Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Sérhæft bílaþjónustufyrirtæki með eigin innflutning og góða framlegð. Velta 80 mkr. Ebitda 17 mkr. • Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað. Velta 100mkr. Góður hagnaður. • Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttingasmíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr. • Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð. • Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður vöxtur. • Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma. • Blikkiðjan ehf. í Garðabæ. Um er að ræða rekstur og fasteign að Iðnbúð 3. Velta um 80 mkr. • Lítil heildverslun með sterkan fókus í árstíðabundinni vöru. Tilvalinn rekstur fyrir einstaklinga eða sem viðbót við aðra heildsölu. Stöðug rekstrarsaga. Velta 45 mkr. • Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir. Velta 100 mkr. og góð afkoma. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Áhöld eru um það hvers vegna hæfnisnefndin í Landsréttarmálinu ákvað að nefna einungis þá fimmtán umsækjendur, sem efstir urðu á stigatöflunni, sem hæfustu umsækj- endurna, en ekki fleiri eða færri. Hins vegar var sú ákvörðun tekin mjög snemma í störfum hæfnis- nefndarinnar og voru allir nefndar- menn sammála um hana. Í vitnisburði Gunnlaugs Claessen, formanns nefndarinnar, fyrir Hér- aðsdómi vegna skaðabótakrafna tveggja umsækjenda um dómara- embætti, kemur meðal annars fram að nefndin tók illa í umræðum sín á milli í hugmynd sem Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráð- herra, hafði viðrað við Gunnlaug um að nefndin mæti að minnsta kosti tuttugu manns hæfasta svo ráð- herra hefði eitthvert svigrúm. Var ráðherra greiði gerður? Ljóst er að sú spurning, hversu marga af umsækjendum hæfnis- nefndin eigi eða jafnvel megi út- nefna sem hæfasta, kemur einnig inn á þá spurningu hvort ráðherra eigi að fara með valdið til þess að skipa í dómarastöður eða hvort hæfnisnefndin eigi í raun að vera nokkurs konar valnefnd. Á Lagadeginum, sem haldinn var á vegum Lögfræðingafélags Íslands í Hörpu hinn 16. febrúar 2018, var opin málstofa um skipan dómara. Í fyrirspurnatíma eftir framsögur þátttakenda tók Guðrún Björk Bjarnadóttir, fulltrúi Lögmanna- félagsins í hæfnisnefndinni, til máls og fjallaði meðal annars um þá spurningu, sem velt hafði verið upp á málstofunni, hvort það væri eðli- legt eða heppilegt ef hæfnisnefndin yrði skikkuð til að telja tvo umsækj- endur um stöðu jafnhæfa. Benti Guðrún Björk á að þar með „í raun- inni væri valdið endanlega komið til ráðherra að velja úr þeim,“ og bætti við að hún teldi það ekki góða þróun. Þá bætti hún við að þegar hæfn- isnefndin hefði mælt með fimmtán umsækjendum hefði nefndin talið „að hún væri að gera ráðherra ákveðinn greiða með því að segja þessir eru hæfastir og þar með þyrfti ráðherra ekki að hætta sér út á þetta pólitíska sjónarspil að fara að velja sjálfur heldur gæti bara tekið þennan lista og gengið frá mál- inu þannig“. Sagði Guðrún Björk að nefndin hefði talið það betra fyrir ráðherra að þurfa ekki að taka ákvörðunina og fara að velja á milli sjálfur. Ekki ástæða til að nefna fleiri Spurð um ummæli sín á Lagadeg- inum segir Guðrún Björk í samtali við Morgunblaðið að það hljóti að liggja í hlutarins eðli að ef ráðherra fái lista með fimmtán nöfnum og hafi ekki val sé hann betur staddur pólitískt. „Mér finnst það liggja í augum uppi að það hlýtur að vera auðveldara fyrir ráðherra að fá lista með fimmtán nöfnum og fylgja hon- um eftir, heldur en að velja sjálfur á milli, því það er alltaf auðvelt að gagnrýna það. Það er það sem ég meinti.“ Spurð um þá stöðu sem kom upp, að ekki reyndist stuðningur á þinginu við lista nefndarinnar, með- al annars vegna kynjasjónarmiða, segir Guðrún Björk að nefndin hafi verið bundin af þeim lögum og reglugerðum sem giltu um störf hennar og bendir á að Alþingi hefði hafnað því, þegar það setti lög um skipan Landsréttar að kynjasjónar- mið yrðu tekin sérstaklega til greina. Þá hefði ekki verið ástæða til að nefna fleiri eða færri sem hæfasta til að gegna dómaraembætti. Niður- staða nefndarinnar hefði verið skýr með að þessir fimmtán voru hæf- astir og þar með hæfari en þeir sem komu í næstu sætum þar á eftir. „Við áttum að finna þá fimmtán hæf- ustu og það var ekki neitt svigrúm til að víkja frá því.