Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Þráinn Haraldsson, settur sóknarprestur, prédikar. Séra Jón Ragnarsson þjónar fyrir alt- ari. Kór Akraneskirkju syngur. Organisti og kór- stjóri: Sveinn Arnar Sæmundsson. Guðsþjón- ustunni verður útvarpað á RÚV, Rás 1. AKUREYRARKIRKJA | Laugardagur 18. maí. Fermingarmessa kl. 10.30. Prestar Svav- ar Alfreð Jónsson og Hildur Eir Bolladóttir. Klassíski kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti Eyþór Ingi Jónsson. Fermingarmessa kl. 13.30. Prestar Svavar Alfreð Jónsson og Hild- ur Eir Bolladóttir. Klassíski kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagur 19. maí. Helgistund í kapellu kl. 11. Prestur Svavar Alfreð Jónsson. Organisti Eyþór Ingi Jónsson. AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Lagt af stað frá Árbæj- arkirkju kl. 11 í vorferð safnaðarins í Sveita- garðinn, sem er 13 km frá Selfossi. Boðið upp á grillaðar pylsur og safa. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Félagar úr Karlakórnum Esju leiða sönginn. Aðalsafnaðarfundar Ássóknar 2019 verður haldinn strax að messu lokinni í Ási, safn- aðarheimili Áskirkju. Dagskrá: Venjuleg aðal- fundarstörf. Önnur mál. Kaffiveitingar. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er Arnór Bjarki Blomst- erberg. Hressing og samfélag á eftir. BORGARNESKIRKJA | Aðalsafnaðarfundur Borgarneskirkju verður haldinn í safn- aðarheimili kirkjunnar, Borgarbraut 4, miðviku- dag 22. maí kl. 20. Dagskrá fundarins: Al- menn aðalfundarstörf. Tillaga um sölu á safnaðarheimili kirkjunnar lögð fyrir aðalfund. Önnur mál. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, prédikar og þjónar fyrir altari. Örn Magnússon spilar á orgel og leiðir sálma. Kl. 14 verður messa á ensku hjá Alþjóðlega söfnuðinum í Breiðholtskirkju. Tos- hiki og Örn þjóna. BÚSTAÐAKIRKJA | Djáknaguðsþjónusta kl. 11. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni leiðir stund- ina og flytur hugleiðingu. Félagar úr Kór Bú- staðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris. Messuþjónar aðstoða. Heitt á könnunni eftir stundina. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig Sigríð- ur Einarsdóttir. Almennur söngur. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á spænsku og kl. 18 er vi- gilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prestur El- ínborg Sturludóttir, Dómkórinn og Kári Þormar dómorganisti. Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Díana Ósk Óskarsdóttir, sr. Fritz Már Berndsen og sr. Elínborg Sturludóttir þjóna. Kristján Hrannar Pálsson leikur á flygil. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Val- garðsdóttur organista. Kaffisopi eftir stund- ina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn- aðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tón- listina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. GRAFARVOGSKIRKJA | Vorhátíð sunnu- dagaskólans og barnastarfsins í Grafarvogs- kirkju kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta þar sem Barnakór Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Á eftir verður boðið upp á grillaðar pylsur, hoppukastala og Dr. Bæk kemur og fer yfir hjól og hjólreiða- hjálma. Einnig verður boðið upp á blessun reiðhjóla og reiðhjólafólks. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir, settur sóknarprestur, þjónar ásamt messuhópi. Organisti er Ásta Haralds- dóttir. Félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng. Heitt á könnunni fyrir og eftir messu. Sýrlenskur hádegisverður í safnaðarheimilinu kl. 12 laugardaginn 18. maí. Verð kr. 3.500. Kyrrðar- og fyrirbænastund á þriðjudag kl. 12. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í hátíðasal Grundar klukkan 14. Prestur er Auður Inga Einarsdóttir. Grundarkór- inn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org- anista. