Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 42

Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 42
42 MINNINGAR Aldarminning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 ✝ Jens Mein-hard Berg var frá Funningsbotni á Austurey í Fær- eyjum, f. 1. októ- ber 1925. Hann lést í Brákarhlíð 30. apríl 2019. Móðir: Marin Kristianna Berg, f. Gaard, frá Oyndarfirði á Austurey, f. 1898, d. 1986. Faðir: Johannis Berg, útvegsbóndi frá Eldu- vík á Austurey, f. 1899, d. 1990. Meinhard var næst- elstur barna þeirra en hin eru: Helga Kristina, f. 1923, búsett á Englandi; Johanna Sofie, f. 1928, búsett í Þórs- höfn; Ragnhild, f. 1930, bú- sett í Þórshöfn; Edit Sedia, f. 1932, búsett í Þórshöfn og Danmörku; Martin, dó eins árs. Eiginkona Meinhards var Sigríður Sigurbjörg Þor- steinsdóttir, f. 1923, d. 2015. Foreldrar: Þorsteinn Einars- son frá Skáney í Reykholts- dal, f. 1892, d. 1984, og Jón- ína Agata Árnadóttir frá Flóðatanga í Stafholts- tungum, f. 1891, d. 1934. Börn Sigríðar og Meinhards: 1)Þorsteinn Jens Berg, f. 16.2. 1960, d. 15.3. 1963. 2) Jónína Kristín Berg, f. 3.9. 1962, búsett í Borgarnesi. Börn: a) Jón Bjarnason, f. 1982, eiginkona Pálína Fann- ey Guðmundsdóttir, f. 1986, búsett í Neskaupstað. Börn: Kristjana Salný, f. 2013, Helgi Fannberg, f. 2015, Bjarni Freyr, f. 2018. b) Sig- urbjörg Ösp Rúnarsdóttir Berg, f. 1996, búsett í Sví- þjóð. Dóttir: Freyja Ahsoka Robinsdóttir, f. 2013. 3) Jó- hannes Berg, f. 5.11. 1964, eiginkona Sólveig Jónas- dóttir, f. 21.3. 1962, búsett í Mosfellsbæ. Dóttir: Svanhild- ur Helga Berg, f. 2000, unn- usti Gunnar Már Vilhjálms- son, f. 2000, búsett á Húsavík. Dóttir: Camilla Von Gunnars- dóttir Berg, f. 2016. Meinhard ólst upp við sjósókn og búskap. Hann gekk í barnaskóla í Elduvík en fór ungur á vertíðir og var þá kokkur og háseti í róðr- um á Íslands- miðum. Til Ís- lands kom Meinhard 1944, þá fyrst til starfa í Laugabæ í Bæjarsveit og svo víðar þar í sveit. Hann var við nám í Bændaskól- anum á Hvanneyri og útskrif- aðist sem búfræðingur 1954. Árið 1957 giftust þau Mein- hard og Sigríður, hófu bú- skap í Giljahlíð í Flókadal þar sem þau bjuggu í tvö ár en fluttust þá til Færeyja í eitt ár og bjuggu í Funningsfirði og síðan í Havnadali í ná- grenni Þórshafnar. Frá Fær- eyjum fluttust þau til Íslands, að Giljahlíð í Borgarfirði, þar sem Sigríður gerðist bústýra hjá Jóni bróður sínum. Mein- hard stundaði vinnu annars staðar við ýmis störf, þó að- allega við landbúnað og byggingarvinnu í héraðinu. Meinhard var einn af stofn- félögum Björgunarsveitar- innar Oks en eftir að þau hjónin settust að í Borgarnesi 1996 gafst meiri tími til fé- lagsstarfa í félögum eldri borgara í Borgarfirði og Borgarnesi og í Kiwanis. Einnig vannst meiri tími til ferðalaga, handverks, og síð- ast en ekki síst íþrótta en hann var einkar leikinn í boccia og pútti og síðustu gullmedalíunnar vann hann til orðinn níræður. Meinhard var fjölfróður, minnugur á ættir, fólk og sögu í Fær- eyjum og á Íslandi. Síðustu þrjú árin dvaldi Meinhard á dvalarheimilinu Brákarhlíð. Útförin fer fram frá Reyk- holtskirkju í dag, 11. maí 2019, klukkan 14. Meinhard Berg var nágranni okkar á Hæli í Flókadal í mörg ár, allt til haustsins 1991, þegar veru okkar þar lauk. Hann var ekki aðeins nágranni heldur líka hjálparhella, tók við fjósverkum föður okkar, þegar hann þurfti að sinna störfum utan heimilis eða dvelja á sjúkrastofnun. Eftir lát föður okkar var Meinhard fastur vetrarmaður á Hæli frá hausti 1985 til vors 1991 og gerði þannig móður okk- ar og móðurbróður fært að halda áfram búskap. Fyrst og fremst sinnti hann kúahirðingu og mjöltum en greip í önnur verk, þegar þurfti, yfirleitt óumbeðinn. Á