Morgunblaðið - 03.06.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
Því er haldið fram að enginhætta sé á ferðum vegna
þriðja orkupakkans vegna þess að
Alþingi muni ákveða að Alþingi
þurfi að veita leyfi fyrir raforku-
sæstreng, annars verði hann ekki
lagður. Í því sambandi er athygl-
isvert það sem Arnar Þór Jónsson
héraðsdómari ritaði um þetta mál í
liðinni viku í fram-
haldi af viðtali við
Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráð-
herra, þar sem
Katrín sagðist ekki
vilja sæstrenginn en
að allir lögfræð-
ingar væru sam-
mála um að þriðji
orkupakkinn fæli
ekki í sér sæstreng
nema með ákvörðun
þingsins.
Arnar Þór segistekki treysta
sér til að tala fyrir munn allra lög-
fræðinga eins og forsætisráð-
herrann, en bendir á: „Fyrirvarar
Alþingis munu engu skipta þegar
búið verður að fjármagna þennan
sæstreng (hvort sem það verður
innlent eða erlent fyrirtæki sem
gerir það). Ástæðan er sú að ef ís-
lenska ríkið reynir þá enn að
standa í vegi fyrir því að streng-
urinn verði lagður mun verða höfð-
að samningsbrotamál gegn Íslandi.
Íslenska ríkið mun augljóslega
tapa því máli þar sem orka er vara,
sbr. fjórfrelsisákvæðið um frjálst
flæði á vörum.
Þetta er nokkuð sem menn hefðuþurft að ræða heiðarlega (og
ítarlegar) á fyrri stigum. Í fram-
haldinu hefði þá verið hægt að
ræða efnislega um hagkvæmni /
kostnað, kosti / galla þess að senda
íslenska raforku til annarra landa.
Í þeim þætti umræðunnar hefðu ís-
lenskir stjórnmálamenn a.m.k. fast-
ara land undir fótum en forsætis-
ráðherrann hefur í þessu viðtali.“
Arnar Þór
Jónsson
„Fyrirvarar Alþingis
munu engu skipta“
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Yfir vetrartímann hafa bílar verið að keyra út á
túnið, sérstaklega þegar norðurljósin hafa verið
sterk. Á góðum dögum er svo mikil bílaumferð að
það er lagt þvers og kruss og yfir göngustíginn.
Við viljum sporna við utanvegaakstri og verja
bæði umhverfið og gangandi vegfarendur,“ segir
Hannes Tryggvi Hafstein, formaður umhverfis-
nefndar Seltjarnarness.
Vegfarendur um útivistarsvæðið við Gróttu á
Seltjarnarnesi hafa veitt því athygli að ráðist hef-
ur verið í endurbætur þar. Hringtorgið við
Snoppu hefur verið endurhannað á smekklegan
hátt og vegurinn hefur verið varðaður með stein-
um til að koma í veg fyrir að bílar keyri utan veg-
ar.
Ferðabann er um friðlandið við Gróttu frá 1.
maí ár hvert og fram til 15. júlí. Að sögn Hannesar
hefur landvörður frá Umhverfisstofnun gætt frið-
landsins við upphaf varptímans í ár og er það í
fyrsta skipti frá því eyjan var friðlýst árið 1974. Þá
munu líffræðinemar við Háskóla Íslands sinna
náttúruvörslu og rannsóknum á framgangi fugla-
varps og mögulegum hættum er steðja að varpinu
í sumar. Óheimilt er að vera með hunda á vest-
ursvæðunum á varptíma og er mælst til þess að
kattaeigendur setji bjöllu á kettina og haldi þeim
innandyra þar til varptíminn er yfirstaðinn.
Bregðast við utanvegaakstri á Nesinu
Morgunblaðið/sisi
Við Gróttu Steinum hefur verið raðað við veginn.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Íslendingar fóru tómhentir heim af
hátíðlegri athöfn í Hörpu á laugar-
daginn var en þar voru norrænu
matarverðlaunin, Embluverðlaunin,
afhent í viðurvist ríflega 300 gesta.
Danir, Finnar og Færeyingar hlutu
tvenn verðlaun hverjir og Svíar ein.
Var verðlaunaafhendingin haldin í
tengslum við norrænt þing mat-
reiðslumeistara sem fór fram á
föstudag og laugardag auk þess sem
úrslit í kokkakeppnum Norður-
landanna voru tilkynnt samhliða af-
hendingunni. Embluverðlaunin eru
samstarfsverkefni allra bænda-
samtaka á Norðurlöndunum og eru
veitt á tveggja ára fresti með það að
markmiði að upphefja norræna mat-
armenningu og vekja athygli á fólk-
inu í matvælageiranum. Tilnefndir
frá Íslandi voru Gísli Matthías Auð-
unarson matreiðslumaður, fyrir-
tækið Matartíminn, veitingadeild
IKEA, Hákon Kjalar Herdísarson í
Traustholtshólma, Íslensk hollusta
og bændurnir á Erpsstöðum í Dölum
og Vogabúi í Mývatnssveit.
Fjöldi matgæðinga á
Embluverðlaununum
Morgunblaðið/Hari
Embluverðlaunin Kristján Þór Júlíusson afhenti verðlaun í Hörpu.