Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 6
HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019 „Þessi mynd er það næsta sem ég hef komist Pulp Fiction,“ sagði Quentin Tarantino í sam- tali við tímaritið Esquire á dög- unum. Á þessu stigi málsins vill leikstjórinn ekki útskýra nánar hvað hann á við með þeim orð- um en fram hefur komið að myndin samanstandi af mörg- um litlum sögum sem skarast með ólíklegasta hætti; rétt eins og við þekkjum úr Pulp Fiction, sem gerð var 1994 og flestir líta á sem meistaraverk leikstjór- ans. Tarantino kallar myndina líka „minnismerkið“ sitt í viðtalinu. „Alfonso [Cuarón] átti Róm og Mexíkóborg 1970. Ég átti LA og 1969. Þetta er ég. Þetta er árið sem mótaði mig. Ég var sex ára gam- all. Þetta var mín veröld og þetta er ástarbréf mitt til LA.“ Í samtali við sama tímarit segir Leonardo DiCaprio: „Ég held að þetta sé fyrsta Holly- wood-myndin – þá er ég að tala um mynd sem gerist í Holly- wood og fjallar um Hollywood – sem er hvergi smeyk við að óhreinka á sér hendurnar og kafa í daglegt líf leikara og stað- gengils hans í áhættuatriðum. 1969 var áhrifamikill tími í bíó- sögunni, rétt eins og í heim- inum öllum. Rick og Cliff eru hluti af gamla skólanum í Hollywood en eru um leið að reyna að skilja þennan nýja heim hippabylting- arinnar og frjálsra ásta. Frá mínum bæj- ardyrum séð var frá- bært að fá tækifæri til að takast á við þennan laskaða leikara sem er að reyna að fóta sig í nýjum heimi.“ TARANTINO ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTKOMUNA „Þetta var mín veröld“ Tarantino á rauða dregl- inum í Cannes. Og, hafi ykkur ekki þegarverið það ljóst, þá ann Tar-antino Hollywood og þess vegna er þetta hið fullkomna ást- arbréf frá honum.“ Þannig kemst Gregory Ellwood, kvikmyndagagnrýnandi vefmiðilsins Collider, að orði í umsögn sinni um nýjustu mynd Quentins Tarantinos, Once Upon a Time in Hollywood, sem forsýnd var á kvikmyndahátíð- inni í Cannes í vikunni. Ellwood gef- ur myndinni A í einkunn, en gætir þess að fara ekki of ítarlega í sögu- þráðinn, að beiðni leikstjórans sjálfs, enda verður myndin ekki frumsýnd fyrr en 26. júlí í Bandaríkjunum og 14. ágúst í Bretlandi. Óþarfi að spilla upplifuninni fyrir bíógestum. „Okkur dettur ekki í hug að halda því fram að Once Upon sé ekki enn ein Tarantino-myndin sem leikur sér að því að endurskoða söguna. Sú staðreynd að Rick býr við hliðina á Polanski og Tate staðfestir það mjög snemma. Samt er þetta önnur Ella. Ólíkt Inglourious Basterds og Django Unchained er það sem á sér stað í Once Upon ekki sett fram í samhengi hefndar eða siðferðislegs réttlætis. Tarantino fæddist árið 1963 og óx að mestu úr grasi í Los Angeles. Hann var ekki nema sex ára gamall þetta örlagaríka kvöld en veit eigi að síður hvernig það sem þá gerðist hefur spillt sýn margra á Hollywood allar götur síðan. Gervi- sakleysið sem stóru myndversmask- ínurnar héldu vandlega utan um hafði verið á hröðu undanhaldi en glataðist í eitt skipti fyrir öll þetta kvöld.“ McQueen forfallaðist Já, það var ekkert venjulegt kvöld, 8. ágúst 1969, þegar nokkur hand- bendi költleiðtogans Charles Man- sons myrtu leikkonuna Sharon Tate og þrjá vini hennar á heimili hennar og eiginmanns hennar, kvikmynda- leikstjórans Romans Polanskis, sem var staddur erlendis. Ástralska leik- konan Margot Robbie fer með hlut- verk Tate í myndinni en í aðal- hlutverkum eru Leonardo DiCaprio, sem leikur téðan Rick, sjónvarps- vestrastjörnu sem á undir högg að sækja, og Brad Pitt, sem fer með hlutverk áhættuleikarans hans og besta vinar, Cliff að nafni. Damon Herriman leikur Manson og Damian Lewis goðsögnina Steve McQueen, sem boðið hafði verið í mat á heimili Tate þetta kvöld en komst ekki. Af öðrum leikurum sem koma fram í Once Upon má nefna Kurt Russell, Al Pacino, Dakota Fanning og Luke Perry sem sálaðist í vor. Þetta verður síðasta myndin sem hann kemur fram í. Og það eru fleiri en Collider sem halda ekki vatni yfir Once Upon a Time in Hollywood; bresku blöðin The Guardian og The Telegraph gefa myndinni líka hæstu einkunn, fimm stjörnur af fimm mögulegum. Peter Bradshaw, gagnrýnandi The Guardian, segir að enginn með rautt blóð í æðum geti komist hjá því að heillast af snilligáfu Tarantinos og kastast af kæti milli veggja í kvik- myndahúsunum yfir kómíkinni í myndinni en ekki síður skekjast yfir hryllingnum og grimmdinni og eft- irmálum ódæðisins. „Myndinni vindur fram með heillandi hætti og að mestu leyti án ofbeldis,“ segir Robbie Collin í The Telegraph. „Hún er að vísu ekkert ævintýri, eins og titillinn gefur fyr- irheit um, en þarna rekur hver smá- sagan aðra og alls ekki augljóst hvernig flestar þeirra koma til með að enda. Endirinn er án efa það sem talað verður um og galið yrði að ljóstra honum upp þremur mán- uðum fyrir frumsýningu – eigi að síður er óhætt að upplýsa að Rick og Cliff flækjast inn í málið upp að vissu marki. Þá hlýtur lýsingin á morðunum sjálfum að vera það óhugnanlegasta sem Tarantino hef- ur gert á sínum ferli. Á einum tíma- punkti hljóðaði ég upphátt: Ó, nei!“ Innilega djöfullegt Owen Gleiberman, gagnrýnandi tímaritsins Variety, er ekki alveg eins hrifinn. Túlkun Tarantinos á Manson-stúlkunum sé þó eitursnjöll og gefi til kynna að sitthvað í Holly- wood-kosmósinum sé innilega djöf- ullegt. Honum finnst þó úrvinnslan á þeim þáttum fullódýr og þótt mynd- in sé mjög tarantinoleg þegar upp er staðið þá sé hún fjarri því að vera byltingarkennd eins og leikstjórans var von og vísa þegar best lét. Kvöldið sem sakleysið dó Once Upon a Time in Hollywood, nýjasta kvik- mynd Quentins Tarantinos, var forsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes og hefur fengið glimr- andi dóma. Hún gerist í Los Angeles sumarið 1969 og býr söguhetjan við hliðina á Sharon Tate. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Stórstjörnurnar Leonardo DiCaprio og Brad Pitt í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Once Upon a Time in Hollywood. Sá fyrrnefndi leikur sjónvarpsvestrastjörnu á hraðri niðurleið og Pitt er besti vinur hans og staðgengill í áhættuatriðum. onceuponatimeinhollywood.movie Margot Robbie leikur Sharon heitna Tate sem býr við hliðina á söguhetjunni. Hálf öld verður í sumar liðin frá því að leikkonan var myrt á hrottafenginn hátt. onceuponatimeinhollywood.movie Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 SUMAR 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.