Morgunblaðið - 25.05.2019, Side 28

Morgunblaðið - 25.05.2019, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 Smart lands blað Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 31. maí Í Smartlandsblaðinu verður fjallað um tískustrauma í fatnaði, förðun, snyrtingu, sólar- kremum, sólgleraugum, sumarskóm og sundfatnaði PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 27. maí NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ 63 skákmenn eru skráðir til leiks á opna Íslandsmótinu sem hefst í dag í salnum Hamrar í menning- arsetrinu Hofi í miðbæ Akureyr- ar. Mótið er haldið í tilefni 100 ára afmælis Skákfélags Akureyr- ar og er jafnframt minningarmót um Guðmund Arason, fyrrum for- seta SÍ, sem einnig fæddist árið 1919 en fyrirtækið sem hann stofnaði, Guðmundur Arason smíðajárn er helsti styrktaraðili mótsins. „Opna Íslandsmótið“ var haldið fyrst fyrir nokkrum árum og skipulag þess dregur dám af Reykjavíkurskákmótunum; tefld- ar verða níu umferðir á átta dög- um eftir tímamörkunum 90 30 á 40 leiki og 30 30 til loka skákar, allir geta verið með og eru 15 er- lendir skákmenn á þátttakenda- listanum. Fara þar fremstir stór- meistararnir Ivan Sokolov og Tiger Hillarp Persson. Þá eru fjórir indverskir skákmenn meðal þátttakenda og einn frá Íran. Elsti keppandinn kemur frá Bandaríkjunum, Viktors Pupols, en hann er fæddur árið 1934, tefldi við Bobby Fischer á banda- ríska unglingameistaramótinu ár- ið 1955 – og vann! Hannes Hlífar Stefánsson, Héð- inn Steingrímsson, Helgi Áss Grétarsson, Guðmundur Kjart- ansson, bræðurnir Bragi og Björn Þorfinnssynir, Þröstur Þórhalls- son eru stigahæstir okkar manna. Vignir Vatnar sigraði á Meistaramóti Skákskóla Íslands Vignir Vatnar Stefánsson varð efstur í A-flokki Meistaramóts Skákskóla Íslands sem fram fór um síðustu helgi. Þar tefldu skák- menn með meira en 1600 elo-stig allir við alla og hlaut Vignir 6 ½ vinning af sjö mögulegum. Í 2. sæti varð Aron Thor Mai með 6 vinninga af sjö og í 3. sæti kom Gauti Páll Jónsson 4 ½ vinning. Í flokki skákmanna undir 1600 elo stigum voru þátttakendur 22 og þar sigraði Benedikt Þórisson með glæsibrag, hlaut 7 ½ vinning af átta. Jafnteflið er til komið vegna yfirsetu í 4. umferð sem var á dagskrá á meðan Eurovision söngvakeppnin fór fram. Stefán Davíðsson varð í 2. sæti með 5 ½ vinning og í 3. – 6. sæti komu Tómas Möller, Ingvar Wu Krist- ján Dagur Jónsson, Ingvar Wu og Iðunn Helgadóttir með 5 vinninga. Meistaramótið hefur verið sterkasta unglingamót sem fram fer hér a landi ár hvert en keppt er um fjölmarga ferðavinninga. Aðalstyrktaraðili mótsins var GAMMA. Útsmogin gildra á heimsbikarmótinu í Moskvu Á heimsbikarmótinu í Moskvu sem nú stendur yfir hófu 16 stór- meistarar útsláttarkeppni um síð- ustu helgi. Keppt er um tvö sæti í átta manna áskorendamóti sem fram fer á næsta ári. Nú standa eftir Nepomniachtchi, Nakamura, Grischuk og Wojtaszek. Einvígin byrja með tveim kappskákum og verði jafnt, 1:1, er gripið til at- skáka, 25 10. Í slíkum mótum eru vinningarnir harðsóttir því þessir menn skilja flest og kunna allt. En gildran sem heimsmeistarinn í at- skák, Danill Dubov féll í gegn Na- kamura var óvenjulega útsmogin: Heimsbikar í Moskvu 2019; 3. umferð: Daniil Dubov – Hikaru Naka- mura Síðasti leikur hvíts var 33. Ha8- d8. Nakamura gat varist með 33. ... Bxc5 34. dxc5 Be4 með jafn- teflislegri stöðu en hann valdi annan leik: 33. ... Be7! 34. Hxd5? Þetta hefði hann betur látið ógert. 34. .. Bc8! 35. Kf1 Hb5! Hrókurinn á d5 er í herkví. Eft- ir 36. Ke2 Be6 37. Rxe6 Hxd5 var svartur skiptamun yfir en úrvinnslan ekki einföld. Nakamura tókst þó að vinna eftir 79 leiki. