Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Nýlegt 5 herbergja einbýli með bílskúr á einni hæð í Ásahverfi,
Reykjanesbæ. Sérsmíðaðar innréttingar, vönduð eign.
Stærð 207,3 m2
Verð kr. 63.500.000
Fitjaás 12, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Á2. hæð ÞekkingarsetursVestmannaeyja, þar semáður var vinnslusalurFiskiðjunnar, hefst í dag
minningarmót um Bergvin Oddsson,
skipstjóra og útgerðarmann á Gló-
faxa VE. Það er Taflfélag Vest-
mannaeyja sem heldur mótið í sam-
vinnu við fjölskyldu Bergvins, en
hann var einn af sterkustu skák-
mönnum Eyjanna. Þegar hafa meira
en 50 skákmenn skráð sig til leiks,
þar af margir gamlir félagar Berg-
vins úr skákinni. Má þar nefna Arn-
ar Sigurmundsson, Andra Hrólfs-
son, Einar B. Guðlaugsson, Sigurjón
Þorkelsson, Karl Gauta Hjaltason,
Þórarin Inga Ólafsson, Pál Árnason
og Stefán Gíslason. Einnig teflir
sonur Bergvins, Lúðvík, fyrrverandi
alþingismaður.
Nokkrir stórmeistarar verða með
auk greinarhöfundar; Jóhann
Hjartarson, Hannes Hlífar Stefáns-
son og Hjörvar Steinn Grétarsson.
Tefldar verða átta umferðir með
tímamörkunum 15 5.
Ný tímamörk í heims-
meistaraeinvígi
Tímamörkin á mótinu í Eyjum
eru í góðum takti við þá þróun sem
er að eiga sér stað í skákinni á
alþjóðavettvangi. Þó hefur FIDE
nýlega skrúfað klukkuna aðeins til
baka með tilliti til næsta heims-
meistaraeinvígis árið 2020, en þá
verða 60 fyrstu leikirnir án auka-
tíma en síðan bætist við kortér og 30
sekúndur eftir hvern leik.
Mótaröðin, Grand Chess Tour
2019 hófst í borginni Abidjan á Fíla-
beinsströndinni í Afríku á miðviku-
daginn. Þar fer fremstur heims-
meistarinn Magnús Carlsen.
Tefldar eru níu atskákir og 18 hrað-
skákir.
Eftir fyrstu tvo keppnisdagana
hafa verið tefldar sex umferðir at-
skáka og þar stefnir allt í sömu átt;
Magnús Carlsen er að rúlla mönn-
um upp hægri vinstri, hefur unnið
fjórar skákir og gert tvö jafntefli og
hefur 10 stig. Nakamura kemur
næstur með 8 stig og þar á eftir
kemur Wei Yi frá Kína. Gefin eru
tvö stig fyrir hvern sigur í atskák-
inni og eitt stig fyrir sigur í hrað-
skák.
Hægt er að fylgjast með keppn-
inni í dag í beinni útsendingu sem
hefst klukkan 14 í dag og á morgun
á Chessbomb.com eða Chess24.com.
Missti þráðinn í fimmta leik
Lokaorðið í þessum pistli á Þröst-
ur Þórhallsson, en í skák hans í loka-
umferð HM öldungasveita 50 ára og
eldri í keppni Íslands og Ísrael lagði
hann að velli skákmann sem er
þekktur fyrir mikla þekkingu á byrj-
unum. Sá missti þráðinn eiginlega
strax eftir óvæntan fimmta leik
Þrastar, en þá kom upp staða sem
hann hafði alls ekki reiknað með að
tefla. Með sigrinum tryggði Þröstur
sér silfurverðlaun 5. borðsmanna:
HM öldungasveita, Ródos 2019;
7. umferð:
Þröstur Þórhallsson – Yehuda
Gruenfeld
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. f3 e5 6. Rb3 Be6 7. c4
a5 8. Be3 a4 9. R3d2 Da5 10. Ra3
Heldur niðri peðaframrás á mið-
borði og drottningarvæng.
