Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Page 6
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
„Þessi mynd er það næsta sem
ég hef komist Pulp Fiction,“
sagði Quentin Tarantino í sam-
tali við tímaritið Esquire á dög-
unum. Á þessu stigi málsins vill
leikstjórinn ekki útskýra nánar
hvað hann á við með þeim orð-
um en fram hefur komið að
myndin samanstandi af mörg-
um litlum sögum sem skarast
með ólíklegasta hætti; rétt eins
og við þekkjum úr Pulp Fiction,
sem gerð var 1994 og flestir líta
á sem meistaraverk leikstjór-
ans.
Tarantino kallar myndina líka
„minnismerkið“ sitt í viðtalinu.
„Alfonso [Cuarón] átti Róm
og Mexíkóborg 1970. Ég átti
LA og 1969. Þetta er ég.
Þetta er árið
sem mótaði
mig. Ég var
sex ára gam-
all. Þetta
var mín
veröld og
þetta er
ástarbréf
mitt til
LA.“
Í samtali við sama tímarit
segir Leonardo DiCaprio: „Ég
held að þetta sé fyrsta Holly-
wood-myndin – þá er ég að tala
um mynd sem gerist í Holly-
wood og fjallar um Hollywood –
sem er hvergi smeyk við að
óhreinka á sér hendurnar og
kafa í daglegt líf leikara og stað-
gengils hans í áhættuatriðum.
1969 var áhrifamikill tími í bíó-
sögunni, rétt eins og í heim-
inum öllum.
Rick og Cliff eru hluti af
gamla skólanum í Hollywood en
eru um leið að reyna að skilja
þennan nýja heim hippabylting-
arinnar og frjálsra ásta.
Frá mínum bæj-
ardyrum séð var frá-
bært að fá tækifæri til
að takast á við þennan
laskaða leikara
sem er að
reyna að
fóta sig í
nýjum
heimi.“
TARANTINO ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTKOMUNA
„Þetta var mín veröld“
Tarantino á
rauða dregl-
inum í Cannes.
Og, hafi ykkur ekki þegarverið það ljóst, þá ann Tar-antino Hollywood og þess
vegna er þetta hið fullkomna ást-
arbréf frá honum.“
Þannig kemst Gregory Ellwood,
kvikmyndagagnrýnandi vefmiðilsins
Collider, að orði í umsögn sinni um
nýjustu mynd Quentins Tarantinos,
Once Upon a Time in Hollywood,
sem forsýnd var á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í vikunni. Ellwood gef-
ur myndinni A í einkunn, en gætir
þess að fara ekki of ítarlega í sögu-
þráðinn, að beiðni leikstjórans sjálfs,
enda verður myndin ekki frumsýnd
fyrr en 26. júlí í Bandaríkjunum og
14. ágúst í Bretlandi. Óþarfi að spilla
upplifuninni fyrir bíógestum.
„Okkur dettur ekki í hug að halda
því fram að Once Upon sé ekki enn
ein Tarantino-myndin sem leikur sér
að því að endurskoða söguna. Sú
staðreynd að Rick býr við hliðina á
Polanski og Tate staðfestir það mjög
snemma. Samt er þetta önnur Ella.
Ólíkt Inglourious Basterds og
Django Unchained er það sem á sér
stað í Once Upon ekki sett fram í
samhengi hefndar eða siðferðislegs
réttlætis. Tarantino fæddist árið
1963 og óx að mestu úr grasi í Los
Angeles. Hann var ekki nema sex
ára gamall þetta örlagaríka kvöld en
veit eigi að síður hvernig það sem þá
gerðist hefur spillt sýn margra á
Hollywood allar götur síðan. Gervi-
sakleysið sem stóru myndversmask-
ínurnar héldu vandlega utan um
hafði verið á hröðu undanhaldi en
glataðist í eitt skipti fyrir öll þetta
kvöld.“
McQueen forfallaðist
Já, það var ekkert venjulegt kvöld,
8. ágúst 1969, þegar nokkur hand-
bendi költleiðtogans Charles Man-
sons myrtu leikkonuna Sharon Tate
og þrjá vini hennar á heimili hennar
og eiginmanns hennar, kvikmynda-
leikstjórans Romans Polanskis, sem
var staddur erlendis. Ástralska leik-
konan Margot Robbie fer með hlut-
verk Tate í myndinni en í aðal-
hlutverkum eru Leonardo DiCaprio,
sem leikur téðan Rick, sjónvarps-
vestrastjörnu sem á undir högg að
sækja, og Brad Pitt, sem fer með
hlutverk áhættuleikarans hans og
besta vinar, Cliff að nafni.
