Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Ólga innan Félagsbústaða
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sæmundur Ásgeirsson hóf störf hjá
Félagsbústöðum í febrúar árið
2000. Hann kom til starfa á fram-
kvæmdadeild og sinnti viðhaldi.
Hafði áður starfað sem sjálfstæður
verktaki og gert upp hús.
Sæmundur segist í samtali við
Morgunblaðið hafa notið sín í starfi
þegar Sigurður Kr. Friðriksson var
framkvæmdastjóri til ársloka 2013.
Eftir að Auðun Freyr tók við sem
framkvæmdastjóri hafi líðan sín
farið að versna. Smátt og smátt hafi
byggst upp spenna í þeirra sam-
skiptum. Auðun Freyr hafi virt ráð-
leggingar hans að vettugi og gert
lítið úr tillögum hans. Þá hafi Auðun
Freyr ítrekað og í vitna viðurvist
gert lítið úr sér með oft á tíðum
meiðandi spurningum í matsal. Hafi
gert lítið úr verkkunnáttu hans. Það
hafi verið eins og að Auðun væri að
reyna að sýna fram á yfirburði sína
gagnvart öðrum.
Framkoman mjög særandi
Sú spenna hafi náði hámarki með
því að Auðun Freyr niðurlægði
hann á starfsmannafundi. Slík
framkoma hafi valdið honum miklu
álagi. Erfiðasta atvikið var á fundi
með starfsmönnum Félagsbústaða,
er greint var frá ráðningu yfir-
manns á framkvæmdadeild. Sæ-
mundur sagði manninn sem var ráð-
inn vel að því kominn. Hins vegar
hefði það komið sér á óvart að vera
ekki spurður hvort hann hefði
áhuga á starfinu. „Auðun Freyr
sagði þá fyrir framan alla að búið
væri að funda um málið. Það væri
samdóma álit starfsmanna að ég
væri vanhæfur. Þetta særði mig
djúpt,“ segir Sæmundur.
„Minn yfirmaður á þeim tíma,
Helgi Hauksson, mótmælti þessum
orðum Auðuns Freys.“
Vegna þessarar framkomu segir
Sæmundur að andlegri heilsu sinni
hafi hrakað. „Ég upplifði einhverja
breytingu sem ég hef ekki fundið áð-
ur. Hélt að ég væri að fá hjartaáfall
og fór á hjartadeild Landspítalans.
Þetta var kvíði,“ segir Sæmundur
sem var í veikindaleyfi í þrjár vikur
vorið 2017.
Leið sífellt verr í starfi
„Þá kom Auðun Freyr heim til
mín og vildi spjalla en þó ekki um
vandamálið sjálft. Spurði hvort ég
vildi ekki koma aftur til starfa. Mér
er minnisstætt að hann kom með
barnið sitt. Ég fór þá að skýra fyrir
honum af hverju mér liði illa. Aðal-
málið var að mér leið orðið verr og
verr í þessu umhverfi. Það byggðist
upp verkkvíði. Þetta breyttist frá því
að hlakka til að fara í vinnuna í að
kvíða fyrir því. Þegar manni er farið
að líða þannig rífur það mann niður,“
segir Sæmundur.
Hann sneri aftur til vinnu. Upplif-
unin af vinnustaðnum breyttist hins
vegar ekki og í febrúar 2018 fór
hann í lengra veikindaleyfi. Fram-
vísaði læknisvottorði um veikindi.
Sagði þar að Sæmundur ætti við
sjúkdóm að stríða en það var ekki
tilgreint frekar. Að hans sögn mátti
stjórn Félagsbústaða vera ljóst að
veikindin væru andlegs eðlis.
Veikindaleyfinu lauk með upp-
sagnarbréfi sem barst skömmu áður
en veikindarétturinn rann út haustið
2018. Auðun Freyr hafði þá látið af
störfum og nýr framkvæmdastjóri,
Sigrún Árnadóttir, tekið við.
Sæmundur segist aðspurður líta
svo á að framkoma Auðuns Freys
kunni að flokkast undir einelti.
