Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
Við Atli Heimir
erum í flugvél Icelandair til
Amsterdam. Þetta er í ágúst 2002
og í annað sinn þetta sumar sem
við ferðumst saman til að fagna
tónverkum hans. Í júlí höfðum
við farið til Hofgeismar, rétt hjá
Kassel í Þýskalandi, ásamt sex
félögum úr Kammersveit
Reykjavíkur, þeim Sigurlaugu,
Þórunni Ósk, Sigurði Bjarka,
Hrafnkeli, Richard og Önnu Guð-
nýju. Þá flugum við til Frankfurt
og tókum lestina norður. Við
þekktum okkur ekki á þessum
stóra flugvelli en Atli var með allt
á hreinu, hann stýrði okkur í rétt-
ar áttir til að finna lestarstöðina
Atli Heimir
Sveinsson
✝ Atli HeimirSveinsson
fæddist í Reykjavík
21. september
1938. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Grund 20.
apríl 2019.
Útför hans fór
fram frá Hallgríms-
kirkju 6. maí 2019.
og við komumst á
leiðarenda með öll
hljóðfærin og annan
farangur. Við tóku
frábærir dagar þar
sem íslensk menning
var kynnt bæði í tali
og tónum. Þeir vin-
irnir Atli og Thor
Vilhjálmsson fóru á
kostum á málþing-
um og við spiluðum
af innlifun verk Atla
Heimis, Jóns Leifs, Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar og Hauks Tóm-
assonar í tveimur borgum.
Nú erum við Atli aftur saman í
flugferð og ferðinni heitið til
Osnabrück í Þýskalandi. Í
Amsterdam leigðum við bíl á
flugvellinum. Atli vildi að ég
keyrði, hann myndi segja mér til.
Við spjölluðum mikið og oft var
ekki alveg ljóst hvar ætti að taka
beygju. Í Osnabrück skyldi fagn-
að útgáfu geisladiska með stór-
virki Atla, Tímanum og vatninu,
hjá einu þekktasta útgáfufyrir-
tæki Evrópu, CPO. Þetta var stór
stund.
Tímann og vatnið samdi Atli
Heimir við samnefnt ljóð Steins
Steinars árin 1981-1983. Verkið
er samið fyrir 29 manna hljóm-
sveit með mjög óvanalegri hljóð-
færaskipan, 23 manna kammer-
kór og þrjá einsöngvara, þ. á m.
kontratenór. Verkið hafði ekki
verið frumflutt þegar vinirnir
Atli og Paul Zukofsky ásamt
Kammersveit Reykjavíkur und-
ir minni handleiðslu tóku þá
ákvörðun að láta til skarar
skríða.
Eitt mesta verk tónskáldsins
Atla Heimis var því frumflutt á
Listahátíð 1994. Dagana eftir
tónleikana var verkið tekið upp í
upptökustjórn Davids Zinmans
frá New York. Á mér hvíldi að
afla styrkja til að frumflytja
verkið og var góð samvinna við
Tónverkamiðstöðina og ýmsa
aðra. Við tóku mörg ár við söfn-
un meiri styrkja fyrir frágang
tónbanda, Atli Heimir tók það
að sér. Þá þurfti að finna alþjóð-
legan útgefanda sem tókst fyrir
tilstuðlan Zukofskys. Útgáfa
diskanna, átta árum eftir upp-
tökurnar og nítján árum eftir að
verkið var fullbúið, var því stór
stund fyrir okkur Atla Heimi og
ástæða til að fagna því.
Atli var kaþólskur og gat
fengið inni í Osnabrück á vegum
kaþólsku kirkjunnar. Húsnæðið
var einfalt og gott. Á skrifstofu
forstjóra CPO fengum við fyrstu
eintökin. Atli hélt síðan til Köln-
ar að hitta Sif og ég ók ein eftir
strandlengju Hollands og á
varnargörðunum áður en flugið
var tekið til baka.
Samvinna okkar Atla Heimis
varði allt frá árinu 1974 þegar
Kammersveit Reykjavíkur var
stofnuð. Starfsárið 1975-1976
var I call it eftir Atla Heimi á
vetrardagskrá Kammersveitar-
innar og í mars sama ár stóð til
að flytja verk eftir verðlauna-
hafa Norðurlandaráðs. Þetta ár
fékk Atli Heimir þau merku
verðlaun og því spiluðum við aft-
ur verk eftir hann á næstu tón-
leikum, verkið Gallery Súm.
