Morgunblaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Borg Verslunin fyrir 13 árum.
Versluninni Borg í Grímsnesi hefur
verið lokað „Þetta er mjög mikill
missir,“ segir Ása Valdís Árnadóttir,
oddviti Grímsnes- og Grafnings-
hrepps, um málið.
Skellt var í lás í versluninni fyrir
páska. „Það átti að loka henni í
nokkra daga vegna viðgerða en svo
hefur ekkert verið opnað aftur.“ Ása
segir ástæðu lokunarinnar á huldu
enda hafi ferðamannastraumur ekki
minnkað að undanförnu.
Lokunin muni hafa slæm áhrif á
hreppinn. „Þetta er náttúrlega bara
litla búðin okkar. Þrastalundur er
auðvitað opinn en hann er í jaðri
hreppsins á meðan verslunin Borg
er á Borg, sem er þéttbýlið okkar,“
segir Ása. Um 20 kílómetrar eru í
næstu matvöruverslun.
Auk íbúa í Grímsnes- og Grafn-
ingshreppi hefur fjöldi sumarhúsa-
eigenda skipt við verslunina svo ár-
um skiptir.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að unnið sé að því að opna verslunina
að nýju þótt ekki sé víst hvenær það
verður. ragnhildur@mbl.is
Skellt í lás
í verslun-
inni Borg
Hefur slæm áhrif
á fólkið í hreppnum
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þinglok ekki fyrir dyrum
Þrætt um hvaða málum verði frestað Stjórnarandstaðan kemst ekki að sam-
komulagi Krónu á móti krónu skerðingum verði breytt í 65 aura á móti krónu
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Lítil eining ríkir um það meðal formanna stjórn-
málaflokkanna á þingi hvaða mál beri að klára á
þessu löggjafarþingi og hvaða málum megi fresta
fram á næsta haust. Formennirnir funduðu allir í
Alþingishúsinu í gær í von um að komast að nið-
urstöðu um þetta. Eftir fundinn sat stjórnarand-
staðan ein eftir og fundaði áfram.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir í
samtali við Morgunblaðið að stjórnarandstaðan sé
ekki sammála um hvaða mál hún óski eftir því að
verði kláruð á þessu þingi en að ágreiningurinn sé
að verða minni og minni. „Við höfum verið að reyna
að draga fram hvaða mál þessir flokkar vilja setja á
oddinn áður en þingi lýkur,“ segir Katrín. „Það sem
er líka flókið í þessari stöðu er að stjórnarandstaðan
er ekki sameinuð um hvaða mál það eru, heldur eru
það mjög ólík mál hjá hverjum flokki,“ segir hún.
Katrín sér að óbreyttu ekkert því til fyrirstöðu að
þingið standi langt fram á sumar, jafnvel fram í
ágúst: „Annað eins hefur gerst.“ Hún segir að vel
komi til greina að fresta málum sem illmögulegt er
að klára á þessu þingi en að orkupakkinn sé ekki
dæmi um slíkt, þar séu allar röksemdir komnar
fram og þær muni ekki breytast þótt málið bíði.
Atkvæðagreiðsla um 13 mál
Þingi ætti að verða frestað ekki á morgun heldur
hinn samkvæmt starfsáætlun en morgunljóst er
orðið að svo fer ekki. Í dag hefst þingfundur klukk-
an 9.30 en fyrir hann funda þingflokksformenn með
forseta þingsins. Að loknum óundirbúnum fyrir-
spurnatíma hefst atkvæðagreiðsla um 13 mál sem
er búið að afgreiða út úr umræðum, þar á meðal eru
umferðarlög og heilbrigðisstefna. Fjármálaráð-
herra mælir að þeim atkvæðagreiðslum loknum fyr-
ir breyttri fjármálastefnu, sem Katrín leggur
áherslu á að verði afgreidd. Hið sama segir Katrín
um frumvarp sem félags- og barnamálaráðherra
mun mæla fyrir, sem mun fela í sér breytingu úr
skerðingu um krónu á móti krónu á launum örorku-
lífeyrisþega í skerðingu um 65 aura á móti krónu.