10. … Rbd7 11. Be2 Be7 12. 0-0
0-0 13. Rdb1!
Skemmtileg endurskipulagning.
13. … Hfc8 14. Dd2 Bd8 15. Rc3
Bb6 16. Hfd1 Bc5 17. Rab5 Re8 18.
Bxc5 dxc5 19. f4 exf4 20. Dxf4 Dd8
21. e5!
Eftir þennan leik er svarta staðan
nánast óteflandi. Riddari er á leið til
e4 og biskup á f3.
21. … De7 22. Bf3 Rb6 23. Rd5!
Eftir þennan leik fær svartur ekk-
ert við ráðið.
23. … Rxd5 24. cxd5 Bd7 25. Rc3
b5 26. d6 Df8 27. Bxa8 Hxa8 28.
Rd5 h6 29. Re7+
– og Gruenfeld gafst upp, 29. …
Kh8 er svarað með 30. Rg6+! og
29. … Kh7 með 30. De4+ og hrókur-
inn fellur.
FIDE kynnir ný
tímamörk fyrir næsta
heimsmeistaraeinvígi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Með örum tækni-
breytingum síðustu ára
hefur fjöldi nýrra raf-
tækja á markaði marg-
faldast. Snjalltæki, far-
tölvur, spjaldtölvur og
nettengd heimilistæki
hafa síðastliðin ár fyllt
jólapakkana. Nú virðist
þó sem markaðir séu
víða að mettast. Árið
2018 er fyrsta árið sem
sala á snjallsímum var minni en árið á
undan. Fram að því hafði aukningin
verið í tveggja stafa tölu í nokkur ár.
Pistlahöfundur hefur, eins og aðrir,
endurnýjað tölvu sína og síma þegar
við á. En hvað með allar upplýsing-
arnar í gömlu tækjunum? Þær hverfa
ekki – og það sem verra er, nú er
gamla tækið hætt að fá uppfærslur frá
framleiðanda, annaðhvort vegna ald-
urs eða vegna notkunarleysis. Því er
auðveldara að ná upplýsingum úr þeim
tækjum en ella hefði verið. Það eru þó
ekki aðeins tölvur heldur einnig USB--
minniskubbar og utanáliggjandi harðir
diskar sem geymt geta viðkvæm gögn
– og við leggjum til hliðar án þess að
hugleiða hvaða gögn þar eru geymd.
Sumir taka sér tíma til að eyða
gögnum af gömlum tækjum. Ekki átta
sig þó allir á að trygg eyðing fæst ein-
ungis með því að yfirskrifa gögnin,
helst oftar en einu sinni. Best er að
gera það með sérstökum þar til gerð-
um hugbúnaði. Þeir eru sennilega fleiri
sem láta tækin frá sér án þess að huga
að eyðingu gagnanna, e.t.v. í vortiltekt
nokkrum árum síðar þegar gögnin eru
gleymd.
Hvað leynist í notuðum tækjum?
Bandaríski öryggisráðgjafinn Josh
Frantz ákvað á síðasta ári að athuga
hversu mikið af gögnum
leyndist í gömlum tækj-
um sem voru til sölu. Fyr-
ir 600 dollara, eða um 74
þ.kr., keypti hann 41 far-
tölvu, 27 minniskort og
USB-minniskubba, 11
harða diska og sex snjall-
síma. Hann hófst síðan
handa við að leita á tölv-
unum og tækjunum, m.a.
með heimagerðu forriti.
Af þeim 85 tækjum sem
Frantz keypti voru að-
eins tvö sem innihéldu
engar upplýsingar frá fyrri eiganda.
Aðeins þrjú tæki geymdu dulkóðuð
gögn, hin tækin voru öll án dulkóðunar.
Með eigin forriti fór Frantz í gegnum
gögnin sem tækin höfðu að geyma.
Þannig fann hann persónuupplýsingar
af ýmsu tagi sem nánar má lesa um í
heimildum sem fylgja þessari grein.
