Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 44

Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 35.800.000,- Flyðrugrandi 8, 107 Reykjavík Falleg 2ja herbergja íbúð - 50.4 m2 Falleg 2ja herb.íbúð með stórum sólríkum svölum í nýlega viðgerðu húsi við Flyðrugranda. Stofa og eldhús opið út í eitt. Gott svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með baðkari. Þvottahús á hæð. Laus fljótlega. ✆ 585 8800 Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800 Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515 Grenimelur 29, 107 Reykjavík Falleg og mikið endurnýjuð hæð, 99 m2 3ja-4ra herbergja hæð í þríbýlishúsi við Grenimel. Stór og björt stofa. Svefnherb. inn af stofu. Annað stórt svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar (var áður barnaherbergi). Góð hæð á frábærum stað. 55.900.000,- 69.800.000,- Glæsileg 3-4ra herb - 143 m2 bílastæði laus strax Glæsileg íbúð á jarðhæð í nýlega byggðu (2016) lyftuhúsi. Íbúðin er inn- réttuð á vandaðan hátt. Eldhús og borðstofa samliggjandi með útgangi á stóra timburverönd. Rúmgóð svefnherb. Þvottahús í íbúð. Eign í sérflokki. Langalína 20, 210 Garðabær Opið hús laugard 11. maí 13:30 til 14:00 64.900.000,- 3ja-4ra herb. 133,3 m2 + 11,5 fm sólstofa laus strax Afar falleg og björt íbúð á 1. hæð í vönduðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri. Stórar og bjartar stofur í suður með útgangi í yfir- byggða sólstofu með verönd þar út af. Tvö góð svefnherb. Baðherbergi. Gestasnyrting. Þvottahús í íbúð. Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík 50 ára Helgi er frá Pulu í Holtum í Rangár- vallasýslu en býr í Reykjavík. Hann er bif- vélavirki og vinnur hjá BL, byrjaði þar fyrir ári en hefur lengst af unn- ið hjá Brimborg. Maki: Svanhvít Ósk Jónsdóttir, f. 1974, þjónusturáðgjafi hjá Sjóvá. Börn: Eva Ýr, f. 1996, Hugrún Líf, f. 2000, og Ólafur Kristófer, f. 2002. Systkini: Heiðrún, f. 1971, Erlendur Karl, f. 1977, og Elín Drífa, f. 1981. Foreldrar: Ólafur Kristján Helgason, f. 1946, og Katrín Samúelsdóttir, f. 1950, fv. bændur á Pulu. Þau eru bús. á Hellu. Helgi Ólafsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér af minnsta tilefni. Það eru einhver óveðursský á lofti en þau hverfa innan viku. 20. apríl - 20. maí  Naut Lánið leikur við þig og þér er ekk- ert of gott að baða þig í ljómanum af aðdáun annarra. Einhver talar við þig undir rós, reyndu að halda ró þinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að hemja löngun þína til að vanda um við aðra í dag. Taktu þér tíma til að rækta þig og áhugamál þín. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Eitt og annað smálegt þarft þú að klára áður en þú getur einbeitt þér að næsta verkefni. Ástin svífur yfir vötnum og þér finnst allir vegir færir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver vill vingast við þig í dag. Reyndu að halda í hefðir fjölskyldunnar. Þú sérð ekki sólina fyrir smáfólkinu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver valdabarátta er í gangi í kringum þig. Vertu raunsæ/r og horfstu í augu við sannleikann. Hann gerir þig fjálsa/n. 23. sept. - 22. okt.  Vog Málstaður þinn vinnur æ fleiri á sitt band og mest munu gleðja þig sinna- skipti gamals vinar. Hæfileikfólk tekur þig með í hópinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það hefur ekkert upp á sig að vera með stöðuga eftirsjá og sjálfs- gagnrýni. Láttu ekkert standa í veginum fyrir hamingju þinni. Reyndu að fara meðalveginn í nágrannaerjum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að koma af stað já- kvæðu orkuflæði í líkama þínum. Gakktu vasklega til verks og hentu öllu því sem þvælist fyrir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Tafir og truflanir í vinnunni hafa haldið aftur af þér að undanförnu. Þú vinnur til verðlauna. Gættu tungu þinnar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þín bíða listræn viðfangsefni á næstunni, sama hvert lifibrauð þitt er. Fjölskyldumeðlimur kemur þér á óvart. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Ekkert er eins pirrandi og að vera óviðbúin/n þegar möguleikarnir bjóðast. var áður fyrr í bókmenntaráði Al- menna bókafélagsins. Einnig stóð hann að heildarútgáfu á verkum föð- ur síns, Sigurðar Nordal. Hann kom að stofnun tímaritsins Nýtt Helgafell og var ritstjóri 1956-1959. Starf hans fyrir tímaritið varð þó að víkja fyrir efnahagsmálunum eftir því sem hlut- formaður Landsvirkjunar frá upp- hafi, 1965 til 1994. Jóhannes hefur þó ekki einvörð- ungu sinnt efnahagsmálum á ævi sinni. Hann var lengi formaður vís- indadeildar Vísindaráðs og síðar Vís- indaráðs. Hann var forseti Hins ís- lenska fornritafélags 1969-2018 og J óhannes Nordal fæddist 11. maí 1924 í Reykjavík og ólst upp á Baldursgötu og var alltaf í sveit á sumrin, lengst af á Torfastöðum í Biskupstungum og Eyjólfsstöðum í Vatnsdal. Jóhannes lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1943 og var inspector scholae síðasta árið. Hann fór til náms til Englands og lauk BS-prófi í hagfræði 1950 frá London School of Economics og doktorsprófi frá sama skóla árið 1953. Doktorsritgerð hans fjallaði um þjóðfélagsþróun á Íslandi frá 18. öld til nútímans. Þegar Jóhannes kom aftur til Ís- lands að námi loknu fór hann beint í Landsbankann sem þá var bæði við- skiptabanki og seðlabanki. „Ég vann eingöngu að málum sem tengdust seðlabankahlutverkinu. En auðvitað kynntist maður ýmsu sem sneri að viðskiptabankanum, enda í sömu stofnun. Svo var ég í tvö ár settur bankastjóri í Landsbankanum.“ Jóhannes varð einn af seðla- bankastjórum í upphafi þegar bank- inn var stofnaður 1961 og varð for- maður bankastjórnar árið 1964. Hann gegndi því embætti til ársins 1993 og varð nokkurs konar ímynd Seðlabankans á þeim tíma. Á þessum langa tíma sátu hér tíu forsætisráð- herrar og íslenskt efnahagslíf og samfélag tók stórtækum breyt- ingum. Jóhannes segir að stofnun Seðla- bankans hafi verið beint framhald af þeirri stefnubreytingu sem kom með Viðreisnarstjórninni. „Við Jónas Haralz vorum ráðgjafar ríkis- stjórnainnar fyrir undirbúning og framkvæmd stefnunnar, og markmið hennar var að koma á jafnvægi í ís- lenskum efnahagsmálum og gera henni kleift að afnema höftin og end- urreisa lánstraust Íslendinga erlend- is. Þetta voru skörp skil í efnahags- sögu Íslands á 20. öldinni, þegar tókst endanlega að skilja við innflutn- ingshöftin sem voru sett fyrst 1931.“ Jóhannes varð formaður í stór- iðjunefnd árið 1961 sem sá um bygg- ingu Búrfellsvirkjunar og samninga um stofnun álbræðslunnar í Straumsvík. Hann var stjórnar- verk Jóhannesar hjá Seðlabankanum jókst. „Af hjáverkum mínum hefur mér fundist einna mest gaman að sinna fornritafélaginu, ekki síst af því að þar er ég að fylgja að vissu leyti í fót- spor föður míns, sem var einn af frumkvöðlum þess að félagið var stofnað og útgáfustjóri þess í mörg ár.“ Jóhannes gat jafnframt í hlut- verki seðlabankastjórans stuðlað að því að Skarðsbók var keypt til lands- ins en hún er nú í safni Árna Magnús- sonar, en faðir Jóhannesar vann mik- ið að því að semja við Dani um að skila handritunum. „Það er einn merkasti samningur sem gerður hef- ur verið í veröldinni.“ Jóhannes er enn við góða heilsu og fylgist vel með því sem gerist hér heima og erlendis. Fjölskylda Eiginkona Jóhannesar var Dóra Guðjónsdóttir Nordal, f. 28.3. 1928, d. 26.5. 2017, húsmóðir og píanóleikari. Foreldrar hennar voru hjónin Guð- jón Ólafur Guðjónsson, f. 13.8. 1901, d. 17.7. 1992, bókaútgefandi, og Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri – 95 ára Fjölskyldan Jóhannes og Dóra á níræðisafmæli hans ásamt börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barna- barnabarni. Herdís og Dóra Tómasdætur voru staddar erlendis sem og Sigurður og fjölskylda hans. Seðlabankastjóri í nær 30 ár Með dætrunum Frá vinstri: Marta, Salvör, Bera, Jóhannes, Guðrún og Ólöf. 40 ára Laufey er frá Neskaupstað en býr í Kópavogi. Hún er leik- skólakennari og deildarstjóri á leikskól- anum Læk. Maki: Gunnar Már Gunnarsson, f. 1978, tölvunarfræðingur hjá Origo. Börn: Þórarinn, f. 2008, og Sigurður Árni, f. 2012. Systkini: Þórfríður Soffía, f. 1983, og Ægir Guðjón, f. 1987. Foreldrar: Þórarinn Viðfjörð Guðnason, f. 1949, vann í álverinu í Reyðarfirði, og Katrín Gróa Guðmundsdóttir, f. 1956, skólaliði í grunnskólanum í Neskaupstað. Þau eru búsett í Neskaupstað. Laufey Þórarinsdóttir Til hamingju með daginn Þessi duglega stúlka, Ísold Rún Pálsdóttir, seldi leikföng við Bón- us í Naustahverfi á Ak- ureyri og gaf Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, 8.180 krónur. Rauði krossinn þakkar henni kærlega fyrir. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.