Morgunblaðið - 11.05.2019, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700
Glæsilegt nýtt, átta íbúða, fjölbýli með lyftu í vinsælu hverfi í Garðabæ.
Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna.
Stærðir frá 122- 138 fm verð frá 63.9 millj.
Öllum íbúðum fylgja rúmgóð stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Sölusýning Breiðakur 2-4 Garðabæ
Nýjar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir
Laugardaginn 11. maí frá 13:00-14:00
Sunnudaginn 12. maí frá 13:00-14:00
Ársfundir lífeyrissjóða
eru að öllum jafnaði fá-
mennir og tiltölulega
stuttir. Svo var þó ekki á
ársfundi Frjálsa lífeyris-
sjóðsins í fyrra. Þar var
fjölmenni á löngum
fundi. Vonandi verður
einnig góð mæting á árs-
fundinum, sem haldinn
verður næstkomandi
mánudag, enda eru margir í framboði
til stjórnar og fyrir liggja tillögur frá
stjórn og frá einum stjórnarmanni
um breytingar á samþykktum sjóðs-
ins.
Það er vel að áhuginn skuli vera
mikill enda stendur Frjálsi fyrir frelsi
í lífeyrismálum sem hefur reynst mik-
ilvægt í þróun lífeyriskerfisins. Frá
stofnun sjóðsins hafa sjóðfélagar get-
að valið að ráðstafa hluta af skylduið-
gjaldi í séreign sem er erfanleg og
býður upp á sveigjanlegar út-
greiðslur. Enginn lífeyrissjóður, sem
er opinn öllum, býður upp á að ráð-
stafa eins háu hlutfalli skylduiðgjalds
í séreignarsparnað. Sjóðfélagar
Frjálsa velja að greiða í sjóðinn og
eru ekki undir neinni nauðung. Líki
þeim ekki starfsemi sjóðsins, þá geta
þeir hvenær sem er ákveðið að greiða
iðgjöld í annan sjóð og flutt séreign
sína úr sjóðnum. Um 60 þúsund sjóð-
félagar hafa valið að greiða í sjóðinn
og enginn frjáls sjóður er með eins
marga virka sjóðfélaga. Á síðasta ári
völdu tæplega 23 þúsund sjóðfélagar
að greiða iðgjöld til sjóðsins.
Ávöxtun sjóðsins hefur verið góð
undanfarin ár. Síðastliðið eitt ár er
ávöxtun fjárfestingarleiða sjóðsins
8,2%-14,1%, sl. 5 ár 5,8%-8,9% og sl. 10
ár 7,2%-10,7% á ársgrundvelli.
Frjálsi í umbreytingarferli
Stjórn Frjálsa hefur í sameiningu
unnið að breytingum á samþykktum
sjóðsins, m.a. í ljósi umræðna á síðasta
ársfundi og ábendinga frá Fjármálaeft-
irlitinu um nauðsyn þess að gæta að
orðsporsáhættu vegna rekstrarsamn-
ings sjóðsins við Arion banka. Stjórnin
leggur til við ársfund að samþykktum
verði breytt á þann veg að nafn Arion
banka verði tekið út sem rekstraraðili
Frjálsa. Þetta er meginbreyting því
allt frá stofnun Frjálsa 1978 hefur nafn
rekstraraðila verið bundið í sam-
þykktum sjóðsins. Nú er í fyrsta skipti
í 40 ára sögu vikið frá þessu með tillögu
um að stjórn verði veitt heimild til þess
að gera rekstrarsamning við fjármála-
fyrirtæki eða annan hæfan aðila um
daglegan rekstur sjóðsins.
Breytingatillaga eins stjórnarmanns
snýr að því að gera stjórnina einráða
um að ákveða rekstraraðila. Það er
hinsvegar lykilákvæði í breytingar-
tillögu meirihluta stjórnar við sam-
þykktir sjóðsins, að hyggist stjórn gera
breytingar á rekstrarfyrirkomulagi
sjóðsins eða vali á rekstraraðila, skuli
slík tillaga vera borin undir sjóðfélaga
og hljóta samþykki a.m.k. 2⁄3 hluta
greiddra atkvæða. Aukinn meirihluti
til breytinga á grunnsamþykktum hef-
ur verið reglan hjá Frjálsa og er til
þess fallin að skapa festu í stjórn-
skipan. Tillagan er í samræmi við
ályktun sem samþykkt var á síðasta
ársfundi sjóðsins. Verði hún samþykkt
stuðlar hún að sjóðfélagalýðræði, tak-
markar vald stjórnar og gerir það eng-
um vafa undirorpið að sjóðurinn hefur
fullt frelsi um fyrirkomulag á rekstri
sínum.