Hvernig á maður að
losa sig við gömul tæki?
Flestir snjallsímar bjóða upp á eyð-
ingu gagna. Þann valmöguleika má
auðveldlega finna í stillingum símans.
Þegar kemur að tölvum má auðveld-
lega finna leiðarvísa á netinu. Hið sama
á við um geymslumiðla eins og harða
diska og USB-minniskubba. Best er að
þú, sem notandi tækis, sjáir sjálfur um
að eyða gögnum af gömlu tæki áður en
þú lætur það frá þér, fremur en að
treysta á að sá næsti sem fær tækið í
hendur sé samviskusamur og geri það
fyrir þig. Einnig má nýta sér þjónustu
fyrirtækja, t.d. Gagnaeyðingar, sem
sérhæfa sig í öruggri gagnaeyðingu ef
ekki er ætlunin að selja tækin eða gefa.
Persónuupplýsingar sem við skiljum
eftir í gömlum tækjum verða þar áfram
nema þeim sé eytt með tryggum hætti.
Heimildir
https://blog.rapid7.com/2019/03/19/buy-one-
device-get-data-free-private-information-
remains-on-donated-devices/
https://www.strategyanalytics.com/strategy-
analytics/blogs/devices/smartphones/smart-
phones/2019/01/31/global-smartphone-
shipments-declined-on-a-full-year-basis-for-
first-time-ever-in-2018
https://www.counterpointresearch.com/global-
smartphone-market-declines-first-time-
cy-2018/
Persónuupplýsingar skild-
ar eftir í gömlum tækjum
Eftir Svönu Helen
Björnsdóttur
» Persónuupplýsingar
sem við skiljum eftir
í gömlum tækjum verða
þar áfram nema þeim sé
eytt með tryggum
hætti.
Svana Helen Björnsdóttir
Höfundur er verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Stika ehf.
svana@stiki.eu
Upplýsingaöryggi
Svanlaug Karlsdóttir Löve
fæddist 8. maí 1919 í Reykja-
vík. Foreldrar hennar voru
Jónína Jónsdóttir, saumakona í
Reykjavík, og Sophus Carl
Löve, skipstjóri og vitavörður á
Horni.
Svanlaug giftist 22.6. 1946
Gunnari Salómon Péturssyni, f.
16.10. 1921 á Ísafirði, d. 19.12.
2004, pípulagningameistara og
byggingaverktaka. Svanlaug
og Gunnar bjuggu á Reynimel
86 í Reykjavík. Þau voru barn-
laus.
Svanlaug lét sig dýravernd-
unarmál mikið varða alla tíð og
var hún aðalhvatamaður að
stofnun Kattavinafélags Ís-
lands árið 1976. Hún var for-
maður félagsins frá upphafi til
dauðadags. Var félagatala
Kattavinafélagsins orðin 900
þegar Svanlaug lést. Starfsemi
félagsins fór öll fram á heimili
þeirra Gunnars. Bæði var kom-
ið með heimilislausa ketti
þangað og eins voru þar
geymdir heimiliskettir í tak-
markaðan tíma gegn vægu
gjaldi.
Ljóst var samt að útvega
þyrfti sérhúsnæði undir starf-
semina og var hafist handa við
að útbúa það í Stangarhyl 2, en
Svanlaugu entist ekki aldur til
að sjá það verða tilbúið. Katt-
holt var opnað 1991.
Svanlaug lést 30. apríl 1987.
Merkir Íslendingar
Svanlaug
Löve
Verðlaunahafar í eldri flokki. F.v. Stephan Briem sem varð í 2. sæti, Vignir
Vatnar Stefánsson sem sigraði og Arnar Milutin Heiðarsson sem varð þriðji.
Þrír efstu á Íslandsmótinu í skólaskák, yngri flokki. F.v. Gunnar Erik Guð-
mundsson sem varð í 2. sæti, sigurvegarinn Benedikt Briem og Benedikt
Þórisson sem varð í 3. sæti.