Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Konunglega hestasýningin, Royal Windsor Horse Show, sem haldin er árlega í bænum Windsor skammt fyrir utan London, stendur nú yfir. Elísabet Englandsdrottning lét sig ekki vanta og kom akandi í Range Rover bíl sínum á sýninguna, sem er sú stærsta sinnar tegundar í Bret- landi og hefur verið haldin síðan 1943. Drottningin fagnaði 93 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, engar spurnir hafa borist af því að hún hyggist skila inn ökuskírteininu eins og margir jafnaldrar hennar hafa gert og af og til má sjá hana undir stýri á einhverjum bíla sinna. Elísabet Englandsdrottning fagn- aði nýverið fæðingu áttunda barna- barns síns, sonar Harrys prins og Meghan hertogaynju af Sussex. AFP Drottning ekur bíl Elísabet II Englandsdrottning einbeitt undir stýri á Range Rover bíl sínum. Hún varð 93 ára þann 21. apríl síðastliðinn og lítinn bilbug virðist vera að finna á drottningunni hvort sem er í starfi eða leik. Tiginn bíl- stjóri sat undir stýri París. AFP. | Liao Yiwu hefur fengið viðurnefnið Solsjenitsín Kína vegna andófsskrifa sinna. Hann er þeirrar hyggju að „öllum heiminum stafi ógn“ af Kína og rakti viðhorf sín í samtali við fréttaveituna AFP. Liao var settur í fangelsi fyrir að skrifa ljóð, sem bar yfirskriftina „Fjöldamorð“, um mótmæl- in á Torgi hins himneska friðar. Hann telur að það væri betra fyrir mannkyn ef efnahagsrisinn skipti sér upp. „Draumur minn er að Kína verði skipt upp í um 10 lönd eða svo,“ sagði hann í tilefni af út- komu nýjustu bókar sinnar, Byssukúlur og óp- íum, á frönsku. „Ástæðan er sú að í dag stafar öllum heiminum ógn af Kína.“ Í bókinni, sem hefur verið bönnuð í Kína eins og önnur skrif höfundar, eru sagðar sögur tuga fórnarlamba blóðbaðsins á Torgi hins himneska friðar þegar hermenn myrtu fjölda mótmælenda í Peking árið 1989. Í Kína er með öllu bannað að tala um blóðs- úthellingarnar, sem einnig eru kenndar við 4. júní. „Það er mér ekki ofarlega í huga að snúa aftur til Kína,“ segir Liao, sem hefur búið í útlegð í Berlín frá 2011. „Ég myndi vilja fara til fæðing- arslóða minna í Sichuan – þegar það fær sjálf- stæði. Þá myndi ég með ánægju snúa aftur.“ Liao er sextugur að aldri. Hann er skáld og tónlistarmaður. Hann hefur einnig fjallað um líf fátækra í Kína. Hann var pyntaður í fangelsi að því er mannréttindasamtök hafa greint frá og eftir að hann var látinn laus sætti hann ofsókn- um lögreglu. Hann sagði AFP að hann væri mjög svartsýnn á framtíð Kína undir stjórn Xi Jinpings forseta, sem yrði sífellt gerræðislegri í stjórnarháttum. „Fyrir þrjátíu árum héldum við að þróunin yrði í átt til lýðræðis. Nú snýst allt um að maka krókinn,“ segir hann. „Öll vestrænu ríkin, sem gagnrýndu Kína eftir fjöldamorðin, keppa nú hvert við annað um að eiga viðskipti við böðlana jafnvel þótt þeir haldi áfram að handtaka fólk og drepa.“ Hann talaði háðslega um þá staðreynd að dótt- ir Xi Jinpings hefði lært við Harvard-háskóla ásamt börnum annarra leiðtoga í kommúnista- flokknum. „Meira að segja hjákonur leiðtoganna fá námsstyrk,“ sagði hann, til að læra við banda- ríska háskólann. Barátta fyrir sannleikanum „Þeir sem eru ósáttir eru settir til hliðar en þeir sem vilja græða peninga án þess að gagn- rýna flokkinn geta gert það sem þeir vilja,“ sagði hann. Liao telur að hvað sem öðru líði hafi Torg hins himneska friðar verið tímamótaviðburður í kín- verskri samtímasögu. „Fyrir mig eins og alla Kínverja voru þetta straumhvörf,“ sagði hann. „Þú mátt ekki nefna fjöldamorðin í Kína, það er bannað. Mín barátta er að koma sannleik- anum um það sem gerðist til skila til eins margra manna og ég get.