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skákmenn Agnar Tómas Möller leikur fyrsta leikinn á Meistaramóti Skák- skóla Íslands fyrir sigurvegarann sem síðar varð, Vigni Vatnar Stefánsson. Einn sem vann Fischer með á „Opna Íslandsmótinu“ Tæknin þróast hratt. Hún mótar líf okkar og skapar í sífellu nýj- ungar sem breyta líf- inu, hvort sem við vilj- um eða ekki. Til verður nýr tæknilegur vett- vangur sem skapar ný líkön, nýjar reglur og nýjan veruleika. Okkur reynist flest- um erfitt að halda í við örar tæknibreytingar. Við vitum þó að tæknibreytingum fylgja einnig mikil tækifæri til fram- fara og aukinna lífsgæða. Nú snýst allt um hraða, skilvirkni og sjálf- virkni. Við búum okkur undir að nýta betur möguleika gervigreindar og vélmenna ásamt því að njóta æ meir upplifunar í umhverfi hins svokallaða sýndarveruleika, sem gerir okkur kleift að sjá og nema með öðrum hætti en áður. Til að halda fyrirtækjum okkar og iðnaði samkeppnishæfum til fram- tíðar þurfum við á hæfu og vel mennt- uðu fólki að halda, sem býr ekki að- eins yfir hugviti og verkviti, heldur ber einnig skynbragð á að nýta tæknina á hátt sem rúmast innan þeirra siðferðilegu marka sem þjóðfé- lagið setur. Þetta má kalla siðvit. Við þurfum fólk sem er forvitið og tilbúið til að halda áfram því sem vel er gert, samhliða því að skapa nýja hluti. Stór gagnasöfn eru ný tegund auðlindar Hin nýja tækni byggist m.a. á hag- nýtingu upplýsinga úr stórum gagna- söfnum um fólk sem unnið er með á vélrænan og sjálfvirkan hátt. Með forritun má byggja upp svokallaða gervigreind í tölvum og snjalltækjum sem aðstoðar okkur með ýmsum hætti, eftir því sem við á og óskað er eftir. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir þeim ógnum og áhættum sem fylgja því að treysta æ meir á þau reiknirit (algrím) sem gervigreind byggir á. Sem dæmi má nefna að lík- legur fylgifiskur umræddrar tækni verður mismunun af ýmsu tagi. Tæknina má nota til að skerða atvinnutækifæri fólks og búa til svarta lista, án þess þó að við- komandi einstaklingar hafi möguleika á að andmæla eða viti jafn- vel nokkurn tíma hvernig á því stóð að þeir voru útilokaðir. Nú þegar eru til lyga- mælar sem greina með fullkomnum hætti and- litshreyfingar og tilfinn- ingaviðbrögð fólks. Einnig eru til hugbúnaðarlíkön sem geta með mun áreiðanlegri hætti en dómari sagt fyrir um líkur á því að einstaklingur sem framið hefur af- brot og fengið dóm, fremji fleiri af- brot og verði jafnvel síbrotamaður. Að greina hegðunargögn á heiðarlegan hátt Víða í stærri fyrirtækjum eru mannauðsstjórar farnir að treysta á sérhannaðan hugbúnað til að velja úr umsækjendum um störf. Stór gagna- söfn, sem á íslensku eru oft nefnd gríðargögn, gera kleift að fram- kvæma margs konar persónugrein- ingar. Það hefur þegar sýnt sig vera mikil freisting og von um ábatasöm viðskiptatækifæri fyrir suma, að greina persónuleika fólks og spá fyrir um hegðun þess, t.d. kauphegðun. Einnig eru mörg dæmi um fyrirtæki sem nýta sér tæknina til að hafa áhrif á tiltekna hópa fólks og móta skoð- anir þess í kosningabaráttu eða við markaðssetningu vöru og þjónustu. Segja má að í þessu felist alvarleg ógn við lýðræðið eins og dæmin sýna. Rafræn gögn eru að verða auðlind á borð við þá sem olían var eitt sinn. Út frá því sjónarmiði má segja að upplýsinga- og persónuvernd sé hin nýja umhverfisvernd. Olía og rafræn gögn Eftir Svönu Helen Björnsdóttur »Rafræn gögn eru að verða auðlind á borð við þá sem olían var eitt sinn. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er verkfræðingur og framkvæmdastjóri Stika ehf. Upplýsingaöryggi Snorri Páll Snorrason fæddist í Rauðavík á Árskógsströnd 22. maí 1919. Foreldrar hans voru Snorri Halldórsson hér- aðslæknir og oddviti á Breiða- bólstað á Síðu og Þórey Ein- arsdóttir. Eftir að hafa lokið prófi í al- mennri læknisfræði við Há- skóla Íslands fór Snorri til framhaldsnáms í lyflækn- ingum með sérstöku tilliti til hjartasjúkdóma í Harvard University School. Snorri hóf störf á lækninga- deild Landspítalans, varð deildarlæknir og síðan yfir- læknir 1970-1989. Snorri var lektor við læknadeild HÍ 1959, dósent frá 1966 og prófessor við læknadeild Háskólans frá 1983, kenndi við Hjúkrunar- skóla Íslands og við Kennara- skóla Íslands. Snorri var formaður Læknafélags Íslands 1971- 1974, sat í stjórn Hjarta- sjúkdómafélags íslenskra lækna, var ritari Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra 1952-1954. Hann var einn af stofnendum Hjartaverndar og sat í stjórn 1964. Hann hlaut fálkaorðuna 1980. Eiginkona Snorra var Karólína Waagfjörð hjúkr- unarkona, f. 1923, d. 2011, og eignuðust þau tvö börn. Snorri lést 16. maí 2009. Merkir Íslendingar Snorri Páll Snorrason Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.