Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 44

Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 44
AFP Leikarar Bandaríski leikarinn Sylvester Stallone og spænska leikkonan Paz Vega stilla sér upp fyrir mynd. Spennan magnast þar sem alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes í Suður-Frakklandi nær hámarki nú um helgina því þá verða aðalverðlaun hátíðarinnar veitt. Hátíðin hef- ur staðið yfir frá 14. maí og lýkur í dag, laugardag. Að þessu sinni heiðrar hátíðin minningu frönsku kvik- myndagerðarkonunnar Agnès Varda sem lést í mars síð- astliðnum. Í dag kemur í ljós hvaða kvikmynd hlýtur hinn virta Gullpálma. Tuttugu og ein kvikmynd frá fjölda landa keppir um verðlaunin. Leikstjórinn Céline Sciamma hef- ur vakið athygli fyrir kvikmynd sína Portrait of a Wom- an on Fire og þykir mörgum hún sigurstrangleg. Franski leikarinn Alain Delon hlaut heiðursverðlaun Gullpálmans í ár. Þess má geta að íslenska kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálsson var frumsýnd á hátíðinni og hefur fengið ágætar viðtökur. Ingvar E. Sig- urðsson var valinn besti leikarinn í Critics‘ Week- dagskránni fyrir hlutverk sitt í myndinni. Sigurstrangleg Franski leikstjórinn Celine Sciamma (fyrir miðju) ásamt aðalleikkonum Portrait of a Woman on Fire. Dregur til tíðinda í Cannes 44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 SALURINN.IS 6. júní kl. 17 Guitar Islancio Frítt inn Sumarjazz GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar Um eitt hundrað myndverk eftir ís-lenska listamenn nokkurra kynslóða verða boðin upp hjá Gallerí Fold við Rauðarárstíg á mánudagskvöldið kemur. Verkin verða sýnd í gall- eríinu kl. 11 til 16 í dag, laugardag, og kl. 12 til 16 á morgun. Í tilkynningu frá Fold segir að boðið verði upp gott úrval abstrakt- verka eftir kunna listamenn á borð við „Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúlason, Kristján Davíðsson, Karl Kvaran og fleiri ásamt geometrísku verki eftir Valtý Pétursson en slík verk hafa verið afar eftirsótt“. Þá verða boðin upp mörg verk eftir „gömlu meistarana, m.a. átta verk eftir Jóhannes Kjarval, bæði vatnslitamyndir og olíumálverk. Ein myndanna er frá skólaárum hans og er sérstök að því leyti að prófess- orinn hefur sett krossa yfir þá hluta sem hann gerði athugasemdir við. Ýmsar aðrar perlur er að finna á uppboðinu og má þar nefna sér- staklega verk eftir Braga Ásgeirs- son, Jóhann Briem, Gerði Helga- dóttur, Louisu Matthíasdóttur og verk úr Gullfossseríu Karólínu Lár- usdóttur. Afar sjaldgæft er að verk eftir Gerði sé boðið til sölu en aðeins þrjú verk eftir hana hafa verið seld á uppboðum á síðustu þremur áratugum,“ segir í tilkynn- ingunni. Þá er á uppboðinu úrval verka eftir samtímalistamenn á borð við Húbert Nóa, Sigurð Guðmundsson, Rósku og Birgi Andrésson. Abstrakt í góðum félagsskap Verðmætt Verk eftir Jóhann Briem sem boðið verður upp á mánudag og er metið á 3 til 3,5 milljónir kr.  