Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir sláttutraktorar S. 896 8767 www.egfasteignamiðlun.is 36,9 millj. sunnudag milli kl. 13 og 13:30. einar@egfasteignamidlun.is Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í þessu vinsæla fjölbýlishúsi fyrir 63 ára og eldri á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Húsið er sambyggt félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þangað er hægt að sækja félagsstarfsemi og afþreyingu af ýmsu tagi. HÆÐARGARÐUR 33 Sóltún 20 OPIÐ HÚS Traust og ábyrg fasteignamiðlun í 24 ár miðstöð slíkra dúfnakeppna í heim- inum. Og fæstar komu þær aftur Mary Grace San Jose, 38 ára dúfnaræktandi og fjármálakona frá Manila, segir að margar ástæður séu fyrir því að bréfdúfnakeppnir njóti mikilla vinsælda á Filipps- eyjum. Ein þeirra sé að allir geti tekið þátt í þeim. Manila. AFP. | Keppnin er 600 kíló- metra löng þrekraun og keppend- urnir þurfa að þola steikjandi hita og mikið mótviðri yfir opnu hafi, auk þess sem þeir standa frammi fyrir hættulegum afræningjum og mönnum sem eru staðráðnir í að stela þeim. Aðeins einn af hverjum tíu þeirra lifa keppnina af. Þetta er MacArthur-keppnin – lengsta kappflug bréfdúfna á Fil- ippseyjum. Hún er mikil eldraun fyrir keppnisfuglana og eigendur þeirra segjast vera „að deyja úr spenningi“ þegar dúfurnar þreyta langflugið. „Hér eru mjög margir ránfuglar og veiðimenn sem skjóta fuglana, miðað við Evrópu og Bandaríkin,“ sagði Jaime Lee, 68 ára viðskipta- jöfur og einn af þekktustu bréf- dúfnaræktendum Filippseyja. „Veiðinet eru sett upp í fjöllunum til að hremma fuglana. Það er mik- ið vandamál nú til dags.“ Lee segir að dæmi séu um að braskarar kaupi keppnisdúfu fyrir jafnvirði 2.000 króna og selji hana síðan á hundruð þúsunda eða millj- ónir króna. Keppnisdúfur hafi hækkað mjög í verði vegna mikilla vinsælda slíkra keppna á Filipps- eyjum. Í landinu eru að minnsta kosti 300 bréfdúfnafélög, með þús- undir félaga. Þetta áhugamál nýtur einnig vaxandi vinsælda í öðrum Asíulöndum, einkum Indlandi, Taívan og Kína. Borgaði 170 milljónir fyrir dúfuna Hæsta verð sem greitt hefur ver- ið fyrir keppnisdúfu er 1,4 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 170 milljóna króna. Kínverskur dúfnaáhugamaður greiddi það á uppboði í mars síðastliðnum þegar besta langflugsbréfdúfa allra tíma í Belgíu var boðin upp. Fyrsta lang- flugskeppni bréfdúfna fór fram í Belgíu árið 1818, að því að fram kemur í alfræðibókinni Encyclo- pedia Britannica. Margir dúfna- áhugamenn líta enn á landið sem Eddie Noble, starfsmaður félags bréfdúfnaræktenda í Manila, viður- kennir að vonin um skjótan gróða laði marga að þessu áhugamáli. „Það lítur ekki vel út en tækifærið sem gefst til veðmála er hluti af þessu,“ sagði hann. Hann bætti þó við að ein af helstu ástæðunum fyr- ir vinsældum keppnanna væri að margir dúfnaáhugamannanna væru heillaðir af ratvísi keppnisfuglanna. Nelson Chua, sem stjórnar Mac- Arthur-keppninni, segir að í mesta lagi 10% fuglanna, komist á leiðar- enda. Talið sé að 50-70% fuglanna séu veidd í net, skotin eða verði ránfuglum að bráð. Margir fuglanna drepist vegna örmögn- unar eða slæms veðurs – steikjandi hita eða jafnvel fárviðris á leið keppninnar sem tekur að minnsta kosti tíu klukkustundir. MacArthur LEYTE Erfiðasta kappflug bréfdúfna í landinu MacArthur-keppnin 600 km Kappflug bréfdúfna í heiminum 100 km MANILA Dúfnakynin, sem ræktuð eru til kapp- flugs, eru komin af bjargdúfum Hver dúfa keppir að meðaltali í þrjú til fjögur ár Dúfurnar fljúga í a.m.k. tíu klukkustundir í steikjandi hita Aðeins um 10% fuglanna komast á leiðarenda Helstu hindranir: Hæfustu fuglarnir fljúga rúmlega 1.000 km í langflugskeppnum Hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir keppnisdúfu: Jafnvirði 170 milljóna króna Meðalhraði keppnisfuglanna: 80-120 km/klst Talið er að rekja megi íþróttina til ársins 220 e. Kr. en hún varð vinsæl í Evrópu snemma á öldinni sem leið Kappflug bréfdúfna á Filippseyjum Heimildir: AFP/Oli SCarff/RPRA/pigeonracinguk.co.uk Kort: maps4news.com Net sem dúfnaþjófar