Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Í dag kveðjum
við kæran vin
okkar, Höskuld
Sveinsson, sem er
látinn eftir erfið veikindi.
Knattspyrnufélagið Valur
naut krafta Höskuldar um
langt árabil, en fyrir utan þátt-
töku í almennu foreldrastarfi
var hann virkur sjálfboðaliði
um árabil og starfaði m.a. á
vettvangi barna- og unglingar-
áðs knattspyrnudeildar félags-
ins þar sem hann sinnti starfi
gjaldkera í um áratug.
Höskuldur var mjög ná-
kvæmur í öllum sínum verkum
og því hentaði honum vel að
vera gjaldkeri og stýra fjár-
öflun unglingaráðsins eins og
rækjusölu og 17. júní-sölu sem
hann sinnti alla tíð af alúð og
mikilli samviskusemi og skilaði
miklum tekjum sem nýttist vel
til að efla starf yngri flokka.
Síðar annaðist hann um tíma
öryggisgæslu á heimaleikjum
meistaraflokks karla og kvenna
í knattspyrnu og öðrum tilfall-
andi verkefnum við þá fram-
kvæmd og naut sín vel á Hlíð-
arenda með ýmsum góðum
félögum og vinum.
Hann kaus að taka ekki að
sér fleiri verkefni en hægt væri
að sinna með góðu móti og var
hann ákaflega traustur í því
sem hann tók sér fyrir hendur
og allt sem hann tók að sér
vann hann vel og óaðfinnan-
lega.
Margs er að minnast frá
þessum árum og alltaf var stutt
í grínið hjá Höskuldi og já-
kvæðni. Hann var gæddur
mörgum góðum kostum, var
traustur, nákvæmur, ákveðinn
og fylginn sér. Hann hlustaði af
athygli á sjónarmið annarra og
tók mið af þeim.
Fótbolti átti hug hans allan
og var Valur alltaf liðið hans og
auk þess var hann mikill stuðn-
ingsmaður Manchester United.
Höskuldur og eiginkona
hans, Helena Þórðardóttir, hafa
búið um árabil búið í Hlíðunum
í Reykjavík, nánar tiltekið á
fallegu heimili sem þau bjuggu
fjölskyldu sinni í Suðurhlíðum.
Börnin þeirra tvö, Sveinn
Skorri Höskuldsson og Sólveig
Lóa Höskuldsdóttir, byrjuðu
ung að sækja æfingar hjá
Knattspyrnufélaginu
Val, tóku þau hjónin strax
virkan þátt í foreldrastarfi og
ýmsu sem tengist íþróttaiðkun
barna og unglinga. Sveinn
Skorri æfði aðallega knatt-
spyrnu með yngri flokkum en
Sólveig Lóa hafði mestan
áhuga á handbolta og hefur
leikið með öllum yngri flokkum,
ungmennaliðinu og meistara-
flokki kvenna hjá Val í hand-
bolta.
Helena hefur á undanförnum
árum verið virkur sjálfboðaliði
á Hlíðarenda og hefur hún
einkum staðið vaktina í miða-
sölu á heimaleikjum ásamt góð-
um og samhentum hópi og von-
andi á félagið eftir að njóta
krafta hennar áfram.
Á sorgarstund er okkur
þakklæti efst í huga. Fyrir
hönd knattspyrnudeildar Vals
eru Höskuldi færðar alúðar
þakkir fyrir tryggð hans og
störf á vettvangi félagsins.
Við vottum Helenu Þórðar-
dóttur, eftirlifandi eiginkonu
hans, innilega samúð og einnig
börnum þeirra, Sveini Skorra
og Sólveigu Lóu. Minning um
Höskuldur
Sveinsson
✝ HöskuldurSveinsson
fæddist 26. júlí
1954. Hann lést 25.
apríl 2019.
Útför Hösk-
uldar fór fram 10.
maí 2019.
góðan mann og fé-
laga lifir.
Fyrir hönd
Knattspyrnufélags-
ins Vals,
Guðni
Olgeirsson
og Jón
Höskuldsson.
Daglegt amstur
tekur á. Við látum
smámuni vefjast fyrir okkur.
Fjas og þras út af engu. Þegar
tekist er á við stóru málin, líf
og dauða, kærleik og ást, sést
hvað öllu máli skiptir: Fjöl-
skyldan og traustir vinir.
Höskuldur vinur minn var
mikil hetja. Hann greindist
með MND-sjúkdóminn árið
2012 en hafði líklega fengið
fyrstu einkenni árið 2009. Hann
tókst á við baráttuna af æðru-
leysi og hélt ætíð sínu jafn-
aðargeði, staðfestu og grá-
glettnum húmor.