„Hvort þetta flokkist undir einelti
verða sérfræðingar að dæma um en
eftir því sem ég best veit hafa þeir
aldrei verið kallaðir til,“ segir Sæ-
mundur og tekur fram að áður en
Auðun Freyr varð framkvæmda-
stjóri hafi sálfræðingur að nafni
Björn Vernharðsson rætt við hluta
starfsfólksins. Þau viðtöl hafi verið
að frumkvæði Sigurðar, þáverandi
framkvæmdastjóra.
Merki um kulnun í starfi
„Mér fannst Björn mjög réttsýnn.
Hann sagði skýr merki um kulnun
hjá sumum starfsmönnum. Það sem
hefði þurft að gera hjá Félags-
bústöðum var að taka fólk í viðtal og
vinna í þessum málum. Vandamálin
jukust eftir að Auðun Freyr tók við.
Það voru farin að hrúgast upp erfið
samskipti hjá fyrirtækinu. Sam-
starfsmaður minn var margbúinn að
biðja um eineltisrannsókn.“
Sveini Gunnarssyni, trésmið og
kerfisfræðingi, var sagt upp störfum
hjá Félagsbústöðum í janúar 2017
en hann var þar fastráðinn 2003.
Sveinn segir í samtali við Morgun-
blaðið að starfið hafi þá verið orðið
erfitt en hann telur sig hafa verið
beittan einelti af þáverandi fram-
kvæmdastjóra Félagsbústaða,
Auðuni Frey.
Fór að brjóta niður störfin
Sveinn sá fyrst um viðhald og
eftirlit með fasteignum Félags-
bústaða en svo samhliða um rekstur
tölvukerfis Félagsbústaða.
Sveinn telur Auðun Frey hafa lagt
sig í einelti og niðurlægt. Sum dæm-
in eru þess eðlis að þeir einir eru til
frásagnar og er hér fjallað um sam-
skiptin á almennan hátt.
„Um leið og Auðun Freyr varð
framkvæmdastjóri fór hann að gera
lítið úr störfum mínum og ég vil
meina að leggja mig í einelti. Mér
fannst hann vera að reyna að ýta
mér út allan tímann, í þessi 3-4 ár
sem ég var þarna eftir að hann kom
sem honum tókst svo að lokum með
hjálp lögfræðings.
Ég fékk fjögurra mánaða upp-
sagnarfrest en ekki starfslokasamn-
ing og var gert að yfirgefa vinnu-
staðinn samdægurs. Fékk að sækja
dótið mitt mánudaginn á eftir. Það
var lokað á mig.“
– Í hverju birtist þetta einelti?
„Auðun Freyr sagði reyndar við
mig, þegar hann var nýtekinn við
sem framkvæmdastjóri, að það væri
góð blanda að vera smiður og kerfis-
fræðingur. Síðan byrjaði niður-
brotið. Auðun Freyr var stöðugt að
tala um að færa mig til í starfi. Það
skapaði spennu og óöryggi. Hann
talaði m.a. um að láta mig hætta í
tölvunum og fara meira í eftirlitið
sem varð aldrei. Ég var tilbúinn að
gera það en það var aldrei bíll til
staðar fyrir mig til að sinna eftirliti.
Samstarfsmenn mínir vildu ekki láta
bílana frá sér enda höfðu þeir nóg
með sig. Þetta var viss niðurlæging.
Auðun Freyr var stöðugt með nei-
kvæðar aðfinnslur. Sagði að ég væri
ekki nógu góður í hinu og þessu.
Samskiptin voru aldrei jákvæð.“
Bætti við sig gráðum
– Bauð Auðun Freyr þér að sækja
námskeið eða fara aðrar leiðir til að
bæta kunnáttuna?
„Nei. Fyrir utan að vera kerfis-
fræðingur hafði ég meðal annars
tekið allar Microsoft-gráðurnar hjá
Promennt. Hafði gert það í sam-
starfi við Sigurð [Kr. Friðriksson,
fyrrverandi framkvæmdastjóra].
