Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 22

Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Hebblethwaite er staddur hér á landi um þessar mundir til að und- irbúa nokkur samstarfsverkefni með Hvíta húsinu, sem snúast um mark- aðssetningu í Lundúnum, en hlut- verk Hebblethwaite, og The Value Engineers, er þá að tengja auglýs- ingastofuna inn í hentugt net sam- starfsaðila í borginni. „Ég er mjög ánægður að koma og vinna enn og aftur með Hvíta húsinu. Þetta eru allt verkefni sem ég veit ekki ennþá nákvæmlega hver eru, en eiga að fara í gang síðar í sumar.“ Innleiða í smáatriðum Til að útskýra nánar hvernig The Value Engineers vinnur, segir Heb- blethwaite að fyrirtækið sé ekki í auglýsingagerð eða almanna- tengslum, heldur hjálpi til við að greina markaði, setja upp stefnu og fylgja henni svo eftir í smáatriðum, til að tryggja árangur. Hann nefnir til frekar útlistunar verkefni sem fyrirtækið vann fyrir breska flug- félagið British Airways. „Við leidd- um og framfylgdum stefnumótunar- vinnu í hinni frægu herferð British Airways frá árinu 2011, „To fly. To Serve“, en þar var það risastór aug- lýsingastofa, BBH, sem sá um hinar snilldarlegu auglýsingar sem voru gerðar.“ Hebblethwaite segir að verkefnið, hafi komið British Airways á kortið aftur í fluggeiranum, með áherslu á góða þjónustu. Í dag hafi félagið þó eitthvað gefið eftir í þeim efnum, og flugfélög eins og Emirates og Virgin siglt fram úr. „To Fly. To Serve-her- ferðin bætti afkomu flugfélagsins verulega, en aðalmálið í okkar starfi var að breyta hugarfari starfsfólks- ins, og láta alla einblína á hvað þyrfti að gera til að félagið gæti veitt fyrsta flokks þjónustu. British Airways varð með þessu aftur þjónustumiðað flugfélag, og við með okkar vinnu tryggðum að þú sem viðskiptavinur fékkst strax og þú komst um borð, fullvissu fyrir því að þú myndir njóta flugsins. Unnið var náið að útfærsl- unni með öllu starfsfólkinu, fluglið- unum, fólkinu sem sá um farangur- inn, o.s.frv.“ Spurður um álit á Íslandi sem vörumerki, og hvernig landanum gangi að fanga athygli umheimsins, segir Hebblethwaite að hann hafi upplifað miklar breytingar á síðustu 12 árum. „Nú er Ísland komið á sér- lista allra á aldrinum 40-60 ára yfir óskaáfangastaði í heiminum. Fólk vill fara til Maldíveyja, á Inkaslóðir, til Ástralíu, Nýja-Sjálands og svo til Íslands. Ísland er enn dularfullt, en dulúðin er þekkt, og fólk veit núna betur hvað það er að fara út í.“ Góð náttúrutengsl vara AFP Vörumerki Eitt þekktasta verkefnið sem The Value Engineers hefur unnið að var endurvörmerkjasetning flugfélagsins British Airways árið 2011.  Finnst gott að vinna með Íslendingum  Greinir, vinnur stefnumótun og fram- fylgir í smáatriðum  Ísland er komið á sérlista hjá ferðalöngum yfir óskastaði Ekki eldflaugavísindi » „Vörumerkjaþróun er ekki eldflaugavísindi. Það þarf bara að spyrja sig „af hverju“. Af hverju erum við mikilvæg? Af hverju erum við hér? Hvernig erum við öðruvísi? Svo þurfa fyrirtæki að vera sönn og heið- arleg í því sem þau gera. Ég held að íslensk fyrirtæki séu einmitt góð í því að vera sönn og heiðarleg.