“ Ekki skoðun nefndarinnar Morgunblaðið bar ummæli Guð- rúnar Bjarkar á Lagadeginum 2018 undir aðra nefndarmenn í hæfnis- nefndinni í Landsréttarmálinu. Könnuðust þeir ekki við að það hefði verið skoðun nefndarinnar að það væri betra að hlífa dómsmálaráð- herra við pólitískum átökum með því að útnefna bara fimmtán um- sækjendur sem hæfasta. Nefndin hefði þó verið samdóma um að út- nefna bara fimmtán umsækjendur sem hæfasta. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrver- andi ráðherra og fulltrúi Alþingis, í nefndinni, tók þó fram að hún væri sammála því sjónarmiði að það væri einfaldara fyrir ráðherra að fá tilbú- inn lista með fimmtán nöfnum, hvorki fleiri né færri. „Ég hefði hugsað mér sjálf sem ráðherra, að það hefði verið þægilegra fyrir mig að fá málið afgreitt á þennan hátt.“ Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Hæfnisnefnd tók illa í hugmyndir um að útnefna fleiri en fimmtán umsækjendur sem hæfasta. Var einfaldara að fá tilbúinn lista?  Hæfnisnefnd tók illa í hugmyndir um að gefa ráðherra val Hið árlega reiðhjólauppboð lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu fer fram í dag í Skútuvogi 8 í Reykja- vík, það er húsnæði Vöku. Hjólin sem boðin verða upp eru á bilinu 70-80 talsins, en þau má fyrst bjóða upp þegar þau hafa verið í vörslu lögreglunnar í eitt ár og degi betur. Ýmsir aðrir óskilamunir verða boðnir upp, til dæmis barnavagnar. Að sögn Þóris Ingvarssonar sem stýrir þjónustudeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rennur ágóði uppboðsins í lögreglusjóðinn. Úr honum eru veittir styrkir í ýmiss konar verkefni, meðal annars á sviði mannúðarmála. Einnig hefur Lögreglukórinn fengið styrki úr sjóðnum svo og líknarsjóðir. Þórir Ingvarsson segir að allt sé gert sem hægt er svo koma megi óskilamunum sem berast lögreglu til eigenda sinna. Embættið haldið úti vefsíðu þar sem birtar séu myndir af öllu sem berist, svo sem reiðhjólum, veskjum, rafmagns- snúrum, hleðslum fyrir rafmagns- magnsbíla og svo mætti lengi áfram telja. „Okkar hagur er að selja sem minnst af munum. Við viljum koma þeim öllum út,“ segir Þórir um upp- boðið sem er árlegt og margir bíða spenntir eftir því. „Það verður að segjast að mörg hjólanna eru í döpru ástandi og hafa fundist á víðavangi, jafnvel ofan í tjörnum. En allt sem er selt þarna er bara eins og það kemur fyrir.“ Morgunblaðið/Hari Uppboð Allt verður að seljast og margir gera þarna reyfarakaup. Óskilamunauppboð löreglunnar haldið í dag Sigríður Á. Andersen, fyrrver- andi dómsmálaráðherra, segir að sér þyki þau ummæli sem höfð eru eftir Guðrúnu Björk á Laga- deginum alvarleg. „Ég verð að segja að ég varð eiginlega miður mín að heyra þessa yfirlýsingu eins nefndarmannsins á opnum fundi á Lagadeginum, sem er í raun yfirlýsing um það hvernig nefndin hafi ákveðið að taka völdin af ráðherra og Alþingi með því að binda hóp hinna hæfustu við fimmtán, í ein- hverjum misskilningi um að þar með væri nefndin að setja niður mögulegar deilur á Alþingi. Ég spyr mig hvaðan þessi stjórn- sýslunefnd telur sig hafa umboð til þess að vængstýfa lýðræðis- lega kjörin stjórnvöld í landinu með þessum ómálefnalega hætti. Ég tel þetta vera atlögu sem er beint að æðstu stofnun þjóðarinnar, Alþingi.“ Sigríður segir að ómál- efnaleg sjón- armið hafi ver- ið látin ráða förinni í störf- um hæfnis- nefndarinnar. „Þannig að ég er stolt af því að hafa ásamt þinginu átt þátt í að koma í veg fyrir að nefndin kæmist upp með þennan yfirgang.“ Hún vísar þar meðal annars í fyrri umfjöllun Morgunblaðsins um störf hæfnisnefndarinnar. „Af þeim viðtölum má ráða að það er augljóst að nefndin lét þetta Excel-skjal stýra för, og það er almennt bagalegt að mætir umsækjendur um störf séu hlutgerðir í töflureikni eins og hver önnur lagervara.“ SIGRÍÐUR Á. ANDERSEN Sigríður Á. Andersen Segir ummælin alvarleg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.