Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Pepsi Max-deild karla FH – KA.................................................... 3:2 Stjarnan – HK .......................................... 1:0 Breiðablik – Víkingur R........................... 3:1 Staðan: Breiðablik 3 2 1 0 7:3 7 FH 3 2 1 0 6:3 7 Stjarnan 3 1 2 0 3:2 5 Fylkir 2 1 1 0 5:2 4 KR 2 1 1 0 4:1 4 ÍA 2 1 1 0 5:3 4 KA 3 1 0 2 4:6 3 Víkingur R. 3 0 2 1 5:7 2 Valur 2 0 1 1 3:4 1 Grindavík 2 0 1 1 1:3 1 HK 3 0 1 2 2:5 1 ÍBV 2 0 0 2 0:6 0 Inkasso-deild karla Afturelding – Leiknir R.......................... 2:1 Andri Freyr Jónasson 27., Ásgeir Örn Arn- þórsson 81. – Sólon Breki Leifsson 75. Rautt spjald: Ingólfur Sigurðsson (Leikni) 16. Grótta – Þróttur R................................... 2:2 Kristófer Orri Pétursson 58., Pétur Theó- dór Árnason 90. – Ágúst Leó Björnsson 44. (víti), 67. Rautt spjald: Dagur Guðjónsson (Gróttu) 43. Fram – Fjölnir.......................................... 3:2 Unnar Steinn Ingvarsson 17., Hlynur Atli Magnússon 39., Helgi Guðjónsson 61. – Hans Viktor Guðmundsson 44., Jón Gísli Ström 53. Staðan: Leiknir R. 2 1 0 1 5:3 3 Þór 1 1 0 0 3:1 3 Víkingur Ó. 1 1 0 0 2:0 3 Njarðvík 1 1 0 0 3:2 3 Keflavík 1 1 0 0 2:1 3 Fjölnir 2 1 0 1 4:4 3 Fram 2 1 0 1 4:4 3 Afturelding 2 1 0 1 3:4 3 Þróttur R. 2 0 1 1 4:5 1 Grótta 2 0 1 1 2:4 1 Haukar 1 0 0 1 1:2 0 Magni 1 0 0 1 1:4 0 Inkasso-deild kvenna Haukar – Tindastóll ................................ 0:1 Jacqueline Altschuld 77. ÍA – FH...................................................... 1:1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 62. – Selma Dögg Björgvinsdóttir 55. Augnablik – Grindavík ........................... 3:1 Leikskýrsla enn óbirt. EM U17 karla Lokakeppni á Írlandi: Portúgal – Ísland..................................... 4:2 Bruno Tavares 32., Fábio Silva 46., Paulo Bernardo 76., Filipe Cruz 84. – Ísak B. Jó- hannesson 37., Mikael Egill Ellertsson 71. Rússland – Ungverjaland........................ 2:3 Lokastaðan: Ungverjaland 3 3 0 0 6:3 9 Portúgal 3 2 0 1 6:4 6 Ísland 3 1 0 2 6:8 3 Rússland 3 0 0 3 5:8 0  Ungverjaland og Portúgal í 8-liða úrslit. KNATTSPYRNA Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is amlegt ka nýmalað, en in h l i. ynntu r Jura a v lar í Eirví . i óðum þér í kaffi. s k é V ð jK k ffi y KAPLAKRIKI/ GARÐABÆR/ÁRBÆR Andri Yrkill Valsson Jóhann Ingi Hafþórsson Bjarni Helgason Það er óhætt að segja að um fátt verði meira rætt en dómgæsluna eft- ir leik FH og KA í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í gær, en fyrstu þrír leikir þriðju umferðar fóru þá fram. FH marði þá 3:2 sigur í Kapla- krika og er enn ósigrað í deildinni eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Óánægjan með dómgæsluna kem- ur úr báðum áttum, en þó sér- staklega frá KA-mönnum enda virt- ust þeir rændir augljósri vítaspyrnu í uppbótartíma þegar Sæþór Olgeirs- son var togaður niður af fyrrverandi KA-manninum Guðmanni Þórissyni. Hreint galið að horfa framhjá því og það á