“ FRÉTTASKÝRING Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslensk fyrirtæki eru góð í að tengja óblíða og stórbrotna náttúru lands- ins við vörumerki sín. Þetta er mat Ed Hebblethwaite stjórnanda og eins stjórnarmanna stefnumótunar – og markaðsgreiningarfyrirtækisins The Value Engineers í London. „Þýski bílaframleiðandinn BMW notar rómaða þýska verkfræðikunn- áttu til að aðgreina sitt vörumerki, í Sviss nota menn mikla tækniþekk- ingu í landinu í sama tilgangi, Ítalir leggja áherslu á næmleika og hönn- un, Frakkar byggja mikið á ástríð- unni, en hér hafa fyrirtækin komist upp á lag með að nota hrjúfa og óblíða náttúruna til að ná árangri,“ segir Hebblethwaite í samtali við Morgunblaðið. Snjallt markaðsfólk Hann segist hafa komist í kynni við margt mjög snjallt markaðsfólk hér á landi síðan hann hóf að venja komur sínar hingað til lands fyrir um 12 árum í tengslum við samstarf við auglýsingastofuna Hvíta húsið. Hann segir Íslendinga sér á báti þegar kemur að samstarfi. „Ég er mjög hrifinn af því að vinna með Ís- lendingum. Þeir eru fljótir að hugsa og taka ákvarðanir, og mjög prakt- ískir í hugsunarhætti. Þetta veitir þeim samkeppnisforskot,“ segir Hebblethwait og bætir við: „Íslend- ingar kunna að koma hlutunum á hreyfingu. Þeir eru lausir við allt kjaftæði og yfirlæti. Þeir bretta bara upp ermarnar og finna út úr hlut- unum.“ á síðari hluta ársins 2018. Þá hafi óvissa um launaþróun minnkað eft- ir að kjarasamningar voru sam- þykktir á almennum vinnumarkaði. Telur stofnunin að þær hækkanir sem þar er samið um muni ekki hafa teljandi áhrfi á veðlag umfram það sem áður var reiknað með. Á næsta ári er gert ráð fyrir að hag- kerfið vaxi um 2,6% vegna bata í út- flutningi og fjárfestingu. Þá er gert ráð fyrir að verðbólgan minnki og verði 3,2%. Ný þjóðhagsspá Hagstofunnar ger- ir ráð fyrir að landsframleiðsla í ár dragist saman um 0,2% að raun- virði. Stafar samdrátturinn að mestu af 2,5% minni útflutningi en á síðasta ári. Á sama tíma er gert ráð fyrir 2,4% vexti einkaneyslu. Þá segir Hagstofan útlit fyrir að verð- bólga verði um 3,4% í ár. Þá gerir stofnunin ráð fyrir að gengi krón- unnar muni haldast nokkuð stöðugt miðað við núverandi stöðu þess í kjölfar talsverðrar gengisveikingar Breytist lítið að raunvirði  Hagstofan spáir 0,2% samdrætti landsframleiðslu í ár Morgunblaðið/Eggert Útflutningur Fall WOW og loðnu- brestur draga útflutning niður. ● Fjárfestingafélagið Stoðir hefur fest kaup á tæplega 320,7 milljónum hluta í Símanum en fyrir átti félagið ríflega 429,3 milljónir hluta. Með kaupunum fer eignarhlutur Stoða í Símanum úr 4,64% í 8,11%. Með kaupunum verður félagið fjórði stærsti hluthafi Símans á eftir þremur stærstu lífeyrissjóðum landsins, Lífeyrissjóði verslunarmanna, Gildi og LSR. Miðað við dagslokagengi í Kauphöll í gær nemur kaupverð hlutarins tæpum 1,3 milljörðum króna. Bréf Símans hækkuðu skarpt í Kaup- höll í gær og nam hækkunin í dagslok 7,83%. Stoðir kaupa umtals- verðan hlut í Símanum STUTT Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 11. maí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.49 123.07 122.78 Sterlingspund 159.08 159.86 159.47 Kanadadalur 90.88 91.42 91.15 Dönsk króna 18.349 18.457 18.403 Norsk króna 13.995 14.077 14.036 Sænsk króna 12.695 12.769 12.732 Svissn. franki 120.14 120.82 120.48 Japanskt jen 1.1139 1.1205 1.1172 SDR 169.46 170.46 169.96 Evra 137.02 137.78 137.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.2823 Hrávöruverð Gull 1284.1 ($/únsa) Ál 1766.0 ($/tonn) LME Hráolía 70.23 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.