Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Einstaklega vel hannaðar íbúðir með yfirbyggðum þaksvölum sem
eykur notagildi og nýtur sólar frá morgni til sólarlags að kvöldi.
Tvö baðherbergi eru í öllum íbúðum og allar þriggja herbergja
með mismunandi skipulagi.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð.
GRANDAVEGUR 42 A, B OG C
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
Inkasso-deild karla
Víkingur Ó. – Þór...................................... 2:0
Grótta – Leiknir R.................................... 2:3
Staðan:
Keflavík 4 3 1 0 10:2 10
Víkingur Ó. 4 3 1 0 6:1 10
Fjölnir 4 3 0 1 11:6 9
Njarðvík 4 2 1 1 5:5 7
Leiknir R. 4 2 0 2 9:7 6
Þór 4 2 0 2 7:6 6
Þróttur R. 4 1 1 2 9:9 4
Fram 3 1 1 1 5:5 4
Grótta 4 1 1 2 7:9 4
Afturelding 4 1 0 3 4:12 3
Haukar 4 0 2 2 4:7 2
Magni 3 0 0 3 3:11 0
2. deild karla
Tindastóll – Dalvík/Reynir ...................... 1:2
Staðan:
Selfoss 4 3 0 1 11:3 9
Víðir 4 2 1 1 8:8 7
KFG 3 2 0 1 5:2 6
Vestri 3 2 0 1 6:5 6
Völsungur 3 2 0 1 4:5 6
Dalvík/Reynir 4 1 2 1 5:5 5
Kári 3 1 1 1 6:4 4
ÍR 3 1 1 1 4:4 4
Leiknir F. 3 0 3 0 5:5 3
Fjarðabyggð 3 1 0 2 3:4 3
Þróttur V. 3 0 2 1 3:6 2
Tindastóll 4 0 0 4 1:10 0
Inkasso-deild kvenna
ÍA – Grindavík .......................................... 0:0
Þróttur R. – Tindastóll............................. 4:2
Augnablik – Haukar................................. 0:1
Afturelding – ÍR....................................... 5:2
FH – Fjölnir.............................................. 2:0
Staðan:
Þróttur R. 3 3 0 0 16:3 9
FH 3 2 1 0 9:5 7
Augnablik 3 2 0 1 5:2 6
ÍA 3 1 2 0 4:2 5
Afturelding 3 1 1 1 6:4 4
Grindavík 3 1 1 1 3:4 4
Haukar 3 1 0 2 2:3 3
Tindastóll 3 1 0 2 7:10 3
Fjölnir 3 0 1 2 1:5 1
ÍR 3 0 0 3 2:17 0
2. deild kvenna
Fjarð/Hött/Leikn. – Sindri...................... 2:0
Frakkland
Dijon – Toulouse...................................... 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Dijon
sem endaði í 18. sæti og fer í umspil um að
halda sæti sínu í efstu deild.
Svíþjóð
Sundsvall – AIK ....................................... 1:1
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi AIK vegna meiðsla.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Slutsk ........................... 3:0
Willum Þór Willumsson lék fyrstu 69
mínúturnar hjá BATE.
Vináttulandsleikir kvenna
Spánn – Kanada........................................ 0:0
Argentína – Úrúgvæ ................................ 3:1
KNATTSPYRNA
KÖRFUBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Mótið fer í að þreifa fyrir sér með
liðið, láta reyna á hvernig leikmenn
blandast saman á leikvellinum og
þróa leikkerfi og fleira í þeim dúr.
Semsagt byrja á því að stilla saman
strengina,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari kvenna í
körfuknattleik, spurður hvað hann
sem nýtekinn við starfinu vill fá út
úr sínu fyrsta móti með landsliðið en
liðið tekur þátt í Smáþjóðaleikunum
sem hefjast í Svartfjallalandi eftir
helgina.
„Þetta er fyrsta verkefnið okkar
saman og þar af leiðandi þarf ég að
læra inn á liðið og leita eftir svörum
við spurningum sem brenna á mér
sem nýjum þjálfar. Mótið er kær-
kominn undirbúningur fyrir mig og
leikmenn áður en undankeppni EM
hefst í nóvember,“ sagði Benedikt
ennfremur en íslenska landsliðið
heldur út til Svartfjallands á morgun
eins aðrir keppendur Íslands á leik-
unum.
„Vissulega er stefnan að því að ná
góðum úrslitum úr öllum leikjunum
en fyrst og síðast snýst þátttaka
okkar um að leita að svörum við
þeim spurningum sem brenna á
mér.“
Íslenska landsliðið leikur fimm
leiki á Smáþjóðaleikunum. Andstæð-
ingarnir verða landslið Möltu, Lúx-
emborgar, Mónakó, Kýpur og Svart-
fjallalands sem verða með að þessu
sinni. Leiknir verða fimm leikir á sex
dögum en liðin sex verða saman í
einum riðli á leikunum.
Gaman að mæta Svartfellingum
Landslið Svartfellinga er með
þeim sterkari í Evrópu og tekur í
næsta mánuði þátt í lokakeppni Evr-
ópumótsins. „Það verður gaman að
glíma við landslið Svartfellinga. Það
er alltaf gaman að máta sig sterka
andstæðinga. Af þeim leikjum lærir
maður og mest og sér vel hvar mað-
ur stendur,“ sagði Benedikt.
Tólf konur skipa landsliðshópinn,
þar af eru tveir nýliðar: Sigrún
Björg Ólafsdóttir, Haukum, og Þór-
anna Kika Hodge-Carr, Keflavík.
Bryndís Guðmundsdóttir úr Kefla-
vík er í landsliðinu að þessu sinni í
fyrsta sinn í þrjú ár. Þykir afar kær-
komið að hún gefi nú kost á sér í
landsliðið á nýjan leik enda með
reyndari og betri körfuknatt-
leikskonum landsliðsins um árabil.