Mér er minnisstætt þegar við
sóttum fund með erlendum koll-
egum okkar á Hótel Holti. Þarna var
samankomið fólk sem vinnur við
tölvukerfi. Þegar ég tók til máls gaf
Auðun Freyr mér merki um að
þegja, sem var auðvitað niðurlægj-
andi. Það var tilgangslaust fyrir mig
að mæta. Allar tillögur sem maður
kom með voru brotnar niður.“
Sveinn segir Auðun Frey hafa
sýnt sömu hegðun á starfsmanna-
fundi hjá Félagsbústöðum. Auðun
Freyr hafi þá tjáð Sæmundi Ás-
geirssyni, starfsmanni Félags-
bústaða, að það væri á allra vitorði
að hann væri vanhæfur.
„Maður segir ekki svona við mann
fyrir framan 20 manns. Það er ljótt.
Maðurinn var ofsalega sár. Fram-
koma Auðuns Freys fékk mikið á
vinnufélaga minn. Dag einn ók ég
honum á spítala vegna álags sem
fylgdi þessu umhverfi. Maðurinn var
Framkoman hafi valdið kvíða og va
Tveir fyrrverandi starfsmenn Félagsbústaða telja fv. framkvæmdastjóra hafa komið illa fram
Sú framkoma hafi bitnað á andlegri heilsu þeirra Annar telur sig hafa verið beittan einelti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Erfið reynsla Sæmundur Ásgeirsson starfaði hjá Félagsbústöðum. Honum fór að líða sífellt verr í starfinu.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Auðun Freyr Ingvarsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Félags-
bústaða, lagði hinn 5. apríl sl. fram
kæru til siðanefndar Blaðamanna-
félags Íslands á hendur þeim sem
þetta ritar, Baldri Arnarsyni, vegna
fréttar um málefni Félagsbústaða
sem birtist í Morgunblaðinu 4. mars
og ritstjórn Morgunblaðsins varð-
andi skrif um málið á mbl.is.
Farið frjálst með staðreyndir
Áður en Auðun Freyr lagði fram
kæruna sendi hann Morgunblaðinu
áskorun hinn 11. mars um að birta í
heild grein hans „Hver er fréttin?“ á
blaðsíðu 6 í prentaðri útgáfu blaðsins
og birta sömu grein á mbl.is sam-
dægurs. Þá var farið fram á að blaða-
maðurinn, þ.e. undirritaður, „eða rit-
stjórn fyrir hans hönd“ bæði hann
„formlega afsökunar á skrifunum“.
Fór Auðun Freyr fram á að þetta
yrði birt í síðasta lagi 18. mars, ella
yrði málið kært til siðanefndar
Blaðamannafélags Íslands.
Jafnframt fylgdi með yfirlýsing frá
núverandi starfsfólki Félagsbústaða
4. mars um að í fréttinni væri „frjáls-
lega farið með aðstæður, ástæður og
skoðanir starfsfólks félagsins auk
þess að ómaklega er vegið að starfs-
heiðri fyrrverandi framkvæmda-
stjóra“. Þá var m.a. á það bent að „fé-
lagið getur t.d. ekki svarað opin-
berlega sögusögnum um ástæður
starfsloka fyrrverandi starfsmanna“.
Undir hana rituðu 24 núverandi
starfsmenn. Fram kemur í áskorun
Auðuns Freys, „Hver er fréttin?“, að
óánægja hefði verið meðal hluta
starfsmanna Félagsbústaða vegna
breytinga á starfseminni.
Það var mat blaðamanns að traust-
ar heimildir væru fyrir umræddri
frétt. Ekkert tilefni væri því til birt-
ingar yfirlýsingarinnar á fréttasíðu.
Óánægja hafi birst í könnun
Fyrirsögn umræddrar fréttar í
Morgunblaðinu var „Hættu vegna
stjórnandans“. Sagði í inngangi frétt-
arinnar að „þegar Auðun Freyr
Ingvarsson hætti sem fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða sl.
haust hafði verið megn óánægja með
störf hans fyrir félagið. Birtist sú
óánægja í könnun sem Maskína gerði
meðal starfsmanna. Kvaðst mikill
meirihluti svarenda ósáttur við fram-
kvæmdastjórann“.
