Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Auðvelt að þrífa
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÉG HUGSA ÁÐUR EN
ÉG FRAMKVÆMI
OG HUGSA OG HUGSA
OG HUGSA …
HRÓLFUR! ÞÚ VERÐUR AÐ
HÆTTA AÐ BORÐA LÖÐRANDI
DJÚPSTEIKTAN MAT!
EN SÆTT!
ÞÚ ERT SVO
UMHYGGJU-
SÖM!
AUÐVITAÐ ER ÉG
UMHYGGJUSÖM! ÞETTA ER GLÆNÝTT RÚMTEPPI!!
„ÞETTA FLOKKAST SEM LÍKAMSÁRÁS,
HÓTANIR OG FRELSISSVIPTING.
SLEPPTU MÉR OG ÉG FÆ ÞETTA FELLT
NIÐUR.”
„HVORT VILTU FREKAR - ÍS MEÐ DÝFU EÐA
HÁSKÓLAMENNTUN?”
... að kúra saman.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðnýjar er Gísli
Pálsson, f. 22. desember 1949, pró-
fessor og rithöfundur. Foreldrar
hans voru Páll Ólafur Gíslason, f. 3.
mars 1922, d. 25. maí 2002, verkamað-
ur og afgreiðslumaður í Vestmanna-
eyjum og Reykjavík, og eiginkona
hans Bára Sigurðardóttir, f. 16. des-
ember 1925, d. 14. apríl 2015, hús-
móðir.
Börn Guðnýjar og Gísla eru 1) Páll
Óskar Gíslason verkfræðingur, f. 2.
mars 1976. Maki: Anna Þorbjörg
Jónsdóttir hagfræðingur, f. 4. sept-
ember 1976. Börn: Jón Bjarni
Pálsson, f. 25. maí 2010, og Gísli Þór
Pálsson, f. 27. júlí 2012, búsett á
Seltjarnarnesi; 2) Rósa Signý Gísla-
dóttir, vísindamaður hjá Íslenskri
erfðagreiningu og lektor í almennum
málvísindum við HÍ, f. 11. maí 1983.
Maki: Bjarki Bergmann Gunnlaugs-
son framkvæmdastjóri, f. 6. mars
1973. Börn: Saga Rós Bjarkadóttir, f.
27. september 2014, og Úlfur Berg-
mann Bjarkason, f. 2. janúar 2018,
búsett í Reykjavík.
Alsystkin Guðnýjar eru Guð-
mundur Bjarni Guðbjörnsson, tækni-
fræðingur í Reykjanesbæ, f. 27.
nóvember 1952; Björn Herbert Guð-
björnsson, tæknifræðingur í
Reykjanesbæ, f. 20. jan. 1955; Róbert
Þór Guðbjörnsson, rafvirkjameistari í
Reykjanesbæ, f. 7. október 1956.
Samfeðra systkin eru Hjördís Guð-
björnsdóttir, fv. skólastjóri í Hafnar-
firði, 27. júlí 1943, og Gunnar Guð-
björnsson, fv. pípulagningamaður í
Reykjanesbæ, f. 9. nóvember 1944.
Foreldrar Guðnýjar voru Guðbjörn
Herbert Guðmundsson, rafvirkja-
meistari í Keflavík, f. 25. júní 1919, d.
10. júlí 1997 og eiginkona hans, Rósa
Guðnadóttir, húsmóðir í Keflavík, f. 7.
september 1918, d. 7. maí 1997.
Guðný
Guðbjörnsdóttir
Ingveldur Guðmundsdóttir
húsfreyja á Búðarhóli
Guðlaugur Sigurðsson
bóndi á Búðarhóli í A-Landeyjum
Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
húsmóðir á Stokkseyri
Guðni Guðnason
formaður á Stokkseyri
Rósa Guðnadóttir
húsmóðir í Keflavík
Ingveldur Nikulásdóttir
bústýra í Álftarhól og á Búðarhóli
Guðni Guðmundsson
vinnumaður íA-Landeyjum
Hólmfríður Guðmundsdóttir
húsmóðir á Hellissandi
Ásbjörn Gilsson
útvegsbóndi á Hellissandi
Guðrún Ásbjörnsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Guðmundur Guðbjörnsson
skipstjóri í Hafnarfirði
Guðríður Helga Jónsdóttir
húsfreyja á Sveinsstöðum
Guðbjörn Ólafur Bjarnason
bóndi á Sveinsstöðum utan Ennis, Snæf.
Úr frændgarði Guðnýjar Guðbjörnsdóttur
Guðbjörn H. Guðmundsson
rafvirkjameistari í Keflavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Torsótt oft því er að ná.
Á uggum fiska mátti sjá.
Ýmsir setja afar hátt.
Gegn andstæðingi verja mátt.
Þessi er lausn Hörpu á Hjarðar-
felli:
Torsótt marki mun að ná.
Markið fiska uggum á.
Sumir markið setja hátt.
Sókn að marki verja mátt.
Eysteinn Pétursson leysir gátuna
þannig:
Ef markið er hátt skal mikið á sig reyna.
Mark er á uggum fiska milli steina.
Í lífinu er einatt skotist milli skerja.
Sé skotið fast er erfitt mark að verja.
Sigmar Ingason svarar:
Margan þreytir marki að ná
Markið segir hver fiskinn á
Markmið of há margur setur
Markvörður grípur ef hann getur
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Takmark stundum torsótt.
Telgt í ugga mark ljótt.
Set mark á HM mjög hátt.
Mark ver liðið, þá kátt.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Örðugt mun takmarki oft að ná,
uggana á fiskum merkjum þá.
Langæðsta markið margir sjá,
markvörðurinn skal boltann fá.
Hér kemur lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Er línur fjórar lít hér á
lausnar- fæ ég -spark
í endann, því nú er að sjá
að allt snúist um mark.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Marki settu mun ei létt að ná.
Mark á uggum fiska leit ég þá.
Margir setja markið afar hátt.
Í marki þínu verja skotin átt.
Þá er limra:
Þeir kalla Jón hlaupara „hérann“,
það hlægir margan, er sér’ann
markinu ná,
að másandi þá
og síðastur yfirleitt er’ann.
Og síðan er ný gáta eftir Guð-
mund:
Lifnar þys um borg og bý,
brosir sólin gegnum ský,
kyssir blómin, björt og hlý.
Birtist gáta enn á ný:
Í andliti má einatt sjá.
Öldukast í gljúfraþröng.
Lítill spölur landi frá.
Líður vofa um bæjargöng.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hitt í mark