Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
✝ RagnheiðurKristjana
Benediktsdóttir
(Kiddý) fæddist á
Blikastöðum á
Bíldudal 3. janúar
1949. Hún lést á
heimili sínu 30. apr-
íl 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Benedikt G.
Benediktsson vöru-
bílstjóri frá Tálkna-
firði, f. 23.8. 1927, d. 20.6. 2013,
og Guðrún J. Kristjánsdóttir
húsfreyja frá Selárdal, f. 1.7.
1926, d. 4.9. 2013. Systkini
Ragnheiðar eru stúlka Bene-
diktsdóttir, f. og d. 2.9. 1960, og
Marín, f. 29.4. 2009. Guðbjörg J.
Theódórs hársnyrtimeistari, f.
28.6. 1977, gift Jóni Hákoni
Ágústssyni, f. 10.9. 1975, d. 15.5.
2014. Börn þeirra eru; Veronika
Karen, f. 6.10. 2001, Sylvía
Björt, f. 22.5. 2005, og Kristjana
Maja, f. 23.6. 2009. Núverandi
sambýlismaður Guðbjargar er
Valgeir Ægir Ingólfsson, f.
31.10. 1966. Guðrún Jakobína
hjúkrunarfræðingur, f. 2.4.
1986, sambýlismaður hennar er
Þórður Þorsteinsson, f. 1.1.
1986, sonur þeirra er Jón Þor-
steinn, f. 28.12. 2013.
Útför Ragnheiðar (Kiddýar)
fer fram frá Bíldudalskirkju í
dag, 11. maí 2019, klukkan 16.
Elínborg Anika
Benediktsdóttir, f.
3.7. 1962.
Ragnheiður var
kvænt Jóni Brands
Theódórs vélstjóra,
f. 1.3. 1954. Saman
eiga þau þrjú börn,
þau eru: Benedikt
Páll skipstjóri, f.
19.6. 1973. Bene-
dikt er kvæntur
Guðbjörgu Arnar-
dóttur, börn þeirra eru Hilmar
Örn, f. 8.7. 1994, Benedikt Guð-
jón, f. 5.10. 1997, sambýliskona
hans er Ísabella Perla Ólafs-
dóttir, f. 19.5. 2000, Guðlaugur
Skúli, f. 21.5. 1999, og Sunna
Elsku mamma.
Ég trúi hreinlega ekki að ég
sitji hér og skrifi til þín minn-
ingarorð. Ég átti ekki von á að
þurfa að kveðja þig svona fljótt
en lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt. Lífið án þín verður tóm-
legt og mjög erfitt að venjast.
Þú varst ein af þeim sem allir
elskuðu og dáðu. Það eru mikil
forréttindi að hafa átt þig fyrir
mömmu og fá að deila lífinu
með þér. Það verður skrítið að
heyra ekki í þér, það var ekki
oft sem það leið dagur án þess
að við heyrðumst, að geta ekki
tekið upp tólið þegar mig vant-
ar ráð við hinu og þessu því þú
hafðir alltaf ráð við öllu og ég
er viss um að þú hafir vitað
næstum allt. Það var erfitt að
finna manneskju sem var eins
hjartahlý og góðhjörtuð og þú.
Þú tókst öllum með opnum
örmum, og það var alltaf opið
hús á Grænabakkanum og þeg-
ar einhver kom í kaffi til þín þá
skipti ekki máli hvað var til
mikið í ísskápnum, þú varst
alltaf búin að töfra fram hlað-
borð á augabragði. Þegar við
hittumst öll fjölskyldan pass-
aðir þú að það væri nóg af öllu
og rúmlega það því það mátti
alls ekki neinn verða svangur
og voru afgangarnir yfirleitt
nóg í aðra matarveislu.
Elsku mamma, ég get ekki
lýst því hvað ég mun sakna þín
mikið og veit ekki hvernig lífið
verður án þín. Mér finnst eins
og það vanti á mig annan hand-
legginn. Ég á þér svo mikið að
þakka og væri ekki sú mann-
eskja sem ég er í dag ef það
væri ekki fyrir þig. Þú varst
einstök manneskja og ég væri
heppin ef ég næ einhvern tíma
að vera hálf manneskjan sem
þú varst.