„Helena Sverrisdóttir og Bryndís
léku saman með yngri landsliðunum
og þekkja vel hvor til annarrar. Þær
koma með mikla þekkingu og
reynslu inn í hópinn og hafa ákveðið
hlutverk. Síðan eru nokkrir mjög
ungir leikmenn í hópnum og aðrir
sem eru á milli þeirra og hinna elstu.
Ég er að reyna að búa til góða
blöndu af leikmönnum sem ég von-
ast til að muni ná vel saman þegar á
hólminn er komið. Við erum að taka
okkar fyrstu skref saman og lengri
leið. Ég er spenntur að sjá hvernig
við förum af stað,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, sem ráðinn var
landsliðsþjálfari fyrir nokkrum vik-
um.
Í hópnum eru auk þeirra sem áður
en getið: Berglind Gunnarsdóttir,
Snæfelli, Embla Kristínardóttir,
Keflavík, Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Snæfelli, Hallveig Jónsdóttir, Val,
Hildur Björg Kjartansdóttir, Celta
Vigo, Sara Rún Hinriksdóttir, Kefla-
vík, Thelma Dís Ágústsdóttir, Ball
State og Þóra Kristín Jónsdóttir,
Haukum.
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Þóra Kristín Jónsdóttir í leik gegn Bosníu seint á síðasta ári.
Hún er í íslenska liðinu sem keppir á Smáþjóðaleikunum í næstu viku.
Stilla saman strengina
Framundan eru fyrstu leikir kvennalandsliðsins undir stjórn nýs þjálfara
Fimm leikir á sex dögum Kærkomið fyrsta skref fyrir undankeppni EM
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég er í hörkuformi um þessar
mundir,“ sagði Hilmar Örn Jónsson,
Íslandsmethafi í sleggjukasti, í gær
en hann tryggði sér í fyrradag þátt-
tökurétt í sleggjukasti á bandaríska
háskólameistaramótinu í frjáls-
íþróttum þegar hann kastaði allra
karla lengst í Austurdeild undan-
keppni háskólameistaramótsins.
Þetta er þriðja árið í röð sem Hilmar
Örn tryggir sér þátttökurétt á há-
skólameistaramótinu.
Hilmar Örn, sem keppir fyrir Uni-
versity of Virgina, kastaði sleggj-
unni 72,17 metra. Háskólameist-
aramótið fer fram í Austin, Texas,
eftir hálfan mánuð. Mótið hefur um
langt árabil verið haldið í Eugene í
Origon en vegna lagningar nýs vall-
ar þar var mótið flutt til Austin.
„Ég kem inn í mótið með þriðja
besta árangurinn og er í hörkustuði.
Svo það verður spennandi að sjá
hvernig mér gengur,“ sagði Hilmar
sem setti Íslandsmet í sleggjukasti í
síðasta mánuði, 75,26 metra, og
bætti þá 11 ára gamalt met Bergs
Inga Péturssonar um 78 sentimetra.
„Það var mjög sætt að ná loksins
metinu. Ég hafði verið nærri metinu
síðustu þrjú til fjögur ár en alltaf
vantaði eitthvað uppá.“
Hilmar Örn segist fyrst og fremst
hugsa um að ná góðum árangri á há-
skólameistaramótinu og helst ná í
verðlaun. Gott sæti skipti meira máli
en Íslandsmetið. „Ég set bara allt í
botn á háskólameistaramótinu og
vonandi gengur mér vel.“
Hilmar Örn verður næstu vikuna
við æfingar á æfingasvæði skólans,
University of Virgina, áður en hann
fer til yfir til vesturstrandar Banda-
ríkjanna til Austin í Texas. „Þar fæ
ég tvo æfingadaga áður en keppnin
hefst. Ég hef áður keppt í Austin og
þekki allar aðstæður vel auk þess
sem mér gekk vel þar á sínum tíma.
Þar af leiðandi líst mér vel á keppn-
isstaðinn og hlakka til keppninnar.“
Hilmar Örn stundar nám í ensku
og kynjafræði við University of
Virgina. Hann lýkur BA-námi í des-
ember. Hann verður ekki gjald-
gengur í keppni fyrir skólann á
haustönninni og mun einbeita sér að
æfingum á lokaspretti námsins.
Fjótlega eftir keppni á háskóla-
meistaramótinu kemur Hilmar Örn
heim til Íslands þar sem hann verð-
ur fram á haust. „Ég stefni á að
keppa talsvert í sumar og markið er
meðal annars sett á þátttöku á
heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum sem fram fer í Doha í Kat-
ar í lok september og í upphafi októ-
bermánaðar,“ sagði Hilmar Örn
Jónsson, Íslandsmethafi í sleggju-
kasti, við Morgunblaðið í gær.
Úrslit Hilmar Örn Jónsson ætlar sér
stóra hluti á lokamótinu.
„Ég set bara
allt í botn“
Bestur í Austurdeild háskólanna
Björgvin Stefánsson, framherji KR, gæti átt yfir
höfði sér fimm leikja keppnisbann vegna ummæla
sinna í lýsingu á leik Hauka og Þróttar R. í 1.
deild karla í knattspyrnu á fimmtudag. Björgvin
viðhafði kynþáttaníð og baðst afsökunar sam-
dægurs. Fram kom hjá RÚV í gær að ummælin
verða tekin fyrir af aganefnd KSÍ og verður það
væntanlega næsta þriðjudag. KR, Haukar og
Þróttur hafa sent frá sér yfirlýsingar vegna máls-
ins. Frekari umfjöllun um málið á mbl.is.
Ummæli tekin fyrir
Björgvin
Stefánsson