Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 37

Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 37
alltaf opið. Ef þau skruppu af bæ var ég oft með í för og jafn- vel þegar fjölskyldan fór til Portúgal fylgdi ég með. Hösk- uldur fór í öll hlutverk, var fróður fararstjóri og ók um bæi landsins eins og heimamaður. Börnin ólust upp við að ég væri meira og minna á heimilinu alla tíð. Það er því þrautin þyngri að minnast nú Höskuldar, sem var svo stór hluti af sjálfum mér. Einn lærdómur verður mér samskipa inn í framtíðina; að sönn vinátta er öllum verald- arauði dýrmætari. Engin forskrift er til fyrir því hverjir verða vinir. Við Höskuldur vorum eins ólíkir og hægt var að vera. Tvennt tengdi okkur þó sterkum bönd- um, annars vegar skopskynið og hins vegar áhugi okkar á boltaíþróttum. Skopskyn Hösk- uldar var alltaf tvírætt, en hin síðari ár líka kaldhæðnislegt. Um síðustu páska hafði hann samband við mann sem leiddist mikið fábreytileiki þessara daga og vissi ekkert hvað hann átti af sér að gera. Þá stóð ekki á svari Höskuldar: „Af hverju læturðu ekki bara krossfesta þig?“ Þótt við hefðum ekki sama skopskyn kunnum við að meta húmor hvor annars og svo þró- aðist með tímanum einkahúmor okkar, afkvæmi aðferða okkar við að sjá fremur hinar spaugi- legu hliðar lífsins. Höskuldur var hagleiksmað- ur. Allt lék í höndum hans. Þess naut heimili þeirra Hel- enu. Þegar ég keypti íbúð í Lönguhlíðinni, sem þarfnaðist mikilla lagfæringa, standsetti hann hana. Sjálfur þurfti ég ekkert að gera nema vera handlangari, en þó aðallega gæta þess að vera ekki fyrir honum til að verkið gengi hratt og örugglega fyrir sig. Þegar Höskuldur greindist með alvarlegan sjúkdóm töluð- um við bara einu sinni um þann vágest. Við vorum sammála um að maður veldi sér ekki sjúk- dóm og að það væri ekki skyn- samlegt að gefa honum ráðandi hlut í lífi sínu, afstaðan gagn- vart honum skipti öllu og að sætta sig við það sem ekki yrði breytt. Dauðinn er okkur öllum leyndardómur, sumum vágest- ur. Höskuldi var hann líkn. Heimili er hreiður þar sem við leyfum okkur að njóta ör- yggis. Þar getum við fellt allar varnir og verið við sjálf. Þar sá ég annan Höskuld en þann töff- ara sem hann hafði verið á yngri árum. Hann var fyrir- myndarheimilisfaðir og undi sér hvergi betur en þar, hjálp- legur, ósérhlífinn og framtaks- samur um allt sem laut að við- haldi og umbótum. Hann lifði einföldu en innihaldsríku lífi og lagðist snemma til hvíldar til að geta vaknað fyrir allar aldir. Umhyggja Helenu og gott sam- félag við krakkana varð til þess að hann sótti í að vera sem flestum stundum í návígi við þau. Hann uppskar líka sam- heldna og ástríka fjölskyldu. Helena og börnin eru búin að standa sig frábærlega vel. Hún er einstök kona, sterk, traust og yfirburða dugleg. Hún vann fullan vinnudag utan heimilis og aðra fulla vinnu þegar heim var komið. Það létti þeim Hösk- uldi lífið að börnin skyldu búa heima. Hugur okkar allra er nú hjá þeim og Helenu. Hvíl í friði, elsku vinur. Páll Þór Bergsson. Ég var staddur í Skorradaln- um þegar mér bárust fréttir af andláti Höskuldar Sveinssonar. Sumardagurinn fyrsti bar aldr- ei þessu vant nafn með rentu, fuglasöngur fyllti loftið, sól og blíða. Ég man fyrst eftir Höska þegar hann nýfluttur heim frá Svíþjóð kom inn á í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í fjórða flokki í körfubolta. Ég var í KFR (seinna körfuknattleiks- deild Vals) og þetta var á Há- logalandi. Fullt hús og mikill hávaði í áhorfendum, sem börðu veggi og stöppuðu fótum, svo bergmálaði í bragganum. Höski mætti of seint en þjálfari KR hafði sett hann á leik- skýrslu. Hann jafnaði leikinn og þá var framlengt. KFR var komið í villuvandræði og þurfti að reiða sig á minni spámenn eins og mig og Höski sá um að rúlla okkur upp. Á næstu árum áttu þessi lið oft eftir að slást um titla í mótum yngri flokka og vinna á víxl. Höski var skap- mikill keppnismaður og sást ekki alltaf fyrir, þótti sumum nóg um á stundum. Hann var hávaxinn og brúneygur og stelpunum í Hagaskóla þótti hann agalega sætur. Það hef ég frá fyrstu hendi. Seinna vorum við bekkjar- bræður í 1-A í MH. Við vorum síðasti árgangurinn í bekkjar- kerfi en í áfangakerfinu urðum við svo brautryðjendur og hálf- gerð tilraunadýr. Á þessum ár- um vorum við mikið saman og brölluðum ýmislegt. Foreldra- hús Höska í Grænuhlíðinni voru algengur samkomustaður, þar var oft glaumur og gleði, ekki síst þegar Haraldur Bessason var í heimsókn hjá Sveini Skorra og Vigdísi, enda höfðingjar heim að sækja. Við vorum í hópi fyrstu jólagæs- anna haustið 1974, þ.e. fyrstu