Takk fyrir að hafa alltaf haft
þolinmæði við mig, ég veit að
það var ekki alltaf auðvelt.
Takk fyrir að gefa mér líf og
takk fyrir að vera mamma mín.
Ég elska þig að eilífu – Jón
Þorsteinn biður að heilsa
Ömmu Kiddý og sendir þér
stórt knús. Við vitum að þú
fylgist vel með okkur hvar sem
þú ert og við söknum þín alltaf
Þín dóttir
Guðrún Jakobína.
Elsku hjartans tengda-
mamma mín, það er víst komið
að kveðjustund. Það er margt
sem þýtur í gegnum hugann
þegar horft er yfir en efst í
huga mér er þakklæti fyrir að
fá að hafa þig í lífi mínu.
Þú varst mér traust og góð
vinkona, sem gott var að leita
til. Þú varst börnunum mínum
yndisleg amma og elskaðir ekk-
ert meira en að hóa okkur öll-
um saman til að njóta samvista.
Þær stundir voru margar og þá
sérstaklega allar helgarnar í
Stórholti forðum daga, þar sem
þrjár kynslóðir skemmtu sér
saman og fengu aldrei nóg af.
Fyrir allar þær stundir er ég
þakklát.
Með þá alvarlegu hjartabilun
sem hrjáði þig á síðustu miss-
erum gekk maður svo sannar-
lega ekki að morgundeginum
vísum með þér okkur við hlið.
Ég er almættinu afar þakklát
fyrir þá fallegu dánarstund sem
þú fékkst, að skilja við heima
hjá þér í firðinum þínum fal-
lega, sem ég efast ekki um að
hafi verið þér dýrmætt.
Þú varst alveg einstök mann-
eskja og hafðir áhrif á alla í
kringum þig. Líf, fjör, gleði og
létt andrúmsloft einkenndi nær-
veru þína en einnig innilegheit.
Styrktust bönd okkar enn frek-
ar við þá erfiðu raun sem fjöl-
skyldan gekk í gegnum við frá-
fall elsku Nonna okkar, en á
slíkum stundum sést að mínu
mati best hve samheldin fjöl-
skylda er. Það var mér einnig
dýrmætt að geta stutt við þig
við fráfall móður þinnar, en þá
voruð þið Jón einmitt stödd
heima hjá okkur Benna. Það er
erfitt að hugsa til þess að
stundir okkar verða ekki fleiri
en við eigum dásamlegar minn-
ingar sem gott er að ylja sér
við.
Takk fyrir allt, elsku tengda-
mamma mín, líf mitt varð rík-
ara við kynnin við þig. Við
sjáumst á ný þegar minn tími
kemur
Tregatár, ljúf og sár,
lífs okkar skilja slóðir.
Minningar ylja um ókomin ár,
þú varst mér sem önnur móðir.
Þín tengdadóttir
Guðbjörg.
Með sorg í hjarta skrifa ég
þessi orð um elsku frænku
mína, hana Kiddý, sem nú er
fallin frá eftir langa baráttu.
Við höfum verið nánar frá barn-
æsku, enda var hún aðeins níu
mánuðum yngri en ég. Mæður
okkar voru systkinabörn og
góðar vinkonur. Fyrsta bréfið
frá Kiddý fékk ég eftir að fjöl-
skylda mín flutti suður frá
Bíldudal, og var það með mörg-
um A- og K-um sem voru staf-
irnir okkar. Þá hefur hún verið
þriggja ára. Við skrifuðumst
alltaf á og urðu bréfin lengri
með árunum. Kiddý var alveg
einstaklega kát og skemmtileg
kona, sannkallaður gleðigjafi.
Það var svo gaman þegar hún
kom í heimsókn suður, þá lifn-
aði allt við heima hjá foreldrum
mínum og við Kiddý sungum
saman og dönsuðum við lögin í
útvarpinu. Pabbi minn kallaði
hana alltaf þriðju dóttur sína.
