Morgunblaðið - 18.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
Siðapostularnir í sjóræn-ingjaflokknum eru almennt
fremstir meðal jafningja þegar kem-
ur að kröfum til annarra um að sæta
ábyrgð. Og krafan um afsögn er
jafnan stutt undan ef þeir telja að
einhverjum hafi orðið á, ekki síst ef
aðrir stjórnmálamenn hafa fengið á
sig einhvers konar áfellisdóma.
Og það þarf svo sem enga áfell-isdóma til, þeirra eigin ásak-
anir duga til að ráðast á fólk fyrir
meint brot og þá eru ekki endilega
spöruð stóru orðin.
En hvað geristþegar pírati
fær áfellisdóm?
Í gær fékkst svarvið þeirri spurn-
ingu. Pírataþing-
maðurinn Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir
hafði haft uppi ásak-
anir á hendur öðrum
þingmanni sem urðu
til þess að siðanefnd
Alþingis komst að
þeirri niðurstöðu að
hún hefði brotið
gegn siðareglum Alþingis.
Viðbrögð þingmannsins voru ekkiað biðjast afsökunar eða jafnvel
að ganga enn lengra, eins og píratar
hefðu sjálfsagt krafist af öðrum,
heldur að mótmæla niðurstöðunni
og ítreka ásakanir sínar.
Helgi Hrafn Gunnarsson pírata-þingmaður tók sömu afstöðu,
gaf lítið fyrir álit siðanefndarinnar.
Nú má vera að píratar telji aðaðrar reglur eigi að gilda um
þá en aðra og þá er það út af fyrir
sig sjónarmið. En þeir mættu að
ósekju draga af þessu ögn víðtækari
lærdóm.
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Reglur fyrir hina
STAKSTEINAR
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Algengt er að ferðamenn þurfi að
henda skyri og sardínum þegar kom-
ið er í öryggisleit, að sögn yfirmanna
öryggisleitar í Leifsstöð.
Matur er ekki bannaður þegar á
flugvöllinn er komið, nema hann falli
innan takmarkana varðandi vökva,
gel, smyrsl eða úðaefni. Allt sem
hægt er að smyrja, mauka og hella
er bannað, nema með takmörkunum,
en til eru dæmi um það að farþegar
hafi verið stöðvaðir í öryggisleit með
mysing í fórum sínum. Það er vegna
þess að mysingur er skilgreindur
sem maukkennt efni sem hægt er að
smyrja og þar af leiðandi fellur hann
undir takmarkanir um vökva.
Að sögn upplýsingafulltrúa Isavia,
Guðjóns Helgasonar, eru ekki til töl-
ur yfir það hve miklu magni matvæla
sé hent í Leifsstöð vegna þessara
takmarkana. Starfsmenn öryggis-
leitarinnar bjóði farþegum að henda
ílátunum sjálfir en mat hafi verið
hent í svipuðum mæli undanfarin ár.
Samkvæmt reglum um vökva í
handfarangri fyrir innritun í flug má
til að mynda ekki taka með matvörur
eins og skyr, mysing og sardínur.
Einnig flokkast nauðsynjavörur og
snyrtivörur eins og rakakrem, tann-
krem, varagloss, sápur og hárlakk
undir vökva sem er óleyfilegur í
flugi.
Sardínum og skyri gjarnan hent
Algengt er að ferðamenn þurfi að
henda sardínum og skyri fyrir brottför
Morgunblaðið/Júlíus
Sardínur Algengt er að ferðamenn
komi með sardínur á flugvöllinn.
Niðurstöður endurreiknings greiðslna ársins 2018 verða
birtar á Mínum síðum 22. maí.
Nánar á tr.is
Endurreikningur
greiðslna
ársins 2018
Tryggingastofnun
Hlíðasmára 11 | 201 Kópavogur
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.isPipa
r\TB
W
A
\
SÍA
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Björn Þ. Guðmunds-
son, fyrrverandi
lagaprófessor við Há-
skóla Íslands, lést 16.
maí sl., tæplega átt-
ræður að aldri.
Björn fæddist á
Akranesi 13. júlí 1939
og ólst þar upp. For-
eldrar hans voru Guð-
mundur Björnsson
kennari og Pálína Þor-
steinsdóttir húsfreyja.
Björn lauk stúdents-
prófi frá MA 1959 og
embættisprófi frá Há-
skóla Íslands 1965.
Hann stundaði fram-
haldsnám við Ludwig-Maximilians-
Universität í München 1965-66, var
við rannsóknir á sviði mannréttinda-
löggjafar í Bandaríkjunum 1971 og
við Universität zu Köln 1973. Rann-
sóknir í samanburðarlögfræði í
Bandaríkjunum 1980 og á sviði
stjórnsýsluréttar við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1982, Freie Universi-
tät í Berlín 1984, University of Cali-
fornia í Berkeley 1985, við Universi-
teit van Amsterdam 1988.
Björn var skipaður fulltrúi hjá
yfirborgardómaranum í Reykjavík
1966-1972 og borgardómari í
Reykjavík 1972-1979. Hann var sett-
ur prófessor í lögfræði
við lagadeild HÍ 1978
og skipaður prófessor
ári síðar. Hann lét af
störfum 2004. Björn
var varadómari í
Hæstarétti Íslands frá
1972 og settur hæsta-
réttardómari frá 15.
september til 30. nóv-
ember 1998.
Hann var m.a. for-
maður Dómarafélags
Reykjavíkur, kjörinn
endurskoðandi
Reykjavíkurborgar og
sat í mörgum opinber-
um nefndum. Þá var
Björn einn af stofnendum Íslands-
deildar Amnesty International og
frumkvöðull að stofnun Prófess-
orafélags HÍ.
Eftir Björn liggur fjöldi fræði-
greina á sviði lögfræði. Einnig skrif-
aði hann Formálabókina þína og
Lögbókina þína.
Eftirlifandi eiginkona er Þórunn
Bragadóttir, fyrrverandi deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu, f.
1940. Synir þeirra eru Guðmundur,
aðjúnkt við Háskóla Íslands, f. 1960,
og Bragi, lögmaður, f. 1968. Barna-
börnin eru fimm og barnabarna-
börnin þrjú.
Andlát
Björn Þ. Guðmundsson,
fyrrverandi lagaprófessor