Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
SÉRHÖNNUÐ TENGISTYKKI
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið nýju heimasíðuna
islandshus.is
ÖFLUGAR
UNDIRSTÖÐUR
Barbörukórinn heldur tónleika í
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 18. Á
tónleikunum verða flutt þjóðlög frá
ýmsum löndum og verk eftir Jón
Múla Árnason, Einojuhani Rauta-
vaara, John Tavener og Auði Guð-
johnsen. „Barbörukórinn hefur und-
irbúið þessa tónleika með Hilmari
Erni Agnarssyni og fengu þau nám-
skeið í austurevrópskum söngstíl hjá
svissneskri kórstýru, Abelíu Nord-
mann, og tyrkneskri söngkonu, Giz-
em S. Simsek,“ segir í tilkynningu.
Þar segir einnig: „Sagan segir að
ung stúlka frá Hafnarfirði hafi verið
kosin ungfrú Reykjavík og þá voru nú
Hafnfirðingar stoltir. Hún heldur á
vit ævintýranna og uppgötvar að
heimurinn er uppfullur af góðu fólki,
ást, umhyggju og gleði. Heimurinn er
góður. Hún heldur af stað frá Reykja-
vík til Englands
þar sem hún hittir
elskhuga á vor-
dögum. Þaðan fer
hún til Wales og
svo til Finnlands
þar sem hún fær
að kynnast
myrkrinu en það
er þó alltaf ljós í
myrkrinu. Í Aust-
ur-Evrópu kynnist hún búlgörskum
söngkonum sem gaspra og slúðra rétt
eins og íslenskar ungmeyjar og frá
austrinu fer hún alla leið til Banda-
ríkjanna þar sem hún hittir sjálfa
gyðjuna Dolly Parton, þvílíkt ævin-
týri. Á endanum ákveður hún að snúa
aftur heim því heima er jú alltaf
best.“ Harpa Arnardóttir leikkona
mun leiða gesti á vit ævintýranna.
Fröken Reykjavík fer í heimsferð
Harpa Arnardóttir
Ragnar Hólm
Ragnarsson opn-
ar myndlistarsýn-
inguna Sumarljós
í Mjólkurbúðinni
á Akureyri í dag
kl. 14. Þar sýnir
hann nýjar vatns-
litamyndir sem
birta okkur ljós
og skugga í ís-
lensku landslagi.
Sýningin verður opin helgina 11.-12.
maí frá kl. 14-17 og aftur helgina
18.-19. maí en einnig eftir samkomu-
lagi frá 11.-19. maí. Ragnar er ný-
kominn heim frá Fabriano á Ítalíu
þar sem hann á mynd af Herðubreið
á einni stærstu vatnslitahátíð heims.
Á Ítalíu sótti hann líka námskeið hjá
Raffaele Ciccaleni en áður hefur
Ragnar numið af vatnslitamálurum
á borð við Björn Bernström og Klaus
Hinkel, að ógleymdum Guðmundi
Ármann Sigurjónssyni. Sumarljós er
16. einkasýning Ragnars sem hefur
einnig tekið þátt í fjölda samsýninga
hér heima og erlendis.
Sumarljós Ragnars í Mjólkurbúðinni
Ragnar Hólm
Ragnarsson
Það er mjög áhrifaríkt að koma inn í ís-
lenska skálann, í innsetningu Hrafnhildar
Arnardóttir,“ segir Nína Hjálmarsdóttir,
dansgagnrýnandi Morgunblaðsins. Hún
er stödd í Feneyjum, hefur verið að skoða
hinn viðamikla Feneyjatvíæring, þann 58.,
og var í fyrrakvöld viðstödd opnun ís-
lenska skálans með innsetningu Hrafn-
hildar, sem þekkt er sem Shoplifter. Verk
hennar, Chromo Sapiens, er gert úr ein-
kennisefni hennar, hári.
„Innsetningin er mjög falleg og greini-
lega gríðarlega mikil vinna sem liggur að
baki. Hvaðan kemur allt þetta hár!?“ veltir
Nína fyrir sér. „Þetta er eins og að ganga
inn í gin skrímslis og við taka þrjú rými
með mismunandi litapallettum. Hrafnhild-
ur á mikið hrós skilið fyrir verkið.“
Það var troðið út úr dyrum við opnun ís-
lenska skálans og löng röð fyrir utan af
fólki sem vildi komast inn, enda segir Nína
hann þekktan fyrir að vera með skemmti-
legasta partíið við opnun tvíæringsins.