Ekki var síður skemmtilegt að
fara vestur á Bíldudal og hitta
Kiddý og fjölskyldu hennar, og
fara á sveitaböll. Minnistætt er
þegar við fórum tvær einar í
útilegu í Selárdalinn, gengum
um melana milli Selárdals og
Melstaðar og rifjuðum upp sög-
una um ömmur okkar. Þá heils-
uðum við upp á Gísla á Upp-
sölum, fórum í kaffiboð til
Hannibals, gengum upp í
Vatnahvilft og fleira. Veturinn
1966-67 fórum við saman á
Húsmæðraskólann að Lauga-
landi í Eyjafirði og var það al-
veg ógleymanlegur tími. Eftir
að Kiddý flutti til Reykjavíkur
vorum við mikið saman. Við fór-
um út að skemmta okkur með
hópi góðra vina. Við kynntumst
mönnunum okkar, Bjarna Þór
og Jóni, um 1970. Eftir að
Kiddý og Jón fluttu til Bíldu-
dals og við Bjarni Þór til Húsa-
víkur þá hittumst við sjaldnar
en samskiptaleiðin var síminn.
Við Bjarni Þór fluttum svo til
Hvammstanga haustið 1990 og
þá varð styttra á milli og sam-
bandið nánara, sérstaklega eftir
að við fjölskyldan eignuðumst
íbúð á Bíldudal. Þar nutum við
þess að vera í góðum félags-
skap með Kiddý og Jóni. Einn-
ig var ómetanlegt á eiga þau að
sem húsverði. Elsku Jón, Benni
Palli, Guðbjörg, Guðrún Jakob-
ína, Ella og fjölskyldan ykkar
öll, við Bjarni Þór og fjölskylda
okkar og Jenný systir mín,
sendum ykkur öllum okkar
innilegustu samúðarkveðjur,
óskum þess að góður Guð, og
fallegar minningar um elsku
bestu Kiddý okkar megi um-
vefja ykkur og styrkja í gegn-
um þennan erfiða tíma.
Árndís Alda Jónsdóttir.
Þú varst einstökum eiginleik-
um gædd, elsku vinkona, glað-
vær, hláturmild, alltaf boðin og
búin að aðstoða samferðafólk
þitt og bæði falleg að utan sem
innan. Ég kynntist þér fyrir
rúmum 30 árum þegar ég fór
héðan frá Patró yfir á Bíldudal
að klippa og lita fyrir jól og
aðra stórviðburði. Stundum átti
ég ekki auðvelt með að komast
yfir á Bíldó því ég er sjómanns-
kona og með þrjú börn og vissi
ekki alveg hvað ég gæti gert við
þau á meðan en þér fannst það
nú ekkert mál og hvattir mig til
þess að taka þau með því þú
gætir alveg passað þau. Það
þáði ég stundum og þá var nú
heldur betur líf í tuskunum því
þú áttir líka þrjú börn. Börnin
mín minnast þessara ferða með
bros á vör. Það var aldrei logn-
molla í kringum þig og alltaf
nóg að gera hjá þér bæði í
starfi og leik enda dróstu fólk
að þér því þú hafðir svo góða
nærveru og umhyggju fyrir öll-
um. Þú hafðir lag á að hafa létt-
leika í fararbroddi og stutt var í
smitandi hláturinn þinn. Heils-
an var ekki góð síðustu árin en
þú tókst því með jafnaðargeði
og sagðir að það væri allt í lagi
með þig. Margs er að minnast
og margs er að sakna en minn-
ingarnar tekur enginn frá
manni, þær geta yljað manni
um ókomna tíð. Nokkrum sinn-
um kíkti ég á þig á hjartadeild-
ina þar sem þú dvaldir lengi í
fyrra og einnig í byrjun þessa
árs. Einu sinni kom ég seint til
þín á laugardagskvöldi á hjarta-
deildina síðastliðið sumar og við
flissuðum og hlógum dátt í
setustofunni fram yfir mið-
nætti. Ég átti von á því að mér
yrði hent út en nei, starfsfólkið
umbar það og leyfði okkur að
hlæja því það er svo hollt og
gott. Þú varðst 70 ára 3. janúar
síðastliðinn og mig langaði til
þess að gera þér dagamun í til-
efni af því nokkrum dögum
seinna þegar ég var stödd í
Reykjavík. Ég fékk leyfi hjá
hjúkrunarfólkinu til þess að
fara með þig út af spítalanum
og bjóða þér út að borða. Við
fórum á Nauthól ásamt Hafdísi
vinkonu okkar beggja og þar
nutum við samverunnar saman
og ekki skemmdi fyrir að þar
hittir þú óvænt æskuvinkonu
þína. Eftir þessa upplyftingu
skilaði ég þér síðan á réttum
tíma til baka á spítalann. Þú
þráðir að komast aftur heim á
Bíldudal og þú fékkst þá ósk
uppfyllta í febrúar og naust
þess að vera á heimaslóðum þar
sem þér leið best. Er það hafið
eða fjöllin sem laða mig hér að
eða er það fólkið á þessum
stað? Ég tel að það eigi mjög
vel við þig, elsku Kiddý mín,
hjartað þitt sló á Bíldudal innan
um fjöllin og fólkið þar.
