Morgunblaðið - 11.05.2019, Page 52

Morgunblaðið - 11.05.2019, Page 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 O NÁNAR Á S A L U R I N N . I S DA CAPO GUNNAR GUÐBJÖRNSSONVIÐTALSTÓNLEIKAR 18.05.19 KL.14.00 ÞÓRA EINARSDÓTTIR Sumarsýningar safnasafnsins í Eyjafirði verða opnaðar í dag, laug- ardag, klukkan 14. Safnið stendur við þjóðveginn fyrir ofan Svalbarðs- eyri og tekur tignarlegur rúmlega fimm metra hár bláklæddur safn- vörður þar á móti gestum og vísar veginn inn á safnið. Innan dyra eru björt og falleg rými þar sem gestir geta notið listsýninga eftir lærða og leika listamenn; þar fléttast saman nútímalist, alþýðulist og handverk. Stofnendur Safnasafnsins, Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðar- dóttir, hafa í rúm 30 ár safnað af ástríðu verkum helstu alþýðulista- manna landsins, listamanna sem af ýmsum ástæðum hafa verið á jaðr- inum eða utanveltu við megin- strauma, stundum kallaðir næfir eða einfarar í myndlistinni, en eru í reynd beintengdir sköpunarverkinu; sannir, óspilltir og frjálsir. Kíkó Korríró-stofan Nú eru tólf ár síðan Safnasafnið var opnað í núverandi mynd en tutt- ugu og fjögur ár síðan það var stofn- að. Auk hinna árlegu sumarsýninga sem nú verða opnaðar koma í sumar út þrjú rit á vegum safnsins. Eitt er um Þórð Valdimarsson eða Kíkó Korriró sem var listamannsnafn hans en svokölluð Kíkó Korriró- stofa var stofnuð á safninu eftir að safnið fékk 120.000 verk eftir Þórð „sem bjó lengi í Hollywood og var þar í kreðsum með Hollywood- stjörnum og litríku mannlífi“, eins og segir í tilkynningu frá safninu. Í tengslum við sýninguna Fuglar sem er sýning á 360 fuglum í eigu safnsins hefur Safnasafnið gefið út nýja sýnisbók úr safneign, Sýnisbók III, þar sem sjá má úrval verka frá sýningunni og úr safneign. Þriðja út- gáfan byggist á erindum og hugleið- ingum þátttakenda í málþinginu „Frá jaðri að miðju: Þróun íslenskr- ar alþýðulistar og staða hennar í dag“. Ólíkar sýningar Fjöldi starfandi listamanna sýnir eða á verk í safninu í ár, auk verka eftir lista- og handverksmenn sem fallnir eru frá. Meðal sýnenda eru Eygló Harðardóttir, sem nýverið var valin Myndlistarmaður ársins, og Atli Már Indriðason, listamaður Listar án landamæra 2019. Sýndar verða klippimyndir eftir Kíkó Korriró og ljósmyndir sem voru teknar af Þórði þegar hann dvaldi ungur maður í Los Angeles og hitti nokkrar af þekktustu kvik- myndastjörnum þess tíma. Sýnd verða málverk eftir Valdimar Bjarn- freðsson sem kallaði sig Vapen, var óvenjulegur myndlistarmaður og lést fyrir skömmu. Við myndsköpun sína beitti hann sömu aðferðum og þegar spáð er í bolla. Hann hélt yfir tug málverkasýninga og bar ein þeirra heitið „Kaffibollinn er mitt Internet“. Magnhildur Sigurðardóttir sýnir upphlut sem hún saumaði sam- kvæmt hugmynd sem Sigurður Guð- mundsson málari kynnti árið 1870. Rúna Þorkelsdóttir sýnir fataefni sem unnið var í samvinnu við hönn- uðinn Tao Kurihara hjá tískuhúsinu Comme des Garcons en efnin eru unnin út frá bókverkinu Paper- flowers eftir Rúnu og þá verða sýnd leirverk eftir ókunna höfunda, gerð á vinnustofu Kleppsspítala á árunum 1980 til 1983. Myndlistarmennirnir Auður Lóa Guðnadóttir og Steingrímur Eyfjörð hafa líka sett upp sýningar. Safnasafnið er opið alla daga í sumar, til 1. september. Vapen Meðal sýninga í Safnasafni eru málverk eftir Valdimar Bjarnfreðsson (1932-2018) sem kallaði sig Vapen. