Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700
Glæsilegt nýtt, átta íbúða, fjölbýli með lyftu í vinsælu hverfi í Garðabæ.
Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna.
Stærðir frá 122- 138 fm verð frá 63.9 millj.
Öllum íbúðum fylgja rúmgóð stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Sölusýning Breiðakur 2-4 Garðabæ
Nýjar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir
Laugardaginn 25. maí frá 13:00-14:00
Sunnudaginn 26. maí frá 13:00-14:00
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Félag atvinnurekenda mótmælir
áformum um háar arðgreiðslur
Faxaflóahafna til eigenda sinna, sem
Reykjavíkurborg hefur lagt til.
„Við mótmælum því að þjónustu-
gjöld, sem eiga að standa undir eðli-
legum rekstri og
uppbyggingu
hafnanna, séu
þannig nýtt sem
skattstofn af
borgaryfirvöld-
um,“ segir Ólafur
Stephensen,
framkvæmda-
stjóri Félags at-
vinnurekenda, í
samtali við
Morgunblaðið.
Blaðið sagði frá því í frétt á
fimmtudaginn að í greinargerð
Reykjavíkurborgar með ársreikn-
ingi Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2018
væri bent á að svigrúm fyrirtækis-
ins til aukinna arðgreiðslna til eig-
enda væri mikið. Reykjavíkurborg
er langstærsti eigandi Faxaflóa-
hafna sf. með 75,6% hlut.
Ólafur Stephensen bendir á að
innflutningsfyrirtæki greiði
drjúgan hluta af tekjum Faxaflóa-
hafna í formi vörugjalda. Þeirrar
gjaldtöku gæti að sjálfsögðu í verð-
lagi innfluttra vara. Mikill meirihluti
innflutnings til landsins komi í gegn-
um Faxaflóahafnir. Gjaldskrá vöru-
gjalda hafi hækkað um 17% frá árs-
byrjun 2015, eða nærri 6
prósentustig umfram almennar
verðlagshækkanir.
„Úr því að borð er fyrir báru hjá
Faxaflóahöfnum teljum við eðlilegra
að sveitarfélögin sem eiga fyrir-
tækið slái af gjaldskránni til að
leggja sitt af mörkum til verðstöð-
ugleika og auðveldi fyrirtækjum að
standa undir launahækkunum vegna
nýgerðra kjarasamninga,“ segir
Ólafur.
Hann segir að ríkisvaldið hafi
lækkað skatta á fyrirtæki til að
greiða fyrir farsælli niðurstöðu í
kjaraviðræðum. Félag atvinnurek-
enda sendi Reykjavíkurborg og
fleiri sveitarfélögum erindi síðastlið-
ið haust, þar sem þau voru hvött til
að lækka álagningarprósentu fast-
eignagjalda á atvinnuhúsnæði til að
leggja jafnframt sitt af mörkum til
stöðugleika á vinnumarkaði og í
verðlagsmálum.
„Skattbyrði fyrirtækja vegna
fasteignagjalda hefur þyngst mjög
undanfarin ár vegna gífurlegra
hækkana fasteignamats, sem eiga
sér sjaldnast nokkra samsvörun í af-
komu eða greiðslugetu fyrirtækj-
anna. Ýmis sveitarfélög brugðust
við með lækkunum álagningarpró-
sentu. Það olli okkur miklum von-
brigðum að fá þvert nei frá Reykja-
víkurborg, sem innheimtir hæsta
lögleyfða fasteignaskatt á atvinnu-
húsnæði eitt sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu,“ segir Ólafur.
Að mati Félags atvinnurekenda
geti sveitarfélögin ekki verið
stikkfrí í því verkefni að tryggja
verðstöðugleika í landinu.
Mótmæla hærri arðgreiðslum
Félag atvinnurekenda telur óeðlilegt að Reykjavíkurborg noti þjónustugjöld Faxaflóahafna sem
skattstofn Sveitarfélögin geti ekki verið stikkfrí í því verkefni að tryggja verðstöðugleika í landinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gámastæður Sundahöfn er stærsta höfnin í innflutningi. Í fyrra fóru 352 þúsund gámaeiningar um Faxaflóahafnir.
Ólafur
Stephensen
Afkoma Faxaflóahafna sf. árið
2018 var betri en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun. Tekjur
námu kr. 3.955.421. Þar af
voru vörugöld kr. 1.420.784.
Reglulegar tekjur voru alls
134,4 milljónir umfram áætlun
en rekstrarútgjöld voru 215,5
m.kr. undir áætluðum út-
gjöldum. Auknar tekjur skiluðu
sér aðallega vegna aukins um-
fangs í skipakomum og stækk-
andi skipa. Rekstrarhagnaður
fyrir fjármagnsliði varð því
349,9 m.kr. hærri en áætlað
hafði verið eða 1.076,8 m.kr.
Innflutningur í gegnum Faxa-
flóahafnir var 2,7 milljónir
tonna í fyrra og hafði vaxið um
200 þúsund tonn frá árinu
2016.
Sundahöfn er sem fyrr
tekjuhæsta hafnarsvæðið, en
þar er megingátt flutninga á
vörum til og frá Íslandi.
„Á næstu árum er fátt sem
bendir til annars en að Faxa-
flóahafnir sf. geti áfram verið
sjálfum sér nógar með rekstur,
endurnýjun og nýfram-
kvæmdir,“ segir m.a. í grein-
argerð Gísla Gíslasonar hafn-
arstjóra.
Góð afkoma
var árið 2018
FAXAFLÓAHAFNIR