Elsku Kiddý vinkona, hvíl í
friði.
Ég votta Jóni, Benna, Guð-
björgu, Guðrúnu, Ellu og fjöl-
skyldum þeirra mína dýpstu
samúð og megi guðs englar
vaka yfir ykkur öllum.
Þín vinkona
Sólrún Ólafsdóttir.
Þegar sumarið er á næstu
grösum minnir lífið á sig og
hina óumflýjanlegu hringrás
þess sem allir í heimi þessum
eru undirorpnir. Leiðin okkar
allra er eins og allt hefur sinn
tíma.
Við eigum það sameiginlegt
að vera Bílddælingar. Staður-
inn Bíldudalur er einstakur og
fólkið líka, enda mótast sam-
félagið af fjöllum, menningu,
logni og fegurð. Ég gleymi
aldrei sunnudagsferðunum
sem þú og mamma fóruð með
okkur krakkana inn í Reykja-
fjörð í sund hér forðum daga.
Þá var fjör. Einnig unnum við
saman í rækjuvinnslunni í
nokkur ár og alltaf varstu
sama yndið við mig, elsku
Kiddý mín.
Æskuminningarnar að vest-
an sé ég oft í hillingum og væri
til í að upplifa þær aftur. Þú
ert hluti af þessum æskuminn-
ingum mínum þar sem þú ert
ein af þeim konum sem ólu
mig upp án þess þó að vera
foreldri mitt. Þú og móðir mín
voruð góðar vinkonur og þú
komst oft í kaffi til mömmu og
þá var frekar hlegið dátt held-
ur en hitt, enda varstu hrókur
alls fagnaðar. Þú vildir allt fyr-
ir alla gera enda hreinræktuð
öndvegiskona og öðlingur.
Að ferðalokum er mér þakk-
læti efst í huga fyrir að hafa
fengið að kynnast þér. Þú vild-
ir öllum vel og varst alltaf boð-
in og búin að hlaupa undir
bagga ef með þurfti.
Við fráfall þitt sendum við
Jóni, Benedikt Páli, Guð-
björgu, Guðrúnu Jakobínu, El-
ínborgu og öðrum aðstandend-
um okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Hugurinn er
hjá ykkur.
Ég kveð þig og mun í ein-
lægni minnast þín með hlýhug.
Far og dvel í eilífum friði,
elsku Kiddý mín, takk fyrir
allt.
Ljós í vorum hjörtum hér,
hugljúft í minningunni.
Ljósið fagurt færi þér,
frið í eilífðinni.
(ÍÖH)
Ívar Örn Hauksson
og synir.
Ragnheiður Kristjana
Benediktsdóttir
Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Þorbergur Þórðarsson
Elís Rúnarsson
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og frænka okkar,
LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
þriðjudaginn 9. apríl. Jarðarför hennar fór
fram í kyrrþey mánudaginn 6. maí.
Guðrún V. Vignisdóttir og Jón Hákon Vilbergs.
Fjóla Heiðdal Steinarsdóttir Vignir Már Jónsson
Sigríður Hlín Jónsdóttir Margrét Anna Vignisdóttir
Hlynur Sigurður Vigfússon
Lilja Rut Bech Hlynsdóttir Klara Jóhanna Hlynsdóttir
Arna Víf Hlynsdóttir
Dagnýr Vigfússon
Hermann Ingi Dagnýsson Vigfús Kristján Dagnýsson
Lára Björk Dagnýsdóttir