Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Sýningin Vor verður opnuð í Lista- safninu á Akureyri í dag kl. 15. Á henni sýna 30 norðlenskir myndlist- armenn verk sín sem er ætlað að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi, eins og segir í tilkynningu og er sýningin tvíæringur og mjög fjölbreytt hvað aðferðir varðar og miðla. Verða til dæmis til sýnis málverk, videóverk, skúlptúrar, ljósmyndir og teikn- ingar en sambærileg sýningin var haldin í Listasafninu fyrir tveimur árum. Safnið auglýsti eftir umsókn- um um þátttöku í sýningunni sem opnuð verður í dag og forsenda um- sóknar að myndlistarmenn búi eða starfi á Norðurlandi eða hafi teng- ingu við svæðið. Alls bárust yfir 100 verk og dóm- nefnd valdi verk eftir 30 listamenn en dómnefndina skipuðu Almar Al- freðsson vöruhönnuður, Haraldur Ingi Haraldsson myndlistarmaður, Hlynur Hallsson, safnstjóri Lista- safnsins á Akureyri, Rósa Kristín Júlíusdóttir, kennari og myndlist- armaður og Vigdís Rún Jónsdóttir listfræðingur. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Listamennirnir 30 eru Arna Vals- dóttir, Árni Jónsson, Baldvin Ring- sted, Bergþór Morthens, Brynhildur Kristinsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Fríða Karlsdóttir, Habby Osk, Heiðdís Halla Bjarnadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfs- dóttir, Helga Sigríður Valdimars- dóttir, Hólmfríður Vídalín Arn- grímsdóttir, Jonna – Jónborg Sigurðardóttir, Joris Rademaker, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Lilý Erla Adamsdóttir, Mari Mathl- in, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Re- bekka Kühnis, Rósa Njálsdóttir, Samúel Jóhannsson, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingv- arsdóttir, Sigurður Mar Halldórs- son, Snorri Ásmundsson, Stefán Bo- ulter, Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson og Þórdís Alda Sigurð- ardóttir. Sýningunni lýkur 29. sept- ember og verður hún opin alla daga kl. 10-17. Leiðsagnir um sýninguna verða haldnar alla fimmtudaga, meðan á henni stendur, á íslensku kl. 16 og á ensku kl. 15.30. Þeir sem sóttu ekki um Tveimur klukkustundum fyrir opnun í safninu, kl. 14, verður opnuð sýning í Deiglunni hinum megin við götuna og nefnist hún Salon des Tugir listamanna á tveimur sýningum  Vor og Salon des Refusés á Akureyri DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ljósmyndasýningin Íslensk kjöt- súpa verður opnuð í dag kl. 15 í Ljós- myndasafni Reykjavíkur og dregur hún nafn sitt af samnefndri hljóm- sveit sem gaf aðeins út eina plötu, Kysstu mig árið 1979. Á sýningunni má sjá ljósmyndir eftir Kristjón Haraldsson frá ákveðnu tímabili í lífi hans og ferli, áttunda og níunda ára- tugnum en Kristjón lést árið 2011. En hvernig tengist Kristjón fyrr- nefndri hljómsveit og plötu? Jú, hann tók ljósmyndirnar sem prýða hana en framan á umslaginu má sjá dýr- indis kjötsúpu og á bakhliðinni karl að slafra hana í sig. Maðurinn og ljósmyndarinn Á sýningunni er sjónum beint að ljósmyndaranum, verklagi hans, úr- vinnslu og stíl en einnig er dregin upp persónuleg mynd af Kristjóni, fjölskyldu hans og íslensku þjóðinni á áttunda og níunda áratugnum, eins og segir í texta sýningarstjórans, Dariu Sólar Andrews. Má til dæmis sjá litríkar og líflegar myndir sem Kristjón tók af ættingjum sínum í fermingarveislu