Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 ✝ Magnús ÞórJónasson fædd- ist 4. maí 1947. Hann lést 24. apríl 2019. Magnús var fædd- ur og uppalinn á Grundarbrekku í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson og Guðrún Magn- úsdóttir. Hann var yngstur sex systk- ina, systkini hans voru þau Jó- hanna, f. 15.7. 1931, d. 2.10. 1938, Hilmar, f. 14.4. 1934, d. 16.3. 2016, Einar, f. 24.11. 1938, Jóhann, f. bil í samstarfi með félaga sínum Sigurgeiri Jónssyni. Eftir gos tók hann við sem framkvæmdastjóri Vörubílastöðvar Vestmannaeyja, þá flutti hann með fjölskyldu sína til Reykjavíkur þar sem hann starfaði hjá Sjónvarpsmiðstöðinni um árabil, þá lágu leiðir aftur til Vestmannaeyja þar sem hann tók við framkvæmdastjórn Herjólfs hf.; starfsævinni lauk svo í stól framkvæmdastjóra dvalar- heimilisins Hraunbúða í Vest- mannaeyjum. Magnús var alla tíð virkur í fé- lagsstarfsemi, s.s. Lúðrasveit Vestmannaeyja, Sjálfstæðis- flokknum, Frímúrarareglunni, Hvítasunnukirkjunni og Gídeon- félaginu. Útför hans fer fram frá Hvíta- sunnukirkjunni í Vestmanna- eyjum í dag, 25. maí 2019, klukkan 11. 5.5. 1940, og Sigur- björg, f. 7.2. 1942. Magnús giftist Guðfinnu Óskars- dóttur, f. 18.12. 1946, d. 20.5 2009, frá Siglufirði, hinn 20.5. 1972. Þau eignuðust saman þrjú börn: Þórarin, f. 18.5. 1974; Elínu Ósk, f. 23.9. 1975; og Sævar Þór, f. 31.7. 1984. Magnús starfaði að loknu námi við bókhald hjá Vestmanna- eyjabæ, þá rak hann mat- vöruverslunina Eyjakjör um ára- Í dag kveð ég með söknuði frænda minn Magnús Þór Jón- asson, eða Magga á Grundó eins og hann jafnan var kallaður. Maggi var litli bróðir mömmu og bjó hann lengst af með fjölskyldu sinni í næsta húsi við hliðina á okkur, í botnlanganum á Höfða- vegi. Það var því ávallt mikill samgangur og vinskapur á milli fjölskyldna okkar þegar ég var að vaxa úr grasi. Það leið varla sá dagur að einhver úr fjölskyldunni á 28 kæmi ekki í heimsókn yfir á 26, eða öfugt. Maggi og Guðfinna voru ávallt dugleg að kíkja í kaffi til okkar og þá var oft sögustund hjá Magga, þar sem hann hafði yfirleitt frá einhverju skemmti- legu að segja. Maggi var einn af þessum einstaklingum sem öllum líður vel í kringum og hann virtist alltaf vera í „smitandi“ góðu skapi. Ég er afskaplega þakklát- ur fyrir að hafa fengið að eiga Magga að sem móðurbróður og eftir standa margar góðar minn- ingar um yndislegan mann sem ég mun varðveita eins lengi og ég lifi. Maggi var ávallt hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og hann var virkur í alls konar fé- lagastarfsemi. Hann var dyggur stuðningsmaður ÍBV og stundum stóð manni reyndar ekki alveg á sama þegar maður fór með hon- um í Íþróttahöllina í Eyjum til að horfa á handbolta eða á Hólinn á Hásteinsvelli og varð vitni að því hvernig þessi dagfarsprúði mað- ur breyttist í „brjálaða bolta- bullu“ á augabragði. Ég var nú reyndar oftast sammála honum þegar hann reiddist dómaranum eða úthúðaði andstæðingunum þegar ÍBV átti í hlut. Það var hins vegar verra þegar enski boltinn var annars vegar, enda vorum við þar ósammála um flestallt. Þegar ég var smágutti starfaði Maggi sem framkvæmdastjóri Vörubílastöðvarinnar í Vest- mannaeyjum og það fannst mér að hlyti að