Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
60 ára Matthías er
Reykvíkingur, húsa-
smíðameistari og rekur
eigið fyrirtæki.
Maki: Guðríður Lofts-
dóttir, f. 1959, heima-
vinnandi.
Börn: Loftur Guðni, f.
1980, Margrét, f. 1984, og Rannveig Sól,
f. 1997.
Barnabörn: Matthías Bogi og Þorgeir
Goði Loftssynir, og Júlía Róbertsdóttir.
Foreldrar: Hjálmtýr Hjálmtýsson, f.
1933, d. 2002, bankastarfsmaður og
söngvari, og Margrét Matthíasdóttir, f.
1936, d. 1995, læknaritari og söngkona.
Matthías Bogi
Hjálmtýsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sígandi lukka er best. Haltu í
gleðina því hún auðveldar lífið til muna.
Vinir þínir koma þér á óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þér leiðist lognið til lengdar
skaltu ekki grípa til neinna örþrifaráða.
Þér finnst best að vinna ein/n en ættir að
prófa að vinna með öðrum líka.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert kraftmikil/l þessa dagana
og kemur miklu í verk. Vertu vandlát/ur á
þá sem þú eyðir tíma þínum með. Maki
þinn kemur þér rækilega á óvart.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur tekið á að þurfa stöðugt
að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Láttu
ekki sérvisku þína koma í veg fyrir sam-
vinnu við aðra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú skiptir það sköpum að fara gæti-
lega í fjármálunum og velta hverri krónu.
Leyfðu huga þínum að reika og reyndu að
slaka betur á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hafðu þá mikilvægu staðreynd í
huga að það er erfiðara að taka við gagn-
rýni en að gagnrýna. Þú hefur fundið leið
til þess að skera þig úr fjöldanum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hvort sem þú trúir því eður ei þá er
þetta rétti tíminn til að halda út á nýjar
brautir. Farðu samt rólega í hlutina, góðir
hlutir gerast hægt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að fá útrás fyrir
sköpunarhæfileika þína. Vel unnið verk tal-
ar sínu máli og þú munt uppskera laun
erfiðis þíns.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er sóst eftir vináttu þinni
og það svo að þú átt fullt í fangi með að
stjórna aðsókninni. Leggðu þig fram við að
sýna fólki skilning.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að sýna öðrum þol-
inmæði, þú átt auðvelt með að missa
stjórn á skapi þínu. Gömul vandamál leys-
ast af sjálfu sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú skalt fara eftir ráðum góðs
vinar í samskiptum við ættingja þinn í dag.
Mundu að þú ert nógu góð/ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er stutt í einhvern stóratburð
sem þú þarft að vera reiðubúin/n fyrir
hvað sem það kostar. Þú færð góðar frétt-
ir fljótlega.
kvennafræðum (seinna RIKK), og
stofnandi RannKyn rannsóknarstofu
um jafnrétti, kyngervi og menntun á
Menntavísindasviði HÍ árið 2010.
Rannsóknir Guðnýjar voru framan
af á sviði vitræns þroska barna og
ungs fólks, samanber meistara-
mörg mál, m.a. fæðingarorlof og um-
hverfismál.“
Guðný hefur setið í fjölmörgum
nefndum og ráðum á vegum Háskóla
Íslands og á vettvangi stjórnmála.
Hún var ein af stofnendum og fyrsti
stjórnarformaður Rannsóknastofu í
G
uðný Sigurbjörg Guð-
björnsdóttir fæddist 25.
maí 1949 í Reykjavík, en
ólst upp í Keflavík frá
unga aldri. Guðný gekk
í Myllubakkaskóla og Gagnfræða-
skóla Keflavíkur. Hún var virk í
íþróttum, í sundi og handbolta og í
skátastarfi. Síðan lá leiðin í Mennta-
skólann að Laugarvatni, en þaðan
varð Guðný stúdent frá stærð-
fræðideild 1969. Háskólanám stund-
aði Guðný í Bandaríkjunum og í Eng-
landi. Hún lauk BA-prófi í sálarfræði
frá Vassar College í New York, M.Sc.
í sálarfræði frá Manchester Univers-
ity, 1974, og doktorsprófi (Ph.D) í
uppeldis- og menntunarfræði 1987
frá The University of Leeds.
Guðný stundaði ýmis sumarstörf
með námi 1965-1974, m.a. við almenn
störf og launaútreikninga í frystihúsi
og við afgreiðslustörf á Keflavíkur-
flugvelli. Þá starfaði hún hjá
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, sál-
fræðideild skóla og var stundakenn-
ari við Kennaraháskóla Íslands og
Fósturskóla Íslands 1974-1975.
