Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Formaður bæjarráðs Seltjarn-arnesbæjar, Magnús Örn Guð-
mundsson, bókaði á fundi ráðsins í
vikunni and-
stöðu við þátt-
töku bæjarins í
svokallaðri
Borgarlínu.
Benti Magnús á
að hugmynd-
irnar væru
óraunhæfar,
„ekki síst for-
sendur um
heildarkostnað við verkefnið, áætl-
aða nýtingu og rekstrarkostnað“.
Þá benti hann á að bókunin væri ísamræmi við bókun sjálfstæð-
ismanna á Seltjarnarnesi á bæj-
arstjórnarfundi í mars í fyrra og
stefnuskrá flokksins fyrir sveit-
arstjórnarkosningar í fyrra.
Nauðsynlegt er fyrir Sjálfstæð-isflokkinn að kjörnir fulltrúar
hans fylgi stefnu hans fast eftir og
láti ekki aðra flokka ráða för. Þetta
er ekki síst mikilvægt að hafa í
huga í dag þegar flokkurinn heldur
upp á 90 ára afmæli sitt.
Það þarf ekki að koma á óvart aðfulltrúi Samfylkingarinnar í
bæjarráði Seltjarnarness skuli hafa
bókað í gagnstæða átt og vilji fylgja
Degi og félögumun í meirihlut-
anum í Reykjavík eftir út í Borgar-
línufenið.
Verði farið í þann leiðangurmunu milljarðatugir sökkva í
framkvæmdir sem verða ekki að
nokkru gagni en munu tefja bíla-
umferð og þar með allan þorra
almennings.
Borgarlínan er dæmi um málsem hefur fengið að ganga allt
of langt og brýnt er að stöðva hið
fyrsta til að afstýra slysi.
Magnús Örn
Guðmundsson
Í samræmi
við stefnuskrána
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Íslandsmótið í skák, Skákþing Ís-
lands, hefst í Hofi á Akureyri í dag,
laugardag. Bæjarstjórinn á Akur-
eyri, Ásthildur Sturludóttir, mun
setja mótið klukkan 15. Það stendur
yfir í eina viku og verður loka-
umferðin tefld 1. júní.
Mótið er jafnframt opið og kallast
því Icelandic Open. Það er liður í af-
mælisdagskrá Skákfélags Akureyr-
ar, sem stofnað var fyrir 100 árum
og er hápunkturinn á þeirri dagskrá.
Teflt er til minningar um Guðmund
Arason, fyrrverandi forseta SÍ, en í
ár eru 100 ár síðan hann fæddist.
Fyrirtækið sem hann stofnaði, Guð-
mundur Arason hf. (GA Smíðajárn),
styður myndarlega við mótið. Þetta
er í þriðja skipti sem Skáksamband
Íslands er með opið mót í tengslum
við Skákþingið.
Þátttaka í mótinu er góð. Alls eru
skráðir 64 keppendur, 15 erlendir og
49 Íslendingar. Tveir stigahæstu
keppendur mótsins eru Ivan Soko-
lov og Tiger Hillarp-Persson. Þeir
geta eðli málsins
samkvæmt ekki
orðið Íslands-
meistarar.
Fimm íslenskir
stórmeistarar
taka þátt og má
reikna með að
baráttan um tit-
ilinn standi á milli
þeirra. Það eru:
Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn
Steingrímsson. Bragi Þorfinnsson,
Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss
Grétarsson, en sá síðastnefndi hefur
Íslandsmeistaratitil að verja frá í
fyrra. Mótið er jafnframt Íslands-
mót kvenna og unglingameistaramót
Íslands. Lenka Ptácníková tekur
þátt. Eini atvinnustórmeistarinn
sem ekki teflir er Hjörvar Steinn
Grétarsson.
Yngsti keppandinn er 10 ára og sá
elsti 85 ára. Sá heitir Viktors Pupols
og kemur frá Bandaríkjunum til að
tefla. sisi@mbl.is »28
Skákþing Íslands hefst í dag
Helgi Áss
Grétarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Gunnlaugur Snær Ólafsson
„Þetta hefur náttúrlega þau áhrif að
tekjublaðið kemur ekki út um
helgina eins og til stóð,“ segir Karl
Garðarsson, framkvæmdastjóri DV,
spurður hvaða afleiðingar ákvörðun
ríkisskattstjóra um að birta ekki
álagningarskrá í maí hefur fyrir
DV, en fjölmiðillinn hefur árlega
gefið út tekjublað á grundvelli upp-
lýsinga úr skránni. Hann segir
þetta hafa lítil áhrif á tekjur blaðs-
ins. „Við vissum að skatturinn væri
að skoða þessi mál og vorum búin að
setja upp plan B varðandi þau mál.“
Hann segir ekki liggja fyrir hvaða
ákvörðun verður tekin í framhald-
inu hjá Ríkisskattstjóra, en bundn-
ar séu vonir við að hægt verði að
gefa út tekjublað þegar álagning-
arskrá verður birt. „Kannski kemur
þetta út í ágúst ef leyft verður að
birta þessar upplýsingar þá.“
Trausti Hafliðason, ritstjóri Við-
skiptablaðsins og Frjálsrar versl-
unar, sagði í samtali við mbl.is í gær
að enn ætti eftir að koma í ljós hvort
tekjublað Frjálsrar verslunar yrði
gefið út og að ótímabært væri að
segja til um það á meðan ríkisskatt-
stjóri væri enn með málið til skoð-
unar.
Vita ekki hvað má birta
Ekki er vitað hvaða upplýsingar
er heimilt að birta í álagningarskrá,
en lög kveða á um að skráin skuli
vera aðgengileg almenningi. „Þegar
við rýndum í úrskurð stjórnar Per-
sónuverndar, skoðuðum lagaheim-
ildir okkar og framkvæmdina sáum
við að við þyrftum að eyða ákveðinni
óvissu svo við getum endanlega
ákveðið hvaða upplýsingar verða í
álagningarskránni. Hvað við meg-
um setja í hana,“ segir Snorri Olsen
ríkisskattstjóri. Þá er unnið út frá
því að álagningarskrá verði birt í
ágúst.
„Listinn mun ekki birtast. Það er
ekki hlutverk ríkisskattstjóra að
birta slíkar upplýsingar,“ var haft
eftir Snorra á mbl.is í gær, en stofn-
unin telur að sú hefð að senda fjöl-
miðlum lista með upplýsingar um þá
sem greiða mest í skatt samkvæmt
álagningarskrá samræmist ekki
ákvæðum um persónuvernd og frið-
helgi einkalífs. Var ákvörðunin tek-
in í kjölfar þess að Persónuvernd
gaf út álit um vefinn Tekjur.is á síð-
asta ári.
Birta ekki hverjir
greiða mestan skatt
RSK setur álagningarskrá á bið
Flott og vönduð ferðataska frá
Herschel . Taskan er einstaklega
létt og er búin 4 tvöföldum hjólum
sem snúast í 360 gráður, TSA lási og
skilrúmi.
Verð frá 26.995
4 stærðir
5 litir
ERTU AÐ FARA Í FERÐALAG?
Erummeð frábær tilboð,
20% afsláttur af öllum ferðatöskum
og bakpokum frá Herschel Supply Co.
Tilvalin
útskriftargjöf