Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 11
26.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 „Í dag á ég stóran seglbát sem ég sigli í Króatíu en bara til gamans í fríum. Ég fer þangað í 5-6 vikur á hverju sumri.“ Þú virðist hafa mikið keppnisskap og finna þig vel í samkeppni bæði í leik og starfi? „Já, mér finnst gaman að keppa og líklega er ég svolítið eirðarlaus og þess vegna er ég ekki hættur að vinna. Tengdasonur minn segir að ég sé búinn að minnka við mig niður í fulla vinnu,“ segir hann og brosir. Stoltur af upprunanum Núverandi kona Svens, Carina Klingberg Hanson, er mikil hestakona en þau hjón áttu í aldarfjórðung bóndabæ í Frakklandi sem var þeirra annað heimili. Sven segist vera sveita- piltur inn við beinið. „Dóttir mín Mira er mikið borgarbarn en ég er algjör andstæða. Þegar ég er ekki á ferða- lögum kýs ég sveitina en ég á heima í mjög litlum bæ í Sviss, rétt hjá Zug. Ég vil búa úti í sveit,“ segir hann. Sven er sem fyrr segir farinn að venja kom- ur sínar til Íslands og segist finna mikla teng- ingu við land og þjóð. „Það er sorglegt að segja frá því en frá 1946 og til 1974 kom ég aldrei til Íslands. Svo þegar ég kom það árið áttaði ég mig á því hvað mér líkaði það vel og byrjaði að þreifa fyrir mér varðandi viðskipti. Svo bjó systir mín hér í lok níunda áratugarins og þá kom ég oftar. Svo núna kem ég árlega og fer í hjartaskoðun hjá frænda mínum. Við hittumst einu sinni sem börn og svo einu sinni fyrir langa löngu í Gautaborg. En þegar við fórum að hittast svona reglulega áttaði ég mig á því að við höfum mjög svipaðan smekk, til dæmis hvað varðar myndlist og tónlist. Við náum vel saman þrátt fyrir mjög ólíkan bakgrunn,“ seg- ir hann. Segir þú fólki að þú sért hálfíslenskur? „Já, ég geri það með stolti.“ Morgunblaðið/Ásdís Í seinni tíð hafa Sven Ásgeir og kona hans Carina Klingberg Hanson haft mikinn áhuga á hesta- mennsku og kaupum og sölu á veðhlaupahestum. Sven Ásgeir er mikill siglingamaður og landaði sjötta sætinu á Ólympíuleikunum árið 1968. ’ Ég fór í fyrsta skipti til Íslands í júní árið 1946 ígamalli uppgerðri herflugvélog ég man bara að vélin lét illa á leiðinni. Ég held reynd- ar að þetta hafi verið fyrsta flugið milli Svíþjóðar og Íslands, því það var getið um það í sænskum dagblöðum. Því miður hræddi flugferðin mömmu svo mikið að hún fór aldrei aftur til Íslands, sem var sorglegt. Sven á ekki langt að sækja við- skiptavitið, þar sem faðir og af- ar í báðar ættir voru miklir við- skiptamenn. Í minningar- greinum um hinn íslenska afa, Ásgeir Pétursson stórútgerðarmann, sem finna má á forsíðu Íslendings í janúar 1943, er þetta ritað: „Útgerð Ásgeirs óx mjög ört og mun hans jafnan verða minnst sem brautryðjanda á því sviði, og þá fyrst og fremst síldarútvegsins. Var hann árum saman langmikil- virkasti útgerðarmaður norðan- lands, hafði fjölda skipa að veiðum, einn eða í félagi við aðra og skip í förum milli landa að flytja afurð- irnar á erlendan markað, en kol, olíu, salt og annað er til útgerðar- innar þurfti, heim. Fólkið, sem vann að útgerðinni, á sjó og landi, skipti oft mörgum hundruðum, en slíkt athafnalíf hafði í för með sér mikil ferðalög, umsvif og árvekni, er eigi hentaði neinum miðlungs- manni. Öllum sínum athöfnum stjórnaði Ásgeir persónulega. Fylgdist alls staðar með og var alls staðar. Hann sigldi með varninginn á markað, fylgdist með sölu og sá um öll innkaup. Ásgeiri græddist mikið fé, og sérstaklega var öll afkoma hans traust til loka heimsstyrjaldarinnar fyrri. Sjálfur sagði hann, að aldrei hefði honum búnast eins farsæl- lega og á árunum 1905-14. Þá hefðu verið skemmtilegir tímar, sígandi velmegun hjá honum og al- menningi. Að lokum heimsstyrjaldarinnar færðist allt úr eðlilegum skorðum. Framleiðsluvaran var óseljanleg og allir framleiðendur til lands og sjávar biðu ógurlegt og óbætanlegt tjón eins og vitað er. Þá tapaði Ás- geir stórfé og varð tjón hans því meira sem rekstur hans var um- fangsmeiri en annarra. Hann tap- aði svo hundruðum þúsunda skipti, ef ekki milljónum. Þó hélt hann áfram rekstri, – stórhugurinn var hinn sami og kjarkurinn og þrekið óbugandi. Það eitt virtist honum máli skipta, að hjól framkvæmda hans snérist, helzt með sívaxandi hraða. Athafnirnar voru hans líf og yndi. Ágóðinn aukaatriði. Ásgeir var allra manna hjálpsam- astur. Hann mun aldrei hafa neitað manni um bón, ef hann gat greitt úr. Hann hafði yndi af að styðja unga menn til framtaks og dugn- aðar eða mennta. Hann var manna mildastur á fé. Hann gaf og veitti meira og betur en aðrir menn. Það var unun að sjá, þegar Ásgeir gladdi börn og gamalmenni eða þá, sem bágt áttu.“ Ásgeir Pétursson Íslenski afinn var stórút- gerðarmaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.