Guðný var skipuð lektor í uppeldis-
og menntunarfræði við Háskóla Ís-
lands árið 1975, dósent að loknu dokt-
orsprófi 1987 en það stundaði hún
með lektorsstarfinu 1979-1986.
Guðný fékk framgang í starf prófess-
ors árið 2000 og hefur gegnt því til
þessa dags, fyrst á Félagsvísindasviði
en frá 2009 á Menntavísindasviði HÍ,
vegna skipulagsbreytinga innan há-
skólans.
Guðný var einn af stofnendum
Kvennalistans og Kvennaframboðs-
ins í Reykjavík og virk í starfinu
1982-1999. Hún var varaþingmaður
1991-1995 og kjörin alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Samtök um
Kvennalista árin 1995-1999. Hún var
einn af stofnendum Samfylkingar-
innar og starfaði með þingflokki
hennar vorið 1999.
„Ég er mjög stolt af starfi mínu og
þingmálum Kvennalistans. Sér-
staklega má nefna í ljósi #Metoo að
ég flutti þingsályktunartillögu og
frumvarp um bann við kynferðislegri
áreitni árið 1996-1997. Það að rödd
Kvennalistans komst í hátalara
Alþingis hafði mjög mikil áhrif á
prófsritgerð frá 1974: „Divergent and
Operational Thinking: Their promo-
tion and relevance for educational
selection in two cultures“, og dokt-
orsritgerð frá 1987: „Cognitive Deve-
lopment, Gender, Class and Educa-
tion: A longitudinal study of Icelandic
early and late cognitive developers“.
Síðari árin hafa rannsóknir Guðnýjar
mest beinst að jafnréttisfræðslu, kyn-
gervi og menntun, samanber bók
hennar Menntun, forysta og kynferði
(2007). Jafnrétti kynjanna er hjartans
mál Guðnýjar og því hefur hún sinnt
bæði í stjórnmálastörfum sínum,
rannsóknum og kennslu. Að auki hef-
ur hún rannsakað menningarlæsi
ungs fólks, stjórnun menntamála og
söguleg málefni og birt fjölmargar
fræðigreinar um þessi efni.
„Ég hef verið í skertu starfshlut-
falli í nokkur ár og við hjónin erum nú
í rannsóknarmisseri í Cambridge.
Þangað komu börnin og fjölskyldur
þeirra í tilefni afmælisins um síðustu
helgi en á afmælisdaginn verður
fagnað með góðum vinum. Fram-
undan eru formleg starfslok, en við
taka frekari rannsóknir, gönguferðir,
ferðalög, meira sumarbústaðalíf og
að sinna barnabörnunum fjórum.“
Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Bjarni, Anna Þorbjörg, Gísli Þór, Páll Óskar, Guðný, Gísli, Bjarki Bergmann með Úlf
Bergmann, Saga Rós og Rósa Signý stödd í Cambridge um síðustu helgi.
Kvennabaráttan hjartans mál
Kvennalistakonur Þingmenn Kvennalistans í Alþingishúsinu í tilefni af 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna árið 2015.
Atli Viðar Jóhannesson og Benna Stefanía
Rósantsdóttir eiga 50 ára brúðkaupsafmæli á
morgun. Þau gengu í hjónaband 26. maí 1969 í
Akureyrarkirkju og gaf sr. Pétur Pétursson þau
saman. Atli og Benna eru bæði frá Akureyri og
bjuggu þar fyrstu árin í sínum búskap. Fljótlega
fluttu þau austur á Eskifjörð og bjuggu þar í
rúm 40 ár. Nú eru þau aftur flutt til Akureyrar
og hafa búið þar í fimm ár. Atli og Benna eiga
fjórar dætur, 13 barnabörn og fjögur barna-
barnabörn.
Þau munu fagna þessum tímamótum með
stórfjölskyldunni erlendis í sumar en verða á
afmælisdaginn á heimili sínu í Brekkugötu 45 á
Akureyri.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
40 ára Sigrún Inga er
Reykvíkingur en býr í
Hafnarfirði. Hún er
leikskólakennari að
mennt og er sér-
kennslustjóri á leik-
skólanum Sunnuhvoli
í Garðabæ.
Maki: Jóhanna Birna Gísladóttir, f. 1964,
leikskólakennari og hárgreiðslumeistari
og er deildarstjóri á leikskólanum Hörðu-
völlum í Hafnarfirði.
Sonur: Reynir Örn, f. 2010.
Foreldrar: Reynir Sverrisson, f. 1949,
ráðgjafi hjá Allianz, og Vilborg Jóhanns-
dóttir, f. 1952, sjúkraliði. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Sigrún Inga
Reynisdóttir
Til hamingju með daginn