vera flottasta starf í heimi. Stundum fékk ég að koma í heimsókn á skrifstofuna og það var algjör draumaheimur að sjá alla þessa vörubíla og fylgjast með bílstjórunum á kaffistofunni og Maggi frændi stjórnaði þessu öllu. Ekki minnkaði stoltið af Magga frænda þegar hann varð framkvæmdastjóri Herjólfs hf. þar sem hann var þá orðinn (í mínum huga að minnsta kosti) ábyrgur fyrir tengingu Eyjanna við umheiminn. Maggi var ávallt afskaplega ljúfur og skemmtilegur í um- gengni við okkur krakkana þegar ég var að vaxa upp. Við peyjarnir í hverfinu nýttum okkur þessa góðvild hans meðal annars til að fá byggingarefni í fjölda kofa sem reistir voru á svæðinu. Maggi átti stóran stafla af mótatimbri á bak við hús sem einhvern veginn „gufaði“ upp í réttu hlutfalli við framgang byggingaframkvæmda okkar vinanna. En aldrei datt Magga í hug að skammast í okk- ur út af því. Árið 2009 féll Guðfinna, eigin- kona Magga og lífsförunautur til 40 ára, frá eftir stutta baráttu við krabbamein. Maggi átti erfitt eft- ir þann mikla missi, auk þess sem hann átti við heilsubrest að etja síðustu árin. Það var engu að síð- ur alltaf gaman að hitta hann og ávallt var hægt að eiga við hann ánægjulegt spjall þar sem gleði og væntumþykja var í fyrirrúmi. Líf mitt er ríkara fyrir að hafa átt Magga að sem frænda og vin, hans verður sárt saknað. Jónas Rúnar Viðarsson. Magnús Jónasson frá Grundarbrekku, eða Maggi á Grundó eins og hann var ávallt kallaður, kvaddi okkur óvænt fyrir skömmu. Þó að heilsa hans hafi ekki verið eins og best verð- ur á kosið síðastliðin ár var hann að braggast og í raun bara við þokkalega heilsu þegar hann var skyndilega kallaður burt. Ég kynntist Magga fyrst í full- trúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Eyjum þar sem hann var ein af driffjöðrunum í starfi sjálfstæð- ismanna í Eyjum. Hann tók þar að sér mörg vandamikil trúnað- arstörf og leysti þau öll vel af hendi. Það var oft gustur í kring- um Magga en hann sjálfur var ljúfmenni af bestu gerð. Hann gekk lengi undir viðurnefninu „Sprengjusérfræðingurinn“ í röðum kjarna sjálfstæðismanna, þar sem hann var alltaf á vett- vangi þar sem deilur og átök komu upp innan flokksins. Ekki var viðurnefnið til komið sökum þess að Maggi stæði fyrir átökum heldur líklega vegna þess að hann hljóp ekki af vettvangi ef erfið mál komu upp. Var í hring- iðu átakanna og reyndi að leysa málin sem upp komu. Þess vegna var hann oft örugglega á sprengjusvæði! Magga kynntist ég þó fyrst al- mennilega þegar ég tók sæti í stjórn Herjólfs hf. þar sem hann var framkvæmdastjóri. Þá kynntist ég kostum þessa virki- lega góða manns. Ég var mörg ár í stjórn félagsins og lengst af stjórnarformaður. Á þeim tíma áttum við Maggi mikið og gott samstarf sem ekki bar skugga á. Ekki vorum við alltaf sammála en töluðum okkur alltaf niður á lausn. Maggi var afskaplega traustur og góður samstarfsmaður sem hægt var að treysta fullkomlega og hann skilaði störfum sínum með sóma. Eftir að samstarfi okkar hjá Herjólfi hf. lauk vorum við alltaf í sambandi. Það leið misjafnlega langt milli þess sem við töluðum saman en alltaf var sama vinátt- an og traustið til staðar. Maggi hafði gríðarlega gaman af því að heyra og segja