Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 47

Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Fagmennska og þjónusta ASSA ABLOY á heima hjá okkur - Lyklasmíði og vörur SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Spennan mun nálgast suðu- mark þegar líður á daginn hjá stuðningsmönnum Hauka og ÍBV. Liðin mætast í oddaleik um hvort þeirra spilar um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik. Vonandi verður leikurinn góð auglýsing fyrir íþróttina. Eins og úrslitakeppnin er iðu- lega mikil skemmtun þá dregur að mér finnst aðeins of oft fyrir sólu þegar hasarinn er hvað mestur. Hasarinn er síst minni utan vallar þegar upp koma deilumál eða atvik í leikjum. Þessi stórskemmtilega íþrótt er örugglega farin að líða aðeins fyrir þetta hérlendis. Það hlýtur að vera erfiðara að laða fólk að íþróttinni þegar allt verður brjál- að nánast á hverju ári. Ég ræddi við fyrrverandi íþróttablaðamann um daginn og við vorum sammála um að visst agaleysi birtist manni stundum í leikjum í handboltanum hér heima. Stundum eru þjálfararnir verstir. Mennirnir sem krefjast iðulega aga af sínum leik- mönnum en láta sjálfir öllum ill- um látum á hliðarlínunni. Hver er til dæmis tilgangurinn með því að eyða heilu og hálfu leikj- unum í að tala við fólk á ritara- borðinu? Er ekki dýrmætum tíma launaðs þjálfara betur varið í eitthvað annað í miðjum leik? Eftir höfðinu dansa limirnir og leikmenn eru farnir að taka upp á því að liggja á vellinum í tíma og ótíma eins og suðurevrópskir knattspyrnumenn. Það þykir mér ekki sjarmerandi hjá hand- boltamönnum. Ætli Alfreð Gísla- son hafi einhvern tíma verið lengur en 2 sekúndur í gólfinu í einu? Hjá Haukum og ÍBV eru margir virkilega góðir leikmenn. Síðasti leikur var mjög skemmtilegur og laus við leiðinlegar uppákomur. Vonandi verður það raunin í dag. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is sinnum orðið fyrir valinu frá árinu 1968 þegar fyrst var ákveðið að veita viðurkenningu þeim leikmanni sem staðið hefði upp úr í deildinni. Kristófer er að sjálfsögðu í úrvals- liði Dominos-deildar karla en þar er hann eini fulltrúinn úr Íslandsmeist- araliði KR. Erlendir leikmenn koma ekki til greina í lið ársins en besti er- lendi leikmaðurinn var kjörinn Juli- an Boyd úr KR. Matthías Orri Sig- urðarson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson úr ÍR eru með Krist- ófer í úrvalsliðinu, sem og Stjörnu- mennirnir Ægir Þór Steinarsson og Hlynur Bæringsson. Hlynur hefur nú tíu sinnum verið valinn í úrvalslið ársins á Íslandi, þrátt fyrir að hafa spilað í Svíþjóð árin 2010-2016. Besti þjálfarinn var valinn Borche Ilievski sem óvænt stýrði ÍR í úrslitaeinvíg- ið. Ægir var valinn besti varnar- maður sem og prúðasti leikmað- urinn. Í úrvalsliði Dominos-deildar kvenna er Helena eini fulltrúi meist- ara Vals. Með henni eru þær Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum, Gunnhildur Gunnarsdóttir úr Snæ- felli, Bríet Sif Hinriksdóttir úr Stjörnunni og Bryndís Guðmunds- dóttir úr Keflavík. Bryndís hefur sjö sinnum áður verið í úrvalsliðinu, Helena fimm sinnum, Gunnhildur tvisvar og Þóra einu sinni, en þetta er í fyrsta sinn sem Bríet er valin. Brittanny Dinkins úr Keflavík var valin besti erlendi leikmaðurinn og Auður Íris Ólafsdóttir úr Stjörnunni var valin besti varnarmaðurinn. Besti þjálfarinn var valinn Benedikt Guðmundsson sem stýrði nýliðum KR inn í úrslitakeppnina þar sem liðið féll út í undanúrslitum gegn meisturum Vals, 3:1. Þóra Kristín var valin prúðasti leikmaðurinn. Bestu ungu leikmenn deildanna voru þau Birna Valgerður Benón- ýsdóttir úr Keflavík og Hilmar Smári Henningsson úr Haukum. Í því vali komu til greina leikmenn sem fæddir eru árið 2000 eða síðar. Þess má til gamans geta að Birna var einnig