Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2019, Blaðsíða 29
ur fram sér fólk hvaða áhrif þessi
þrekraun hafði á alla; hvað fanga-
vistin lagði á fjölskyldur þessara
pilta. Það hrikti í stoðum. Engin
peningaupphæð getur lagað það.
Þetta fólk er ennþá að vinna úr sín-
um málum. Mjaka sér fram veginn.“
Gæti endurtekið sig
DuVernay er líka gagnrýnin á fjöl-
miðla enda þykja fimmmenningarnir
eftir á að hyggja ekki hafa notið
sannmælis á þeim vettvangi. Sumir
hafa meira að segja haldið því fram
að hið eiginlega dómhald hafi farið
fram í fjölmiðlum og meðal almenn-
ings sem sparaði ekki stóru orðin –
og það fyrir tíð samfélagsmiðla.
Frægt er til dæmis að kaupsýslu-
maður nokkur, Donald Trump að
nafni, keypti heilsíðuauglýsingu í til-
efni af árásinni, þar sem hann hvatti
til þess að dauðarefsing yrði tekin
upp að nýju í ríkinu.
Spurð hvort harmleikur sem þessi
gæti endurtekið sig svaraði
DuVernay játandi. „Klárlega.
Spurningin er hvort við getum farið
nógu rækilega yfir það sem gerðist
til að fyrirbyggja að það endurtaki
sig. Einmitt þess vegna er ég svo
mikil áhugamanneskja um sagn-
fræði og sækist gjarnan eftir sögu-
legu samhengi í verkum mínum. Við
getum aðeins lagað ástandið með því
að skilja til fulls hvað átti sér stað.
Það erum við að bjóða fólki upp á
með þessum þáttum.“
Lítt þekktir leikarar fara með
hlutverk fimmmenninganna: Jharrel
Jerome, Jovan Adep, Chris Chalk,
Freddy Miyares og Justin Cunning-
ham. Meðal annarra leikenda má
nefna Michael K. Williams, Veru
Farmiga, John Leguizamo, Famke
Janssen og Felicity Huffman úr Að-
þrengdum eiginkonum.
Verið tilnefnd til verðlauna
Ava DuVernay hefur vakið athygli
fyrir verk sín á umliðnum árum en
henni er réttindabarátta þeldökkra
Bandaríkjamanna mjög hugleikin.
Þekktust er hún líklega fyrir kvik-
myndina Selmu, sem hún var til-
nefnd til Golden Globe-verðlauna
fyrir, og heimildarmyndina 13, en
fyrir hana var hún tilnefnd til ósk-
arsverðlauna. Í fyrra leikstýrði hún
ævintýramyndinni A Wrinkle in
Time og í sjónvarpi hefur hún hing-
að til verið þekktust fyrir aðkomu
sína að dramaþáttunum Queen Sug-
ar sem hún gerir meðal annars í
samstarfi við Opruh Winfrey.
Úr nýju þáttunum,
When They See Us.
Netflix
Leikstjórinn Ava DuVernay hefur
sérstakan áhuga á réttinda-
baráttu þeldökkra.
AFP
26.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ROKK Rokkdrottningin Joan Jett
rifjaði upp óskemmtilega reynslu í
samtali við bandarísku útvarpsstöð-
ina 93.3 WMMR fyrir skemmstu.
Hún var þá að hita upp fyrir málm-
bandið Scorpions á Ítalíu, einhvern
tíma á níunda áratugnum, og var í
orðsins fyllstu merkingu böðuð í
hráka frá áhorfendum. Hún botnaði
ekkert í þessu á þeim tíma en frétti
löngu síðar að þeir skorpjónar
hefðu skipt um upphitunarband og
þarna hefðu ósáttir aðdáendur hins
bandsins verið á ferð.
Böðuð í munnvatni á Ítalíu
Joan Jett eldhress á eitís-tímanum.