setja upp A.m.k. 300 bréf- dúfnafélög eru í landinu, með þúsundir félaga Veiðimenn Ránfuglar Örmögnun Aðeins 10% lifa kappflugið af  Bréfdúfnakeppnir vinsælar í Asíu Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Marta Lovísa Noregsprinsessa hef- ur verið hvött til að afsala sér prins- essutitlinum vegna þess að hún hef- ur notað hann til að markaðssetja fyrirtæki sitt og auglýsa fyrirlestra sína með nýjum unnusta sínum, Du- rek Verrett, sem hefur lýst sér sem „seiðmanni“. Marta Lovísa er eldra barn Har- alds 5. konungs og Sonju drottn- ingar og fjórða í erfðaröð norsku krúnunnar, á eftir Hákoni bróður sínum og börnum hans. Hún giftist norska rithöfundinum Ari Behn ár- ið 2002 en þau fengu lögskilnað 2017. Hún kynnti nýja unnustann sinn á samfélagsmiðlum á sunnu- daginn var og seinna var greint frá því að þau hygðust fara saman í fyrirlestraferð undir yfirskriftinni „Prinsessan og seiðmaðurinn“. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í Kaupmannahöfn á morgun, sunnu- dag, að sögn fréttavefjar Aften- posten. Fyrirlestrarnir verða haldn- ir á vegum einkafyrirtækis prinsessunnar, Prinsesse Märtha Louise Kulturformidling. Dag- bladet hefur eftir framkvæmda- stjóra prinsessunnar að hún hyggist stofna nýtt hlutafélag innan skamms. Norska blaðið Fædrelandsvennen sagði í forystugrein í fyrradag að Marta Lovísa þyrfti að afsala sér prinsessutitlinum vegna þess að ekki væri við hæfi að hún notaði hann til að markaðssetja fyrirtæki sitt. Blaðið sagði að prinsessan gæti valið sér unnusta að vild og hefði skoðanafrelsi en hún og unnusti hennar gætu ekki notað titil hennar í viðskiptatilgangi. Umdeildur heilari Marta Lovísa sagði í sjónvarps- viðtali í fyrradag að hún hefði ekki íhugað að afsala sér titlinum. „Ég er í konungsfjölskyldunni og verð það áfram,“ sagði hún. Fjölmiðlafulltrúi konungsfjöl- skyldunnar sagði að hún fylgdist með umræðunni um málið og hygð- ist ræða við prinsessuna um mark- aðssetningu fyrirtækis hennar, að sögn Aftenposten. Unnustinn kallar sig Shaman Du- rek, eða Seiðmanninn Durek, og hann lýsir sér sem „andlegum leið- beinanda og hæfileikaríkum heilara“ á vefsíðu sinni. Hann kom hingað til lands árið 2015 til að halda námskeið og bjóða upp á einkatíma. Fram kom í Morgun- blaðinu á þeim tíma að hann liti á sig sem „miðlara milli efnisheims og andaheims“. Heilunarstarfsemi seiðmannsins hefur verið mjög umdeild. Formað- ur Hvítblæðisfélagsins í Noregi var- aði nýlega við „viðvaningslegum ummælum“ hans og skírskotaði einkum til staðhæfinga hans um að sjúkdómurinn stafaði af ójafnvægi í beinunum. Ennfremur hafa samtök norskra flogaveikissjúklinga varað þá við honum. Marta Lovísa afsalaði sér titlinum „konungleg hátign“ og lífeyri frá konungshöllinni árið 2002 og sagð- ist þá vilja frelsi til að sinna áhuga- málum sínum. Hún rak lengi engla- skóla ásamt samstarfskonu sinni, Elisabeth Nordeng, og þær skrifuðu tvær bækur til að hjálpa fólki að komast í samband við engla. Sam- starfi þeirra lauk í fyrrahaust. AFP Prinsessan og seiðmaðurinn Marta Lovísa Noregsprinsessa og nýr unn- usti hennar, bandaríski heilarinn Durek Verrett, í Ósló í fyrradag. Hvött til að afsala sér prinsessutitlinum  Marta Lovísa Noregsprinsessa notaði titilinn til að kynna fyrirtæki sitt og auglýsa fyrirlestra sína og unnusta síns, seiðmannsins Dureks  Unnustinn bauð upp á námskeið og einkatíma á Íslandi Viðræðum Ther- esu May, for- sætisráðherra Bretlands, og Jeremys Cor- byns, leiðtoga Verkamanna- flokksins, var slitið í gær án samkomulags um útgöngu landsins úr Evrópusambandinu. Corbyn sagði viðræðurnar hafa farið út um þúfur vegna „vaxandi veikleika og óstöðugleika stjórnarinnar“. May sagði ágreining innan Verka- mannaflokksins um hvort efna ætti til nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu um brexit hafa torveldað viðræð- urnar. May hefur lofað að láta af embættinu eftir atkvæðagreiðslu á þinginu um brexitsamninginn við ESB í vikunni sem hefst 3. júní. BRETLAND Viðræðum við Corbyn slitið Theresa May
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.