Við Höski kynntumst í MH.
Hann var þremur árum eldri,
það skipti engu máli. Höski átti
fádæma gott plötusafn og það
var unun að fá einkadiskótek
heima hjá honum þar sem hann
kynnti mér jafn ólíka músík-
anta og Ink Spots og Doors.
Hann lék með frábæru skólaliði
MH í körfubolta sem burstaði
skólamótin. Leikgleði og bar-
átta einkenndi hann.
Að afloknu námi Höskuldar í
arkitektúr í Svíþjóð urðum við
nágrannar í Drápuhlíðinni og
Magga mín vann fyrir Húsnæð-
isstofnun þar sem Höski starf-
aði um langa hríð. Með börn-
unum tókst vinátta í Hlíðaskóla
og Val og þar unnu þau Helena
og Höskuldur mikið sjálfboða-
starf. Starf þeirra Helenu og
Möggu fyrir Göngum saman
hnýtti enn fastar hnútana.
Með veikindum Höska
breyttist allt. Við Höski og vin-
ur okkar Gulli Halldórs geng-
um til rjúpna haustið 2011. Erf-
itt var að komast um í snjónum
og við hlógum að bjargarleysi
okkar. En Höski stóð ekki upp.
Við Gulli tosuðum hann á fæt-
ur; okkur var brugðið. Fljót-
lega upp úr þessu nefndi Höski
máttleysi í fótum. Síðan tók við
löng þrautaganga og margir
ósigrar. Handrið var komið, þá
þurfti hjólastól. Lyftan var
komin, hún bar ekki rafmagns-
stól.
Bíll með stýripinna var kom-
inn, þá þvarr máttur í höndum.
Við tveir stunduðum Grensás-
laug í nokkur ár og þar fékk
Höski frábæra aðstoð og þjálf-
un. Þar varð einnig að segja
stopp.
Styrkur Höskuldar var stór-
kostleg hæfni hans til að nýta
sér stafræna tækni við að
stjórna tölvu með augunum.
Hann skrifaði texta hraðar
en ég geri. Hann stýrði íslensk-
um og sænskum sjónvarpsrás-
um, tók upp plötu- og geisla-
diskalagerinn á tölvuna.
Fylgdist með ferðum okkar
Gulla um heiminn, skráði öll
skilaboð og myndbrot niður.
Skráði allar heimsóknir umönn-
unaraðila og gaf einkunnir!
Síðustu misserin var nánast
enginn máttur eftir, hann gat
þó alltaf talað skýrt. Síðasta
vetrardag horfði hann á fót-
bolta og var ekki sáttur með
sína menn. Sendi mér SMS og
sagðist skipta um stöð.
Það sama kvöld vildi hann
ljúka við að afrita síðustu plöt-
una í safninu í tölvuna. Eftir
nætursvefn lagði hann sig og
vaknaði aldrei meir.
Sumardaginn fyrsta kvaddi
Höskuldur Sveinsson þetta líf,
heima hjá fjölskyldunni.
Nú er vinur minn frjáls úr
líkama sínum. Hann var traust-
ur fjölskyldufaðir og sá ekki
sólina fyrir Helenu, Skorra og
Lóu. Við eigum minningu um
mikinn gleðigjafa og traustan
vin. Hann glataði aldrei sjálfs-
virðingu sinni og hélt reisn til
hinsta dags.
Blessuð sé minning Höskuld-
ar Sveinssonar.
Þórólfur Árnason.
Takk fyrir frábæra samfylgd
síðustu þrjú árin þar sem við
fórum í ca. 99 ferðalög saman.
Ég á fartinni með góðan síma
með stóran gagnapakka, send-
andi myndir, vídeó og skilaboð
á gamlan vin í Reykjavík.
Höskuldur við tölvuna á
Skype, fylgdist með í öllu sem
fram fór og skipti sér af. Við
ferðuðumst á þennan máta um
nær öll lönd Evrópu, fimm
borgir í Rússlandi, fjórar borg-
ir í USA og til Toronto í Kan-
ada. Saman skoðuðum við
Rauða torgið og Kreml svæðið í
Moskvu mjög vandlega, CN
turninn í Toronto, Seattle
Center, Istanbúl og Konya i
Tyrklandi, Auschwitz-safnið í
Póllandi og að sjálfsögðu allar
helstu borgir Evrópu. Fríhafnir
hér og þar voru skoðaðar og
gjarnan vildi Höskuldur fá
myndir af fallegustu flugfreyj-
unum.