Sjóðfélagar kjósa stjórn
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur frá
stofnun útvistað rekstri og eignastýr-
ingu til fjármálafyrirtækis. Nýlega
ákvað stjórn að framkvæmdastjóri
sjóðsins yrði gerður að starfsmanni hans
og er hann fyrsti starfsmaður sjóðsins
frá upphafi. Jafnframt að innri endur-
skoðun bankans verði flutt frá rekstrar-
aðilanum, Arion banka, til endurskoð-
unarfélags. Til að stuðla að gagnsæi var
samningur við rekstraraðila gerður op-
inn öllum á vef sjóðsins. Að loknum árs-
fundi sjóðsins nk. mánudag, verða allir
stjórnarmenn hans kosnir af sjóð-
félögum í samræmi við ákvörðun sjóð-
félaga í fyrra. Lýkur þá skipun rekstrar-
aðila á minnihluta stjórnar.
Einhverjir hafa látið að því liggja að
það vaki fyrir stjórn Frjálsa að binda
sjóðinn enn frekar við Arion banka. Eins
og hér hefur verið rakið er það fjarri
lagi. Þvert á móti er með tillögum stjórn-
ar verið að ryðja allri bindingu úr sam-
þykktum sjóðsins. Jafnframt verður lýð-
ræðið eflt í sjóðnum með rafrænum
kosningum sem auka möguleika sjóð-
félaga til þess að hafa áhrif.
Eftir Ásdísi Evu
Hannesdóttur og
Magnús Pálma
Skúlason
»Með tillögum stjórnar
er verið að ryðja allri
bindingu úr samþykktum
sjóðsins.
Magnús Pálmi
Skúlason
Höfundar eru formaður og varafor-
maður stjórnar Frjálsa.
asdis@norden.is magnus@logskil.is
Frjálsi óbundinn rekstraraðila
Ásdís Eva
Hannesdóttir
Í kjölfar einhliða
skrifa sem Morgun-
blaðið birti mánudag
4. mars sl. finn ég mig
knúinn til að rita
nokkur orð. Þar virð-
ist vitnað í fyrrverandi
starfsmann Félags-
bústaða sem í skjóli
nafnleyndar setur
fram alvarlegar at-
hugasemdir um mig
og mín störf sem
framkvæmdastjóra Félagsbústaða.
Hvert er tilefni birtingar skrifa af
þessu tagi og hver er fréttin?
Á rótgrónum vinnustað, þar sem
hlutirnir hafa verið framkvæmdir
með svipuðu sniði í áratugi, getur
eðlilega skapast óöryggi meðal
starfsfólks þegar breytingar standa
fyrir dyrum. Slíkar aðstæður sköp-
uðust á árunum 2016-2018 hjá Fé-
lagsbústöðum þegar tekist var á um
skipulag framkvæmdadeildar félags-
ins.
Komið höfðu upp atvik sem bentu
til þess að skilgreina þyrfti betur
ábyrgð og verklag í verkefnum deild-
arinnar og beita þyrfti á markvissari
hátt verkefnastjórnun við úrlausn
þeirra. Einnig þyrfti að bjóða út með
skipulögðum hætti og gera ramma-
samninga um verkefni deildarinnar,
þó það kynni að reynast flókið í út-
færslu og framkvæmd. Það var í
skýrum samhljómi við stefnu stjórn-
ar fyrirtækisins. Um þetta ríkti engu
að síður ágreiningur og andstaða
meðal starfsmanna deildarinnar sem
smitaði út frá sér og hafði áhrif á
starfsanda í fyrirtækinu í heild.
Þegar ekki næst með samtölum og
samvinnu að vinna úr ágreiningi er
varðar atriði þar sem stefna er skýr
kann nauðlendingin að vera sú að
leiðir skilji. Það varð
raunin í þessu tilviki
því á fyrri hluta árs-
ins 2018 hættu eða
var sagt upp stórum
hluta starfsfólks
framkvæmdadeildar
Félagsbústaða. Það
var, úr því sem komið
var, talið eina færa
leiðin til að ná fram
nauðsynlegum breyt-
ingum á verklagi og
vinnustaðamenningu
sem þar ríkti. Eðli
málsins samkvæmt gengu ekki allir
sáttir frá borði. Var í samráði við
starfsfólk leitað til ráðgjafa til þess
að vinna að góðum starfsanda innan
fyrirtækisins og frekari þróun á
skipulagi.
Síðastliðið haust ákvað ég að láta
af störfum sem framkvæmdastjóri
Félagsbústaða. Sú ákvörðun tengd-
ist ekki ofangreindum starfsmanna-
málum enda voru þær aðgerðir sem
gripið var til á fyrri hluta ársins
2018 farnar að skila tilætluðum ár-
angri. Með ákvörðun minni vildi ég
hins vegar stuðla að sátt um þetta
mikilvæga félag og gefa nýrri stjórn
svigrúm til að takast á við þær
áskoranir sem blöstu við.
Hver er fréttin?
Eftir Auðun Frey
Ingvarsson
Auðun Freyr
Ingvarsson
»Með ákvörðun
minni vildi ég
stuðla að sátt um þetta
mikilvæga félag og
gefa nýrri stjórn svig-
rúm til að takast á við
þær áskoranir sem
blöstu við.
Höfundur er fv. framkvæmda-
stjóri Félagsbústaða.