Gestir gengu gegnum listaverk Hrafnhild-
ar og komu þá í stóran bakgarð þar sem ís-
lenskir plötusnúðar lék kröftuga suðræna
tónlist sem gestir dönsuðu við. Eftir að
Hrafnhildur hafði haldið stutta tölu steig
hljómsveitin HAM á svið en hún samdi og
flytur hljóðmynd verksins. „HAM lék eft-
irlætislag listakonunnar, „Animalia“, og
tók allmörg önnur lög. Mesta stemningin
var eflaust þegar þeir léku „Dauð hóra“.
Síðan tóku fleiri plötusnúðar við, það var
frábær stemning og mikið dansað.“ Nína
bætir við að Íslendingar hafi líklega verið
hátt í helmingur gesta og „þetta var
örugglega besta partíið í Feneyjum“ – og
eru þau þó mörg.
Í gær var tvíæringurinn opnaður fyrir
almennum gestum en á miðvikudag og
fimmtudag var blaðamönnum, listamönn-
um, söfnurum og safnafólki boðið að skoða
sýningarnar. „Hér eru margar svakalegar
týpur og ótrúlega glæsilega búnar,“ segir
Nína. „Og stemning hefur verið mjög góð
á svæðinu.“
Segja má að tvíæringurinn sé tvískipt-
ur. Annars vegar eru þjóðarskálarnir en
að þessu sinni taka 87 þjóðir þátt. Um
helmingur þeirra er á gamla kjarnasvæð-
inu, í garðinum Giardini, en hinir eru í
allrahanda húsnæði sem þjóðirnar leigja
út um borgina og er íslenski skálinn einn
þeirra en hann er í gömlu vöruhúsi á eyj-
unni Giudecca. Hinn hlutinn er aðalsýn-
ingin sem er nú á ábyrgð sýningarstjórans
Ralphs Rugoff og nefnist „Megir þú lifa á
áhugaverðum tímum“. Sú sýning er bæði
sett upp í ítalska skálanum í Giardini og í
hinni fornu skipasmíðastöð Arsenale.
Þegar Nína er spurð um eftirlætissýn-
ingar og verk sem hún hefur séð þá nefnir
hún franska skálann, sýningu Lauru Prov-
ost, sem margir spá aðalverðlaunum
tvíæringsins og eins þann argentínska,
með verki Thomasar Saraceno. „Þar hafa
kóngulær spunnið vefi í þrjá mánuði en
hafa nú verið fjarlægðar og eftir sitja vef-
irnir sem listaverk og það hefur vakið
mikla lukku,“ segir hún og bætir við að þá
hafi hún hrifist mikið af verki hinna kín-
versku Sun Yuan and Peng Yu. Þau sköp-
uðu vélmenni sem sópar sífellt að sér blóð-
kenndum vökva sem vekur hughrif.
„Það er gríðarlega margt áhugavert
hér. Verk listamanna úr minnihlutahópum
eru áberandi og satt best að segja er sér-
kennilegt að sjá hvíta spariklædda gesti,
sem eru í meirihluta, horfa á þau. En það
er greinilegt að sýningarstjórinn reynir að
fanga það sem er að gerast nákvæmlega
núna í samtímalistinni og þess vegna er
svo gaman að vera hérna,“ segir Nína.
Morgunblaðið/Nína Hjálmarsdóttir
Slammað Hljómsveitin HAM samdi og flytur hljóðverkið í innsetningu Hrafnhildar í íslenska
skálanum. Hljómsveitin tróð upp í opnunarpartíinu og vakti mikla lukku, að sögn viðstaddra.
Morgunblaðið/Nína Hjálmarsdóttir
Litagleði „Innsetningin er mjög falleg og greinilega gríðarlega mikil vinna sem liggur að
baki,“ segir rýnir Morgunblaðsins um innsetningu Hrafnhildar í íslenska skálanum.
„Gríðarlega margt áhugavert hér“
Húsfyllir var við opnun íslenska skálans í Feneyjum, með verki
Hrafnhildar Arnardóttur Hljómsveitin HAM lék fyrir gesti
Vélmenni Umtalað verk hinna kínversku Sun Yuan and
Peng Yu, Can’t Help Myself, vélmenni sem sópar blóði.
Arsenale Í gamalli reipaverksmiðju er stór hluti aðalsýn-
ingar tvíæringsins, með fjölda forvitnilegra verka.