góða brandara og þá tísti í honum og hann hristist allur af hlátri. Hann var óspar á að senda í tölvupósti brandara sem hann heyrði og á ég sérstaka möppu með hundr- uðum brandara frá Magga í inn- hólfinu hjá mér. Við Maggi áttum líka fé- lagsskap í hópi fyrrverandi stjórnenda og endurskoðenda Herjólfs hf. sem hittast alltaf á gamlársdag. Það höfum við gert í áratugi og gerum vonandi áfram. Þar förum við yfir farinn veg og framtíðina og skálum fyrir liðn- um og komandi tímum. Þar var Maggi hrókur alls fagnaðar og naut sín vel. Maggi á Grundarbrekku var traustur og góður maður. Það var heiður að fá að starfa með honum og eiga hann að vini. Nú þegar hann hefur kvatt þetta líf eru það minningarnar um góðan félaga sem koma upp í hugann. Ég hefði gjarnan viljað fylgja Magga vini mínum frá Grundar- brekku síðustu sporin í þessu jarðlífi en því miður á ég það ekki mögulegt vegna vinnu minnar ut- an landsteina en ég mun hugsa til vinar míns, Magga, og fylgja hon- um í huganum. Ég sendi börnum Magga og öðrum ástvinum mínar dýpstu samúðarkveðjur og vona að góð- ur Guð styrki þau og blessi í sorg- inni. Guð blessi minningu Magga á Grundó. Grímur Gíslason. Einn af okkar góðu og traustu Eyjamönnum hefur nú kvatt þetta jarðneska líf. Ég kynntist Magga á Grundarbrekku þegar við kornungir menn hófum að starfa í Eyverjum, Félagi ungra sjálfstæðismanna í Vestmanna- eyjum.Það var mikill kraftur í starfi félagsins og við óhressir með stefnu og verklag gömlu karlanna í flokknum. Maggi var mjög virkur, duglegur og sam- viskusamur í starfinu. Það var alltaf gaman og skemmtilegt í kringum Magga. Þetta samstarf þróaðist svo í það að við Maggi stofnuðum mat- vöruverslunina Eyjakjör að Skólavegi 1. árið 1969. Verslunin naut strax mikilla vinsælda og nýttust hæfileikar og góð fram- koma Magga þar vel. Þessum verslunarrekstri lauk svo þegar eldgosið á Heimaey hófst 23. jan- úar 1973. Það var oft ansi mikið að gera í versluninni enda allt þá afgreitt yfir borðið, allt kjöt sagað og mikið um heimsendingar. Þetta var skemmtilegur tími enda Maggi sérstaklega þægilegur í samstarfi. Á þessum verslunarárum vor- um við Maggi báðir að koma okk- ur upp fjölskyldu. Eftir að heim var flutt eftir gos hélt okkar kunningsskapur áfram og sam- starfið í Sjálfstæðisflokknum. Það var gott að leita til Magga til að fá góð ráð enda hann mjög vel inni í öllum bæjarmálum. Eftir að ég flutti frá Eyjum 1990 varð eðli málsins samkvæmt minna um samskipti. En alltaf þegar við áttum leið til Eyja var heilsað upp á Magga og málin rædd. Maggi gegndi mörgum ábyrgðarstörfum í Eyjum. Það var sama hvaða starf hann tók að sér, alls staðar naut hann virð- ingar og þótti einstaklega góður samstarfsfélagi. Bestu þakkir fyrir góð kynni í gegnum árin, Maggi minn. Við Ásta sendum fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðju á þessum sorgar- tíma ykkar. En eitt er víst. Minningin um góðan mann lifir áfram. Sigurður Jónsson. Góður vinur og gleðigjafi, Magnús Jónasson frá Grundar- brekku í Vestmannaeyjum, „Maggi á Grundó“, lést óvænt í sumarbústað uppi í Borgarfirði þar sem hann, ekkjumaðurinn, dvaldist í fríi með tveimur börn- um sínum nokkra daga. Síðustu ár voru honum erfið, eiginlega