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Þórhildur Ólafs. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Forsöngvari Hugi Jónsson. Tón- leikar Barna- og unglingakórs Hafnarfjarðar- kirkju kl. 17. Stjórnandi Helga Loftsdóttir. Með- leikari Hilmar Örn Agnarsson. HALLGRÍMSKIRKJA | Vorhátíð í Hallgríms- kirkju hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson og Inga Harð- ardóttir leiða stundina. Helga Vilborg leikur undir með krílasálmahópnum. Karítas Krist- jánsdóttir leikur á fiðlu. Mótettukór Hallgríms- kirkju leiðir söng. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Messuþjónar, starfsfólk barna- starfsins, börn og unglingar úr starfi Hallgríms- kirkju aðstoða við hátíðina. Hoppkastali, and- litsmálning, grillaðar pylsur, ávextir og kandífloss. Hallgrímskirkja Saurbæ | Guðsþjónusta kl. 11 í umsjá séra Sigurðar Grétars Sigurðssonar og sóknarfólks frá Útskála- og Hvals- nessóknum. Heimafólki úr Hvalfjarðarsveit og öðrum kirkjugestum er boðið til pizzuveislu í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi eftir messu. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Organisti Guðný Ein- arsdóttir. Prestur Eiríkur Jóhannsson. Eftir messu verður kirkjuratleikur og boðið upp á grillaðar pylsur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma l. 11. Translation into English. Sam- koma á spænsku ll. 13. Reuniónes en esp- añol. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Lofgjörðarkvöld Fíló+ kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskylduhátíð kl. 11. Barnakór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Freydísar Kolbeinsdóttur við undirleik Arnórs Vilbergssonar organista. Jón Jónsson tónlistarmaður kemur fram með kórnum. Að lokinni stund kemur Blaðrarinn og skemmtir smáfólkinu í Kirkjulundi. Öllum er boðið upp á grillaðar pylsur. Sr. Fritz Már og sr. Erla leiða samveruna ásamt Systu og Helgu. KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Má- téová, kantors kirkjunnar. KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í Garða- kirkju á Álftanesi klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar og Aðalheiður Þor- steinsdóttir leikur á píanó og stjórnar söng. Á eftir verður messukaffi í Króki. LANGHOLTSKIRKJA | Söngfélagið Góðir Grannar syngur í messu kl. 11. Stjórnandi kórsins er Egill Gunnarsson. Guðbjörg Jóhann- esdóttir sóknarprestur þjónar og organisti er Magnús Ragnarsson. Léttur hádegisverður eft- ir messu í safnaðarheimilinu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey þjónar ásamt messuþjónum. Félagar í Lögreglukórnum leiða söng undir stjórn Matt- híasar Baldurssonar. Organisti: Arngerður María. Messukaffi í safnaðarheimilinu á eftir. 22. maí kl. 20. Vortónleikar kórs Laugarnes- kirkju undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur í Laugarneskirkju. Aðgangur ókeypis. 23. maí, opið hús eldri borgara kl. 12. Kyrrð- arstund, léttur hádegisverður. Sr. Sigurður segir frá Georgíuferð sinni. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kvennakórinn Impra syngur og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ásbjargar Jóns- dóttur, kórstjóra. Organisti Birgit Djupedal. Kirkjuvörður Lilja Þorsteinsdóttir. Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar 21. maí kl. 20 í safnaðarheimilinu Þverholti 3. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari. Kaffi og samfélag á eftir. NESKIRKJA | Vorhátíð Neskirkju hefst kl. 11 með fjölskylduguðsþjónustu. Barnakórar Nes- kirkju syngja. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlits- málning og pylsur verða grillaðar ofan í gesti, allt undir harmonikkuleik Ara. Umsjón starfs- fólk barnastarfs Neskirkju. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam- komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELFOSSKIRKJA | Krossamessa kl. 11. Þeir unglingar sem ljúka störfum hjá kórnum eru heiðraðir og fá afhent sérsmíðað hálsmen frá kirkjunni. Kirkjukórinn og Unglingakórinn syngja og verður kórsöngurinn í fyrirrúmi í at- höfninni. Stjórnandi Unglingakórsins er Eyrún Jónasdóttir og organisti er Ester Ólafsdóttir. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel, félagar úr Kór Selja- kirkju syngja, messukaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Kl. 9.30 leggur Alma D. Möller landlæknir blómsveig að minn- ismerki um Bjarna Pálsson landlækni við Nes- stofu í tilefni af 300 fæðingarafmælis hans. Fræðslumorgunn í Seltjarnarneskirkju kl. 10. Ágúst Einarsson, prófessor emeritus, flytur er- indið Brautryðjandinn Bjarni Pálsson, land- læknir. Guðsþjónusta kl. 11. Alma D. Möller landlæknir flytur ræðu. Sóknarprestur þjónar. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn- aðarheimilinu. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.40 á neðri hæð kirkjunnar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Skírnir Garðarsson annast prestsþjón- ustuna. Organisti er Jón Bjarnason. STRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Þrjú börn fermd. Kór Þorlákskirkju. Ester Ólafsdóttir. Prestar Baldur Kristjánsson og Guðmundur Brynjólfsson. ÚTSKÁLAKIRKJA | Kristniboðsmessa kl. 19. Ásta Bryndís Schram, kórfélagi og formaður Kristniboðssambandsins, flytur hugvekju og kynnir kristniboðsstarfið í máli og myndum. Kirkjukórinn syngur sálma undir stjórn Keith Reed. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar í kór Vídal- ínskirkju syngja og organisti er Jóhann Bald- vinsson. Kaffi og djús í safnaðarheimilinu að lokinni messu. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur þjónar. Hressing í safnaðarsal á eftir. Orð dagsins: Sending heilags anda. (Jóh. 16) Morgunblaðið/ Sigurður ÆgissonVíðimýrarkirkja í Skagafirði Nú má rifja upp þá daga 1936-1937 er Útgerðarfélagið Kveldúlfur hf. var miðpunktur íslenskra stjórnmála. Stærsta útgerðarfélag landsins, sem var að öllum líkindum um tíma stærsta fiskvinnslufyrirtæki í einka- eign í heiminum, rambaði á barmi gjaldþrots. Þá réru Thorsbræður líf- róður til að bjarga sínu mikla fyrir- tæki. Ólafur Thors flutti þá áhrifaríka ræðu, margir segja þá bestu sem hann flutti á ferli sínum, á Varðar- fundi fyrir sneisafullu Gamla bíói og gjallarhornum komið fyrir í Varðar- húsinu. Rakti opinskátt sögu Kveld- úlfs, fjármál hans og fjölskyldunnar. Dró ekkert undan. Veð fyrir öllum skuldum. Ólafur skýrði frá því að Kveldúlfur hf. hefði greitt frá upphafi milli 50 og 60 milljónir kr. í verkalaun. Stjarn- fræðileg upphæð á núvirði. Þá sagði hann að verkafólk félagsins hefði haft lengri og betur borgaða atvinnu en víðast annars staðar og alltaf fengið sitt fé viðstöðulaust með fullum skil- um. Hefði Kveldúlfur hf. oft tekið á sig án allra skuldbindinga útgjöld, er námu miklu fé, til að létta undir með ekkjum og munaðarleysingjum starfsmanna, er látist höfðu í þjón- ustu félagsins. Og á margan annan hátt reynt að greiða fyrir sínu fólki. Thorsararnir lifðu hátt á kostnað landsins, sagði Jónas Jónsson frá Hriflu. Ólafur hrakti það lið fyrir lið. Björgunaráætlun Jónasar og Ólafs Thors Jónas setti svo upp það fræga hægra bros, öllum að óvörum og allt féll í ljúfa löð milli manna sem lítt höfðu talast við lengi. Þeir Ólafur og Jónas sömdu frið og „björguðu“ Kveldúlfi hf. í Landsbankanum og reyndar Sambandinu um leið. Áætlun þeirra gekk upp eftir mikil átök. Heilmikið af vatni er til sjávar runnið síðan þessi saga gerðist. Landið, eins og Jónas frá Hriflu kall- aði það opinbera oft, hefur á ýmsum tímum orðið að hlaupa undir bagga og bjarga fyrirtækjum sem störfuðu undir hf.