Tónverk Atla Heimis voru oft á
dagskrá Kammersveitarinnar
innanlands og í ferðum erlendis
og hefur Kammersveitin auk
Tímans og vatnsins gefið út tvo
geisladiska með verkum hans, Á
gleðistundu 2001 og I call it
2016. Opnun Borgarleikhússins
með frumflutningi Á gleðistundu
leiddi síðar af sér frábært ein-
leiksverk fyrir fiðlu, Lag með
tilbrigðum, sem ég hef leikið
víða.
Ég kveð Atla Heimi með
miklu þakklæti fyrir vináttuna
og samstarfið góða alla tíð.
Rut Ingólfsdóttir.
Elsku vinur.
Ég kveð nú minn
allra besta og kær-
asta vin, eftir að
hafa haft þig mér við hlið und-
anfarin fjörutíu ár sem bekkjar-
félaga, liðsfélaga, vinnufélaga og
herbergisfélaga er söknuðurinn
bæði beittur og meiðandi. Upp-
eldislegar andstæður okkar í
æsku voru brjálæðislegar og það
markaði sýn mína á lífið að hafa
fengið tækifæri til að alast upp
með þér og um leið hjálpaði það
mér að virða lífsgæði mín og
tækifæri. Persónuleiki þinn var
alveg einstakur, einlægur, gjaf-
mildur, nægjusamur og þakklát-
ur, og þú varst ekki bara í miklu
uppáhaldi hjá mér heldur fjöl-
skyldu minni allri og þótti okkur
öllum svo notalegt að hafa þig á
heimilinu. Frá unga aldri hefur
þú oft haft vindinn í fangið og á
köflum hefur hann verið bæði
sterkur og nístandi en aldrei var
það þinn stíll að fara með stöðu
þína né líðan út á torg. Með ein-
dæma dugnaði og styrk til að
hunsa þær fjölmörgu freistingar
sem urðu á vegi þínum þá tókst
þér, elsku vinur, að komast á
þann stað sem þú alla tíð þráðir.
Rólegan stað þar sem kapphlaup-
ið um lífsgæðin var hóflegt, á stað
þar sem þú gast stundað tónlist-
ina í næði á milli þess sem þú
sóttir sjóinn á þínum eigin bát.
Og ekki skemmdi fyrir að þú
varst kominn með lífsförunaut
sem þú varst að tengja vel við. En
eins og oft áður þegar sjórinn
virtist vera orðinn lygn gripu ör-
lögin inn í og nú með meiri þunga
en nokkru sinni fyrr. Eftir
sveiflukenndan fyrri hálfleik var
það einlæg von mín að sá síðari
yrði betri og það leit svo sann-
arlega út fyrir það en svo fór
ekki. Óréttlæti heimsins virðast
stundum engin takmörk sett. Ég
hef alla tíð haft þörf fyrir að
styðja þig og veita þér tækifæri
til að upplifa og ég veit að þú ert
þakklátur fyrir allar okkar stund-
ir, þó svo að í gegnum árin hafi
Gísli Þór
Þórarinsson
✝ Gísli Þór Þór-arinsson fædd-
ist 1. september
1978. Hann lét lífið
27. apríl 2019.
Útför Gísla Þórs
fór fram 17. maí
2019.
ekki allar okkar til-
raunir til að samein-
ast og gleðjast geng-
ið upp eins og þú
veist. Hefði ég ein-
hverju ráðið þá hefði
ég kosið þig síðastan
frá mér, en það
kemur kannski ekk-
ert á óvart að þú
hafir verið kosinn
fyrstur því þannig
var það alltaf á
skólavellinum og dansgólfinu, þú
varst alltaf kosinn fyrstur. Um
leið og ég geri mér grein fyrir því
að ég hef misst það sem mér þótti
kærast og ekkert mun það bæta
þá er ég þakklátur fyrir hvað
samveran með þér gaf mér mikið.
Líkt og það markaði sýn mína á
lífið að alast upp með þér þá mun
það marka líf mitt enn frekar að
hafa misst þig frá mér. Ég kveð
nú einstakan dreng sem bjó yfir
lífshlaupi sem á sér vart hlið-
stæðu.
Guðni Erlendsson.
Þegar við fæðumst er okkur
úthlutað verkefnum. Sagt er að
við veljum okkur foreldra áður en
við fæðumst til þess að fá tæki-
færi til að ljúka ákveðnum verk-
efnum. Það er erfitt að hugsa til
þeirra einstaklinga sem hafa
fæðst í þennan heim og hafa feng-
ið eins krefjandi verkefni og þú,
elsku frændi.