síðan Guðfinna, kona hans, lést eftir hart stríð við krabbamein 2009. Hann fann sig aldrei eftir það. Þessi einstæði reglu- og gleðimaður tapaði neistanum og eftir starfslok syrti enn í álinn. Það tók á okkur, vini hans. Ég kynntist Magga fyrst þeg- ar ég hóf nám í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Ég fékk að taka þátt í árlegri leiksýningu á full- veldisdaginn, 1. desember, það ár. Maggi var í hópnum, tveim ár- um eldri. Leikæfingar voru síð- degis. Hann var í þykkara lagi á þessum árum, hafði einstæðan smitandi hlátur, gott skap og ríka kímnigáfu. Það fór því oft eins og dæmi eru um að leikhópurinn sprakk úr hlátri þegar Maggi birtist á sviðinu með því pati og hljóðum sem hlutverkið sagði honum, og æfingin fór úr skorð- um hvað eftir annað. Margs konar samstarf í fé- lögum ungra manna, við útgáfu blaða og annað stúss, batt síðan milli okkar vináttubönd sem héldu lengi. Það var alltaf líf og fjör í kringum Magga. Örlögin höguðu því svo til að ég kynntist ungur Jónasi, föður hans, í sumarvinnu. Miseldri var afar mikið með okkur en vináttan varð náin og einlæg. Jónas var ótrúlega ungur í anda og mesti ærslabelgur. Ég tók svo að venja komur mínar á Grundarbrekku og kynntist Guðrúnu, konu hans, og átti þar marga góða stund í eldhúsinu. Það var ekki ónýtt fyr- ir Magga að fá að alast upp í þessu húsi. Magga gekk vel í skóla og þess mátti vænta að hann færi til frek- ara náms „upp á land“. En það gat hann sennilega ekki hugsað sér, að hverfa úr hreiðri sínu og átthögum. Hann fór að vinna eft- ir gagnfræðapróf. Honum voru strax falin vandasöm ábyrgðar- störf við bókhald og fjármál, hjá bæjarsjóði, bílastöðinni, var framkvæmdastjóri Herjólfs og lauk starfsferli sem forstöðumað- ur dvalarheimilis aldraðra 2015. Þá fluttist hann til Reykjavíkur. Allt var í reglu þar sem hann var. Um tíma rak hann matvöruversl- un með vini okkar, Sigurði Jóns- syni, og búnaðist vel, enda natinn og greiðvikinn við viðskiptavini. Þegar þau giftu sig, Maggi og Guðfinna, bjuggu þau strax vel um sig í Grænuhlíð, og eftir gosið byggðu þau fallegt einbýlishús við Höfðaveg, við hlið systur hans, Sigurbjargar. Við sjúkrabeð Guðfinnu sá ég Magga í síðasta sinn líkan sjálf- um sér. Hann vék ekki frá henni, stóð sem klettur við hlið hennar. Hann bar sig ótrúlega vel fyrst eftir áfallið en er á leið varð eftir- leikurinn honum erfiður. Aldrei hurfu honum þó vinsemd og ein- lægni í garð okkar vina hans. Ég kveð einn besta og skemmtilegasta vin minn frá fyrri árum, trygglyndan gleði- gjafa, og sendi um langan veg kveðjur mínar í Hvítasunnukirkj- una í Eyjum þar sem börn hans þrjú, aðstandendur og vinir syngja yfir honum og syrgja góð- an mann. Hann verður mér ávallt minnisstæður förunautur. Helgi Bernódusson. Við vorum nú ekki háir í loft- inu þegar við gerðumst kúasmal- ar á Grundarbrekku, sem var æskuheimili Magga og hann ávallt kenndur við. Rákum við þá beljurnar annaðhvort upp fyrir Hvíld eða vestur á Brimhóla og svo þurfti að sækja þær á kvöld- in. Ekki svo sjaldan struku þær og blönduðust öðrum beljuhóp- um í bænum, gat þá verið ansi erfitt að stía þeim í sundur. Kom það sér vel að þetta var ekki stór hópur sem við þurftum að gæta en