Pinterest
BÓKSALA 15.-21. MAÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan
2 Þín eigin saga: Draugagangur Ævar Þór Benediktsson
3 Þín eigin saga: Piparkökuhúsið Ævar Þór Benediktsson
4 Röskun Íris Ösp Ingjaldsdóttir
5
Gamlinginn sem hugsaði
með sér að hann væri
farinn að hugsa of mikið
Jonas Jonasson
6 Pax 2 – uppvakningurinn Åsa Larsson/Korsell/Jonsson
7
Þegar kona brotnar – og
leiðin út í lífið á ný
Sirrý Arnardóttir
8
Handbók fyrir Ofurhetjur
4 – vargarnir koma
Elias/Agnes Vahlund
9 Independent People Halldór Laxness
10 Gullbúrið Camilla Läckberg
1 Þín eigin saga: Draugagangur Ævar Þór Benediktsson
2 Þín eigin saga: Piparkökuhúsið Ævar Þór Benediktsson
3 Pax 2 – uppvakningurinn Åsa Larsson/Korsell/Jonsson
4
Handbók fyrir Ofurhetjur
4 – vargarnir koma
Elias/Agnes Vahlund
5 Brandarar fyrir grínendur Walt Disney
6
Kettlingurinn sem enginn
vildi eiga
Holly Webb
7 Barist í Barcelona Gunnar Helgason
8 Hvar er mamma Chris Haughton
9 Hver vill hugga krílið? Tove Jansson
10 Kormákur dýravinur Jóna Valborg/Elsa Nielsen
Allar bækur
Barnabækur
Þar sem skömmin skellur er ný bók eftir Önnu Dóru
Antonsdóttur sagnfræðing. Skárastaðamálið í
Húnavatnssýslu er 160 ára gamalt sakamál. Ung-
barn deyr voveiflega og annað barn kemur ekki í ljós
hvernig sem leitað er. Reglur samfélagsins eru
brotnar og yfirvöld skerast í leikinn. Fleiri brot koma
til kasta sýslumanns, málin gerast snúin og tímafrek
í réttarkerfinu. Þungir dómar falla. Í bókinni er skyggnst í dóma-
bækur og fleiri samtímaskjöl, framburði vitna gerð skil og lesið í
eyður. Að lokum er fylgst með sakborningum eftir að dómar eru
kveðnir upp. Skárastaðamálið hefur lengi legið í þagnargildi, nú er
þögnin rofin. Espólín gefur út.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Undanfarnar tvær vikur hef ég að-
allega lesið frumvörp og athuga-
semdir við þau þar sem ég tók
nokkuð óvænt sæti á Alþingi sem
varaþingmaður. Þessi plögg eru
misskemmtileg frá fagurfræðilegu
sjónarhorni svo að blessunarlega
hef ég fleira að grípa í fyrir svefninn.
Ég er meðlimur í stórskemmti-
legum og metnaðarfullum bóka-
klúbbi, Angústúru, en þaðan rata
til mín vandaðar
þýðingar frá ólíkum
heimshornum. Nýj-
asta bókin Glæpur
við fæðingu fjallar
um uppistandarann
og stjórnmálaskýr-
andann Trevor
Noah. Mér leiðast sögur af stór-
stjörnum svo ég byrjaði ekki strax
á henni, en ég át alla slíka fordóma
ofan í mig þegar ég hóf lesturinn.
Nýlega las ég Svik-
arann eftir Lilju
Magnúsdóttur, sem
er ágætis frumraun
og hentaði vel sem
afþreying í lok langra
daga. Ég er líka að
lesa Ráðgátuna
Henri Pick eftir David Foenkinos í
þýðingu Yrsu Þórðardóttur. Fram-
an af fannst mér eins og bókin væri
aðallega gefin út af því að hún
fjallar um bókaútgefanda, að útgef-
endur hefðu loksins fengið bók sem
speglar þeirra eigin veruleika, sem
ég hef samúð með, enda eru þeir
sjaldséðir sem aðalpersónur. En
svo tekur bókin meira flug og nú er
ég að nálgast lokametrana.
Síðast en ekki síst, þá verð ég að
nefna barnabækurnar en þær les ég
meira og ítrekaðar
en nokkuð annað
þessi misserin, í fé-
lagi við dóttur
mína sem er á
öðru ári. Hún hef-
ur mestan áhuga á dýrabókum en
það er áhugavert að bækur minnar
barnæsku virðast höfða mikið til
hennar. Við liggjum yfir Orðabelg
sem var gefin út af Erni og Örlygi
árið 1980 og Lifandi heimi dýranna
sem Setberg gaf út árið 1988.
Emma öfugsnúna vekur líka lukku
suma daga, en aðra daga vill dóttir
mín ekki líta við henni. Við erum
öll Emma öfugsnúna, stundum.
HALLA ER AÐ LESA
Meðlimur í Angústúru
Halla Gunnars-
dóttir er
ráðgjafi ríkis-
stjórnar og
varaþingmaður.
Dusty Hill og Billy
Gibbons. ZZ Top
hefur starfað í
óbreyttri mynd
síðan 1970.