Í dag vitum við að áföll í æsku
og á meðgöngu geta haft áhrif á
líf okkar, einnig að áföll forfeðra
okkar geta haft áhrif á okkar líf. Í
dag veit ég að öll þessi áföll hafa
haft áhrif á þitt líf, elsku frændi,
og mér finnst ótrúlegt að þú hafir
komist á þann stað sem þú varst
kominn á þegar stóra áfallið reið
yfir.
Tengsl okkar má rekja til feðra
okkar sem ólust upp í Aðalstræti
32 á Ísafirði. Pabbi, Siggi Boga,
var fæddur í janúar 1946 og pabbi
þinn, Þói Gísla, var fæddur í maí
1947, frændur, systrasynir og
bestu vinir. Frændurnir og vin-
irnir sem áttu ákveðnustu syst-
urnar, Sigrúnu, Höllu og Stebbu
og systurnar Ínu og Grétu. Fal-
legu frændurnir og vinirnir sem
voru svo líkir, með kolsvarta hár-
ið og bláu augun, eins og þú, elsku
frændi, blessuð sé minning ykkar
allra í dag.
Pabbar okkar, púkarnir á Ísó,
elskuðu tónlist mest af öllu, eins
og þú, elsku frændi, með gítarinn
þinn, pabbi með nikkuna og
munnhörpuna og pabbi þinn við
píanóið. En svo skildu leiðir.
Bakkus sveif oft yfir í Aðalstræti
32 en hafði mismikil áhrif á heim-
ilum systkinanna. Aðalstrætið
sem er þekkt fyrir að þar bjó
Óskar frændi, Skari sprútt, sem
bjargaði fólki með vín þegar á
þurfti að halda.
Ég er svo heppin að Bakkus
fékk ekki að ráða ríkjum á heimili
pabba, en Bakkus náði tökum á
pabba þínum, þessum yndislega
manni sem varð Bakkusi að bráð
og það litaði líf hans, samband
hans við konur og við börn hans.
Elsku fallegi frændi minn, með
fallega geislandi brosið og bláu
skínandi augun. Bara ef ég hefði
vitað í þá daga við hvað þú bjóst,
hefði ég viljað gera svo margt, ég
get bara ekki spólað til baka í líf-
inu.
Við bjuggum fyrir vestan og
þú fyrir sunnan hjá mömmu
þinni. Þú áttir þína sögu sem við
krakkarnir fyrir vestan fengum
ekki að vita af þrátt fyrir að þú
hafir svo oft komið til okkar þar,
því börn reyna alltaf að fela til
þess að aðrir fatti ekki við hvaða
aðstæður þau búa.
Það er ekki aðeins blóð feðra
okkar sem tengir okkur, það er
Einn blár strengur. Blái
strengurinn sem þú tengdir svo
sterkt við og baðst mig að senda
þér. Ég hefði svo viljað sjá þig
spila á gítarinn þinn með einn
bláan streng, sem er svo tákn-
rænn fyrir þig og þína reynslu og
mig og mínar rannsóknir. Það
eru sterk tengsl rannsakandans
og reynslumannsins.
Elsku Gísli minn, ég er svo
þakklát fyrir knúsið þitt og
spjallið fyrir ári síðan í jarðarför
Ínu frænku, sem þú áttir alltaf
skjól hjá þegar lífið lék þig sem
verst. Þegar ég hugsa til baka til
áranna sem þú fékkst að dvelja
hjá Ínu og Úlfari og strákunum á
Ísó, sé ég það fyrir mér sem þitt
hreiður sem þú gast alltaf leitað
til í lífsins ólgusjó. Þar var þitt
skjól sem allir þurfa og fæst seint
þakkað.
Elsku frændi, takk fyrir allt
sem þú hefur kennt mér.
Sigrún Sigurðardóttir.
Kæri vinur Gísli Þór.
Nú þegar þinn hinsti dagur er
liðinn rifjast upp ótal góðar minn-
ingar frá árunum þegar við eydd-
um mörgum stundum saman.