stúdentanna sem útskrifuðust um jól. Svolítið ráðvilltur hópur enda engar hefðir eða siðir fyr- irliggjandi. Næstu mánuði vor- um við því með annan fótinn áfram í MH milli þess sem við sinntum skemmtanalífinu af ákefð. Klúbburinn á fimmtu- dögum og Sigtún um helgar. Þetta var árið sem Stuðmenn gáfu út Sumar á Sýrlandi og Höska þótti góð hugmynd að fara út á stoppistöð og sækja strætóskilti til að geta hlustað með meiri innlifun. Löggunni þótti það ekki eins góð hug- mynd. Um haustið fór Höski til Sví- þjóðar til náms í arkitektúr. Ég fór svo í humátt á eftir til Kö- ben ári seinna, en var mikið hjá Höska í Lundi, enda hann altal- andi á tungumálinu og meiri Svíi en flestir. Ég flutti heim tveim árum síðar en Höski lauk námi og Helena kom til sög- unnar. Eftir þetta skildi leiðir svolítið. Við sinntum hvor sínu. Hann starfaði sem arkitekt og kom upp fallegu húsi og fallegri fjölskyldu. Það var helst að við hittumst í kringum Blúsbandið, bílskúrssveit úr MH til 40 ára. Höski var oftar en einu sinni leynigestur á aðalfundum okkar og hljómburðarmaður í Flatey, þar sem bandið heldur stund- um böll. Þar var hann manna skemmtilegastur og hrókur alls fagnaðar. Ekki get ég stært mig af því að hafa lagt lið í langri glímu hans við MND- sjúkdóminn og ekkert sérlega stoltur af því. Hef úr fjarlægð dáðst að hetjulegri framgöngu Helenu við þessar erfiðu aðstæður. Veit að vinur hans Þórólfur hefur þar verið betri en enginn og á þakkir skildar. Innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldunnar frá okkur Maríu. Kjartan Jóhannesson. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KARL SIGURÐSSON frá Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ laugardaginn 27. apríl. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn 17. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð langveikra barna. Steingerður Gunnarsdóttir Ragnhildur og Ingvar Gunnar og Helle Þórdís og Sindre barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN EINARSDÓTTIR, áður til heimilis á Flókagötu 1, Reykjavík, lést miðvikudaginn 1. maí á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík. Hún verður jarðsungin í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 13. Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 13. Sigrún Einarsdóttir Gunnar Herbertsson Halldóra Sigr. Einarsdótir Þóra Kristjana Einarsdóttir Áskell Bjarni Fannberg Jón Benedikt Einarsson Guðmundína Hermannsdóttir Sólveig Jóna Einarsdóttir Hallgrímur Sigurðsson Þórdís Stefánsdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLGRÍMUR VIKTORSSON, fyrrv. flugstjóri, lést föstudaginn 3. maí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 17. maí klukkan 13. Ragnheiður V. Rögnvaldsdóttir Kristján Hallgrímsson Guðrún D. Brynjólfsdóttir Hrannar Hallgrímsson Heiða N. Guðbrandsdóttir Auður Hallgrímsdóttir og barnabörn Ástkær systir okkar og frænka, RAGNA MATTHÍASDÓTTIR, Öldugötu 52, Reykjavík, lést 4. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 15. maí klukkan 13. Sigríður Ólöf Matthíasdóttir Bjarni Jón Matthíasson Sigurjóna Matthíasdóttir og fjölskyldur FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Á góðu verði Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Opið: 10-17 alla virka daga Okkar ástkæri, STEFÁN MÁR HARALDSSON sjóntækjafræðingur, Daggarvöllum 5, Hafnarfirði, lést 21. apríl á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Útför hans fer fram í Víðistaðakirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð fyrir syni hans: 0327-13-720750, kt. 240684-2259. Eva Dís Þórðardóttir Alexander Rafn Stefánsson Patrekur Rafn Stefánsson Helga S. Sigurðardóttir Haraldur Stefánsson Sævar Ingi Haraldsson Sigurlaug Jónsdóttir Kristinn Freyr Haraldsson Ásthildur Knútsdóttir Guðbjörg Hjálmarsdóttir Þórður Rafn Stefánsson og fjölskylda Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁSGERÐUR JAKOBSDÓTTIR, áður Álfheimum 44, lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 21. apríl. Útförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 13. maí klukkan 13. Ólafur Pálsson Sigrún Edda Hálfdánardóttir Gunnar Rúnar Pálsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, GÍSLI HALLDÓRSSON, verslunarmaður, Lækjasmára 8, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 7. maí. Jarðsett verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn 16. maí klukkan 13. Ása Margrét Ásgeirsdóttir Guðrún Katrín Gísladóttir Kristján Páll Ström Ágústa Friðrika Gísladóttir Gísli Guðmundsson Svava Halldórsdóttir Ágúst Árnason barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.