Það var engin hindrun að
Höskuldur væri með MND á
svo háu stigi og í vonlausri
stöðu og gæti eingöngu stjórn-
að skjánum með augunum.
Hans góði húmor gerði okkur
kleift að halda þessu ferðalagi
endalaust áfram allt fram á síð-
asta dag.
Að lokum fylgdi Höskuldur
mér til Alsír, en þar var staðar
numið. Dánartilkynningin kom
að morgni 25. apríl. Kvöldið áð-
ur horfðum við á fótbolta sam-
an frá Englandi. Höskuldur
bundinn við hjólastól í Reykja-
vík og ég á hóteli í Alsír.
Næsta ferð og sú fyrsta án
ferðafélaga míns síðustu árin er
að fara til Íslands til að vera
viðstaddur útförina. Kem til
með að sakna hans því hann
var frábær ferðafélagi og mikil
ánægja fyrir mig að vera í sam-
bandi. Það verður einmanalegt
fyrir mig að halda áfram í
vinnuferðum um heiminn án
hans.
Hvíldu vel, Höskuldur
Sveinsson. Þín verður minnst
lengi sem drengsins sem neit-
aði að leggjast í þunglyndi
þrátt fyrir erfið og langdregin
örlög.
Gunnlaugur Halldórsson.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég sendi Helenu, Sveini
Skorra og Sólveigu Lóu mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Þórdís Gunnarsdóttir.
Vináttan er á meðal eftir-
sóknarverðustu gæða lífsins. Í
gegnum góð tengsl við okkur
sjálf og annað fólk verðum við
hamingjusöm. Því er fyrir mik-
ið að þakka að hafa frá mennta-
skólaárunum og til friðsældar
efri áranna verið svo heppinn
að njóta vináttu Höskuldar,
sem við kveðjum í dag. Skyndi-
lega var ég orðinn einn af fjöl-
skyldunni og heimili þeirra mér
AKRANESKIRKJA | Messa kl. 14.
Prestur Jón Ragnarsson. Kirkjukórinn
og Sveinn Arnar Sæmundsson org-
anisti leiða söng.
AKUREYRARKIRKJA | Mæðradags-
messa kl. 11. Kvennakór Akureyrar og
Kvennakór Háskóla Íslands syngja
undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þór-
steinsdóttur. Ásthildur Sturludóttir
bæjarstjóri prédikar. Prestur er Hildur
Eir Bolladóttir.
AKURINN kristið samfélag | Sam-
koma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og
bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Brúðuleikhús, Bibl-
íusaga og söngur. Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir og Anna Sigríður
Helgadóttir leiða stundina. Benjamín
Gísli Einarsson leikur á flygilinn.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Fé-
lagar úr Átthagafélagi Sléttuhrepps
taka þátt. Ræðumaður verður Sveinn
Þráinn Jóhannesson, ættaður frá Sæ-
bóli í Aðalvík. Sigurður Jónsson
sóknarprestur þjónar fyrir altari. Kór
Áskirkju syngur, Bjartur Logi Guðna-
son leikur á orgel. Kaffisala Aðalvík-
inga í Ási, safnaðarheimili Áskirkju að
guðsþjónustu lokinni. Verð kr. 1.500 á
mann. Athugið breyttan messutíma.
ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukórinn og
barnakór kirkjunnar syngja undir
stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra.
Prestar kirkjunnar, Arnór Bjarki
Blomsterberg og Kjartan Jónsson,
annast fræðslu og altarisþjónustu. Að
lokinni guðsþjónustu verður grill og
hoppukastalar.
BESSASTAÐAKIRKJA | Vorhátíð
barnanna kl. 11. Lærisveinar Hans
leiða lofgjörðina. Svo verður haldið í
Brekkuskóga 1. Þar verða grillaðar
pylsur, hoppukastali og andlitsmálun.
Síðdegisguðsþjónusta kl. 17 og fund-
ur með foreldrum fermingarbarna sem
fermast vorið 2020. Lærisveinar
Hans spila, organisti Árni Heiðar, Mar-
grét djákni og sr. Hans Guðberg.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 11. Prestur Magnús Björn
Björnsson. Kór Breiðholtskirkju syng-
ur, organisti er Örn Magnússon. Að-
alsafnaðarfundur að lokinni messu.
Ensk bænastund kl. 14. Prestur Tos-
hiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Göngumessa kl.
11 undir leiðsöng Daníels Ágústs.