Þá sagði í fréttinni að uppsögn
Auðuns Freys ætti sér dýpri rætur
en skýrast af framúrkeyrslu við ein-
stök verkefni. Til upprifjunar kom
fram í tilkynningu Félagsbústaða í
október sl. að Auðun Freyr hefði „í
ljósi þeirra athugasemda sem fram
komu í skýrslu Innri endurskoðunar
[borgarinnar] kosið að segja starfi
sínu lausu í þeirri von að sátt skapist
um rekstur félagsins og svigrúm til
frekari endurbóta“. Varðaði umrædd
skýrsla Innri endurskoðunar við-
haldsverkefni Félagsbústaða í Íra-
bakka 2-16. Reyndist kostnaðurinn
330 milljónir umfram heimildir.
Morgunblaðið hafði í umræddri
frétt heimildir fyrir því að almenn
óánægja hefði verið með störf Auð-
uns Freys gagnvart starfsmönnum.
Það hafði verið mikil hreyfing á
starfsfólki. Starfsmenn Félags-
bústaða í tíð Auðuns Freys hefðu
hætt af þremur ástæðum. Í fyrsta
lagi fyrir aldurs sakir. Í öðru lagi
vegna þess að þeim buðust önnur
störf og í þriðja lagi vegna erfiðleika
í samskiptum við Auðun Frey. Þeir
hafi verið látnir fara.
Auðun Freyr gagnrýnir í kæru til
siðanefndar að blaðamaður hafi ekki
haft samband við sig, þrátt fyrir að
væra meginumfjöllunarefni fréttar-
innar. Þá hafi verið ranglega haft
eftir honum „um ástæður starfsloka
hans og látið í það skína að ástæður
uppsagnar hafi raunverulega verið
samskiptavandamál við starfsfólk“.
Þá sé staðreyndum í trúnaðar-
skýrslu sem unnin var fyrir Fé-
lagsbústaði „snúið á hvolf“. Sú full-
yrðing að megn óánægja hafi verið
með störf hans teljist „rógburður“.
Ójafnvægi í framsetningu
Meðal annarra atriða sem Auðun
Freyr gagnrýnir er að „mikils ójafn-
vægis“ gæti í framsetningu fréttar-
innar 4. mars, svo verulega halli á
hann „í máli sem hefur marga ólíka
fleti“. „Hann hefur ekki sýnt undir-
rituðum, Félagsbústöðum og starfs-
fólki félagsins tillitssemi í vandasömu
máli og hefur með því valdið undir-
rituðum, félaginu og starfsfólki þess
óþarfa sársauka og vanvirðu … Mál-
ið hefur ekki verið kært til dóm-
stóla,“ skrifaði Auðun Freyr. Ekkert
hafi gefið tilefni til svo „ærumeiðandi
og rætinna skrifa.“
Í tilefni kærunnar er rætt við þrjá
fyrrverandi starfsmenn Félags-
bústaða í blaðinu í dag. Blaðið hefur
rætt við fleiri fyrrverandi starfs-
menn Félagsbústaða sem óskað hafa
nafnleyndar. Þeir sögðu starfsand-
ann hafa verið slæman í tíð Auðuns
Freys og tveir sögðu það skýra
brotthvarf úr starfi.
Blaðamaður hafði samband við
Auðun Frey sl. fimmtudag og bauð
honum að koma í viðtal í laugar-
dagsblaði Morgunblaðsins, þ.e.a.s. í
dag. Hann afþakkaði viðtal en sam-
þykkti að áðurnefnd grein, „Hver er
fréttin?“, yrði birt sem aðsend grein í
Morgunblaðinu í dag.
Gagnrýnir frétt Morgunblaðsins
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Félagsbústaða telur blaðamann Morgunblaðsins hafa varpað á sig
rýrð með „ærumeiðandi og rætnum skrifum“ Kærði skrifin til siðanefndar Blaðamannafélagsins
Stjórnandi Auðun Freyr Ingvarsson.