síðustu árunum var fátt í heimili á Hæli og lítið um gesta- komur. Því skipti móður okkar miklu máli félagsskapur við Meinhard. Það var mikilvægt fyrir hana að geta spjallað við hann, lundgóðan og umtals- fróman, sem brá sér oft af bæ milli mála og kom aftur með fréttir af því, sem gerðist í sveit- inni. Það braut upp einhæft líf bóndakonu, sem ekki fór oft af bæ. Samfundum við Meinhard fækkaði með árunum, en alltaf fagnaði hann móður okkar og okkur systkinunum með sömu ljúfmennskunni og áður. Að leiðarlokum þökkum við Meinhard sérstakan hlýhug í garð móður okkar og við sjálf fyrir afburðagóð kynni og erum þess viss að hann hefur átt góða heimvon. Björk, Ásgeir, Ingunn og Helga Ingimundarbörn frá Hæli. Jens Meinhard Berg Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast Hans G. Andersen þjóðrétt- arfræðings og sendiherra á aldar- afmæli hans. Hann fæddist í Winnipeg 12. maí 1919 og lést 23. apríl 1994. Hans G. Ander- sen hóf störf sem þjóðréttarfræðing- ur í utanríkisráðuneytinu árið 1946 að loknu laganámi við Há- skóla Íslands og framhaldsnámi í þjóðarétti í Toronto og New York. Hann samdi þegar árið 1948 frumvarp til landgrunns- laganna svonefndu sem kváðu á um vísindalega verndun fiski- miðanna á landgrunninu og mynduðu síðar grundvöll fyrir öllum útfærslum íslensku fisk- veiðilögsögunnar. Hans gegndi sem kunnugt er lykilhlutverki við útfærslu lögsögunnar í áföngum allt þar til 200 sjómílna markinu var náð. Ljóst er að landhelgismálið skipti sköpum fyrir efnahagslegt sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar. Þá miklu velmegun þjóðarinnar sem fylgdi í kjölfar útfærslu lögsögunnar má ekki síst þakka störfum hans á þessu sviði. Jafnframt lagði Hans drög að afmörkun land- grunns Íslands utan 200 sjó- mílna í suðri en því verkefni er ekki lokið. Hans G. Andersen hafði sem einn fremsti sérfræðingur heims á sviði hafréttar veruleg áhrif á þróun réttarreglna á þessu sviði, ekki síst á mótun hafréttarsamn- ings Sameinuðu þjóðanna. Haf- réttarsamningurinn var sam- þykktur í lok þriðju hafréttarráðstefnunnar árið 1982 en Hans var formaður sendi- nefndar Íslands á ráðstefnunni. Um er að ræða eina heildstæða alþjóðasamninginn sem gerður hefur verið á sviði hafréttar og er hann talinn meðal helstu af- reka Sameinuðu þjóðanna. Starfssvið Hans takmarkaðist ekki við hafréttarmál. Á fyrstu starfsárum hans í utanríkisráðu- neytinu var lagður sá grunnur að öryggismálum þjóðarinnar sem við njótum enn í dag. Hann átti drjúgan þátt í gerð varnarsamn- ingsins við Bandaríkin árið 1951 og tók þátt í undirbúningi að- ildar Íslands að Atlantshafs- bandalaginu. Þessi mál áttu síð- ar eftir að tengjast landhelgismálinu með afgerandi hætti. Það var fyrst og fremst aðild okkar að Atlantshafsbanda- laginu og hið farsæla varnarsam- starf okkar við Bandaríkin á tím- um kalda stríðsins sem gerði Hans G. Andersen Íslendingum kleift að sigrast á and- stæðingum sínum í landhelgismálinu. Samhliða starfi sínu að hafréttar- málum gegndi Hans G. Andersen ýms- um sendiherrastörf- um erlendis. Var hann fyrst fasta- fulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbanda- laginu og síðar sendiherra í Par- ís, Stokkhólmi og Ósló. Síðustu þrettán ár starfsferilsins gegndi hann sendiherrastarfi í Banda- ríkjunum, fyrst í Washington og síðan embætti fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, uns hann fékk lausn frá embætti fyrir aldurs sakir árið 1989. Fór vel á því að hann skyldi ljúka 43 ára ferli sínum í utanríkisþjónustunni á þeim stað þar sem hann vann stórvirki fyr- ir íslensku þjóðina í hafréttar- málum. Á fullveldisdaginn árið 2001 efndi Hafréttarstofnun Íslands til athafnar í Hátíðarsal