Damon Herriman leikur Manson
og Damian Lewis goðsögnina Steve
McQueen, sem boðið hafði verið í
mat á heimili Tate þetta kvöld en
komst ekki. Af öðrum leikurum sem
koma fram í Once Upon má nefna
Kurt Russell, Al Pacino, Dakota
Fanning og Luke Perry sem sálaðist
í vor. Þetta verður síðasta myndin
sem hann kemur fram í.
Og það eru fleiri en Collider sem
halda ekki vatni yfir Once Upon a
Time in Hollywood; bresku blöðin
The Guardian og The Telegraph
gefa myndinni líka hæstu einkunn,
fimm stjörnur af fimm mögulegum.
Peter Bradshaw, gagnrýnandi
The Guardian, segir að enginn með
rautt blóð í æðum geti komist hjá því
að heillast af snilligáfu Tarantinos
og kastast af kæti milli veggja í kvik-
myndahúsunum yfir kómíkinni í
myndinni en ekki síður skekjast yfir
hryllingnum og grimmdinni og eft-
irmálum ódæðisins.
„Myndinni vindur fram með
heillandi hætti og að mestu leyti án
ofbeldis,“ segir Robbie Collin í The
Telegraph. „Hún er að vísu ekkert
ævintýri, eins og titillinn gefur fyr-
irheit um, en þarna rekur hver smá-
sagan aðra og alls ekki augljóst
hvernig flestar þeirra koma til með
að enda. Endirinn er án efa það sem
talað verður um og galið yrði að
ljóstra honum upp þremur mán-
uðum fyrir frumsýningu – eigi að
síður er óhætt að upplýsa að Rick og
Cliff flækjast inn í málið upp að
vissu marki. Þá hlýtur lýsingin á
morðunum sjálfum að vera það
óhugnanlegasta sem Tarantino hef-
ur gert á sínum ferli. Á einum tíma-
punkti hljóðaði ég upphátt: Ó, nei!“
Innilega djöfullegt
Owen Gleiberman, gagnrýnandi
tímaritsins Variety, er ekki alveg
eins hrifinn. Túlkun Tarantinos á
Manson-stúlkunum sé þó eitursnjöll
og gefi til kynna að sitthvað í Holly-
wood-kosmósinum sé innilega djöf-
ullegt. Honum finnst þó úrvinnslan á
þeim þáttum fullódýr og þótt mynd-
in sé mjög tarantinoleg þegar upp er
staðið þá sé hún fjarri því að vera
byltingarkennd eins og leikstjórans
var von og vísa þegar best lét.
Kvöldið sem
sakleysið dó
Once Upon a Time in Hollywood, nýjasta kvik-
mynd Quentins Tarantinos, var forsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes og hefur fengið glimr-
andi dóma. Hún gerist í Los Angeles sumarið
1969 og býr söguhetjan við hliðina á Sharon Tate.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Stórstjörnurnar Leonardo DiCaprio og Brad Pitt í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Once Upon a Time in Hollywood.
Sá fyrrnefndi leikur sjónvarpsvestrastjörnu á hraðri niðurleið og Pitt er besti vinur hans og staðgengill í áhættuatriðum.
onceuponatimeinhollywood.movie
Margot Robbie leikur Sharon heitna Tate sem býr við hliðina á söguhetjunni.
Hálf öld verður í sumar liðin frá því að leikkonan var myrt á hrottafenginn hátt.
onceuponatimeinhollywood.movie
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
SUMAR
2019