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Safnasafnið Blár fimm metra hár safnvörður stendur norðan við björt og rúmgóð húsakynni Safnasafnsins við austanverðan Eyjafjörð. Fjölbreytileikinn í Safnasafninu  Ólíkar sýningar samtímalistamanna og úr safneign opnaðar í dag  Eygló Harðardóttir og Stein- grímur Eyfjörð meðal sýnenda  Teikningar Kíkós Korrírós  Þrjú rit koma út á vegum safnsins Fuglar Hluti sýningarinnar á 360 fuglum sem eru í eigu safnsins. Hæstiréttur Svíþjóðar ákvað í vikunni að synja Jean- Claude Arnault um áfrýjunarheimild vegna dóms sem hann hlaut á síðasta ári. Arnault, sem kvæntur er Kata- rinu Frostenson sem um árabil sat í Sænsku akademí- unni, var í október dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann áfrýjaði þeim dómi til Hirðréttarins í Svíþjóð (sambærilegur við Landsrétt hérlendis) sem í desember þyngdi dóminn í tvö og hálft ár. Í tilkynningu frá réttinum, sem Sænska ríkisútvarpi greinir frá, kem- ur fram að Hæstiréttur hafi yfirfarið öll gögn málsins og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru nein lagaleg álitaefni sem gæfu tilefni til áfrýjunarheimildar. Synjun Hæstaréttar þýðir að dómur Hirðréttarins er endanlegur. Sama dag og niðurstaða Hæstaréttar var opinberuð upplýsti Expressen að Karl XVI. Gústaf Svíakonungur, hefði ákveðið að svipta Arnault Norðurstjörnu- orðunni sem hann hlaut 2015, en orðan er virðulegasta heiðursmerki sem erlendum ríkisborgara getur hlotnast í Svíþjóð. Ríkismarskálkur staðfestir að Arnault hafi verið sviptur orðunni vegna nauðgunardómsins. Arnault synjað um áfrýjunarheimild Jean-Claude Arnault Þungarokkshljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle fer fram á tón- leikastaðnum Húrra í Reykjavík í kvöld og mun sigurvegarinn koma fram á Wacken Open Air-þunga- rokkshátíðinni í Þýskalandi í ágúst en hún er sú umfangsmesta og fjöl- mennasta sinnar tegundar í heim- inum. Sex hljómsveitir keppa í úrslitum en 13 sóttust eftir því að komast í keppnina. Fjölskipuð alþjóðleg dóm- nefnd mun, auk gesta, velja eina að lokum til þess að koma fram á hátíð- inni í Þýskalandi og leika þar fyrir mörg þúsund gesti. Mun hún jafn- framt taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle auk sveita frá 29 lönd- um. Efstu fimm sveitirnar hljóta svo glæsileg og vegleg verðlaun. Húsið verður opnað kl. 19 í kvöld og Blóðmör, sigurvegari Músíktil- rauna í ár, hefur leik kl. 19.30. Síðan mun hver sveitin stíga á svið á fætur annarri en þær sem keppa í ár eru Alchemia, Keelrider, Morpholith, Pa- ladin, Thrill of Confusion og Úlfúð. Bókunar- og útgáfusamningar Hljómsveitin Une Misère leikur líka fyrir gesti en hún fór með sigur af hólmi í keppninni þegar hún var haldin síðast hér á landi. Une Misére landaði fjórða sæti í keppninni árið 2017 og gerði í kjölfarið bókunar- samning við eitt virtasta bókunarfyr- irtæki heims í þungarokki, Doomstar Booking. Í fyrra gerði sveitin svo út- gáfusamning við eitt umfangsmesta, óháða útgáfufyrirtæki heims í þunga- rokkinu, Nuclear Blast. Það getur því verið til mikils að vinna í Wacken Me- tal Battle. Fjölbreytt í ár Skipuleggjandi keppninnar hér á landi, Þorsteinn Kolbeinsson, segir úrvalið í ár, hljómsveitirnar sex, held- ur fjölbreyttara en áður hefur verið. „Það hefur verið mikið af dauða- rokki og harðara þungarokkinu en núna er kannski eitt band sem fellur í þann flokk og svo erum við með eitt „power metal„ band, „stoner“ og blúsað rokk þannig að ég myndi segja að breiddin væri að aukast miðað við fyrri ár. Og það sá ég líka bara í um- sóknunum,“ segir Þorsteinn. Um- sóknirnar voru 13 og er það svipaður fjöldi og hefur verið hin síðustu ár, að sögn Þorsteins. Ásamt dómnefnd hafa áhorfendur einnig atkvæðisrétt, sem fyrr segir og hvetur Þorsteinn þá til að mæta snemma og styðja sína sveit en at- kvæðaseðlar verða afhentir við inn- gang. Styrktaraðilar keppninnar eru Rás 2 og einnig Hljóðfærahúsið, Tóna- stöðin, Studio Hljómur, Studio Hljóð- verk og Merkismenn, sem gefa vinn- inga í keppninni á Íslandi. Une Misére Sveitin sigraði í Wacken Metal Battle þegar keppnin var síðast haldin. Hún gerði það gott í Þýskalandi og landaði tveimur samningum. Til mikils að vinna  Wacken Metal Battle-keppnin haldin á Húrra Morgunblaðið/Kristinn Málmhaus Þorsteinn Kolbeinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.