Háskóla Íslands til að heiðra minningu Hans G. Andersen. Við það tæki- færi færði fjölskylda Hans Haf- réttarstofnun lagabókasafn hans að gjöf til varðveislu í Lögbergi. Jafnframt var afhjúpuð brjóst- mynd af Hans sem velunnarar hans áttu veg og vanda af og færðu stofnuninni til varðveislu en henni var einnig komið fyrir í Lögbergi. Á skjöldinn undir brjóstmynd- inni eru skráð eftirfarandi orð: „Hans G. Andersen var einn fremsti og færasti sérfræðingur heims á sviði hafréttarmála. Hann lagði lagalegan grundvöll að útfærslu íslenskrar lögsögu úr þremur í 4 sjómílur 1952, 12 sjómílur 1958, 50 sjómílur 1972 og loks 200 sjómílur 1975 – svo og landgrunnsréttinda út fyrir þau mörk. Hann var aðalráðgjafi allra ríkisstjórna Íslands sem höfðu forystu um útfærslu lög- sögunnar og öflun viðurkenning- ar á henni. Virðing og traust sem hann naut leiddi til verulegra áhrifa hans á þróun hafréttar, þar á meðal mótun hafréttar- samnings Sameinuðu þjóðanna – og vann hann þjóð sinni einstakt gagn.“ Enginn Íslendingur getur óskað sér betri eftirmæla og enginn efast um að hann á þau fyllilega skilið. Það er því vel við hæfi að við heiðrum minningu Hans G. Andersen þjóðréttar- fræðings og sendiherra á aldar- afmæli hans. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóra. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru GUÐRÚNAR ÞORGERÐAR SVEINSDÓTTUR, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Kirkjuhvols fyrir hlýju og góða umönnun. Leifur Guðmundsson Guðrún Jóhannsdóttir Gunnar R. Leifsson Birgit Myschi Sara Leifsdóttir Trausti Kristjánsson langömmu- og langalangömmubörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu vegna fráfalls HELGU HAFSTEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við þeim sem önnuðust Helgu í veikindum hennar á krabbameinsdeild SAK og Heimahlynningu fyrir ómetanlegan stuðning og umhyggju. Guðrún Ósk Þorbjörnsdóttir Hólmar Sigmundsson Hafdís Þorbjörnsdóttir Ingi Jóhann Friðjónsson Birta Júlía Þorbjörnsdóttir Ingibjörg Kristinsdóttir Hulda Hafsteinsdóttir Júlíus Jónsson Þórunn Hafsteinsdóttir Guðni Þór Jósepsson Ylfa og Frosti Snær Við þökkum fyrir sýnda samúð við fráfall sambýlismanns míns og vinar, HREINS SUMARLIÐASONAR, fv. kaupmanns. Sigrún Clausen og fjölskylda Hjartans þakkir fyrir kveðjur, hlýhug og samúð vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður og stjúpföður, SIGURÐAR FINNBJARNAR MAR vélfræðings, sem lést þriðjudaginn 2. apríl. Sæunn G. Guðmundsdóttir Kristín Ingibjörg Mar Birna Mar Steinunn Mar Jóhanna Laufey Ólafsdóttir Steinunn Fjóla Ólafsdóttir Guðrún Katrín Ólafsdóttir Berglind Eva Ólafsdóttir og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU ÁRNÝJAR JÓNSDÓTTUR, Baðsvöllum 7, Grindavík. Sérstakar þakkir fá Anna Þórhildur Salvarsdóttir læknir, Heimahjúkrun í Grindavík og starfsfólk kvennadeildar 21A fyrir alúðleg störf og hlýhug. Benóný Þórhallsson Þórhallur Ágúst Benónýsson Sigríður Fjóla Benónýsdóttir Hólmar Már Gunnlaugsson Berglind Benónýsdóttir Ómar Davíð Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðurbróðir okkar, GÍSLI GUNNAR KRISTINSSON, Bói, málari, Ásavegi 2, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðjudaginn 23. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Kristinn A. Hermansen Jóhanna Hermansen og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir, amma, langamma og systir, ÞÓRHALLA SVEINSDÓTTIR, Fífuhvammi 15, lést 8. maí á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 21. maí klukkan 13. Jón Kristinsson Ragnhildur Jónsdóttir Brynhildur Jónsdóttir Sigríður Haraldsdóttir Magnús Halldórsson ömmubörn, langömmubörn og systkini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.