hann stóð saman af tveim beljum, Svörtu og Skjöldu. Bú- skapurinn lagðist af þegar Skóla- vegurinn var malbikaður, því það var allt of mikið vesen að hlaupa með skóflurnar á eftir beljunum sem virtu að vettugi nýskverað strætið. Æskan leið við leik og störf. Áður en varði tók alvaran við hjá okkur með stofnun heimila. Maggi stofnaði fyrsta heimilið sitt í Grænuhlíð 9 með eiginkonu sinni, Guðfinnu Óskarsdóttur. Ekki höfðu þau búið þar lengi þegar eldgosið hófst en húsið þeirra fór undir hraun. Eftir gos komu þau aftur til Eyja og byggðu sér hús við Höfðaveg, í stykkinu sem við rákum beljurn- ar í forðum og tilheyrði Grund- arbrekku. Guðfinna lést fyrir nokkrum árum, langt um aldur fram, og varð það Magga mikið áfall og sótti einmanaleiki að hon- um og depurð. Maggi reyndist mér sannur vinur þegar mest á reyndi með heimsóknum sínum á Landspít- alann og síðar á Reykjalund. Ekki leið á löngu þar til Maggi lét innrita sig í tækjasalinn á Reykjalundi og var undravert að sjá hvað hann styrktist fljótt, bæði andlega og líkamlega. Gleðin og kátínan umlukti hann eins og forðum. Þarna var Maggi kominn aftur í essið sitt. Í síðasta skiptið sem við hitt- umst töluðum við um hvað biði okkar hinum megin þegar þess- ari jarðvist lyki, nokkuð sem við ræddum yfirleitt aldrei um. Ein- læg var trú hans og vissa á líf eft- ir þetta líf og að hann myndi hitta Guðfinnu aftur í sumarlandinu þar sem alltaf er sól og gott veður eins og í bernskuminningum okkar. Elsku Maggi minn! Þín er sárt saknað en við sjáumst síðar í sumarlandinu. Við fjölskyldan viljum votta börnum þínum, Þór- arni, Sævari og Elínu, og öðrum eftirlifandi ættingjum þínum samúð okkar. Þinn vinur, Örn. Ég kveð í dag góðan vin og yndislegan félaga sem farinn er frá okkur langt um aldur fram- .Leiðir okkar hafa legið saman í áratugi. Maggi vinur minn hefur um nokkurt árabil átt við van- heilsu að stríða. Eftir veru hans á Reykjalundi í vetur virtist vera að rofa til og heilsan að lagast. Ég batt miklar vonir við að sum- arið og sólin myndu veita honum góð tækifæri til gönguferða og endurhæfingar og ræddum við það skömmu áður en andlát hans bar að. Andlát Guðfinnu, yndis- legrar eiginkonu hans, tók mikið á hann og má segja að hann hafi aldrei náð sér eftir það. Söknuð- urinn var honum stundum óbæri- legur og ræddi hann oft við mig hve mikið hann saknaði konu sinnar. Alls staðar þar sem Maggi var í tengslum við ein- hvern félagsskap var hann fljót- lega kosinn til trúnaðarstarfa. Trúnaðarstörf sem hann hefur sinnt eru fjölmörg og á ólíkum sviðum. Á góðum stundum var hann sérlega glaðvær, hlátur- mildur og skemmtilegur. Hann var ætíð traustur vinur og mat mikils það sem gert var fyrir hann eða fjölskyldu hans. Á sam- ferð okkar á lífsins leið áttum við margar góðar og gefandi sam- verustundir. Maggi og fjölskylda hans áttu nokkra húsbíla og ferð- uðust á þeim vítt og breitt um landið. Fyrir nokkrum árum átti hann stóran og glæsilegan húsbíl sem þarfnaðist verulegra endur- bóta. Bíllinn var fluttur upp að sumarhúsi okkar Iðunnar að Þingvöllum. Þar vann ég í bílnum nokkrar vikur og gerði hann í stand, þannig að hann varð verð- mæt söluvara á eftir. Það var svo ánægjulegt að gera Magga greiða