Morgunblaðið - 11.05.2019, Page 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
HANDBOLTI
Grill 66 deild karla
Umspil, oddaleikur:
Víkingur – HK ...................................... 27:32
HK vann 3:2 og leikur í úrvalsdeildinni
2019-2020.
Þýskaland
B-deild:
Coburg – Balingen .............................. 28:28
Oddur Gretarsson skoraði 8 mörk fyrir
Balingen.
Spánn
Teucro – Barcelona............................. 21:35
Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna-
hópi Barcelona.
Danmörk
Umspil um úrvalsdeildarsæti, 1. leikur:
Kolding – Tönder ................................ 23:25
Ólafur Gústafsson skoraði 5 mörk fyrir
Kolding.
Frakkland
Leikur um sjöunda sætið:
Toulon – Fleury Loiret ....................... 31:36
Mariam Eradze skoraði 1 mark fyrir
Toulon.
Umspilsriðill um sæti í efstu deild:
París 92 – Dijon ................................... 26:25
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Dijon.
Ungverjaland
Ceglédi – Pick Szeged ........................ 29:37
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 5
mörk fyrir Pick Szeged.
Austurríki
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Alpla Hard – West Wien ..................... 26:25
Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir
West Wien og Guðmundur Hólmar Helga-
son 5. Ólafur Bjarki Ragnarsson lék ekki.
Þýskaland
Alba Berlín – Bremerhaven........... 107:104
Martin Hermannsson skoraði 23 stig og
átti 4 stoðsendingar á 24 mínútum fyrir
Alba Berlín.
Svíþjóð
Fjórði úrslitaleikur:
Borås – Södertälje .............................. 97:80
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 10 stig
fyrir Borås og tók 5 fráköst á 30 mínútum.
Staðan er 3:1 fyrir Södertälje en vinna
þarf fjóra leiki til að verða meistari.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Philadelphia – Toronto..................... 112:101
Staðan er 3:3 og oddaleikur á sunnudags-
kvöld.
Vesturdeild, undanúrslit:
Portland – Denver............................ 119:108
Staðan er 3:3 og oddaleikur á sunnudags-
kvöld.
KÖRFUBOLTI
Eftir fjögur tímabil í 1. deild mun
karlalið HK leika í úrvalsdeildinni í
handbolta á nýjan leik á næstu leik-
tíð. Þetta varð ljóst eftir fimm
marka sigur HK-inga á Víkingum,
32:27, í oddaleik liðanna í umspilinu í
1. deild. Víkingur vann fyrstu tvo
leikina í umspilinu en HK tókst svo
að vinna þrjá leiki í röð og þar með
einvígið 3:2. HK hafði áður slegið út
Þrótt í umspilinu, eftir að hafa endað
naumlega fyrir neðan Víking og
Þrótt í 1. deildinni í vetur.
HK-ingar fylgja Fjölnismönnum
upp en liðin koma í stað Gróttu og
Akureyrar, eða Þórs eins og síðast-
nefnda liðið heitir núna.
Í oddaleiknum í Víkinni í gær var
HK með fjögurra marka forystu eft-
ir fyrri hálfleik, 15:11. Bjarki Finn-
bogason var langmarkahæstur en
hann skoraði 12 mörk. Bjarki var
einmitt markahæstur HK-inga í
deildinni í vetur. Blær Hinriksson,
sem einnig hefur verið atkvæðamik-
ill í vetur og ekki síst í úrslitakeppn-
inni, var næstmarkahæstur með 5
mörk, og þeir Pálmi Fannar Sig-
urðsson og Jón Heiðar Gunnarsson,
sem tók fram skóna fyrir umspilið,
skoruðu 4 mörk hvor.
Hjá Víkingum var Arnar Gauti
Grettisson markahæstur með 7
mörk og Hjalti Már Hjaltason kom
næstur með 6. Víkingar féllu úr úr-
valsdeildinni í fyrra. sindris@mbl.is
HK aftur meðal þeirra bestu
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Endurkoma HK-ingar féllust í faðma í Víkinni í gær eftir að hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að lenda 2:0 undir í einvígi sínu við Víkinga.
Jakob Örn Sigurðarson var hylltur
með standandi lófataki fyrir leik
Borås og Södertälje Kings í úr-
slitaeinvíginu um sænska meist-
aratitilinn í körfubolta í gærkvöld.
Ástæðan er sú, samkvæmt heima-
síðu Borås, að „Ísmaðurinn“ eins og
hann er kallaður flytur heim til Ís-
lands í sumar eftir áratug í Svíþjóð.
Jakob stóð sig vel í gær og skor-
aði 10 stig í 97:80-sigri sem kom í
veg fyrir að Södertälje tryggði sér
titilinn. Staðan í einvíginu er 3:1
fyrir Södertälje en vinna þarf fjóra
leiki. sindris@mbl.is
Hylltu Ísmanninn
fyrir úrslitaleik
Ljósmynd/borasbasket.se
Vinsæll Jakob Örn Sigurðarson
hefur leikið með Borås frá 2015.
Martin Hermannsson var stiga-
hæstur leikmanna Alba Berlín með
23 stig þegar liðið vann Eisbären
Bremerhaven 107:104 í fram-
lengdum leik í þýsku 1. deildinni í
körfubolta í gær. Martin skoraði úr
3 af 4 þriggja stiga skotum sínum,
þar á meðal þegar hann tryggði liði
sínu framlengingu. Þá skoraði hann
dýrmæt stig í lok framlengingar.
Alba Berlín var þegar öruggt um
3. sæti deildarinnar og nú er ljóst
að liðið mætir Ulm í 8-liða úrslitum
þegar úrslitakeppnin hefst eftir
viku.
Martin öflugur og
framhaldið ljóst
Ljósmynd/FIBA
Góður Martin er næststigahæstur
hjá Alba Berlín á leiktíðinni.
Fram vann góðan 3:2-sigur á Fjölni, liðinu sem spáð er
sigri í deildinni, þegar 2. umferð í 1. deild karla í fót-
bolta hófst í gærkvöld með þremur leikjum. Mark Helga
Guðjónssonar hálftíma fyrir leikslok reyndist sigur-
markið, en hann skoraði einnig í naumu 2:1-tapi gegn
Keflavík í 1. umferð.
Nýliðar Aftureldingar náðu í sín fyrstu þrjú stig með
2:1-sigri á Leikni en gestirnir úr Breiðholti voru manni
færri frá 16. mínútu eftir að Ingólfur Sigurðsson fékk
rautt spjald. Leiknismenn voru þó ekki langt frá því að
ná í stig en Ásgeir Örn Arnþórsson tryggði Aftureldingu
sigur með marki tíu mínútum fyrir leikslok.
Hinir nýliðarnir í Gróttu gerðu sömuleiðis vel í að ná í sitt fyrsta stig eft-
ir að hafa verið manni færri allan seinni hálfleik gegn Þrótti R. vegna
rauðs spjalds Dags Guðjónssonar. Ágúst Leó Björnsson kom Þrótti tvívegis
yfir í leiknum en Pétur Theódór Árnason skoraði seinna jöfnunarmark Sel-
tirninga á 90. mínútu. Umferðinni lýkur í dag með leikjum Hauka og Vík-
ings Ó., Njarðvíkur og Þórs, og Magna og Keflavíkur. sindris@mbl.is
Flottur sigur hjá Frömurum
Helgi
Guðjónsson
ÍA og FH skildu jöfn, 1:1, í fyrstu umferð í 1. deild
kvenna í fótbolta á Akranesi í gærkvöld. Bæði lið gera
tilkall til þess að vera í baráttunni um sæti í efstu deild
en FH og Grindavík féllu úr þeirri deild á síðustu leiktíð
en ÍA hafnaði í 3. sæti í 1. deildinni.
FH komst yfir með marki Selmu Daggar Björgvins-
dóttur snemma í seinni hálfleik en þetta var hennar
fyrsta mark í meistaraflokki. Hin 15 ára gamla Ólöf Sig-
ríður Kristinsdóttir jafnaði metin að bragði fyrir heima-
konur og þar við sat.
Liðin tvö sem komust upp úr 2. deild í fyrra byrjuðu
tímabilið afar vel í gær. Tindastóll vann flottan útisigur
á Haukum, 1:0, þar sem hin bandaríska Jacqueline Altschuld skoraði eina
markið korteri fyrir leikslok. Augnablik, sem er varalið Breiðabliks, vann
svo sömuleiðis góðan 3:1-sigur á Grindavík. Næsta umferð fer öll fram
sunnudaginn 19. maí. sindris@mbl.is
Nýliðarnir byrjuðu af krafti
Ólöf Sigríður
Kristinsdóttir
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 20. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
girnilegum uppskriftum.
Garðar &grill
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. maí
SÉRBLAÐ