Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ Í TEL AVIV Jóhann Ólafsson blaðamaður Eggert Jóhannesson ljósmyndari Það væri ekki vitlaust fyrir Euro- vision-aðdáendur að bóka fljótlega gistingu í Rotterdam um miðjan maí á næsta ári. Einhvern veginn virðist eins og allir hafi ákveðið að Hollendingurinn Duncan Laurence skuli standa uppi sem sigurvegari í Eurovision hér í Tel Aviv. Ísland verður númer 17 í röðinni í flutningi kvöldsins, en 26 þjóðir eru í úrslitunum. Miðað við veð- banka er íslenska laginu spáð of- arlega í keppninni, voru Hatarar þannig í 8. sæti í gærkvöldi skv. vefsíðunni Eurovisionworld.com. Ég verð að viðurkenna, nú þegar úrslitin ráðast í kvöld, að ég skil ekki af hverju hollenska lagið er svona vinsælt. Erlendur blaðamað- ur sagði mér í gær að líklega væri lagið svona vinsælt vegna þess að Laurence er nakinn í tónlistar- myndbandinu. Ég læt ekki nekt hans gabba mig og vona innilega að eitthvert annað atriði vinni. Önnur lönd sem gætu unnið eru Svíþjóð, Ástralía, Rússland og mögulega Ítalía. Ástralska atriðið er ótrúlega flott og flytjandinn, Kate Miller-Heidke, er algjör töff- ari. Mögulega er ég litaður af því að hún ræddi við mig fyrir utan hótelið í vikunni og sagðist elska Hatara. Nei, það truflar ekkert og álit mitt á henni er vegna þess að atriðið minnir mig á Frozen í fæð- ingarorlofinu. Persónulega finnst mér hin lögin sem gætu unnið, Rússland, Svíþjóð og Ítalía, ekkert sérstök en ég er víst ekki sammála meirihlutanum. Fyrir utan okkar frábæra atriði ættu áhorfendur að fylgjast sér- staklega vel með lagi Svisslendinga og Norðmanna. Ef lag svissneska nafna míns nafna míns Luca Hänni, „She Got Me“, verður ekki sumar- smellur er ég illa svikinn. Hann getur sungið, dansað og virðist vera með öll hárin á hausnum. Það er ekki laust við smá öfund. Hvar endar Hatari? Norska atriðið er auðvitað stór- kostlega skemmtilegt og furðulegt. Ég hlæ alltaf smá þegar samíski rapparinn Fred Buljo „joikar“ og allir í blaðamannaaðstöðunni taka undir eins og þeir eigi lífið að leysa. Það getur verið heimskulegt að spá um úrslit en ég geri það samt. Því miður verður næsta keppni haldin í Hollandi. Ég sé því miður ekki alveg í kristalskúlunni minni hvar Hatari endar nákvæmlega en eitthvað segir mér að sjötta sætið verði niðurstaðan. Kannski við endum ofar ef Matthías og Klem- ens taka upp myndband naktir? Skilar nektin sigri í Eurovision?  Úrslitin í Eurovision fara fram í Tel Aviv í kvöld  Lag Hatara komið í 8. sæti hjá veðbönkum Morgunblaðið/Eggert Eurovision Liðsmenn Hatara tóku æfingu í Tel Aviv í gær, fyrir úrslitakvöldið. Æfingabúningar voru notaðir hjá þeim Klemens, Matthíasi og félögum. AFP Sigurvegarinn? Hollendingurinn Duncan Laurence er sagður líklegur til sigurs í Eurovision í kvöld. 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 sp ör eh f. Haust 5 Sérlega skemmtileg ferð um Spán og Frakkland sem einkennist af glæstum borgum, sjávarbæjum og dásamlegri náttúrufegurð. Við heimsækjum m.a. Burgos sem er sögufræg borg á hinum þekkta Jakobsvegi, förum í hið fræga Guggenheimsafn í Bilbao, siglum á Garonne ánni og skoðum fagrar hallir og hallargarða. 15. - 27. september Fararstjórn: Steingrímur Gunnarsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 324.600 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Bilbao & Bordeaux Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þessir strákar hafa alltaf verið mjög uppátækjasamir og hugmyndaríkir. Þeim hefur líka verið gefið að koma sínu vel á framfæri eins og þátttaka þeirra núna í Euro- vision sýnir best. Þeir eru með mikinn boðskap,“ segir Tryggvi Sigurbjarnarson. Þau Tryggvi og Siglinde Sig- urbjarnarson, sem er þýsk, eru afi og amma þeirra Klemens Nikulássonar Hannigan og Matthíasar Tryggva Haraldssonar sem eru tveir af þremur liðs- mönnum Hatara sem keppa fyrir Íslands hönd í Euro- vision í kvöld í Tel Aviv. Klemens er dóttursonur þeirra Tryggva og Siglinde og Matthías sonarsonur. Móðir þess fyrrnefnda er Rán sem er lögfræðingur rétt eins og Haraldur Flosi, faðir Matthíasar. „Frændurnir eru gjörólíkir,“ sagði Tryggvi þegar Morgunblaðið ræddi við þau Siglinde í gær á Hrafnistu í Reykjavík þar sem þau búa. „Klemens hefur alltaf verið mjög lagtækur og góður í handverki. Matthías Tryggvi er hins vegar mjög hógvær og hefur alltaf átt með sér drauma um að verða skáld. En þrátt fyrir að vera svona eins og hvor úr sinni áttinni hafa þessir strákar náð vel saman og í tímans rás hafa þeir alltaf verið talsvert hjá okkur ömmu sinni og afa.“ Siglinde segir að þau hjónin muni auðvitað fylgjast með Eurovision í kvöld og þessum afkomendum sínum. „Lögin eru kannski ekkert fyrir minn smekk en þetta er heilmikil sýning og dansatriðin sem fylgja laginu gera þetta líflegt,“ segir amman. Hugmyndaríkir strákar með mikinn boðskap  Amma og afi tveggja í Hatara horfa á Eurovision Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hrafnista Tryggvi Sigurbjarnarson og Siglinde Sigur- bjarnarson fylgjast af áhuga með strákunum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.