og við önnur tæki- færi, myndir af móður hans, eigin- konu og barni og honum sjálfum. Ef maður vissi ekki betur mætti halda að sumar myndanna væru sviðsettar þar sem þær minna um margt á verk myndlistarmanna sem tekið hafa sviðsettar ljósmyndir sem dansa á mörkum raunveruleika og skáld- skapar. Svo er þó ekki og myndirnar þvert á móti mjög persónulegar. Auglýsingamyndirnar sem Kristjón tók (nokkrar þeirra má sjá á sýning- unni) eru hins vegar sviðsettar, nema hvað, en Daria segist hafa viljað leika sér að þessum mörkum hins svið- setta og persónulega sem geta vissu- lega verið óljós þegar kemur að ljós- myndun. Kristjón vann aðallega við auglýs- ingaljósmyndun á áttunda og níunda áratugnum og má sjá margar slíkar myndir á sýningunni og einnig ljós- myndir sem hann tók fyrir plötu- umslög, m.a. af Bjartmari Guðlaugs- syni fyrir plötuna Í fylgd með full- orðnum. Fleiri eru kunnuglegar, t.d. kostuleg mynd af söngkonunni Leoncie og heljarmenninu Jóni Páli Sigmarssyni sem tekin var fyrir um- slag plötu Leoncie, My Icelandic Man. Skemmtilegt verkefni Daria þekkti ekki til Kristjóns og verka hans þegar hún var beðin um að stýra sýningunni en hún rekur Studio Sol, sýningarrými og tilraunastúdíó að Vagnhöfða 19, og er auk þess að ljúka meistaranámi í sýningarstjórnun við Háskólann í Stokkhólmi. „Þetta var mjög skemmtilegt fyrir mig og þá m.a. vegna þess hvernig list ég vinn með, sýningarnar sem ég vinn með eru ekki með verkum auglýsinga- ljósmyndara en með því að fara í gegnum safneignina birtust allar þessar persónulegri myndir sem Kristjón fékk ekki borgað fyrir að taka og sýna hans listræna auga,“ segir Daria. Vinalegur og prívat En hver var Kristjón Haraldsson? „Hann var mjög flókinn maður, held ég, komplex karakter. Ég hef talað við dætur hans og fólk sem var að vinna með honum í stúdíóinu hans, Stúdíó 28, og þau segja að hann hafi verið skemmtilegur og vinalegur en þó svolítið flókinn og prívat og oft þunglyndur,“ svarar Daria og bendir á ljósmyndir úr hversdagslífinu sem hanga á litríkum veggjum safnsins og sýna m.a. fjölskyldu Kristjóns. Hún segir Kristjón engum hafa sýnt þessar myndir og að fjölskylda hans hafi fyrst séð þær eftir að hann dó. Daria segir að upphaflega hug- myndin hjá sér hafi verið að sýna portrett af manninum, Kristjóni. Fólk tengi nafnið fyrst og fremst við ljósmyndir teknar í atvinnuskyni en hún hafi einnig viljað sýna persónu- legri hlið á listamanninum. Verk hans sýni sannar, mannlegar tilfinn- ingar og þá líka í samhengi við ákveðna útópíu og eftirsóknarverðan lífsstíl. Daria líkir þessu við leikrit og segist í hversdagslegu myndunum hafa fundið skemmtilegt mótvægi við útópíu auglýsingamyndanna. Sýningin stendur til 8. september. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á sýningu Daria við sýningarkassa með einu og öðru tengdu starfi Kristjóns á sýningunni í ljósmyndasafninu. Hversdagsleiki og útópía  Sýning á ljósmyndum Kristjóns Haraldssonar opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur  Persónu- legar ljósmyndir í bland við myndir teknar í atvinnuskyni  „Flókinn maður“ segir sýningarstjóri Ljósmynd/Kristjón Haraldsson Veislugestir Lífleg og litrík ljósmynd tekin í fermingarveislu. Ljósmyndari Kristjón Haraldsson fæddist árið 1945 og lést 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.