valin besti ungi leikmað- urinn fyrir tveimur árum, en hún er 18 ára gömul líkt og Hilmar. Besti dómari deildanna var valinn Sigmundur Már Herbertsson, fimmta árið í röð, en hann hefur nú hlotið nafnbótina alls 13 sinnum. Stóðu upp úr annað árið í röð  Hlynur í úrvalsliðinu í tíunda sinn Morgunblaðið/Gummi Þau bestu Helena Sverrisdóttir og Kristófer Acox með verðlaunagripina. KÖRFUBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Annað árið í röð urðu þau Helena Sverrisdóttir og Kristófer Acox fyrir valinu sem bestu leikmenn úrvals- deildanna í körfubolta. Tilkynnt var um kjörið á verðlaunahófi KKÍ í gær en atkvæðisrétt hafa þjálfari, fyrir- liði og formaður hvers félags. Rétt er að taka fram að kjörið fer fram að úrslitakeppni lokinni og tekur til alls tímabilsins, en ekki bara deilda- keppninnar eins og fyrirkomulagið var fyrir nokkrum árum. Helena er annar leikmaðurinn í sögu Vals sem verður fyrir valinu sem sú besta í úrvalsdeildinni, en í ár vann liðið fyrstu þrjá titla sína. Signý Hermannsdóttir var valin árið 2009. Þetta er í sjötta sinn sem Hel- ena er valin best en hin fimm skiptin var hún leikmaður Hauka. Kristófer hlýtur nú nafnbótina í annað sinn og er þetta þriðja árið í röð þar sem sá besti kemur úr röð- um KR. Jón Arnór Stefánsson var valinn 2017. Alls hafa KR-ingar 13 Landsliðskonan Dagný Brynjars- dóttir er í viðtali við bandaríska blaðið The Oregonian í umfjöllun um mæður í atvinnumennsku í knattspyrnu. Þar er vakin athygli á því að samtals spili aðeins sjö mæð- ur í þessari níu liða deild. Lágar tekjur og óvissa um rétt til fæðing- arorlofs spili þar inn í. Dagný er byrjuð að spila með Portland Thorns á nýjan leik eftir að hafa átt son í fyrra. „Það er svo sannarlega hægt að gera bæði [vera móðir og atvinnumaður], en það er áskorun,“ segir Dagný. Dagný ein aðeins sjö mæðra Ljósmynd/timbers.com Með á ný Dagný var í byrjunarliði í síðasta leik, í fyrsta sinn frá 2017. Ægir Þór Steinarsson, landsliðs- maður í körfuknattleik sem lék með Stjörnunni í vetur, er kominn til Argentínu til að spila með liði Regatas Corrientes í úrslitakeppn- inni þar í landi. Regatas er í 7. sæti af 20 liðum fyrir lokaumferðina sem er leikin um helgina og er öruggt með sæti í átta liða úrslitum. Ægir verður annar íslenski körfuknattleiksmaðurinn til að spila í Argentínu. Pétur Guðmunds- son hóf atvinnuferilinn þar árið 1980 þegar hann lék í hálft ár með liði River Plate. vs@mbl.is Ægir Þór fetar í fótspor Péturs Morgunblaðið/Árni Sæberg Argentína Ægir Þór Steinarsson er kominn á nýjar slóðir. Íslenska U17-landsliðið í knatt- spyrnu karla var grátlega nálægt því að komast upp úr sínum riðli og í 8-liða úrslitin á EM á Írlandi. Lið- inu dugði jafntefli við Portúgal í lokaleiknum en eftir að Ísland hafði jafnað metin í tvígang skoruðu Portúgalar tvö mörk á síðasta kort- erinu og unnu 4:2-sigur. Það verður því Portúgal en ekki Ísland sem mætir Ítalíu í 8-liða úr- slitunum á mánudag. Það breytir því ekki að árangur íslenska liðsins er frábær en sjaldgæft er að Ísland eigi fulltrúa í lokakeppnum stór- móta í fótbolta karla, sama í hvaða aldursflokki það er. Mörk Íslands skoruðu Skagamað- urinn Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping í Svíþjóð, og Framarinn Mikael Egill Ellertsson sem er leikmaður SPAL á Ítalíu. Ísland endaði í 3. sæti síns riðils með þrjú stig. Ungverjaland vann riðilinn með fullt hús stiga og mæt- ir Spáni í 8-liða úrslitunum, en Portúgal hlaut sex stig í 2. sæti. sindris@mbl.is Ljósmynd/@uefacom Mark Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar jöfnunarmarki gegn Portúgal í gær en það reyndist duga skammt þar sem að Portúgal vann 4:2-sigur. Korteri frá því að fara í 8-liða úrslitin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.