Um næsta mál þar á eftir er Katrín ekki eins vongóð
að sátt ríki en það er þingsályktunartillagan um
þriðja orkupakkann. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Miðflokksins, sagði í samtali við
mbl.is í gær að Miðflokkurinn hygðist ræða orku-
pakkann áfram með óbreyttu sniði yrði honum ekki
frestað fram á haust, eins og er krafa þeirra.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Stjórn fyrirtækisins Hlemmur mat-
höll ehf. hefur óskað eftir viðræðum
við Reykjavíkurborg um stækkun
Hlemms þar sem fyrirtækið rekur
vinsæla mathöll. Þetta staðfestir Þór
Sigfússon, eigandi fyrirtækisins, í
samtali við Morgunblaðið. „Við höfum
áhuga á að stækka Hlemm með það
fyrir augum að geta haft rými bæði
fyrir gesti og líka hugsanlega sem
bændamarkað í borginni,“ segir Þór.
Málið enn á byrjunarstigi
Hann segir að hugmynd fyrir-
tækisins sé að stækka byggingu
Hlemms um um það bil 200 fermetra í
austurátt. Hann leggur þó áherslu á
að málið sé á byrjunarstigi enda hafi
enn ekkert svar fengist frá Reykja-
víkurborg. „Við sendum þetta inn í
því ljósi að við vitum að borgin er að
hugsa sér breytingar á svæðinu,“ seg-
ir Þór.
Þór er einnig eigandi Mathallarinn-
ar á Granda sem opnaði í fyrradag
fiskmarkað. „Þar erum við að kynna
sjávarútveginn en við viljum með
sama hætti gera eitthvað af þessu tagi
á Hlemmi,“ segir Þór.
Gróðurhús í miðborginni
Hann segir að slíkar viðbætur og
þær viðtökur sem þær hafi fengið séu
góðs viti. „Þetta segir okkur að við
eigum að geta haldið áfram með þess-
ar mathallir með því að tengja okkur
betur við grunninn eins og landbún-
aðinn, bændur og sjávarútveginn,“
segir Þór. „Við höfum áhuga á að
skoða eins konar gróðurhús í mið-
borginni sem ég held að geti verið
skemmtileg viðbót í borgarlífið,“ seg-
ir hann. „Við erum alltaf að hugsa
eitthvað. Það verður bara að koma í
ljós hvort það er áhugi á þessu.“
Vilja stækka Hlemm um 200 m²
Óska eftir stækkun Hlemms í ljósi breytinga á miðbænum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlemmur mathöll Hefur frá opnun
verið afar vinsæll matsölustaður.
Svo virðist sem ekkert flug með
bandaríska flugfélaginu Delta Air
Lines frá JFK flugvelli í New York
hingað til lands verði flogið næsta
vetur. Á heimasíðu flugfélagsins var
í gær aðeins hægt að bóka ferðir til
Íslands fram til tuttugasta október
og svo ekki að nýju fyrr en þriðja
mars á næsta ári. Félagið hefur boð-
ið upp á áætlunarflug á þessum legg
frá því árið 2011. Fyrst um sinn var
aðeins um sumarflug að ræða, en
síðustu þrjá vetur hefur félagið einn-
ig flogið hingað yfir veturinn.
Delta hættir vetrar-
flugi til Íslands
„Þetta hefur verið besta hátíðin til þessa,“ segir
Össur Hafþórsson sem stendur fyrir Íslensku
tattúráðstefnunni sem haldin var í fjórtanda sinn
um helgina í Gamla bíói. „Þetta heppnaðist alveg
afskaplega vel. Við fengum ofsalega góðar og
fallegar undirtektir.“ Össur segist ekki vera með
tölu á því hversu margir sóttu ráðstefnuna en
telur það vera á þriðja þúsund. Hann segir eft-
irtektarvert hversu mikið var um að eldra fólk
fengi sér tattú á hátíðinni. „Hópurinn er að
stækka, þetta er ekki bara ungt fólk sem fær sér
tattú.“
Fólk á öllum aldri húðflúrað á tattúráðstefnu
Morgunblaðið/Hari