ögurstundu. Fyrr í leiknum höfðu FH-ingar svo verið hundfúlir að fá ekki víti þegar brot var dæmt utan teigs sem virtist fyrir innan, en þeir fengu þó víti upp úr því og voru því ekki eins yfirlýsingaglaðir um dómgæsluna eftir leik. Það má hins vegar taka undir með Ólafi Kristjánssyni, þjálfara FH, sem sagði það hundfúlt að dómgæslan skyldi vera aðalumræðuefnið eftir svona skemmtilegan fótboltaleik. Hann var það svo sannarlega og flottir taktar sáust á báða bóga. FH- ingar pressuðu mun meira og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk, sérstaklega í fyrri hálfleik, en KA- menn komust vel í takt við leikinn eftir hlé og uppskáru tvö góð mörk. Gunnar Nielsen, markvörður FH, fór á slysadeild eftir að hafa meiðst á hendi í leiknum og er það áhyggju- efni fyrir Hafnfirðinga ef hann verð- ur frá. Halldór Orri Björnsson stimplaði sig vel inn með tveimur mörkum og þá stjórnaði Björn Daní- el Sverrisson sóknarspilinu af stakri snilld. Hjá KA kemur allt sóknarspil frá Hallgrími Mar Steingrímssyni, sem skoraði flott mark úr auka- spyrnu, en liðið barðist saman sem heild. Nú er spurning hvernig norð- anmenn taka mótlætinu sem mætti þeim, en ljóst er að þeir munu gera öllum liðum erfitt fyrir í sumar. Glæsimark Hilmars Stjarnan vann sinn fyrsta leik í sumar er HK kom í heimsókn í Garðabæinn. Lokatölur urðu 1:0, þar sem huggulegt mark Hilmars Árna Halldórssonar réð úrslitum. Hilmar fékk boltann rétt utan vítateigs HK- inga og sneri honum snyrtilega í blá- hornið fjær snemma í seinni hálfleik. Sigur Stjörnumanna var verð- skuldaður gegn bitlausum HK- ingum og nægði heimamönnum þokkaleg frammistaða. Stjarnan spil- ar eflaust betur í einhverjum leikjum í sumar og tapar. Spilamennska HK var ekki upp á marga fiska og nokkur skref til baka, eftir góðan leik gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Leik- menn HK virtust feimnir gegn sterku liði Stjörnunnar og hafði Har- aldur Björnsson lítið sem ekki neitt að gera í markinu hjá Stjörnunni. FH-ingar í góðum málum  Halldór Orri tryggði FH sigur undir lokin en dómgæslan umdeild Morgunblaðið/Ómar Fagnað Kolbeinn Þórðarson fær knús eftir annað marka sinna gegn Breiða- bliki í gærkvöld en Kolbeinn hefur nú skorað þrjú mörk á leiktíðinni. Dramatík FH-ingar fagna einu þriggja marka sinna í sigr- inum á KA. 1:0 Halldór Orri Björnsson 6. 1:1 Hallgrímur Mar Steingríms. 52. 1:2 Elfar Árni Aðalsteinsson 65. 2:2 Björn Daníel Sverris. 75. (víti) 3:2 Halldór Orri Björnsson 87. I Gul spjöldBjörn Daníel, Guðmann, Guð- mundur og Pétur (FH), Ýmir, Hrann- ar, Haukur, Torfi, Óli Stefán þjálfari, Jajalo varamaður (KA). FH – KA 3:2 M Atli Guðnason (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Guðmundur Kristjánsson (FH) Halldór Orri Björnsson (FH) Jónatan Ingi Jónsson (FH) Callum Williams (KA) Daníel Hafsteinsson (KA) Elfar Árni Aðalsteinsson (KA) Hallgrímur Mar Steingríms. (KA) Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 4. Áhorfendur: 921.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.