Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Page 20
Ung kona kíkir í bók undir vökulu auga heldur ófrýnilegrar veru á kaffihúsi,
sem hróflað hefur verið upp skammt frá lestarspori nærri Brick Lane.
Veggirnir hafa líf
Hér eru bara dópistar ogglæpamenn,“ segir leigu-bílstjórinn þegar við nálg-
umst hótelið síðla kvölds. „Þetta er
stórhættulegt hverfi.“
Það er auðvelt í náttmyrkrinu að
ímynda sér að þetta sé rétt, allt frek-
ar skuggalegt og veggirnir þaktir
kroti. Upplýsingar bílstjórans eru
hins vegar úreltar svo munar tveim-
ur eða þremur áratugum. Shore-
ditch er hverfi í Austur-London og
var á sínum tíma frekar niðurnítt.
Fyrir vikið var þar að finna ódýrt
húsnæði sem reyndist draga að
listamenn og stúdenta. Smám sam-
an tók hverfið við sér, fylltist af
verslunum, veitingastöðum og krám;
fylltist af lífi. Nú er það orðið svo
eftirsótt að það styttist í að lista-
menn og stúdentar hafi ekki efni á
að búa þar lengur. Þá finna þeir sér
nýtt Shoreditch og hringrásin hefst
á ný.
Þegar þar að kemur má búast við
að Shoreditch missi aðdráttarafl sitt,
en eins og stendur iðar hverfið af lífi,
utan alfaraleiðar, en er spennandi
hluti af borginni.
Í Shoreditch er hægt að una sér
daglangt við að skoða veggjalist.
Mikið er um að vera í kringum versl-
unargötuna Brick Lane þar sem
finna má allt milli himins og jarðar,
bækur, plötur, hárskera, axlabönd og
annan fatnað, mest notað, en einnig
nýtt, og hreint magnaða tebúð. Þá er
urmull af klúbbum og veitingastöð-
um á Curtain Road og Old Street.
Í Shoreditch ófu húgenottar silki
og hverfið var miðstöð húsgagna-
smíða á öldum áður, en undir lok
nítjándu aldar varð nafn þess sam-
nefnari fyrir glæpi, vændi og fátækt.
Viðsnúningur hverfisins hófst um
miðjan tíunda áratuginn. Nú er
nafnið hins vegar notað þegar lýsa á
hipsteravæðingu þéttbýlissvæða,
sem ganga í endurnýjun lífdaga.
Veggir húsa við Brick Lane og hliðargöt-
urnar í kring geta verið skrautlegir. Á
þessum húsvegg við Buxton Street má
greina John Lennon, hálfgildings auglýs-
ingu fyrir plötuna Charles Bradley, Black
Velvet, og eftiröpun af þekktri auglýs-
ingu fyrir kvikmyndina Guðföðurinn,
nema Trump er kominn í stað Brandos
og á plakatinu stendur The Oddfather.
Morgunblaðið/kbl
Oft þarf ekki mikið pláss til að koma verkum á framfæri. Þessar ólíku myndir
voru á mjórri veggræmu milli útidyra við götuna Brick Lane.
Í hverfinu Shoreditch í London muna menn tímana tvenna. Áður
var það þekkt fyrir glæpi og eiturlyf, en nú hefur það tekið við
sér, iðar af lífi og er einn heitasti bletturinn í borginni.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Ötull málari mundar fumlaus spreybrúsann við vegg í almenningsgarði. Þarna
er verk við verk og óhikað málað yfir þau listaverk sem fyrir eru.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019
LÍFSSTÍLL
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////