því að hann var alltaf svo þakklátur og mat vinargreiða svo mikils. Honum fannst hann alltaf standa í þakkarskuld ef honum var rétt hjálparhönd og vildi end- urgjalda það með ýmsu móti. Eftir sölu þessa stóra húsbíls keypti hann tvo aðra gamla hús- bíla, sem báðir fóru í „andlitslyft- ingu“ að Þingvöllum. Þegar hann hafði heilsu og tíma vildi hann taka þátt í öllum framkvæmdum og var þá oft glatt á hjalla og mik- ið hlegið. Hann hafði mörg falleg orð um það sem tókst vel hjá okk- ur í þessu brölti og var sérlega gefandi að vera í návist hans. Fjölmargt annað tókum við okk- ur fyrir hendur saman og skilja allar samverustundir okkar eftir einstaklega góðar minningar. Við kveðjum í dag góðan vin með miklum söknuði og votta elskulegum börnum hans og ætt- ingjum, okkar dýpstu samúð og þökkum einstaklega ljúfa og gef- andi samferð. Af óviðráðanlegum ástæðum getum við ekki fylgt honum til grafar í dag. Við biðjum algóðan Guð að blessa minningar um góðan dreng og vin. Iðunn og Ólafur Gränz. Kveðja frá sjálfstæðisfélög- unum í Vestmannaeyjum Magnús Þór Jónasson frá Grundarbrekku var í framvarð- arsveit sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum í rúma fjóra áratugi. Áhugi hans á félags- og stjórnmálum kom snemma í ljós. Árið 1968 þegar Magnús stóð á tvítugu var hann kosinn í stjórn Eyverja, félags ungra sjálfstæð- ismanna, og um svipað leyti tók hann sæti í ritnefnd Fylkis, blaðs flokksins í Eyjum. Þetta var upp- hafið að langri þátttöku Magnús- ar í félagsstarfi fyrir flokkinn. Það sem ávallt einkenndi störf hans var samviskusemi og mikil vinnusemi, sem skiptir miklu í fé- lagsstörfum og lífinu almennt. Magnús var formaður Eyverja 1975-1978, en 1979 tók hann við formennsku í fulltrúaráði sjálf- stæðisfélaganna í eitt ár og aftur 1986-1989 og loks 2000-2004. Magnús var ábyrgðarmaður Fylkis 1978-1982 og 2000-2003. Þá var Magnús formaður Sjálf- stæðisfélags Vestmannaeyja 1995-2001 og aftur 2003-2007 en þá voru sjálfstæðisfélögin í Eyjum, Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló og Sjálfstæðisfélag Vm., sameinuð undir nafni þess síðar- nefnda. Af þessari upptalningu má sjá að aðkoma Magnúsar í flokksstarfinu var mjög mikil í marga áratugi. Til að standa und- ir slíku þarf í senn mikinn áhuga og trú á þann málstað sem starf- að er fyrir. Þar með var aðkomu Magnús- ar að félagsstörfum fyrir flokkinn í Eyjum ekki lokið því hann átti áfram sæti í ritnefnd Fylkis til 2017, en þá stóð hann á sjötugu og mjög sáttur við að standa upp frá borði. Lengst af allan þennan tíma tíma vann Magnús við kröfuhörð störf við stjórnun fyr- irtækja og stofnana. Það skiptast jafnan á skin og skúrir í lífinu. Fráfall Guðfinnu eiginkonu hans árið 2009 var Magnúsi, börnum þeirra og fjöl- skyldunni mikið áfall og fann Magnús sig ekki eftir það og heilsan gaf sig nokkrum árum síðar. Það er mikill sjónarsviptir þegar Magnús á Grundarbrekku hverfur af sviðinu. Sjálfstæðis- félögin í Eyjum, fulltrúaráð flokksins og ritnefnd Fylkis senda fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur á erfiðum tím- um. Guð blessi minningu Magn- úsar Jónassonar. Arnar Sigurmundsson. Magnús Þór Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.