Gengið í Elliðaárdalinn um klukku-
stund og áð á nokkrum stöðum með
ritningarlestri og hugleiðingu. Hress-
ing í safnaðarheimilinu á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Bára Friðriksdóttir. Söngvinir,
kór eldri borgara í Kópavogi, syngur
undir stjórn Kristjáns Hrannars Páls-
sonar. Rosemary Ramses Oduor syng-
ur einsöng. Veitingar í safnaðarsal að
messu lokinni, þar sem safnað verður
fyrir fótboltadrengjum frá Got Agulu til
að komast á Rey Cup í Laugardal.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prest-
ur Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og
Kári Þormar dómorganisti. Aðalfundur
dómkirkjusafnaðarins efir messu eða
kl. 12.30 í safnaðarheimilinu, Lækj-
argötu 14a. Kaffi og kleinur.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Messa kl.
10.30. Einkum sungnir sálmar og
önnur andleg ljóð og lög eftir Egils-
staðabúann Hrein Halldórsson.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Tor-
vald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju syng-
ur. Harmonikuleikur: Hreinn
Halldórsson og Torvald Gjerde. Kaffi
eftir messu.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son þjónar. Kvennakórinn Cantabile
syngur við guðsþjónustuna undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur og Arn-
hildur Valgarðsdóttir spilar undir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð í Hellisgerði. Skrúðganga
fer af stað frá kirkjunni kl. 11. Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar leiðir gönguna.
Hljómsveit Fríkirkjunnar leiðir dag-
skrána í Hellisgerði og á eftir verður
boðið upp á grillaðar pylsur.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf
í messu. Sr. Guðmundur Guðmunds-
son þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng
undir stjórn Valmars Väljaots org-
anista. Umsjón með sunnudagaskóla:
Sunna Kristrún djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Félag hjúkr-
unarfræðinga býður til guðsþjónustu
klukkan 11 á alþjóðadegi hjúkr-
unarfræðinga. Sr. Svanhildur Blöndal
þjónar og Rósa Kristjánsdóttir djákni
prédikar. Hátíðarkór hjúkrunarfræð-
inga syngur undir stjórn Bjargar Þór-
hallsdóttur sem syngur einsöng.
Kristín Sigurjónsdóttir leikur á fiðlu og
Hilmar Örn Agnarsson er organisti.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kl. 11.
Pétur Ragnhildarson hefur umsjón og
Stefán Birkisson leikur á píanó.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng,
organisti er Ásta Haraldsdóttir.
Messuhópur þjónar ásamt sr. Maríu
Ágústsdóttur. Verðandi mæður sér-
staklega velkomnar á mæðradaginn.
Kaffi fyrir og eftir messu.
Miðvikudagur 15. maí kl. 12.30-18:
Ferð í Reykholt í Borgarfirði. Skráning í
síma 528 4410 í síðasta lagi fyrir há-
degi 13. maí. Verð kr. 3.500.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30.
Prestur Leifur Ragnar Jónsson, org-
anisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur undir hennar stjórn.
Meðhjálparar Guðný Aradóttir og Bryn-
dís Böðvarsdóttir. Kirkjuvörður Lovísa
Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og fermingarafmælishátíð kl. 11.
Þeim sem fermdust í kirkjunni fyrir 50,
60, 70 og 80 árum er boðið að koma.
Fulltrúar afmælisárganganna flytja
hugvekju og lesa. Jón Helgi og Þórhild-
ur annast prestsþjónustu, Þorvaldur
Örn Davíðsson leikur á orgelið og fé-
lagar úr Barbörukórnum syngja. Á eftir
snæða fermingarafmælisgestir há-
degisverð í safnaðarheimilinu sem
kostar kr. 2.500 og þarf að tilkynna
þátttöku í síma 5205700.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr
Schola cantorum syngja. Thelma
Hrönn Sigurdórsdóttir syngur einsöng.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Umsjón með barnastarfi hafa
Inga Harðardóttir, Rósa Árnadóttir og
Ragnheiður Bjarnadóttir. Kaffisopi í
Suðursal eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11
með léttu sniði. Kordía, kór Háteigs-
kirkju, syngur undir stjórn Guðnýjar
Einarsdóttur organista. Prestur er
Helga Soffía Konráðsdóttir. Grill og
samfélag á eftir í garði kirkjunnar.
Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar
hefst í safnaðarheimili kl. 12.30.
Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðs-
þjónusta kl. 13. Sigurður Jónsson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Bjartur Logi Guðna-
son. Almennur söngur. Vinir og vanda-
menn heimilisfólks velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español. Samkoma á
ensku kl. 14. English speaking ser-
vice. Lofgjörðarkvöld Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13 með lofgjörð, fyrirbænum
og barnastarfi. Gestir frá Færeyjum í
heimsókn og Jógvan Steintún pred-
ikar. Kaffi að samverustund lokinni.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Árlegur
kirkjudagur Kálfatjarnarkirkju. Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14. Kór Kálfatjarn-
arkirkju syngur undir stjórn Elísabetar
Þórðardóttur organista. Skólakór
Stóru-Vogaskóla syngur undir stjórn
Alexöndru Chernyshovu. Magnús E.
Kristjánsson fv. forseti kirkjuþings pré-
dikar. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og
sr. Kjartan Jónsson þjóna fyrir altari.
Fermingarbörn fyrri ára sérstaklega
velkomin. Kaffisala Kvenfélagsins
Fjólu í Álfagerði á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingar-
messur kl. 11 og kl. 14. Heiðarskóla-
skólabörn fermd af sr. Fritz Má Jörg-
enssyni og sr. Erlu Guðmundsdóttur.
Kór Keflavíkurkirkju syngur við athafn-
irnar undir stjórn Arnórs Vilbergssonar
organista.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sigurður Arnarson sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Ástu Ágústsdóttur djákna. Kór Kópa-
vogskirkju syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Væntan-
leg fermingarbörn 2020 og forráða-
menn þeirra eru boðin sérstaklega til
messunnar. Að lokinni messu verður
aðalsafnaðarfundur Kársnessóknar í
safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Magnús Ragnarsson organisti leikur á
orgelið og félagar úr Fílharmóníunni
syngja. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir
héraðsprestur þjónar ásamt messu-
þjónum og kirkjuverði. Léttur hádeg-
isverður eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli klukkan 11. Sr. Hjalti
Jón Sverrisson þjónar og félagar í kór
Laugarneskirkju leiða sálmasöng und-
ir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur
organista. Sunnudagaskóli í umsjón
Emmu, Garðars og Gísla. Kaffi í safn-
aðarheimili á eftir.
Þriðjudag 14. maí kl. 20 verður kyrrð-
arbæn í kirkjunni.
Fimmtudag 16. maí helgistund í Há-
túni 10 kl. 16.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Samverustund, tón-
list og sögur. Guðsþjónusta kl. 20.
Unglingagospelkór Lindakirkju syngur
undir stjórn Áslaugar Helgu og Óskar
Einarsson annast meðleik á píanó.
Séra Dís Gylfadóttir þjónar. Að lokinni
guðsþjónustu verða drengir úr Fjöl-
greinastarfi Lindakirkju að selja vöffl-
ur og annað góðgæti.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur í
barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga
Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðnason og
Ari Agnarsson. Samfélaga og kaffisopi
á Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Sameig-
inlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-
60, 3. hæð. Yfirskrift: Ávextir. Ræðu-
maður: Jón Kristinn Lárusson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Fermingarmessa
laugardag 11. maí kl. 11 og sunnudag
12. maí kl. 11. Kirkjukórinn og raddir
úr Unglingakórnum syngja, organisti
Ester Ólafsdóttir. Prestar Guðbjörg
Arnardóttir og Ninna Sif Svavarsdóttir.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson
predikar og þjónar fyrir altari. Félagar
úr Kór Seljakirkju leiða söng. Organ-
isti: Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa
kl. 11. Mæðradagurinn. Sóknar-
prestur þjónar. Organisti kirkjunnar
leikur á orgelið. Þóra H. Passauer leið-
ir almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknar-
prestur annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa |
Þjóðbúningamessa kl.13.30. Hvetjum
við alla sem eiga þjóðbúning síns
heimalands að mæta í honum. Pálínu-
boð/messukaffi í Þjórsárveri að lok-
inni messu. Kór Hraungerðis- og
Villingaholtssókna leiðir söng, org-
anisti er Ingi Heiðmar Jónsson og
prestur Guðbjörg Arnardóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA | Vorhátíð kl. 11-
13. Barnakór Vídalínskirkju og ung-
lingakór Vídalínskirkju syngja. Brúðu-
leikrit, stuttmynd frá TTT frumsýnd,
nýtt myndband með barnakórnum
frumsýnt, Sirkus Íslands, andlitsmáln-
ing, grillaðar pylsur og hoppukastalar.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur og Stefán Már Gunnlaugsson
héraðsprestur þjónar fyrir altari.
Hressing í safnaðarsal á eftir.
Orð dagsins: Ég
mun sjá yður aftur.
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Fáskrúðsfjarðarkirkja.
Minningar