Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Einstaklega vel hannaðar íbúðir með yfirbyggðum þaksvölum sem eykur
notagildi og nýtur sólar frá morgni til sólarlags að kvöldi.
Tvö baðherbergi eru í öllum íbúðum og allar þriggja herbergja
með mismunandi skipulagi.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð.
Sölumenn Mikluborgar verða á staðnum.
Opið hús mánudaginn 13. maí kl. 17-18
GRANDAVEGUR 42 A, B OG C
OPIÐ
HÚS
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hinn víðkunni og virti rússneski
Terem-kvartett kemur fram í
Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 16.
Með kvartettinum koma fram
gestasöngvararnir kunnu Sigrún
Hjálmtýsdóttir – Diddú og Ólafur
Kjartan Sigurðarson. Tónleikarnir
eru á vegum Oddfellowstúku nr. 5,
Þórsteins, og rennur allur ágóði
óskertur til líknarmála.
Terem-kvartettinn var stofnaður í
Pétursborg árið 1986 og hefur síðan
komið fram á fjölda tónleika ár
hvert, innan Rússlands sem utan.
Meðlimirnir bera heiðursnafnbótina
„heiðurslistamenn Rússlands“ og
eru þekktir fyrir að leika afar fjöl-
breytilega tónlist listavel. Kvartett-
inn hefur tvisvar áður komið fram á
tónleikum hér á landi, árin 2005 og
2007, við mikið lof tónleikagesta. Á
seinni tónleikunum kom Diddú einn-
ig fram og í kjölfarið hljóðritaði hún
geisladisk með kvartettinum, Diddú
og Terem, og kom hann út árið
2008. Á diskinum eru íslenskar
dægurperlur, eins og „Vegir liggja
til allra átta“, „Tondeleyó“ og
„Dagný“ eftir Sigfús Halldórsson,
„Litli tónlistarmaðurinn“ eftir Frey-
móð Jóhannsson og „Sveitin milli
sanda“ eftir Magnús Blöndal Jó-
hannsson, auk laga eftir Nino Rota.
Á tónleikunum munu einhver þess-
ara laga hljóma, auk úrvals laga úr
því fjölbreytilega lagasafni sem
meðlimir Terem hafa á takteinum.
„Frábærir músíkantar“
„Þessir strákar eru þjóðarger-
semi Rússa, eru frábærir músík-
antar og heilla alla upp úr skónum,“
segir Diddú þegar hún er spurð út í
samstarfið við Terem-kvartettinn.
Hún kynntist þeim þegar þeir léku
fyrst hér á landi, í Salnum árið 2005,
og segist hafa fengið einkaáheyrn-
arprufu hjá þeim.
„Við heilluðumst hvert af öðru og
mér var boðið til samstarfs við þá.
Við héldum tónleika saman hér á
landi næst þegar þeir komu, 2007,
„Þjóðargersemi Rússa“
Terem-kvartettinn leikur í Hörpu á morgun Diddú og Ólafur Kjartan
gestasöngvarar „Hvar sem þessir drengir koma fram fellur fólk fyrir þeim“
Ljósmynd/Daniil Rabovsky
Fjölhæfir Terem-kvartettinn nýtur mikilla vinsælda í heimalandinu og spila þeir allrahanda tónlist, á sinn hátt.
og síðan var ákveðið að skella sér í
plötuupptöku í Pétursborg. Okkur
leið svo vel saman, það var allt í
takti hjá okkur.“
Diddú segist hafa haldið til
Pétursborgar til móts við kvart-
ettinn á hrunárinu 2008. „Ég var
hjá þeim í þrjár vikur, við æfingar
og upptökur, og það endaði með
tónleikum í Fílmarmóníuhöllinni.
Þessir strákar kynntust í rúss-
neska hernum þar sem þeim voru
sem betur fer ekki færð vopn heldur
hljóðfæri. Þeir fundu sig svakalega
vel í tónlistinni, stofnuðu kvart-
ettinn svo árið 1986 og slógu strax í
gegn. Þeir hafa starfað saman síðan.
En platan okkar týndist því mið-
ur gjörsamlega í látunum við hrun-
ið.“
Íslensk lög á diski með Diddú
Diddú segir að á tónleikunum
muni hún syngja nokkur íslensku
laganna sem eru á plötunni en líka
einhver rússnesk lög, rétt einsog
Ólafur Kjartan mun gera.
„Þeir buðu mér aftur út að syngja
með sér og meðal annars komum
við í einni ferðinni fram í Kreml-
tónlistarhöllinni í Moskvu. Hún tek-
ur mörg þúsund manns og var
sneisafull á tónleikunum. Það var
dásamlegt ævintýri, ári eftir að
diskurinn kom út.“
Þegar Diddú er spurð út í laga-
valið á diskinum segist hún hafa
sungið ýmis íslensk lög fyrir þá Ter-
em-liða. „Þeir heilluðust gjör-
samlega af lögunum eftir Fúsa,
fannst hann vera mjög alþjóðlegur
lagahöfundur og flottur tónsmiður.