Fjölbreytileg verk boðin upp hjá Gallerí Fold Í nýútkominni bók sinni fer Katarina Frostenson, fyrrver- andi meðlimur Sænsku akademíunn- ar (SA), hörðum orð- um um SA, Dagens Nyheter og konurnar sem sökuðu eigin- mann hennar, Jean- Claude Arnault, um kynferðisofbeldi. Bókin, sem nefnist K, vísar að sögn Frostenson ekki að- eins til fornafns hennar heldur einn- ig kærleika, kapals, krísu og kafka- ískra réttarhalda, en Arnault var í lok síðasta árs dæmdur í fangelsi fyr- ir nauðgun. Bókin er skrifuð í dag- bókarformi og hefst þegar 18 konur saka Arnault um kynferðisofbeldi í Dagens Nyheter síðla árs 2017 og lýkur þegar Frostenson hættir í SA 2019. Höfundur sakar konurnar um öfund og athyglissýki ásamt því að ímynda sér ofbeldið sem þær lýsa. Frostenson hefur ekki tjáð sig op- inberlega um málefni Arnault síð- ustu tvö árin og hyggst ekki veita nein viðtöl vegna útgáfu bókarinnar. Rýfur þögnina Katarina Frostenson Norski þýðandinn Tone Myklebost hlaut á fimmtudag þýðendaverðlaun Det skjønnlitterære oversetterfonds á Norsku bókmenntahátíðinni, fyrir framlag sitt til þýð- inga á íslenskum skáldskap. Hún hefur meðal annars þýtt verk eftir Jón Kalman Stefánsson, Gerði Kristnýju og Einar Má Guðmundsson, auk verka eftir nóbels- skáldið Halldór Laxness. Í umsögn valnefndar er lögð áhersla á mikilvægi miðlunar Myklebost á íslenskum bókmenntum til Norðmanna en hún hefur þýtt íslensk verk í hátt í 30 ár. Þá er Tone sögð ein afar fárra sem hafa þá færni að geta snúið flóknum og metnaðarfullum íslenskum bókmenntatextum á lipra norska tungu. Myklebost var einnig sæmd hinni íslensku fálkaorðu fyrir störf sín árið 2017. Þýðandinn Tone Myklebost verðlaunuð Tone Myklebost Dagblaðinu Sydney’s Daily Telegraph hefur verið gert að greiða ástralska leikaranum Geoffrey Rush tæpar þrjár milljónir dollara í miskabætur fyrir ærumeiðingar í hans garð. Dagblaðið hafði blásið upp fréttir þess efnis að leikarinn hefði gerst sekur um ósæmilega hegðun gagnvart mótleikkonu sinni Eryn Jean Norvill í uppsetn- ingu á verkinu Lé konungi. Dómari sakar dagblaðið um kæruleysislegt ábyrgðarleysi í umfjöllun sinni um leik- arann. Um er að ræða hæstu fjárhæð sem greidd hefur verið eftir dómsúrskurð um ærumeiðingar í Ástralíu. Upphæðin er miðuð við tekjutap Rush vegna málsins. Geoffrey Rush greiddar miskabætur Geoffrey Rush Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein og fyrrverandi stjórnarmenn í fyrirtæki hans hafi með aðkomu saksóknaraembætt- isins í New York-borg náð samn- ingum um að greiða 44 milljónir dala, nærri 5,5 milljarða króna, í bætur til kvenna sem sakað hafa framleiðandann um áreitni og kyn- ferðisbrot og hugðust höfða gegn honum einkamál. Munu þær falla frá málaferlunum. Weinstein er eftir sem áður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum, en um áttatíu kon- ur til hafa sakað hann um að hafa brotið á sér og samkvæmt The New York Times er í mörgum til- vikum um áreitni að ræða, ekki op- inber refsiverð brot, en engu að síð- ur geta þær höfðað einkamál. Blaðamenn segja að útkoma við- ræðna við konurnar um bætur muni skipta miklu um það hvort og þá hvernig Weinstein verður dæmdur. Upphæð sjóðsins sem verður handbær til bótagreiðslna er meira en helmingi lægri en áður hafði verið lagt til í viðræðum milli fjár- festa sem höfðu í fyrra áhuga á að kaupa framleiðslufyrirtæki fram- leiðandans, Weinstein Company. Samningaviðræðum var þá slitið á síðustu metrunum en áætlað var að greiða þyrfti konunum sem ásök- uðu Weinstein um 90 milljónir dala. Framleiðandinn Harvey Weinstein með lögfræðingum við réttarsal. 5,5 milljarðar í bætur til kvenna  Weinstein og stjórnarmenn greiða AFP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.