“ Hann sagði að þremur áratugum síðar „vitum við ekki enn nákvæmlega fjölda fórnarlamb- anna“. Mannréttindasamtök telja að á milli 2.600 og 3.000 manns hafi látið lífið eftir að 200.000 her- menn voru sendir til að umkringja höfuðborg Kína. Í skeytum bresku utanríkisþjónustunnar sem voru birt 2017 kemur fram að fyrst á eftir hafi verið talið að um 10.000 manns hefðu fallið. „Hópurinn mæður Torgs hins himneska friðar hefur birt 202 nöfn, en við vitum að það voru miklu fleiri,“ sagði Liao. Ungur maður tók sér stöðu fyrir framan skrið- dreka og varð að tákni hinna friðsamlegu mót- mæla. „Við vitum ekki einu sinni nafn hans eða örlög,“ bætti hann við. „Vestrænir fjölmiðlar gáfu honum nafnið Wang Weilin, en það var búið til. Við vitum ekk- ert um hann þótt hann sé tákn milljóna manna, sem voru á móti harðstjórninni 4. júní,“ sagði Li- ao. Bókinni Vitnisburðir eftir Liao um tíma hans í fangelsi í Kína hefur verið líkt við Gúlag-eyja- klasann eftir Alexander Solsjenitsín og hún hlaut mikið lof hjá Liu Xiaobo, kínverska andófsmann- inum, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels og lést árið 2017 eftir að hafa setið í fangelsi árum sam- an. Landamæri og landakröfur eru ákaflega við- kvæm mál í Kína og hugmyndir um að skipta landinu upp eru líklegar til þess að vekja hörð viðbrögð. Í fyrra gagnrýndu kínversk stjórnvöld hót- elkeðjuna Marriot harðlega fyrir að skrá Taívan – ásamt Tíbet og Hong Kong – sem sérstök lönd. Kínverjar líta á þau sem landsvæði á sínu valdi. Í maí bað bandaríska fataverslunarkeðjan Gap kínversk stjórnvöld afsökunar vegna stutt- ermabols sem sýndi kínverska meginlandið, en ekki Taívan. Kínverjar viðurkenna ekki lýðveldið Taívan og telja það uppreisnarhérað sem bíði þess að sameinast meginlandinu að nýju.  Andófsmaður telur betra fyrir Kína að land- inu verði skipt upp AFP Andófsmaður Liao Yiwu hefur verið í fangelsi. Segir gerræði fara vaxandi Ljóst er að Afríska þjóðarráðið (AMC), stjórnarflokkurinn í Suður- Afríku, hélt meirihluta sínum á þingi landsins í kosningum sem fóru fram í vik- unni. Þegar búið var að telja nærri 90% atkvæða í gær hafði flokk- urinn fengið 57% atkvæða. En það er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur fengið frá því Nelson Mandela leiddi hann fyrst til sigurs árið 1994. Cyril Ramaphosa tók við emb- ættum flokksleiðtoga og forseta landsins á síðasta ári þegar flokk- urinn neyddi Jacob Zuma til að segja af sér vegna landlægrar spill- ingar sem þreifst í skjóli hans. Ramaphosa hét umbótum og að ráðist yrði gegn spillingu þegar hann tók við stjórnartaumunum en þær umbætur hafa gengið hægt, einkum vegna andstöðu frá stuðn- ingsmönnum Zuma, sem enn gegna valdamiklum embættum í flokknum og ríkisstjórn landsins. Sjálfur sagði Ramaphosa í vikunni að kosningarnar mörkuðu nýja dög- un, endurnýjun og von. ANC heldur völdum  Minnsta fylgi í aldarfjórðung Cyril Ramaphosa Deilt var um laga- frumvarp um end- urbyggingu Notre Dame-dómkirkj- unnar á franska þinginu í gær, en kirkjan brann að hluta 15. apríl síð- astliðinn. Frum- varpið kveður á um að endurbygg- ingunni verði lokið sumarið 2024, innan fimm ára, þegar Ólympíu- leikarnir verða haldnir í París. Þykir sumum það helst til knappur tími. Franck Riester, menningarmál- áðherra Frakklands, sagði í umræð- unum í gær að það, að ætla sér fimm ár í viðgerðir á kirkju sem tók 200 ár að byggja, væri vissulega metnaðar- fullt markmið. Fjölmargir einstakl- ingar og fyrirtæki hafa gefið fé til verksins og þegar hefur safnast um einn milljarður evra, en sérfræðingar telja að viðgerðin muni kosta 600-700 milljónir evra. FRAKKLAND Deilt um Notre Dame-frumvarp Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.