Þeir skynjuðu vel dýrðina í lögunum
hans,“ segir hún en fimm lög eftir
Sigfús Halldórsson eru á diskinum.
„En þessir strákar geta spilað allt
milli himins og jarðar og útfæra allt
á sinn hátt, á ofboðslega skemmti-
legan máta. Þeir spurðu mig mikið
út í íslensku textana og vildu lita
sínar útsetningar út frá þeim. Þeir
spila líka alla klassísku meistarana,
rétt eins og ABBA. Og það er allt
jafn flott og skemmtilegt, og maður
grætur yfir flutningnum, þeir eru
svo djúpir í því sem þeir gera. Hvar
sem þessir drengir koma fram fellur
fólk fyrir þeim,“ segir Diddú.
Terem hefur leikið við setningu
Ólympíuleika, við opinberar heim-
sóknir rétt eins og í tónleikasölum
úti um heimsbyggðina. Og nú liggur
leið þeirra í Hörpu.
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
Stórsveit MÍT, Menntaskóla í tón-
list, heldur tónleika í Kaldalóni í
Hörpu á morgun kl. 14 og verður
efnisskráin að mestu helguð lögum
af plötunni Ella and Basie! frá árinu
1963 en á henni syngur Ella Fitz-
gerald þekkt djasslög með stórsveit
Counts Basies, í útsetningum
Quincys Jones. Fleiri verk verða á
skránni og þá m.a. tengd Frank
Sinatra. Stórsveit MÍT skipa 17 af
lengst komnu djassbrautarnem-
endum MÍT en 12 af söngvurum
skólans taka lagið. Aðgangur er
ókeypis. Stjórnandi stórsveitar-
innar er Snorri Sigurðarson.
Stórsveit MÍT
leikur í Hörpu
Kát Stórsveit MÍT á góðri stundu.
Tónleikaröð til styrktar Hallgríms-
kirkju í Saurbæ í Hvalfirði hefst á
morgun kl. 16 með tónleikum í
kirkjunni og er hugmyndin með
röðinni að viðhalda staðnum sem
menningarstað. Guðmundur Sig-
urðsson organisti leikur verk eftir
Friðrik Bjarnason, Dietrich Buxte-
hude, Johann Sebastian Bach, Jó-
hann Jóhannsson, Smára Ólason,
George Shearing og Johann Pach-
elbel á orgelið og mun kór kirkj-
unnar líka flytja nokkur lög.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Hallgrímskirkja
í Saurbæ styrkt
Kirkjan Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Myndlistarkonan Anna Niskanen
opnar sýningu á grafíkverkum í sal
félagsins Íslensk grafík í Hafnar-
húsinu, hafnarmegin, í dag kl. 17.
Sýningin nefnist Hover, float og er
umfjöllunarefnið flóð og fjara, vatn
og aðdráttarafl jarðar. Verkin eru
unnin með ljósmyndaaðferð sem
nefnist cyanotype og eru unnin á
pappír og silki. Þau voru áður sýnd
í Photographic Center Peri í Turku
í Finnlandi fyrir tveimur árum og á
sýningunni sem opnuð verður í dag
má sjá fleiri verk.
Niskanen er finnsk, býr og starf-
ar í Helsinki en dvelur nú hér á
landi á vegum Sambands íslenskra
myndlistarmanna. Hún er með
meistaragráðu í ljósmyndun og hef-
ur sýnt víða.
Anna Niskanen
opnar Hover, float
Finnsk Anna Niskanen myndlistarmaður.
Ísland – Tékkland er yfirskrift tón-
leika sem haldnir verða í Salnum í
Kópavogi í kvöld kl. 19. Tónleik-
arnir eru afrakstur samstarfs sem
styrkt er af Erasmus+ en í því
koma saman nemendur Tónlistar-
skóla Kópavogs og Tónlistarskól-
ans í Karlovy Vary í Tékklandi og
flytja kammer- og þjóðlagatónlist
frá Íslandi og Tékklandi. Verkefnið
hefur staðið frá hausti, að því er
fram kemur í tilkynningu en 20
nemendur Tónlistarskóla Kópa-
vogs heimsóttu Karlovy Vary í
febrúar á þessu ári og nú eru hér á
landi 19 nemendur frá Karlovy
Vary við æfingar og tónlistarflutn-
ing, auk þess að kynna sér líf ís-
lenskra jafnaldra sinna.
Verkefnastjórar eru flautuleik-
ararnir Pamela De Sensi og Eydís
Franzdóttir. Aðgangur að tónleik-
unum í kvöld er ókeypis.
Ísland –Tékkland
í Salnum í kvöld
Einbeitt Ungir hljóðfæraleikarar.