Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Síða 20
Ung kona kíkir í bók undir vökulu auga heldur ófrýnilegrar veru á kaffihúsi, sem hróflað hefur verið upp skammt frá lestarspori nærri Brick Lane. Veggirnir hafa líf Hér eru bara dópistar ogglæpamenn,“ segir leigu-bílstjórinn þegar við nálg- umst hótelið síðla kvölds. „Þetta er stórhættulegt hverfi.“ Það er auðvelt í náttmyrkrinu að ímynda sér að þetta sé rétt, allt frek- ar skuggalegt og veggirnir þaktir kroti. Upplýsingar bílstjórans eru hins vegar úreltar svo munar tveim- ur eða þremur áratugum. Shore- ditch er hverfi í Austur-London og var á sínum tíma frekar niðurnítt. Fyrir vikið var þar að finna ódýrt húsnæði sem reyndist draga að listamenn og stúdenta. Smám sam- an tók hverfið við sér, fylltist af verslunum, veitingastöðum og krám; fylltist af lífi. Nú er það orðið svo eftirsótt að það styttist í að lista- menn og stúdentar hafi ekki efni á að búa þar lengur. Þá finna þeir sér nýtt Shoreditch og hringrásin hefst á ný. Þegar þar að kemur má búast við að Shoreditch missi aðdráttarafl sitt, en eins og stendur iðar hverfið af lífi, utan alfaraleiðar, en er spennandi hluti af borginni. Í Shoreditch er hægt að una sér daglangt við að skoða veggjalist. Mikið er um að vera í kringum versl- unargötuna Brick Lane þar sem finna má allt milli himins og jarðar, bækur, plötur, hárskera, axlabönd og annan fatnað, mest notað, en einnig nýtt, og hreint magnaða tebúð. Þá er urmull af klúbbum og veitingastöð- um á Curtain Road og Old Street. Í Shoreditch ófu húgenottar silki og hverfið var miðstöð húsgagna- smíða á öldum áður, en undir lok nítjándu aldar varð nafn þess sam- nefnari fyrir glæpi, vændi og fátækt. Viðsnúningur hverfisins hófst um miðjan tíunda áratuginn. Nú er nafnið hins vegar notað þegar lýsa á hipsteravæðingu þéttbýlissvæða, sem ganga í endurnýjun lífdaga. Veggir húsa við Brick Lane og hliðargöt- urnar í kring geta verið skrautlegir. Á þessum húsvegg við Buxton Street má greina John Lennon, hálfgildings auglýs- ingu fyrir plötuna Charles Bradley, Black Velvet, og eftiröpun af þekktri auglýs- ingu fyrir kvikmyndina Guðföðurinn, nema Trump er kominn í stað Brandos og á plakatinu stendur The Oddfather. Morgunblaðið/kbl Oft þarf ekki mikið pláss til að koma verkum á framfæri. Þessar ólíku myndir voru á mjórri veggræmu milli útidyra við götuna Brick Lane. Í hverfinu Shoreditch í London muna menn tímana tvenna. Áður var það þekkt fyrir glæpi og eiturlyf, en nú hefur það tekið við sér, iðar af lífi og er einn heitasti bletturinn í borginni. Karl Blöndal kbl@mbl.is Ötull málari mundar fumlaus spreybrúsann við vegg í almenningsgarði. Þarna er verk við verk og óhikað málað yfir þau listaverk sem fyrir eru. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2019 LÍFSSTÍLL /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.