 150% viðmið og er
nú 137%. Rekstrarniðurstaða bæjar-
sjóðs að teknu tilliti til afskrifta og
fjármagnsliða er
jákvæð um 2.677
milljónir króna.
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar,
sagði í samtali við
Morgunblaðið í
gær að mikil
fjölgun íbúa í
bæjarfélaginu á
undanförnum ár-
um væri stærsta skýringin á bættum
fjárhag bæjarins.
„Hjá okkur hefur orðið gríðarleg
tekjuaukning vegna mikillar fólks-
fjölgunar, sem undanfarin fjögur ár
hefur verið fordæmalaus, á milli 6 og
8% á ári,“ sagði Kjartan Már.
Íbúafjöldi Reykjanesbæjar í lok
árs 2018 var 18.930 og fjölgaði um
6,38% frá fyrra ári.
Kjartan segir að vitanlega hafi
þessi mikla fólksfjölgun í bæjar-
félaginu haft í för með sér fullt af
áskorunum fyrir bæjarfélagið.
„Gjaldamegin var það þannig að
við höfðum talsvert svigrúm. Við
rekum sex grunnskóla og tíu leik-
skóla og það var pláss í mörgum af
þessum stofnunum – það var viss
slaki í kerfinu, þannig að við gátum
tekið við nýjum íbúum, ekki síst
börnum, án þess að þurfa að leggja
út í miklar fjárfestingar í upphafi,“
sagði Kjartan Már.
Hann segir að vissulega sé bæjar-
félagið enn í skuldaklafa og undir
eftirlitsnefnd fjármála sveitarfélaga,
þannig að bæjarfélagið hafi þurft að
fylgja mjög stífum ferlum hvað varð-
ar ráðstöfun fjármagns og geri enn.
„Við bara tókum í handbremsuna og
höfum áfram haldið í hana. Þess
vegna höfum við náð að nýta þennan
tekjuauka án þess að ráðstafa hon-
um öllum jafnóðum.“
Spurður um horfurnar, ekki síst
með tilliti til hruns Wow air, sagði
Kjartan:
„Ég held að horfurnar séu áfram
mjög góðar. Auðvitað eru einhverjar
blikur á lofti til skamms tíma í
tengslum við gjaldþrot Wow og sam-
drátt í flugi til landsins, vegna þess
að flugvöllurinn er okkar langmik-
ilvægasti vinnustaður. En ef við
horfum til lengri framtíðar, þá er
ekkert sem bendir til annars en að
flugumferð muni áfram aukast og
farþegum til og frá og um Keflavík-
urflugvöll muni fjölga. Allar spár
gera ráð fyrir því. Við erum því
bjartsýn og byggjum okkar sýn á
áframhaldandi vexti í þjónustu okk-
ar við alþjóðlega flugvöllinn, þó
vissulega viljum við alltaf leita leiða
til þess að dreifa eggjunum í fleiri
körfur hvað atvinnuuppbyggingu
varðar.“
Tókum í handbremsuna
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er bjartsýnn á fjármálahorf-
ur bæjarins Niðurstaðan á síðasta ári var sú besta í 25 ár
Morgunblaðið/Ómar
Reykjanesbær Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs á síðasta ári var jákvæð um
2,6 milljarða króna. Íbúum Reykjanesbæjar fjölgaði um tæp 7% í fyrra.
Kjartan Már
KjartanssonStyrkjum var úthlutað í gær úr Vís-
indasjóði Krabbameinsfélags Ís-
lands. Alls fengu 13 vísindamenn
styrki að upphæð 60,3 milljónir
króna. Hæsta styrkinn, 10 milljónir,
hlaut Erna Magnúsdóttir. Þetta er í
þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðn-
um og samanlögð upphæð styrkja er
komin í nærri 160 milljónir króna.
Auglýst var eftir umsóknum um
styrki fyrr á þessu ári og bárust 18
umsóknir. Af þeim 12 rannsóknum
sem valdar voru eru þrjú verkefni að
hljóta styrk úr sjóðnum í þriðja sinn.
Markmið sjóðsins er að efla ís-
lenskar rannsóknir á krabbameini,
orsökum sjúkdómsins, forvörnum,
meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
Erna Magnúsdóttir hefur unnið
að rannsókn á Waldenström-
sjúkdómnum, sem er ólæknandi
hægfara krabbamein B-eitilfrumna.
Um 3 milljónir manna á heimsvísu
greinast með sjúkdóminn árlega.
Aðrir styrkþegar úr sjóðnum eru
eftirtaldir, upphæð innan sviga:
Andri Steinþór Björnsson (7,4 millj-
ónir), Stefán Sigurðsson (6,8 millj-
ónir), Guðrún Valdimarsdóttir (6,4
milljónir), Inga Reynisdóttir (5
milljónir), Margrét Helga Ögmunds-
dóttir (5 milljónir), Helga M. Ög-
mundsdóttir (4,7 milljónir), Birna
Baldursdóttir (4,4 milljónir), Rósa
Björk Barkardóttir (4,3 milljónir),
Gunnhildur Ásta Traustadóttir (2,5
milljónir), Suzannah A. Williams og
Bríet Bjarkadóttir (2,5 milljónir) og
Ágúst Ingi Ágústsson (1,2 milljónir).
Formaður sjóðsstjórnar er Sigríð-
ur Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar á LSH, og varafor-
maður er Magnús Karl Magnússon,
prófessor við læknadeild HÍ.
Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Vísindamenn Styrkþegar og fulltrúar þeirra flestra tóku við rannsóknar-
styrkjunum í húsakynnum Krabbameinsfélags Íslands í gær.
13 vísindamenn
fengu 60 milljónir