-nafninu. Kveldúlfur hf. mal- aði gull í þjóðarbúið í mörg ár eftir 1937. Þegar félagið hætti öllum rekstri, var það gert upp á eðlilegan hátt. Skilanefndarmaður Kveldúlfs, Guðlaugur Þorláksson, skrifar 30. okt. 1972 til Landsbankans, að félagið eigi 25 millj. kr. umfram eignir. Svip- að var með Sambandið þegar það var gert upp. (Sjá Matthías Johannessen: Ólafur Thors 1. og 2. og Guðjón Frið- riksson: Ljónið öskrar) Einar Guðfinnsson hf. í Bolungar- vík og Hafskip hf. voru sett í þrot. Hvorugt þeirra var í raun gjaldþrota. Til dæmis greiddust 50% af almenn- um kröfum hjá Hafskip eftir að veð- kröfur og forgangskröfur höfðu verið greiddar að fullu. Eimskip hafði þá löngu fengið skip félagsins og alla að- stöðu á silfurfati. Fall þessara stoð- fyrirtækja hafði gífurlega neikvæð áhrif. Þegar eingöngu er um að ræða hagsmuni eins eða fleiri eigenda í gjaldþrotum eru mál einfaldari. En þegar atvinna, heill og velfarnaður jafnvel þúsunda manna eru líka til staðar gerast málin flóknari. Gjaldþrot WOW air Og nú er það WOW-ævintýrið. Fé- lagið flutti þrjár og hálfa milljón far- þega á liðnu ári. Auðurinn í starfsfólki félagsins og vörumerki margra millj- arða virði. Öllu kastað fyrir borð á flugi. Nú má vera að þetta dæmi hafi verið vonlaust. Samt sem áður má spyrja hvort ekki hefði verið heppi- legra að sletta einhverjum millj- örðum tímanlega í WOW, handstýra nauðlendingunni og losna við eftir- leikinn í bili: Aldrei hafa jafn margir misst vinnuna í einu í Íslandssögunni. Ótrúlegar hliðarverkanir í þjóðfélag- inu ef fer sem horfir. Atvinnuleysis- tryggingasjóður = Einn maður 563 þúsund kr. á mánuði. Þúsund menn 563 milljónir pr. mánuð. Svo geta menn reiknað fram og aftur. „Maður verður klökkur og sorgmæddur“ seg- ir starfsfólk WOW. Sagan segir okkur blákalt að það verður stundum að handstýra í þessu bananalýðveldi okkar. Hvað ef stjórn- völd hefðu ekki sofið svefni hinna réttlátu fyrir hrun? Ríkisstjórnin alveg klár með neyðaráætlun Núverandi stjórnvöld hafa unnið sína vinnu vel. Höfum fylgst vel með öllu, segja ráðherrarnir. Nema hvað. Voru alveg klárir með neyðaráætlun. En raunhæfar aðgerðir? Nei, það mátti ekki. Þetta var nefnilega hluta- félag! Svo eigum við 30 milljarða handan við hornið ef illa fer, segja ráðamennirnir. Ríkisstjórn sem þekkti ekki sinn vitjunartíma. Ýmsir málsmetandi menn vöruðu að vísu við afskiptum. Og Alþingi úti að aka að vanda. Þetta WOW-mál snýst ekki bara um það hlutafélag. Ekki frekar en vandinn takmarkaðist við eigendur Kveldúlfs hf. á sínum tíma. Það er allt landið og miðin sem er undir að vissu leyti. Það er eins og menn átti sig ekki alltaf á því, að ábyrgð hluthafa tak- markast við framlagt hlutafé. Og er þá nákvæmlega sama hvort hluta- félag er í eigu ríkisins eða ein- staklinga. Skuldabréfaeigendur nefndu, að til að koma félaginu í rekstrarhæft form, þyrfti einhverja 5 milljarða eða jafnvel minna. Það hefði verið áhættan hjá ríkissjóði. Hvað neyðaráætlun ríkisstjórnarinnar get- ur kostað veit enginn á þessu stigi. Kannski 10-20 milljarða? Fyrir utan andlegar þrengingar þúsunda manna. Beinar og óbeinar tekjur rík- issjóðs af WOW hafa numið hundr- uðum milljarða, segir Mogensen. Minna mátti nú gagn gera. En þetta reddast allt eins og þar stendur! Málið snerist ekki síður um hagsmuni landsins en WOW air Eftir Hallgrím Sveinsson, Guðmund Ingvarsson og Bjarna G. Einarsson Hallgrímur Sveinsson » Spyrja má hvort ekki hefði verið heppilegra að sletta nokkrum millj- örðum í WOW, hand- stýra nauðlendingunni og stjórna eftirleiknum alla vega um stund. Hallgrímur er bókaútgefandi, Guðmundur fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni fyrrverandi útgerðarstjóri KD á Þingeyri. Bjarni G. EinarssonGuðmundur Ingvarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.