Ungur að árum fékk ég fyrst að
kynnast þér í gegnum Guðna
bróður minn sem þrábeðinn lét
oft undan og leyfði mér að hanga
með sér og vinum sínum. Á ung-
lingsárunum varst þú aufúsu-
gestur á heimili okkar að Holts-
götu 10, eða Tíunni eins og sumir
kölluðu það. Þú hafðir sterkar
skoðanir á flestu í umhverfi þínu,
bjóst yfir einstakri frásagnar-
tækni og áttir auðvelt með að láta
öllum í kringum þig líka vel við
þig. Ófá voru skiptin þegar þú
komst til okkar að spila Champ-
ionship Manager á tölvuna sem
ég hafði keypt fyrir fermingar-
peningana mína og spiluðum við
oft langt fram á nætur. Vinabönd
okkar styrktust hratt á þessum
árum þegar sameiginleg áhuga-
mál drifu okkur áfram í verkefni
af ýmsu tagi. Við vorum báðir
byrjaði að pikka upp lög á gítar á
þessum tíma og fórum fljótlega
eftir það að spila saman, ýmist
tveir saman eða í hljómsveit sem
gekk undir vinnuheitinu „Geisl-
ar“. Upp úr sameiginlegum
áhuga okkar á tónlist og gítarleik
stofnuðum við vefsíðuna „Gítar-
bríkin“, þar sem þú hafðir frum-
kvæðið að því að safna saman
gripum og textum á meðan ég sat
við tölvuna og setti saman vefinn.
Vefurinn náði töluverðum vin-
sældum á þeim tíma enda var
mikill metnaður lagður í verkefn-
ið. Eftir það þróaðist samstarf
okkar á ýmsum sviðum sem með-
al annars gaf af sér leikjaskrá
knattspyrnudeildar UMFN
(„Boltabríkin“) og vefsíðu knatt-
spyrnudeildar UMFN, sem var
fyrsti vefur knattspyrnufélags á
Íslandi, að ógleymdum útvarps-
þættinum „Útvarp Njarðvíkur“
sem hljóðritaður var í félagsmið-
stöðinni Fjörheimum. Toppurinn
á samstarfi okkar var svo fram-
leiðsla stórmyndarinnar „Auga
dýrsins“. Eftir sem áður varst þú
hugmyndasmiðurinn að baki
verkefninu og aðaldriffjöðrin
með mig í tæknimálunum þar
sem ég sat með þér við klippi-
græjurnar og aðstoðaði þig við að
láta myndina þína verða að veru-
leika.
Á fullorðinsárunum lágu leiðir
okkar sín í hvora áttina, en alltaf
fékk ég af þér fréttir í gegnum
Guðna.
Það voru mér mikil forréttindi
að fá að kynnast þér og hafa
starfað með þér þegar við vorum
að alast upp í Njarðvík. Sama má
segja um alla þá sem á eftir mér
komu og fengu að kynnast þér og
njóta nærveru þinnar á einn eða
annan hátt.
Minning þín lifir.
Borgar Erlendsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést 12. apríl.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Guðjón H. Bernharðsson Helga Jónsdóttir
Guðmundur Bernharðsson
Þórunn Jarla Valdimarsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN Þ. GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi lagaprófessor,
Bakkavör 42, Seltjarnarnesi,
lést á Landkoti fimmtudaginn 16. maí.
Þórunn Bragadóttir
Guðmundur Björnsson Hekla Valsdóttir
Bragi Björnsson Ragna Björk Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar elskulega systir, mágkona og
frænka,
INGIBJÖRG ÞORBERGS
tónskáld,
Vatnsnesvegi 29, Keflavík,
lést á Hrafnistu mánudaginn 6. maí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
21. maí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Skúli Ólafur Þorbergsson
og aðrir aðstandendur
Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN EINARSSON,
Öldutúni 18,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum laugardaginn
10. maí. Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 22. maí
klukkan 13.
Íris Jónsdóttir Haraldur Örn Sturluson
Einar Jónsson
Alma Jónsdóttir Matthías Árni Ingimarsson
og barnabörn
Elsku mamma, tengdamamma og amma,
SOFFÍA ÓLAFSDÓTTIR
frá Syðra-Velli, Gaulverjabæjarhreppi,
áður til heimilis, Engjavegi 12,
Selfossi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Fossheimum, Selfossi, þriðjudaginn 14. maí.
Útförin fer fram í Selfosskirkju þriðjudaginn 21. maí klukkan 14.
Elínborg Jónsdóttir
Rannveig Jónsdóttir Bjarni Guðmundsson
Kjartan Jónsson Hieke Bakker
Jarþrúður Jónsdóttir Guðmundur Gils Einarsson
Margrét Jónsdóttir Jón Ágúst Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
BJÖRGVIN SIGURBJÖRNSSON
Miðtúni 12, Tálknafirði,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Barmahlíð, Reykhólum, fimmtudaginn
16. maí. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
21. maí klukkan 13.
Sigurbjörn Björgvinsson Joan Charlton
Halldór Magnússon
Örn Sn. Sveinsson
Ásthildur Theodórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn